Morgunblaðið - 09.01.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 31
EITT verka Marinos Parisottos á sýningunni.
Kaffi og list hjá
Sævari Karli
Kvikmyndin
Trúnaður í MÍR
eftir frumsýninguna. „Svo má vel
vera að ég þrengi sviðið seinna,"
segir Hlín. Það hefur líka verið stað-
fest af mörgum að samvinna flytj-
enda og tónskálda og á sama hátt
leikara og leikstjóra á námstíma eða
snemma á ferlinum, getur verið lyk-
ill að mörgum tækifærum seinna
meir þar sem tónskáld og leikstjór-
ar, sem hugsanlega hafa komið ár
sinni vel fyrir borð, leita gjarnan
eftir áframhaldandi samstarfí við
tónlistarfólk eða leikara sem hjálp-
uðu til við að vekja á þeim athygli.
„Já, þetta er alveg rétt, góð sam-
bönd skipta æ meira máli. Ég fæ
oft vinnu hjá gömlum skólafélögum
mínum sem ég vann með í Hamborg
og eru nú orðnir stjórnendur eða
organistar."
Hlín starfaði við óperuna í Kais-
erslautern árin 1995 til 1997 en þá
um sumarið var hún ráðin til að
koma fram á óperuhátíðinni á Mörb-
isch í Austurríki. „Það kom þannig
til að ég var að syngja Christl von
der Post í Vogelhándler eftir Carlk
Zeller í Kaiserslautern en það verk
á að setja upp í Mörbisch 1998.
Leikstjórinn mælti með mér og ég
sendi upplýsingar um mig og ég var
svo ráðin út á myndbandsupptöku
til að syngja í uppfærslunni. Svo
hringdi hann stuttu síðar og sagðist
vanta söngkonu strax fyrir „La vie
Parisienne" (Lífið í París) eftir
Jacques Offenbach og það varð úr
að ég söng hlutverk Gabrielle í þeirri
uppfærslu nú í sumar sem síðan var
tekin upp og gefin út á geisladisk
en upptökurnar fóru fram í Esther-
hazy-höllinni í Eisenstadt þar sem
Haydn starfaði allt sitt líf.“ Óperu-
hátíðin í Mörbisch hefur fest sig í
sessi sem mjög virt hátíð. Hún hefur
verið haldin í um fimmtíu ár og eru
áheyrendur að meðaltali á fjórða
þúsund á hverri sýningu. Sviðið flýt-
ur úti á vatni og „stemmningin frá-
bær,“ segir Hlín. „Það getur að vísu
orðið erfitt þegar vindurinn blæs eða
rignir en það gerist bara svo sjald-
an, ég held að það hafi aðeins þurft
að hætta við eina sýningu á síðasta
ári af 26 vegna veðurs. Það var
mikil upplifun að taka þátt í þessu,
að stunda æfingar í glampandi sól
undir berum himni, kynnast kurteis-
um Austurríkismönnum og fylgjast
með öllu fjölmiðlafárinu."
Aðspurð um framtíðina seg-
ist Hlín vilja gefa sig enn
meira að tónleikum og
þróa röddina sína meira
út í flúrsöng. „Það er raunverulega
mín sterkasta hlið. Núna er ég léttur
kóloratúr, svo kallaður „kóloratur-
soubrette" og syng hlutverk í því
fagi en til að geta þróast eins og
ég vil þarf ég að hafa minna að gera
í óperettum en mér liggur ekkert á.“
Hiín leggur áherslu á að taka
þátt í kammertónlist og syngja ljóð
og hefur hún gert talsvert af því.
Hún hefur sungið Qölda íslenskra
og sænskra ljóða á tónleikum í
Þýskalandi og hlotið mikið lof fyrir.
Staðarblaðið Rheinpfalz sem gefið
er út í Kaiserslautern sagði meðal
annars að Hlín hefði „heillað áheyr-
endur með dýrlegri, vel þjálfaðri
rödd sinni sem fyllti salinn. Hún var
tónlistinni trú og laglínurnar
streymdu mjúklega og án allrar
áreynslu. Hæðin var örugg og á all-
an hátt til fyrirmyndar.“ Á þessu
ári söng Hlín einnig meðal annars
óperettutónlist ásamt fjórum öðrum
söngvurum með Sinfóníuhljómsveit
Berlínar í stóra sal Fílharmóníunn-
ar. „Það var frábær stemmning og
hljómburðurinn stórkostlegur," rifj-
ar Hlín upp með glampa í auga enda
ekki margir íslendingar sem staðið
hafa á því fræga sviði.
Hlín hefur samt ekki enn þreytt
frumraun sína í Reykjavík en er nú
farin að undirbúa ljóðakvöld á ís-
landi. „Ég hef átt óhægt um vik að
komast heim því ég hef haft svo
mikið að gera. Ég var einu sinni
beðin um að syngja á Listahátíð en
komst því miður ekki. Mig langar
mikið að halda ljóðatónleika en erf-
itt að skipuleggja það héðan. Mig
langar líka til að koma með píanó-
leikara héðan og þarf því einhvern
heima til að sjá um allan undirbún-
ing. Hugur minn stendur til þess og
ég stefni að því að eitthvað verði
úr efndum á næsta starfsári."
SÝNING á ljósmyndum, sem
unnar hafa verið fyrir almanök
ítalska kaffiframleiðandans
Lavazza, verður opnuð í nýjum
húsakynnum Sævars Karls,
Bankastræti 7, á morgun,
fostudag. Sýndar verða mynd-
ir áranna 1994-98.
Listamennirnir eru margir
hverjir nafnkunnir, svo sem
Italinn Marino Parisotto, sem
er einn af tíu bestu Ijósmynd-
urum heims að áliti Photo
France. Hefur hann tekið
myndir fyrir almanak ársins
1998 og vísar þar í óperu
Donizettis, Ástardrykkinn. Er
kaffið hlutgert í formi karl-
manns, sem spilar á tilfinning-
ar kvenna, við undirleik „hins
magnaða drykks", en ástar-
drykkurinn í verki Donizettis
er álitinn geta leyst úr læðingi
eldheitar ástríður.
FRÆÐSLUDEILD Myndlista- og
handíðaskóla Islands heldur nám-
skeið sem nefnist Tölva - verk-
færi í myndlist og er grunnnám-
skeið dagana 19.-23. janúar.
Námskeiðið er ætlað fólki sem
starfar að sjónlist og hefur hug á
að kynnast tölvuvinnu. Farið er í
uppbyggingu vélbúnaðar. Kennd
verður almenn umgengni við tölv-
ur og hugbúnað, skýrður munur-
inn á „bitmap“ og „vektor" hug-
búnaði og myndum, myndhugbún-
aður kynntur og unnið með hann.
Kennari er Leifur Þorsteinsson.
Kennt er í Tölvuveri MHÍ, Skip-
holti 1.
Námskeiðið „Internetið“ - mið-
ill í samskiptum um listir og menn-
ingu verður til boða í MHÍ 26.-30.
janúar og verður kennt í Tölvu-
veri MHI, Skipholti 1. Alnetið
verður kynnt og tæknilegir mögu-
leikar þess í sambandi við skap-
andi miðlun og þær róttæku breyt-
ingar sem orðið hafa í samskiptum
er varða menningu og listir. Kenn-
ari er John Hopkins.
Myndbandanotkun, grunn-
tækni, skráning og gerð kynning-
arefnis er námskeið þar sem kennd
verður grunntækni við gerð mynd-
banda. meðferð og meðhöndlun
Lavazza hefur skapað hefð
í kringum útgáfu þessa en til-
gangurinn mun vera að vegs-
ama kaffið. Almanakið var í
upphafi hugsað sem gjöf til
helstu viðskiptavina fyrirtæk-
isins en fékk snemma annað
hlutverk vegna listræns gildis
ljósmyndanna. Helmut Newton
ruddi brautina með Ijósmynd-
um sinum fyrir almanakið
1994. Fyrir aldarafmæli sitt,
1995, fékk Lavazza Ellen von
Unwerth til verksins og mynd-
ir ársins 1996 tók Ferdinando
Scianna en þar kemur Ieikkon-
an Maria Grazia Cucinotta, úr
kvikmyndinni II postino, mjög
við sögu. Albert Watson sá síð-
an um útgáfuna í fyrra, Kaffi
hefur tvær sálir, sem nýlega
hlaut hin alþjóðlegu CLIO-
verðlaun. Sýningin stendur til
6. febrúar.
tækja, þ.e. myndatökuvélar, ljósa
og klippitækja. Kennt að taka
myndir af sýningum og myndverk-
um. Einnig verður kennt að taka
stutta kynningarmynd og fjallað
um uppbyggingu hennar, klipp-
ingu og frágang. Kennari er Þór
Elís Pálsson kvikmyndagerðar-
maður og fer kennslan fram í
Barmahlíð, Skipholti 1, og í Laug-
arnesi 26., 28. og 29. janúar.
----♦ » ♦--
*
Islenskt
handverk
ogSÍBS
SÝNING á íslensku handverki
verður opnuð að Amtmannsstíg 1
í dag, föstudag kl. 16. Þar verður
úrval úr flóru íslensks handverks
og er sýningin samstarf Handverks
og hönnunar og Happdrættis SÍBS
til kynningar á íslensku listahand-
verki.
Munirnir eru valdir af Hand-
verki og hönnun og eru á vinninga-
skrá Happdrættis SÍBS 1998. Sýn-
ingunni lýkur 24. janúar.
KVIKMYNDIN Trúnaður, sem gerð
var árið 1977, verður sýnd í bíósal
MÍR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 11.
janúar kl. 15. Kvikmyndin var gerð
í samvinnu fínnskra og sovéskra
kvikmyndagerðarmanna. Leikstjóri
er Viktor Tregúbovits en meðal leik-
enda eru Kirill Lavrov og írina
Miroshnitsenko.
Myndin fjallar um atburði sem
gerðust í lok ársins 1917. í kjölfar
Októberbyltingarinnar fengu Finnar
fyrirheit bolsévíka um fullt sjálf-
stæði, en Finnland hafði verið undir
stjórn rússnesku keisarakrúnunnar
frá árinu 1803.
Auk kvikmyndarinnar verða í jan-
úar og febrúar m.a. sýndar heimilda-
kvikmyndir eftir tvo af fremstu kvik-
myndagerðarmönnum Rússa um
miðja öldina, þá Mikhaíl Romm og
Róman Karmen. Þá verður stór-
myndin Stríð og friður eftir Lévs
Tolstoj sýnd í heild sinni laugardag-
inn 21. febrúar, frá kl. 10 að morgni
til kl. 18.30, með þremur matar- og
kaffihléum. Aðgangur að þeirri sýn-
ingu er aðeins heimill þeim sem
tryggja sér miða (matarmiða) fyrir-
fram. Annars er aðgangur að sunnu-
dagssýningum MIR jafnan ókeypis
og öllum heimill.
Kvennakór
Keykjavíkur
VORSTARF
Kvennakór - Vox feminae - Léttveit
Gospelsystur - Senjorítur
Stúlknakór - Telpnakór
Skráning og frekari upplýsingar
eru veittar í síma 562 6460,
föstudaginn 9. janúar kl.13 -17,
laugardaginn 10. janúar kl.12 - 15 og
sunnudaginn 11. janúar kl. 12 - 15.
Kvennakór Reykjavíkur
Kórfélagar mæti miðvikudaginn 14.janúar
kl. 20:30. Kórinn getur bætt við sig
nokkrum félögum.
Stjórnandi er Sigrún Þorgeirsdóttir og
undirleikari Svana Víkingsdóttir
Vox feminae
Æfingar hefjast laugardaginn 17. janúar
kl. 9:00. Kórinn getur bætt við sig nokkrum
vönum söngröddum.
Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir.
Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur
Félagar í Léttsveitinni mæti þriðjudaginn
13. janúar kl. 20:30. Kórinn getur bætt við
sig nokkrum félögum.
Stjórnandi er Jóhanna V. Þórhallsdóttir og
undirleikari Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Gospelsystur
Kvennakórs Reykjavíkur
Æfingar Gospelsystra hefjast mánudaginn
19. janúar kl. 18:00.
Gospelsystur er fjörugur kór sem ætlaður er
konum með litla reynslu af söng og er því
tilvalinn sem fyrstu skref kvenna í kórstarfi.
Æfingar eru einu sinni í viku.
Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir.
Senjoritur
Félagar mæti mánudaginn 12. janúar
kl. 16:00. Hópurinn er ætlaður síungum eldri
konum og eru nýir félagar boðnir velkomnir.
Stjórnandi er Rut Magnússon.
Stúlknakór Reykjavíkur
Félagar mæti 13. janúar kl 18:00.
Kórinn getur tekið inn nokkra nýja félaga á
aldrinum 15-18 ára.
Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir
Telpnakór Reykjavíkur
Starfsemi hefst miðvikudaginn 14. janúar.
Stjórnendur eru Margrét J. Pálmadóttir og
Jensína Waage.
Námskeið hjá MHÍ