Morgunblaðið - 06.11.1997, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
í ljósaskiptunum, Qrðið í norðri - norræn bókasafns- og menningarvika
Samtímis lesið úr Egils sögu
á öllum Norðurlöndum
ÚTLIT norrænu bókasafns- og menningarvikunnar er hannað af
nýútskrifuðum grafiskum hönnuði, Auði Björnsdóttur.
MÁNUDAGINN 10. nóvember kl.
18, að íslenskum tíma, verður sam-
tímis lesinn kafli úr Egils sögu í
yfir 1.000 bókasöfnum á öllum
Norðurlöndunum, allt frá Græn-
landi í vestri til Finnlands í austri.
Tilefni upplestrarins er norræn
bókasafnsvika undir yfírskriftinni í
ljósaskiptum, Orðið í norðri, sem
ætlað er að beina athygli fólks,
ekki síst ungmenna, að sameigin-
legum menningararfi norrænna
bókmennta og frásagnarhefð. Raf-
ljós verða slökkt og kveikt á kertum
og saman verður lesinn á öllum
Norðurlöndunum kaflinn úr Egils
sögu þar sem segir frá dauða Böðv-
ars og harmi Egils og því hvernig
Þorgerður dóttir hans beitir sam-
talstækni til að sefa sorgir föður
síns.
Á þessu heillandi dæmi um mátt
orðsins hefst norræna bókasafns-
og menningarvikan sem er á vegum
Kynningarfélags norrænu bóka-
safnanna og norrænu bókavarðafé-
lögin í samvinnu við norrænu félög-
in og NORDLIV-verkefnið. Nor-
rænu félögin hafa staðið að verk-
efninu undanfarin 3 ár sem miðar
að því að efla norræna vitund og
styrkt er af norrænu ráðherra-
nefndinni. Setningarathöfn fer
fram í Þjóðarbókhlöðunni kl. 18
mánudaginn 10. nóvember. Upples-
ari verður frú Vigdís Finnbogadótt-
ir. Leikin verður tónlist og leikhóp-
urinn Bandamenn sýnir leikþætti
unna upp úr Njálu og Laxdælu.
Fjölbreytt dagskrá bókasafna
um allt land
í tilefni vikunnar hyggst Lands-
bókasafn íslands, Háskólabókasafn
setja upp sýningu tengda Agli
Skalla-Grímssyni og Egils sögu en
60 bókasöfn víðs vegar um landið
bjóða upp á sérstaka dagskrá
tengda Norðurlöndum þessa vik-
una. í Norræna húsinu verður sýn-
ing um Norðurlöndin og íbúa þeirra,
Á norrænni slóð, saga landanna til
dagsins í dag sem farið hefur um
öll Norðurlöndin. Frá Finnlandi
kemur sýningin Kropssprog, Lík-
amstjáning, sem fjallar um það
hvernig manneskjan tjáir sig með
fasi og framkomu og hvernig tíska
og tíðarandi ólíkra staða setur mark
sitt á útlit fólks. Hópur ungra ljóð-
skálda, Nuori Voima, les upp úr
verkum sínum á finnsku og sænsku
með íslenskum þýðingum. Hópurinn
skipar stóran sess í fínnskum nú-
tímabókmenntum og innan hans
starfa ungir og framsæknir rithöf-
undar og listamenn. Árið 1994
stofnaði hópurinn ljóðaklúbb í sam-
starfí við stærsta bókaforlag í Finn-
landi, WSOY, sem ferðast hefur
með upplestra víðs vegar um Finn-
land. Dagskrá ljóðaklúbbsins verður
á miðvikudag kl. 18.
Alit frá bókmenntum til
matarmenningar
Það er norræna félagið á íslandi
sem stendur að Norrænu bóka-
safnsvikunni. Að sögn Kristínar
Kvaran, formanns félagsins, hefur
hugmyndin vakið athygli um öll
Norðurlönd, undirtektir hafa verið
framar vonum og áherslur landanna
hveijar með sínu sniði. „Svo
skemmtilega vill til að sænski
barnabókahöfundurinn, Astrid
Lindgren, verður níræð í vikunni
og verður hún heiðruð með vegleg-
um hætti um öll Norðurlönd. Fjallað
verður um menningu Norðurland-
anna í víðum skilningi, allt frá bók-
menntum, tónlist, myndlist og kvik-
myndum til matargerðarlistar,"
segir Kristín. Bókasöfnin bjóða t.d.
upp á kynningu á norrænum nóbels-
skáldum, á norrænu jólahaldi,
menningu víkinganna, norrænum
þjóðbúningum, listsýningar, sögu-
stundir og upplestra úr verkum
norrænna höfunda, leikþátta, kvik-
mynda og ljóðasamkeppni barna og
unglinga.
Mikið af kynningarefni hefur
verið unnið og sent frá íslandi í
tilefni bókasafnsvikunnar og Krist-
ín segir að alls hafi um 7 tonn af
pappír, í formi bæklinga, póstkorta
og plakata, verið dreift til hinna
Norðurlandanna. Félagið leitaði til
útskriftarnema í grafískri hönnun
frá Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands með hönnun kynningarefnis-
ins og fyrir valinu varð tillaga Auð-
ar Björnsdóttur. Einkennismynd
verkefnisins sýnir sólarlag í Grafar-
voginum út um glugga í Bergen.
Sýningnm lýkur
Þjóðminjasafn íslands
SÍÐASTA sýningarhelgi á
ljósmyndum finnans Tapio
Heikkálá sem staðið hefur yfir
í Bogasal frá því í september
og nefnist „Finnskt búsetu-
landslag" verður nú um helg-
ina. Sýningunni lýkur á sunnu-
dag.
Þjóðminjasafnið er opið
þriðjudag, fímmtudaga, laug-
ardag og sunnudaga frá kl.
12-17.
Gallerí Stöðlakot
Sýningu Ingu Rósu Lofts-
dóttur á bláprentsmyndum
lýkur á sunnudag.
Stöðlakot er opið daglega
frá kl. 14-18.
Gallerí Listakot
8. einkasýningu Önnu
Gunnlaugsdóttur, Er guð
kona? lýkur mánudaginn 10.
nóvember.
Galleríið er opið alla daga
frá kl. 12-18, nema sunnudag
frá kl. 14-18.
Gallerí Handverk &
hönnun
Tréskurðarsýningu Þórhalls
Hólmgeirssonar lýkur á laug-
ardag.
Galleríið er opið þriðjudaga
til föstudaga kl. 11-17 og
laugardaga kl. 12-16.
Gallerí Fold
Málverkasýningu Elínar G.
Jóhannsdóttur, Gjár og gjótu-
líf, í baksal gallerísins lýkur
nú á sunnudag.
I kynningarhorninu sýnir
Sara Vilbergsdóttir pastel-
myndir. Þeirri sýningu lýkur
einnig á sunnudag.
Gallíið er opið daglega frá
kl. 10-18, laugardaga kl.
10-17 og sunnudaga kl.
14-17.
Damasksýning í Safamýri
Damasksýningu Ragnheiðar
Thorarensen, umboðsmanhs
Georg Jensen Damask, lýkur á
sunnudag. Sýningin er opin
laugardag og sunnudag, frá
kl. 13-18 í Safamýri 91.
Listsköpun í Sviss,Ung-
verjalandi og á Islandi
Sviss. Morgunblaðið.
SÝNINGARSALURINN shed im
eisenwerk er í gamalli verksmiðju
í iðnaðarhverfí Frauenfeld í Sviss.
Ég var ekki viss um að ég væri á
réttum stað þegar ég kom inn í
salinn. Lítil eimreið ók hring eftir
hring um járnbrautarteina sem
lágu í gegnum grænt teppi sem
hafði verið stillt upp eins og indí-
ánatjaldi. Gulir áhorfendastólar
stóðu á litlum palli. Það var hálf-
dimmt. David Bosshard aðstoðar-
sýningarstjóri sagði að ég væri á
réttum stað.
Grár kassi var á borðinu sem
hann sat við. Þar ofan í voru
geymdar fílmur að myndum sem
einn listamannanna hafði tekið á
meðan sýningin var sett saman.
Fjórtán listamenn frá þremur lönd-
um tóku þátt í henni, þar á meðal
Katrín Sigurðardóttir, Haraldur
Jónsson og Steingrímur Eyfjörð
frá íslandi. Hinir listamennimir
voru frá Sviss og Ungveijalandi.
Harm Lux skipulagði sýninguna í
samvinnu við Beatrix Ruf, Bama-
bas Bencsik og Halldór Björn Run-
ólfsson. Þau standa að sams konar
sýningum í Búdapest og Reykjavík
á næsta ári.
Listamennimir höfðu aldrei unn-
ið saman fyrr. Hugmyndin var að
Listamennirnir
fóru í fjallgöngu
þar sem þeir
skiptust á hug-
myndum
þeir kæmu saman, hver úr sinni
áttinni og sköpuðu listaverk í sam-
einingu úr efni og í rými sem var
til staðar. Myndband, sem gengur
stöðugt á sýningunni, sýnir hvern-
ig verkið þróaðist. Það var tekið á
vél sem eimreiðin ýtti á undan sér
á meðan listamennirnir unnu. Þeir
svissnesku undirbjuggu komu er-
lendu listamannanna lauslega en
innísetningin eða sköpun lista-
verksins sjálfs stóð í þá 10 daga
sem listamennirnir voru saman í
Frauenfeld. Þau vissu við komuna
að svart tjald, spennt í hring í sýn-
ingarsalnum var rammi verksins.
Sýningin dró nafn sitt af því og
var kölluð Roundabout.
Listamennimir byijuðu á því að
fara í fjallgöngu til að kynnast og
skiptast á hugmyndum. Bosshard
sagði að fjallgangan hefði líklega
leitt til þess að græna teppinu var
stillt upp. Það var alls ekki indíána-
tjald heldur fjall sem sveitavegur
með tré á báðar hliðar lá um. Eim-
reiðin ók í gegnum fjallið og þegar
betur var að gáð var hellir - eða
önnur jámbrautargöng - neðst í
því. Myndband Haraldar Jónssonar
gekk stöðugt inni í fjallinu.
Innísetningin átti að vera sam-
eiginlegt verk listamannanna og
listsköpun þeirra sem einstaklinga
átti ekki að skipta máli. Þó benti
Bosshard á nokkra hluti og nefndi
hver hefði átt hugmyndina eða
gert verkið. Myndasaga eftir ung-
versku hjónin Agnes Szepfalvi og
Zsolt Veress skreytti til dæmis
góðan part svarta tjaldsins,
keramík plattar með hugmyndum
Steingríms Eyfjörðs um litla hluti
sem em ókeypis lágu undir járn-
brautarteinunum _og það fór ekki
fram hjá mér að íslendingar höfðu
verið að verki við töflu sem einnig
var á sýningunni.
Roundabout í Frauenfeld stóð í
sex vikur. Listamenn frá sömu
löndum og unnu að sýningunni þar
hittast í Búdapest á næsta ári og
setja upp sýningu þar. Síðasta sýn-
ingin í þessari samvinnu verður
haldin í Nýlistasafninu í Reykjavík
næsta haust.
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
KEILULAGA fjall með járnbrautargöngum var áberandi á sýn-
ingunni Roundabout sem þrír íslendingar tóku þátt í í Frauen-
feld í Sviss í haust. Myndband Haraldar Jónssonar gekk stöð-
ugt inni í fjallinu.
GULIR áhorfendastólar, grár kassi, róla, krot á gólfinu og tafla
með íslenskum setningum voru hluti af listaverkinu.