Morgunblaðið - 09.01.1998, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
FRÁ undirritun samningsins. Standandi frá vinstri: Ólafur Þór Jó-
hannsson, frá RSF, Henry Wilhelms, liafnarstjóri fiskihafnarinnar í
Bremerhaven og Samúel Hreinsson, ísey. Siljandi eru Ingvar Örn
Guðjónsson, RSF, og Jochen Jantzen, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs-
ins í Bremerhaven.
RFS hefur selt
uppboðskerfí
til Bremerhaven
Kerfið hefur þegar verið tekið
í notkun í Bandaríkjunum
NÝLEGA var gengið frá samningum
milli Fiskmarkaðarins í Bremerhaven
(FB) og Reiknistofu fiskmarkaða hf.
(RSF) um sölu á CASS, ensku útgáfu
Tengils (tölvukerfis RSF) til Fisk-
markaðarins í Bremerhaven. Kerfið
verður aðlagað þýskum aðstæðum og
fullbúið til notkunar í Þýskalandi í
mars. Forstöðumenn FB hyggjast
nota þá möguleika kerfisins að tengja
kaupendur utan Bremerhaven við
kerfið og gera þeim þannig kleift að
kaupa fisk óséð og styrkja markaðinn
í Bremerhaven. Isey Fischimport
GmbH, sem er í eigu Samúels Hreins-
sonar, tók við Fiskmarkaðnum í
Bremrhaven fyrsta janúar síðastliðinn
og hyggst hann efla hann og telur að
CASS sé nauðsynlegt tál að ná þeim
markmiðum sem hann hefur sett.
Mikilvægur fyrir RFS
„Þessi samningur er einnig mjög
mikilvægur fyrir RSF þar sem þetta
er fyrsta landið í EB sem notar
CASS og gefuf frekari möguleika á
þessum markaði. Unnið hefur verið
hægt og bítandi að því að komast
inn á þennan markað og því ánægju-
legt að það skuli nú hafa tekist,“
segir í frétt frá reiknistofu fisk-
markaða.
I febrúar á síðasta ári var CASS
tekið í notkun í Bandaríkjunum og
hefur gengið vel og vakið mikla at-
hygli. Stjómvöld í Massachusetts
fylki létu gera úttekt á því hvernig
sölu á fiski er háttað í fylkinu og
hvemig þeim málum verði best varið
í framtíðinni. Skýrsla er nýkomin út
um þetta efni og þar hlýtur CASS af-
ar góða dóma.
Skýrslan er unnin af A.T. Kearn-
ey, Inc. í Alexandra, Virginíu, fyrir
Massachusetts Department of Fish
and Wildlife and Environmental
Law Enforcement. Skýrsluhöfundar
álíta m.a. að „CASS sé þróaðasta og
mest sveigjanlega rafeindauppboðs-
kerfi fyrir fisk í heimi.“ Einnig segja
þeir að „CASS sé ódýrt og mjög auð-
velt sé að tengjast því með PC-
tölvu.“ Þegar skýrsluhöfundar velta
fyrh- sér þeim möguleikum sem era
á vali á uppboðskerfi fyrir
Massachusetts fylki segja þeh-:
„Cass er almennt talið mjög gott og
það eða sambærilegt kerfi yrði meira
en fullnægjandi fyrir þær tillögur
sem liggja fyrir um uppboð í
Massachusetts fylki.“
í notkun í fimm ár
„Tölvukerfið Tengill hefur nú verið
í notkun í fimm ár og er það ánægju-
legt að eftir þennan tíma skuli það
vera notað í þrem löndum í tveim
heimsálfum. Það var upphaflega þró-
að af Verk- og kerfisfræðistofunni
fyrir Fiskmarkað Suðumesja hf.
(FMS). Árið 1992 var RSF stofnað
sem keypti tölvukerfið af FMS. RSF
er í eigu þriggja fiskmarkaða: FMS,
Fiskmarkaðs Snæfellsness ehf. og
Fiskmarkaðs Hornafjarðar ehf.,“
segir í fréttinni frá RSF
Rekstur RSF fyrstu 9 mánuði árs-
ins 1997 gekk vel. Hagnaður af starf-
seminni var 4,9 milljónir. Tekjur
voru 25,4 milljónir.
Noregur
Báturinn sökk
undan síldinni
Osló. Morg^unblaÖið
NORSKI sfldarbáturinn Steins-
holm fékk nú í vikunni svo stórt
sfldarkast að hann réð ekki við
það. Nótin varð of þung og dró
bátinn með sér niður í djúpið í
Vestfirði.
6 manns voru í áhöfn og tókst
þeim öllum að bjarga sér, en á
nokkrum mfnútum kom svo
mikil slagsíða á bátinn að ekk-
ert varð við ráðið.
Leizt ekkert á blikuna
Það var spegilsléttur sjór,
þegar Geir Nikolaisen skipsljóri
sá að hann hafði náð risakasti.
„Við gerðum ráð fyrir að gefa
næsta bát, Nyvoll, með okkur af
aflanum, en hann var rétt hjá
okkur. En skyndilega urðu
þyngslin í nótinni meiri en bát-
urinn þoldi, og hann Iagðist á
hliðina. Ég hef stundað sjóinn
sfðan ég var 14 ára, en aldrei
upplifað neitt slíkt. Mér leizt
ekkert á blikuna," segir Nikolai-
sen í samtali við norska blaðið
Nordlandsposten.
Áhöfnin reyndi án árangurs
að skera nótina frá og varð að
lokum að yfírgefa bátinn og fara
um borð í Nyvoll, sem komið
hafði til að fá sfld, en fór í land
með áhöfn Steinsholm í staðinn.
Harkalega brugðist við áformum um einræktun fólks
Seed sagður „bilaður“
Washingfton. Reuters.
BANDARÍSKI eðlisfræðingurinn
Richard Seed, sem lýst hefur
áhuga sínum á að einrækta böm
fyrir ófrjó pör hefur verið gagn-
rýndur harkalega. Aðrir vísinda-
menn hafa lýst því yfir að hann sé
„bilaður" og hvatt hefur verið til
banns við öllum tilraunum til ein-
ræktunar manna.
Seed sagði í viðtali við banda-
ríska sjónvarpið ABC að það væri
sú vitsmunalega áskorun sem í
verkefninu fælist og löngun til að
koma ófrjóu fólki til aðstoðar sem
örvaði sig, ásamt vilja til að „stuðla
að framförum í tækni og menn-
ingu“.
Seed sagðist ekki skilja hvers
vegna almenningur virtist andvíg-
ur einræktun á fólki. Hann sagðist
telja að um 80% fólks væru andvíg
slíku, en það myndi þó ekki draga
úr sér kjark.
Viðbrögð, m.a. úr Hvíta húsinu,
voru harkaleg. „Ég held að vísinda-
menn ættu að leiða Seed það fyrir
sjónir og tel víst að forsetinn muni
gera Seed grein fyrir því að hann
hafi nú tekið af skarið í þessum
efnum. Og að haldi hann sínu striki
þá sé hann ábyrgðarlaus, siðlaus
og ófaglegur," sagði
Mike McCurry, tals-
maður Bandaríkjafor-
seta.
Óttast óviðunandi
löggjöf
I kjölfar þess að
kindin Dolly var ein-
ræktuð af skoskum
vísindamönnum í fyrra
setti Bill Clinton
Bandaríkjaforseti á
stofn nefnd til að at-
huga þá möguleika og
ógnir sem kunni að
leiða af einræktun og
velta fyrir sér hvort
æskilegt væri að setja á fimm ára
bann við tilraunum í þessa vera.
Nokkrir bandarískir þingmenn
hafa brugðist ókvæða við tíðindun-
um af fyrirætlunum Seeds, og
hvatt tO þess að gripið verði í
taumana. Dr. Jamie Grifo, yfirmað-
ur æxlunar- og hormónadeildar
New York-háskóla, kvaðst óttast
að afleiðingarnar yrðu þær að óvið-
unandi löggjöf yrði samþykkt.
Hann sagði að þótt einræktun á
fólki væri óæsldleg gætu rannsókn-
ir henni tengdar
reynst gagnlegar fyrir
ófrjótt fólk. Löggjöf
sem banni æxlunartil-
rauriir, t.d. tilraunir til
að gera eldri konum
kleift að eignast heil-
brigð börn, komi í
raun harðast niður á
ófijóum einstakling-
um.
Robert Winston,
breskur æxlunarsér-
fræðingur sem tók
þátt í að skapa fyrsta
glasabarnið 1978,
sagði um íýrirætlanir
Seeds: „Ég held að
maðurinn sé augljóslega bilaður og
það ætti ekki að taka hann alvar-
lega.“ Ian Wilmut, sem var í farar-
broddi þeirra sem einræktuðu
kindina Dolly, lét einnig í ljós and-
stöðu sína við fyrirætlunum Seeds.
Sjálfur sagði Seed í viðtali við
CNN að hann sæi ekki að neinn sið-
ferðisvandi væri samfara einræktun
á fólki. Hann sagðist telja að slíkt
myndi geta bætt ónæmiskerfi
manna og lengja meðalaldm- um 15-
20 ár.
Richard Seed
Santer segir Evrópu-
stefnu Blairs, já-
kvæða og frískandi“
London. Reuters.
JACQUES Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, hrósaði í gær Evrópu-
stefnu ríkisstjórnar Tonys Blair og
sagði hana ,jákvæða og frískandi“.
Santer og framkvæmdastjórn hans
komu í gær til London til viðræðna
við brezku ríkisstjórnina, sem tók
við forsætinu í ráðherraráði ESB
um áramót og mun gegna forystu-
hlutverkinu næsta hálfa árið. Sant-
er fór ekki í launkofa með ánægju
sína með stjórnarskiptin í Bret-
landi á síðasta ári.
„Hin nýja jákvæða stefna, sem
þið fylgið í Evrópumálum, er eins
frískandi og henni er vel tekið,“
sagði Santer á fundi með Blair.
„Næsta hálfa ár gefst kærkomið
tækifæri til að vinna að málstað
Evrópusamrunans og miðla til
þjóða Evrópu anda atorku, þróttar
og sköpunargáfu, sem er í dag enn
á ný aðalsmerki Bretlands."
Blair sagði að ríkisstjóm hans
vildi leika „afgerandi forystuhlut-
verk í mótun Evrópu framtíðarinn-
ar.“ Hann sagði að á þeim mánuð-
um, sem liðnir væru frá því að rík-
isstjórnin tók við völdum, hefði hún
átt mjög góð samskipti við fram-
kvæmdastjóm Santers.
Sannfærður um brezkan
stuðning í málefnum EMU
í viðtali við BBC sagðist Santer
sannfærður um að Bretland myndi
gera sitt ýtrasta til að vel tækist til
með væntanlegt Efnahags- og
myntbandalag Evrópu (EMU).
Hann sagðist jafnframt þeirrar
skoðunar að undir núverandi
stjórn væru Bretar að nálgast
kjama Evrópusambandsins.
Santer sagðist vænta mikils af
forystu Breta í þeirri viðleitni að
draga úr atvinnuleysi í ríkjum Evr-
ópusambandsins, en atvinnuleysi
er minna í Bretlandi en í megin-
lándsríkjunum.
Reuters
TONY Blair tekur á móti Jacques Santer í Lancaster House.
EVRÓPA^
Evrópu-
þingmenn
reknir
London. The Daily Telegraph.
TVEIR fulltrúar brezka Verka-
mannaflokksins á Evrópuþinginu
hafa verið reknir úr flokknum og
úr flokkahópi evrópskra sósíalista
á þinginu. Þingmennirnir, Hugh
Kerr og Ken Coates, eru yzt á
vinstri væng Verkamannaflokks-
ins og hafa gagnrýnt „hægri-
stefnu" Tonys Blair forsætisráð-
herra og ríkisstjómar hans.
Þingmennirnir höfðu áður kraf-
izt þess að fá að sitja sem óháðir
Verkamannaflokksmenn á Evr-
ópuþinginu og hótað ella að ganga
í flokkahóp græningja.
Framkvæmdastjóri Verka-
mannaflokksins sendi þeim sam-
hljóða bréf í gær, þar sem segir:
„Slík aðild [að flokkahópi Græn-
ingja] brýtur í grundvallaratriðum
í bága við skilyrðin fyrir aðild ykk-
ar að þessum flokki."
Auk þess að vera andvígir
markaðshyggju Blairs eru þing-
mennirnir honum ósammála um
að taka eigi upp hlutfallskosning-
ar til Evrópuþingsins í Bretlandi.
Næst verður kosið til Evrópu-
þingsins á næsta ári og hefur Bla-
ir lýst yfir að kosið verði hlutfalls-
kosningu af framboðslistum en
kerfi einmenningskjördæma ekki
notað.