Morgunblaðið - 09.01.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 19
GM neitar frétt
um niðurskurð
íslenskir fjár-
festar ehf.
semja við verð-
bréfasjóði
ÍSLENSKIR fjárfestar ehf. - verð-
bréfamiðlun hafa nú gert sam-
starfssamninga við öll íslensku
verðbréfafyrirtækin, sem reka
verðbréfasjóði. Þá fékk fyrirtækið
aðild Verðbréfaþingi íslands þann
5. desember sl. Það getur nú ann-
ast viðskipti fyrir viðskiptavini sína
með öll íslensk verðbréf auk bréfa
í fjölmörgum alþjóðlegum verð-
bréfasjóðum. Fram til þessa höfðu
íslenskir fjárfestar lagt höfuðá-
herslu á viðskipti með alþjóðleg
verðbréf, að því er segir í frétt frá
fyrirtækinu.
Áhersla er lögð á óháða og per-
sónulega þjónustu löggilts verð-
bréfamiðlara við hvern og einn við-
skiptavin. Bent er á að nær öll
verðbréfafyrirtæki hér á landi ann-
ist sjálf rekstur verðbréfasjóða og
bjóði viðskiptavinum sínum ekki
bréf í sjóðum sem eru í vörslu og
umsjón keppinautanna. íslenskir
íjárfestar ehf. - verðbréfamiðlun -
bjóði viðskiptavinum sínum hins-
vegar bréf í verðbréfasjóðum allra
íslensku verðbréfafyrirtækjanna.
Höfuðáherslan sé þá lögð á hags-
muni og óskir viðskiptavinanna en
ekki hver sé umsjónaraðili hvers
sjóðs.
♦ ♦ ♦------
INTIS lækkar
gjöld fyrir al-
netsambönd
INTERNET á íslandi hf., INTIS,
lækkaði bandvíddargjöld fyrir al-
netsambönd nú um áramótin og
tilkynnti um leið fyrirhugaða
stækkun sambands til Norður-
Ameríku úr fjórum megabitum á
sekúndu í sex. Jafnframt því rekur
INTIS tveggja megabita samband
til Evrópu sem fyrr.
Lækkunin er á bilinu 7-12% eft-
ir bandvídd notenda. Samkvæmt
nýrri gjaldskrá INTIS kostar t.d.
hvert kílóbit á mánuði 648 krónur
í smásölu hjá þeim sem hafa 16-
64K bandvídd. Lækkar verðið úr
697 krónum frá eldri gjaldskrá eða
um 7%. Á einu ári hefur verðið
lækkað úr 850 krónum eða um
24%.
Gjaldskrá Intis er að finna á
netinu undir slóðinni: http://www.
isnet.is/is/gj aldskra.html
Að sögn Sigurðar Jónssonar hjá
INTIS liggur ekki fyrir endanlega
hvenær sambandið verður stækkað
við Norður-Ameríku, en reiknað er
með því að af því verði í þessum
mánuði.
------♦ ♦ ♦-----
Norðurál velur
Concorde XAL
NORÐURÁL hf. hefur undirritað
samning við Hug-forritaþróun um
kaup á viðskiptahugbúnaðinum
Concorde XAL fyrir fyrirtækið.
Stefnt er að gangsetningu álversins
í byijun júní. Þegar rekstur verður
kominn í fullan gang mun Conc-
orde XAL m.a. halda utan um öll
Qármál, innkaup, flutninga, birgðir
og eignir. Þá er einnig áhugi á að
nýta búnaðinn til halda utan um
birgðahreyfíngar í vöruhúsi.
Fram kemur í frétt frá Hug-for-
ritaþróun að rekstur Norðuráls sé
umfangsmikill og talsvert flókinn.
Á meðan á byggingu álversins
stendur sé einnig mikilvægt að
halda vel utan um alla kostnaðar-
þætti. Þá segir að Concorde XAL
hafi verið notað hjá íslenska álfé-
laginu um nokkurra ára skeið. Því
hafi verið fyrir hendi sérþekking
hjá Hug-forritaþróun á notkunar-
möguleikum Concorde XAL í þess-
ari iðngrein.
Frankfurt. Reuters.
ADAM OPEL AG segir að móður-
fyrirtækið General Motors hafí
ekki lagt fram áþreifanlegar áá-
ætlanir um niðurskurð þrátt fyrir
blaðafréttir um að þúsundum
kunni að verða sagt upp.
Blöðin Wa.ll Street Journal og
Financial Times höfðu sagt að GM
hygðist bráðlega hrinda í fram-
kvæmd fyrirætlunum um upp-
sagnir 20-30% starfsmanna fyrir-
tækisins í Evrópu á næstu fimm
árum.
Niðurskurðurinn mun líklega
bitna aðallega á starfsemi GM í
Þýzkalandi, þar sem rekstrar-
kostnaður er hár, að því er blöðin
höfðu eftir aðalframkvæmdastjóra
GM, John Smith, og Louis Hug-
hes, sem hefur umsjón með starf-
semi GM utan Norður-Ameríku.
Haft er eftir Smith að niður-
skurðurinn sé nauðsynlegur vegna
vaxandi samkeppni. Sagt var að
hann hefði viðurkennt að hröð
sókn GM inn á upprennandi mark-
aði kunni að hafa átt þátt í að
grafa undan samkeppnishæfni
fyrirtækisins í Evrópu.
Haft var eftir Hughes að fækk-
un starfsmanna jafngilti ekki
undanhaldi frá Evrópu og hann
benti á auknar fjárfestingar á síð-
ari árum í því sambandi.
Smith og Hughes ræddu við
fréttamenn á bílasýningunni í
Detroit á sama tíma og Opel kvaðst
hafa færzt nær samkomulagi við
starfsmenn um atvinnuöryggi.
Smith sagði Journal að GM
vildi skera niður kostnað af keyptu
efni, sem væri 60-70% af heildar-
kostnaði.
Kostnaður jókst um 25%
Athuganir GM hafa leitt í ljós
að kostnaður af Evrópustarfsem-
inni hafí aukizt um 25% síðan
1992 í 9,37 milljarða dollara.
Starfsmömnnum hefur verið
fækkað úr 93,000 1990 í um
80,000 nú.
Systurfyrirtæki Opels í Bret-
landi, Vauxhall, kvaðst ekki búast
við róttækri endurskipulagningu á
starfseminni.
Smith sagði Financial Times að
styrkur pundsins hefði aukið
kostnað í Bretlandi og dregið úr
líkum á að þriðja gerðin auk Astra
og Vectra yrði smíðuð þar.
ÚTSÖLUELMl
14" - 33“ sJénansMd, iirwHwlsUcfci, sJÉwarpsmratorélar,
WÉlaWasawaM, feriaHwifflald, fwðageisiaspilanr, irtwljislnf,
mlmm, iMniiprnðPiáiiiT, HTiimiflsiaT, Tn'jíisiimiiiíiiimf, koiMla; tolp'rtiiTirc,
ÉHanBldHdar, vasaðski, wMMán, Wkm, bemartáL sflfpiðHimpTimM,
limMij iiíiT, fqMHsM ImMfiimT §1 m, narst flafea I
Nó er tæhilærið að gera Irábær kaup
Fyrstir koma - fyrstir lá!
Skipholti 1 9
Sími: 552 9800