Morgunblaðið - 09.01.1998, Síða 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
6. TBL. 86. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Allsherjar-
verkfall í
F æreyjnm
Þórshöfn. Morgunblaðið.
SÓLARHRINGS allsherjarverkfall
skall á í Færeyjum á miðnætti sl.
nótt. Boðaði 21 verkalýðsfélag til
verkfallsins til að mótmæla efna-
hagsstefnu færeysku landstjórnar-
innar, m.a. leikskólakennarar og
aðrir opinberir starfsmenn. Verður
efnt til mótmæla síðdegis í dag.
Ein helsta ástæða óánægjunnar
er nýleg ákvörðun stjórnvalda um
að lækka skatta sjómanna, til að
koma í veg fyrir að þeir flytji lög-
heimili sitt til útlanda. Telja verka-
lýðsfélögin að landstjómin ausi út
fé á báðar hendur í stað aðhalds í
peningamálum. Þá telja þau að
skattalækkunin sé liður í þeirri
stefnu stjórnarinnar að lækka laun,
rétt eins og skatta.
---------------
Heimsmeistaramót FIDE
Teflt til úr-
slita í dag
INDVERJINN Viswanathan An-
and vann Rússann Anatólí Karpov í
sjöttu skák þeirra á heimsmeistara-
móti FIDE, sem íram fer í Sviss.
Karpov gafst upp eftir 42 leiki.
Jafnaði Anand þar með metin, 3-3,
og ráðast úrslit einvígisins í stuttum
skákum í dag.
■ Andand vann/12
Faðir ann-
ars hvers
nemenda
Ankara. Reuter.
FORELDRAKVÖLDIN í
þorpsskólanum í Satirlar í
Tyrklandi eru fámenn en góð-
menn, þvi helmingur nemend-
anna 70 eru úr sömu fjöl-
skyldu.
Þegar nemendur komu sam-
an eftir áramótin kom í ljós að
35 nemendanna eiga sama föð-
ur. Hann heitir Ziya Yasar og
á alls 51 barn með þremur
konum. 35 þeirra eru saman í
skóla en tvö til viðbótar hafa
ekki náð skólaaldri.
ESB sendir þrjá
fulltrúa til Alsír
Alsírsk stjórnvöld leyfa komu
sendinefndar með skilyrðum
London, Algeirsborg. Reuters.
EVÓPUSAMBANDIÐ (ESB) hef-
ur ákveðið að senda fulltrúa til Alsír
til að kynna sér ástandið í landinu
en röð ofbeldisverka hefur kostað
um 1.000 Alsírbúa lífið á síðustu tíu
dögum. Utanríkisráðherra Alsír,
Ahmed Attaf, sagði í gær að sendi-
nefnd ESB væri velkomin, svo
fremi sem ætlun hennar væri að
takast á við hryðjuverkamenn, sem
hún sakar um að standa að baki
morðum á óbreyttum borgurum.
Attaf sagði hins vegar að ekki kæmi
til greina að leyfa sendinefndinni að
rannsaka sjálf ofbeldisverkin, það
væru „frekleg afskipti af innanríkis-
málum“.
Alsírstjóm hefur hingað til hafn-
að öllum tillögum um alþjóðlega að-
stoð og eftirlit vegna blóðbaðsins í
landinu en í gær kvað við nýjan tón,
þótt greinilegt sé að starf sendi-
nefndarinnar verður takmörkunum
háð.
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, kynnti hugmynd ESB í
gær en samkvæmt henni fara full-
trúar frá Bretlandi, Lúxemborg og
Austurríki til Alsír. Ekki er hins
vegar ljóst hvenær af för þeirra
verður. Sagði Cook að auk þess sem
fulltrúarnir ættu að kynna sér
ástandið í landinu ættu þeir að gera
Alsírstjórn ljóst hversu miklar
áhyggjur Evrópuþjóðir hefðu af því
og bjóða aðstoð til að lina þjáningar
almennings í Alsir.
Þrjátíu myrtir
til viðbótar
Ekkert lát er á ofbeldisverkum í
landinu, í gær var sagt frá um 30
morðum til viðbótar. Flestar árás-
imar hafa verið gerðar í Relizane-
héraði, setið hefur verið fyrir fólki á
vegum úti og ráðist inn á heimili
þess, það brennt inni, skorið á háls
eða hálshöggvið.
Orvingluð
flóttakona
ÖRVINGLUÐ kúrdísk flóttakona
ásamt syni sínum í flóttamanna-
búðum skammt norður af Aþenu
í gær. Konan er ein 400 Kúrda í
grísku búðunum, en hópurinn
flýði frá írak og Tyrklandi.
Flóttafólkið hefur óskað eftir því
að fá pólitískt hæli á Italíu.
Itölsk stjórnvöld segja flótta-
mennina sæta ofsóknum heima
fyrir og hafa boðið þá velkomna í
óþökk annarra Evrópusambands-
ríkja, sem óttast holskeflu flótta-
fólks, m.a. til Þýskalands. Hubert
Vedrine, utanríkisráðherra
Frakklands, sem átti í gær við-
ræður við Ismail Cem, tyrknesk-
an starfsbróður sinn, sagði að
þeim loknum að Kúrdarnir væru
ekki allir pólitískir flóttamenn en
Tyrkir halda því fram að stór
hluti fólksins sé að flýja bágbor-
inn efnahag.
■ Dregur fram galla/22
Reuters
Mordechai hótar afsögn
Jerúsalem. Reuters.
OLL spjót standa nú á Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra Israels, en hann reyndi í gær
að draga úr spennu í samskiptum sínum við
Yitzhak Mordechai, varnarmálaráðherra lands-
ins, og bandarísk stjórnvöld. Mordechai hefur
hótað afsögn standi ísraelska stjórnin ekki við
gefin loforð um eftirgjöf landsvæða til Palestínu-
manna og Bandaríkjamenn eru afar ósáttir við þá
ákvörðun stjórnar Netanyahus að stækka land-
nemabyggðir gyðinga í Efrat og Elkana. Hvatti
Netanyahu harðlínumenn í ríkisstjórninni, sem
eru andvígir friðarsamningum við Palestínu-
menn, til að stuðla að því að hreyfing komist á
friðarviðræðumar og sagðist ella ekki eiga neina
samleið með þeim.
Harðlínumenn hafa hótað því að fella ríkis-
stjórn Netanyahus verði hún við kröfum Palest-
Netanyahu hvetur harð-
línumenn til að fallast á
að gefa landsvæði eftir
ínumanna og bandarískra stjórnvalda um að láta
meira landsvæði af hendi á Vesturbakkanum.
Hófsamir stuðningsmenn stjórnarinnar hafa hót-
að hinu sama standi stjórnin ekki við fyrirheit sín
um eftirgjöf landsvæða. Einn þeirra er Mord-
echai, en til að ítreka kröfur sínar hótaði hann i
gær afsögn gerðist þetta ekki innan þriggja mán-
aða.
Sú ákvörðun Israelsstjórnar að stækka land-
nemabyggðirnar gerir Dennis Ross, sendifull-
trúa Bandaríkjastjórnar, afar erfitt fyrir en hann
hefur reynt að koma friðarviðræðum ísraela og
Palestínumanna af stað að nýju. Gagnrýndi Ross
harðlega ákvörðun stjómarinnar eftir fund sem
hann átti með Yasser Arafat, forseta sjálfsstjórn-
ar Palestínumanna.
Fimm hlutu viðurkenningar
Stjórn Netanyahus stendur afar tæpt eftir af-
sögn Davids Levy utanríkisráðherra um síðustu
helgi og hafa áhrif harðlínumanna í stjóminni
aukist að sama skapi. Engu að síður beindi Net-
anyahu orðum sínum í gær að þeim og hvatti þá
til að koma friðarviðræðunum af stað. Sagði hann
að ríkisstjórnin hefði ekki umboð til að sitja með
hendur í skauti og sagði að ef hægrimenn
slægjust ekki í lið með honum í friðarsamningum
hlytu leiðir að skilja.
Skýstrókar
valda
skemmdum
FRANSKIR slökkviliðsmenn kanna
skemmdir sem urðu á raflínum
skammt frá bænum Saint-Omer-
Capelle í norðurhluta Frakklands
eftir að skýstrókur gekk yfir sex
þorp og bæi í fyrrinótt. Gífurlegar
skemmdir urðu á mannvirkjum og
að minnsta kosti fimm manns slös-
uðust í Frakklandi.
Þá skemmdust um 1.000 hús í
bænum Selsey, suðvestur af
London, er annar skýstrókur fór
yfir suðurhluta Bretlands en veður
hefur verið óvenju slæmt í
Bretlandi og Frakklandi síðustu
vikur.