Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 21
MORGUNB LAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 21
Lífís
Innflutningsgjöldum aflétt
Paprikuverð lækkar
um allt að 60%
ÞANN 1. nóvember síðastliðinn
var innflutningsgjöldum af fjórum
grænmetistegundum aflétt,
tómötum, agúrkum, paprikum og
salati.
Að sögn Ólafs Friðrikssonar
deildarstjóra hjá landbúnaðar-
ráðuneytinu lækkaði til dæmis
innflutningsverð á tómötum og
agúrkum úr 15% verðtolli og 99
krónu magntolli í enga vernd. Að
auki við þessa lækkun er verð á
spánskri papriku mjög hagstætt
um þessar mundir en frá Spáni fá
margir innflytjendur paprikuna.
Jón Ásgeir Jóhannesson hjá
Bónus segir lækkunina á græn-
meti nema allt að 60% og nefnir
sem dæmi að græn paprika hafi
lækkað hvað mest hjá sér, kílóið
hafi verið á 400 krónur en sé nú
selt á 159 krónur. Kílóið af tómöt-
um kostar nú 159 krónur hjá Bón-
us og stykkið af agúrkum 49 krón-
ur.
Að sögn Jóns Scheving mark-
aðsstjóra matvöru hjá Hagkaupi
mun Hagkaup að sjálfsögðu fylgja
þeim lækkunum sem verða á inn-
kaupsverði þessara grænmetis-
tegunda.
Kílóið af lauk kostar 39 krónur í
Nóatúni þessa dagana og
paprikukílóið kostar 199 krónur. í
gær, þegar talað var við forsvars-
menn hjá Nóatúni, var búist við
verðlækkun á agúrkum og tómöt-
um í dag.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MILLI 50 og 60 manns hafa selt handverk
á Garðatorgi að undanförnu.
Handverksmark-
aður á Garðatorgi
SÍÐASTLIÐIN tvö ár hefur hand-
verksmarkaður verið haldinn hálfs-
mánaðarlega á Garðatorgi. Þar
hafa að undanfómu komið saman
milli fimmtíu og sextíu manns sem
sýna og selja handverk.
Bryngeir Vattnes hefur umsjón
með handverksmarkaðnum núna
og hann segir að í desember standi
til að hafa hann opinn um hverja
helgi og vera með ýmsar jólalegar
uppákomur.
Handverksmarkaðurinn verður
opinn næsta laugardag og Bryngeir
segir að einhverjir séu að byrja að
selja jólavarning. Annars er hand-
verksfólkið að selja trévörur, postu-
lín, prjónavöru, glervöru, málverk
og ýmislegt fleira.
Ymsar verslanir á Garðatorgi
eru með opið á sama tíma og mark-
aðurinn. Kvenfélag Garðabæjar
annast kaffísölu og býður upp á ný-
bakaðar vöfflur með rjóma og
sultu.
Dagleg hreinsun
nauðsynlegur
góðrar munnhirðu.
Corega extradent töflur fjarlœgja erfiöa bletti sem safnast á yfirborð
gervitannana. Þœr drepa sýkla og eyða lykt.
Corega extradent töflur innihalda munnskolsefni með mlntubragöi sem
heldur munninum þœgilega ferskum.
Prófaðu einnig Corega Ultra tannlím, tannfestiefni sem heldur tönnunum
fastar og lengur - veitir aukin þœgindi og öryggi allan daginn.
Þú getur getur óhindrað borðaö eftirlœtis réti þína
ef þú notar Corega Ultra Ifm.
Corega hreinsivörur fyrir gervigóma eru fáanlegar
í öllum stórmörkuðum og aþótekum.
VELDU COREGA, FYRIR
FULLKOMNA HIRÐU Á GERVITÖNNUM
TIL stendur að hafa handverks-
markaðinn opinn alla laugar-
daga ídesember.
FRAMLEIÐANDI: Stafford-Mlller Ltd DREIFING: Pharmaco hf.
Welwyn Garden Clty, Herts AL7 3SR ENGLAND. Hörgatuni 2,210 Garöabœ, s: 565 8111.
Nóatún
40% af-
sláttur af
folalda-
kjöti
í DAG, fímmtudag, hefst út-
sala á fersku folaldakjöti hjá
Nóatúnsbúðunum. Um er að
ræða 18-20 tonn af kjöti af
sumaröldum folöldum og af-
slátturinn er á bilinu 35-40%.
Að sögn Jóns Þorsteins
Jónssonar hjá Nóatúni hefur
verð á folaldakjöti heldur
hækkað að undanfömu en
Sláturfélag Suðurlands og
Nóatún sameinuðust um sölu-
átak á umræddu magni af fol-
aldakjöti.
Sem dæmi má nefna að fol-
aldasnitsel sem áður kostaði
1.169 krónur kílóið kostar
núna 745 krónur, gúllas fer úr
998 í 645 krónur kflóið og
hryggvöðvi fer úr 1.399 krón-
um í 895 krónur.
Lltríkar hannyrðavörur - Hú á nýjum stað
Útsaumspakkar, útsaumsgam, heklugam, prjónagam,
kerti, tehettur o.fl. gjafavörur.
Hverfisgötu 117, sími 551 0585
Opið í nóv. kl. 10-18 (lokað í hád. kl. 12-13), laugard. opið kl. 11-16.