Morgunblaðið - 09.01.1998, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yiðræður vinstri
flokkanna fara
hægt af stað
VIÐRÆÐUR um sameiginlegt
framboð stjórnarandstöðuflokk-
anna eru enn á undjrbúningsstigi
að sögn Sighvats Björgvinssonar,
formanns Alþýðuflokksins, við-
ræðurnar væru ekki hafnar að
neinum krafti. Hann segist þó
vona að þær leiði til niðurstöðu í
mars eða apríl.
Sighvatur sagði að það væri
ekki búið að ganga frá skipulagi
viðræðnanna í einstökum atriðum.
Ekki væri t.d. búið að skipa mál-
efnahópa, en hann sagðist gera
ráð fyrir að það yrði gert. Fram
að þessu hefðu forystumenn
flokkanna rætt saman um undir-
búninginn, en sjálfar viðræðurnar
myndu hefjast af fullum krafti
síðar í þessum mánuði.
Sighvatur sagði að ekki væri
búið að setja niður neina áætlun
um hvernig viðræðum ætti að
miða áfram. Alþýðubandalagið
Oddur Þóris-
son ritstýrir
Heimsmynd
RÁÐINN hefur verið nýr rit-
stjóri að Heimsmynd og er
það Oddur Þórisson. Tekur
hann við af Sigursteini Más-
syni sem sagði upp starfi sínu
nýverið.
Oddur hefur verið aðstoðar-
ritstjóri Heimsmyndar. Með
honum við ritstjórnina mun
starfa Þórarinn Jón Magnús-
son, aðalritstjóri Gamla út-
gáfufélagsins, sem gefur út
Heimsmynd.
hefði sett sér það markmið að við-
ræðurnar hefðu skilað niðurstöð-
um fyrir vorið, en sjálfur sagðist
hann leggja áherslu á að hraða
málinu og fá efnislega niðurstöðu
helst í mars eða apríl.
Sameiginlegt framboð í
þingkosningum er markmiðið
Sighvatur sagði að Alþýðu-
flokkurinn færi í þessar viðræður
í þeim tilgangi að ná fram sameig-
inlegu framboði á vinstri væng
stjórnmálanna í næstu alþingis-
kosningum. Alþýðubandalagið
hefði sem kunnugt væri ekki svar-
að þessari spurningu með jafnótví-
ræðum hætti. Hann sagðist telja
að ef það næðist málefnaleg sam-
staða milli Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Kvennalista væri
sameiginlegt framboð rökrétt nið-
urstaða af því. Það væri engin
ástæða til þess að flokkarnir
gengju tvístraðir til kosninga ef
milli þeirra væri málefnaleg sam-
staða.
Sighvatur sagðist ekki eiga von
á að það yrði neitt að frétta af
þessum viðræðum á allra næstu
vikum.
Alþýðubandalagið með
miðstjórnarfund um
sj ávarútvegsmál
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
kemur saman til fundar um næstu
mánaðamót, fyrst og fremst til
að ræða um stefnu í sjávarútvegs-
málum. Sighvatur sagði að forysta
flokksins þyrfti eðlilega að veija
talsverðum tíma til að undirbúa
þann fund, en vonandi yrði engu
að síður hægt að þoka viðræðum
vinstri flokkanna áfram samhliða.
Morgunblaðið/Kristinn
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir tekur fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu Melaskólans að viðstödd-
um fjölmörgum nemendum skólans.
Ný við-
bygging við
Melaskóla
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri tók í gær fyrstu
skóflustunguna að viðbyggingu
við Melaskólann í Reykjavík, en
búist er við því að fyrstu kennslu-
stofurnar verði teknar í notkun
næsta haust. Viðbyggingin verð-
ur tveggja hæða steinsteypt hús
samtals um 1.399 fermetrar. Hún
verður tengd gömlu byggingunni
með hálfniðurgröfnum tengi-
gangi. Áætlaður byggingar-
kostnaður er 230 milljónir króna
og er búist við að byggingin verði
fullfrágengin með lóð haustið
1999. Ögmundur Skarphéðinsson
arkitekt er hönnuður hússins, en
Ragnhildur Skarphéðinsdóttir
landslagsarkitekt hannaði lóð.
1997 var metár hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. í magni og verði
Erlend framleiðsla jókst
um 43% frá fyrra ári
Morgunblaðið/Golli
SH REKUR nú tíu söluskrifstofur erlendis sem kynntar voru
fundarmönnum í gær, en hér ræðir Friðrik Pálsson, forstjóri
SH, við þá Gylfa Þór Magnússon, framkvæmdasljóra erlendra
verkefna, og Sturlaug Sturlaugsson frá HB á Akranesi.
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna
hf. seldi á síðasta ári samtals
133.700 tonn, skv. bráðabirgða-
tölum, að verðmæti 29 milljarðar
króna sem er 4% aukning bæði í
magni og verði frá árinu 1996. Árið
1996 var metár í magni og það
næstbesta í verðmætum til þessa.
Árið 1997 er enn eitt metárið hjá
SH, bæði hvað varðar magn og verð-
mæti. Þetta kom fram í máli Frið-
riks Pálssonar, forstjóra SH, á verk-
stjórafundi í gær.
Erlend framleiðsla jókst um 43%
frá fyrra ári. Þar af vegur karfínn
mjög þungt eða 12.200 tonn og
hafði aukist um 7% frá fyrra ári
þrátt fyrir samdrátt í kvótum. í
heildina var erlenda framleiðslan
21.600 tonn. Inni í erlendu fram-
leiðslunni nú eru 2.100 tonn af fersk-
um og frosnum Nílarkarfa, sem unn-
inn er við Viktoríuvatn í Afríku í
samvinnu SH og fyrirtækis í Kenýa.
Síðan eru 1.900 tonn af smokkfiski,
sem komu frá Mexíkó og 2.600 tonn
af síld frá erlendum framleiðendum.
Fyrir utan erlendu framleiðsluna er
það einkum tvennt, sem stendur upp
úr. Annars vegar er það pilluð rækja,
en af henni seidi SH 23% meira árið
1997 en 1996, og hins vegar skel-
rækja, en þar var aukningin 18% frá
fyrra ári. I þorski er einnig aukning,
4% frá fyrra ári.
Hagstætt ár
í máli Friðriks kom fram að árið
1997 yrði á heildina Iitið að teljast
hagstætt fyrir alla samstæðuna og
yrði ársins að líkindum minnst sem
mikils tímamótaárs hjá SH. Félag-
inu hafi fyrir það fyrsta verið breytt
í hlutafélag og nú væri unnið að
því að fá það skráð á Verðbréfa-
þing. Tvær nýjar söluskrifstofur,
ein í Moskvu og hin í Shanghai,
voru opnaðar á árinu og innkaupa-
skrifstofa í Noregi til að ná aukinni
samhæfingu í innkaupum fyrir sölu-
netið erlendis. Einnig hafi verið
fjárfest nokkuð í stóru heildsölufyr-
irtæki í Rússlandi sem SH tók við
rekstri á um mitt árið auk þess sem
starfsemi Sæmarks hf. hafi verið
stóraukin og m.a. allur útflutningur
á ferskum afurðum fluttur þangað.
Leita eftir afurðum
erlendis í verkfalli
Friðrik sagði að hér eftir sem
hingað til skipti mestu að gæði og
áreiðanleiki bæði vöru og þjónustu
stæðu fyllilega undir væntingum
kaupenda. „Það hlýtur að vera okk-
ur öllum mikið áhyggjuefni að fram-
undan virðast átök í kjaramálum
sjómanna og útvegsmanna og
margir spá því að tæplega verði
komist hjá verkfalli. Við þessar
aðstæður verðum við að gera allt
sem í okkar valdi stendur til að
tryggja að viðskiptavinir okkar
verði fyrir eins litlum óþægindum
og mögulegt er ef til verkfalls kem-
ur.
Við munum þess vegna gera það
sem við getum til að reyna að
tryggja okkur afurðir annars staðar
frá eftir því sem tök eru á til að
geta brugðist við ef svo óheppilega
vili til að til verkfalls komi sem
stöðvar þar með framleiðsluna hér
innanlands. Hitt er svo annað mál
að því fer víðs fjarri að við gætum
bætt úr nema að litlu leyti þeim
skaða sem yrði ef til verkfalls kæmi
á viðkvæmum tíma og það stæði í
einhverjar vikur,“ sagði forstjóri
SH.
Sjálfstæðismenn
í Kópavogi
Tveir bæj-
arfulltrú-
anna hætta
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi vegna sveitarstjórnar-
kosninganna í vor verður haldið 7.
febrúar næstkomandi og hafa ellefu
karlar og sex konur gefið kost á sér
á lista flokksins.
Tveir núverandi bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins gefa ekki kost
á sér í prófkjörinu en það eru þeir
Guðni Stefánsson og Arnór L. Páls-
son sem lengi hafa verið bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins í Kópa-
vogi.
Þeir sem gefa kost á sér í prófkjör-
inu eru Gunnar 1. Birgisson, Bragi
Mikaelsson, Halla Halldórsdóttir,
Sigurrós Þorgrímsdóttir, Helgi
Helgason, Sesselja Jónsdóttir og
Gunnsteinn Sigurðsson, sem öll hafa
áður tekið þátt í prófkjöri, og þau
Ásdís Ólafsdóttir, Ármann Óskars-
son, Erla Björk Þorgeirsdóttir, Hall-
dór Jörgensson, Sigfús Schopka,
Margrét Björnsdóttir, Lárus Ragn-
arsson, Pétur Birgisson, Sigurður
Konráðsson og Sveinbjörn Kristjáns-
son, sem ekki hafa áður tekið þátt
í prófkjöri.
Gunnar I. Birgisson sem skipað
hefur 1. sætið á lista sjálfstæðis-
manna í Kópavogi í tveimur síðustu
bæjarstórnarkosningum sækist eftir
1. sætinu áfram. Þær Ásdís Ólafs-
dóttir og Halla Halldórsdóttir stefna
á 2. sætið og að öllum líkindum einn-
ig Bragi Mikaelsson, sem þó kann
að gefa kost á sér í 1. sætið á móti
Gunnari.