Morgunblaðið - 09.01.1998, Síða 56
56 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
llinsjón
Arnór G. Ilagnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
Sl. mánudagskvöld var spilaður
eins kvölds 16 para tvímenningur.
Lokastaðan:
Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 264
Pétur Júlíusson - Randver Ragnarsson 255
Gunnar Guðbjömsson - Kristján Kristjánsson 249
Dagur Ingimundarson - Sigurjón Jónsson 215
Næstkomandi mánudagskvöld,
12. janúar, verður framhaldið aðal-
sveitakeppni félagsins.
Bridsfélag Hreppamanna
Ágæt þátttaka hefir verið hjá
Hreppamönnum í haust og oftast
spilað á 4 borðum. Spilað er á Flúð-
um á mánudögum.
Átta pör spiluðu í hausttvímenn-
ingi og sigruðu Viðar Gunngeirsson
og Gunnar Marteinsson, hlutu 221
stig. Karl Gunnlaugsson og Jóhann-
es Sigmundsson urðu í öðru sæti
með 214 og Ásgeir Gestsson og
Guðmundur Böðvarsson þriðju með
209.
Þá var spilaður einmenningur
með þátttöku 16 spilara. Tómas
Ragmus vann það mót, hlaut 207
stig. Pétur Skarphéðinsson var í
öðru sæti með 205 og Anna Magn-
úsdóttir þriðja með sömu skor.
Topp 16 var spilaður um miðjan
nóvember og sigraði Gunnar Mar-
teinsson, hlaut 117 stig. Guðmundur
% Sigurdórsson varð annar með 110 og
Þórdís Bjamadóttir þriðja með 97.
Bridsmaður ársins hjá félaginu
varð Karl Gunnlaugsson með 24,5
stig en hann hlaut flest stig í keppni
síðasta árs. Jóhannes Sigmundsson
varð annar með 20 stig og Gunnar
Marteinsson þriðji með 15 stig.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
SÍÐASTLIÐINN mánudag þann
5. jan. lauk aðalsveitakeppninni
með því að nýir meistarar voru
krýndir. Sveit Guðmundar Magn-
ússonar sigraði eftir að hafa leitt
mótið lengst af. I sigursveitinni eru
auk Guðmundar, Jón Gíslason,
Snjólfur Ólafsson og Ólafur Jó-
hannesson. Að öðru leyti urðu úr-
slitin þessi:
Sv. Guðraundar Magnússonar 183
Sv.Drafiiar Guðmundsdóttur 174
Sv. Ola Ingimundarsonar 160
Sv. Léttsveitin 153
Sv. Halldórs Einarssonar 144
Þar sem aðeins var spiluð ein
umferð síðasta kvöld var slegið á
léttari strengi og afgangurinn af
kvöldinu notaður í sveitakeppni
með útsláttarfyrirkomulagi og góð-
um peningaverðlaunum. Sveit Hall-
dórs Einarssonar sigraði mjög ör-
ugglega og gaf enga impa út fyrr
en í síðasta spilinu! Næsta keppni
er svo þriggja kvölda Butler sem
gefur nýjum pörum kost á að kom-
ast inn í vetrardagskrána hjá okk-
ur. Allir eru þar velkomnir. B.H.
spilar á mánudögum kl. 19.30 í
Haukahúsinu við Flatahraun.
Keppnisstjóri er Trausti Harðar-
son.
Bridsdeild Barðstrendinga og
Bridsfélag kvenna
Við hófum starfið á nýju ári þ. 5.
jan. sl. með einskvölds tvímenningi.
34 pör mættu. Meðalskor 364. Besta
skor í N/S:
Gísli SveinssoVGuðm. Guðmundsson431 Jó-
hann Magnússon/Kristinn Karlsson423 Jóna
Magnúsd/Jóhanna Siguijónsd. 417 Kristín
Jónsd/Erla Ellertsdóttir402
Besta skor í A/V:
Geirlaug Magnúsd/Torfi Axelsson 439
Vilhjálmur Sigurðss. jr/Ómar Olgeirsson 424
Soffia Damelsd/Alfreð Kristjánss. 410
Jón Þór Karlss/Sigurður Amundason 400
Mánudaginn 12. jan. nk. verður
spilaður einskvölds tvímenningur
Mitchell.
Skráning á spilastað, Þöngla-
bakka 1. Mánudaginn 19. jan. hefst
Aðalsveitakeppnin 1998.
ÚTSALA - ÚTSALA
Halló!
5-50%
afsláttur
Úlpur - ullarjakkar
kápur - pelsar
alpahúfur - hattar
Kíldð inn
Opið sunnudag
kl. 13-17.
\(#HI/I5IÐ
Mörkinni 6, simi 588 5518.
Bílastæði við búðarvegginn.
í DAG
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Misnotkun
eða hvað
ÞEGAR ég las um daginn
grein í Morgunblaðinu eftir
ungan Hvergerðing, þar
sem hann ásakar stjóm-
endur Elliheimilisins
Grundar og Dvalarheimilis-
ins Áss um einkanot þeirra
af eignum þessara sjálfs-
eignarstofnana, varð mér
hugsað til þess hvað hægt
er að komast upp með I
þessu þjóðfélagi. Stjóm-
völd skera niður flest er
snýr að velferð gamla fólks-
ins, en láta það svo við-
gangast að margar fjöl-
skyldur geta lifað lúxuslífi
með þvi að reka stofnanir
fyrir gamla fólkið.
Hvernig má það vera að
þessar fjölskyldur geti
byggt heilt hjúkrunar-
heimili íyrir litlar 250
milljónir upp á eigin reikn-
ing, vitað að allar tekjur
þessara aðila koma frá rík-
inu í gegnum gamla fólkið?
Er nokkuð skrýtið þótt
spurt sé hvort gjöld þau
sem ríkið greiðir fyrir að
vista gamla fólkið á svona
stofnunum séu ekki of há,
þegar hægt er að byggja
heilt hjúkranarheimili fyr-
ir slíkar upphæðir, jafnvel
án þess að taka lán, og þar
á ofan að lifa í vellysting-
um og það heilar sex fjöl-
skyldur. Sama dag og of-
angreind grein birtist var
spurt að því í lesendadálki
Morgunblaðsins hvað
stjórnendur Gmndar
hygðust gera fyrir gamla
fólkið í tilefni 75 ára af-
mælis Grandar, en sögu
Grundar höfðu reyndar
verið gerð góð skil í Morg-
unblaðinu nokkrum dögum
áður, og var nema von að
spurt væri hvað ætti að
gera fyrir sjálfa vistmenn-
ina eftir að glansmyndin
hafði verið kynnt. Svarið
kom nokkrum dögum
seinna. Allir áttu þess kost
að fá veislukaffi og það
þótti nóg. Það hlýtur að
vera orðið tímabært að
þessar stofnanir verði
skoðaðar ofan í kjölinn.
Gylfi Guðmundsson.
Fyrirspurn til
Islandspósts
JÓRUNN hafði samband
við Velvakanda og var hún
óhress með að póstkassi
frá Islandspósti, sem var á
vegg verslunarinnar Fín
verslun í Seljahverfl, skuli
hafa verið tekinn. Vill hún
fá að vita hvenær ætlunin
sé að setja þennan póst-
kassa aftur upp.
Tapað/fundið
Gleraug’u týndust
HINN 30. desember týnd-
ust gleraugu í dökku
hulstrí, opnu í endann.
Gleraugun er hægt að
brjóta saman. Lfldega
týndust þau fyrir utan
gjaldheimtuna í Tryggva-
götu eða fyrir utan bóka-
búðina á Hlemmi. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 553 1214.
Svört taska týndist
á Skuggabamum
SVÖRT taska týndist 26.
desember á Skuggabarn-
um. I töskunni er ökuskír-
teini, vegabréf og tann-
réttingagómur. Skilvís
finnandi vinsamlega hafí
samband í síma 557 5817.
Silfuraæla
í óskilum
SILFURNÆLA, gullhúð-
uð, fannst þriðjudaginn 6.
janúar í Stórholti. Uppl. í
síma 563 3844.
Ullarfrakki tekinn
í misgripum
ULLARFRAKKI, grá-
svartur og síður, var tekinn
í misgripum á Skuggabam-
um laugardaginn 20. des-
ember. Sá sem kannast við
frakkann vinsamlega hafi
samband í síma 587 4069.
Dýrahald
Trýna er týnd
TRÝNA er 11 ára þrílit, gul,
hvít og svört, læða og hefur
verið týnd síðan 18. desem-
ber. Trýna er mjög forvitinn
köttur og týndist hún á
þeim tíma sem flestallir
hafa verið á ná í jólaskraut í
kjallara, skúra og geymslur.
Talið er lfldegt að hún hafi
lokast einhvers staðar inni.
Fólk er beðið að svipast um
eftir henni. Trýna býr á
Garðavegi í Hafharfirði.
Hennar er sárt saknað. Þeir
sem hafa orðið varir við
hana hafi samband í síma
5552298.
ÞESSl kisa er í óskilum í
Kattholti. Þeir sem kannast
við hana geta haft samband
við Kattholt í síma 567 2909.
SKAK
IJmsjún Margeir
1‘étursson
STAÐAN kom upp á þýska
meistaramótinu sem haldið
var í Gladenbach í nóvember.
O. Dobierzin (2180), var með
hvítt, en H. Oswald (2330)
hafði svart og átti leik. 20. _
Bc3+! 21. bxc3 _ Dxc3+ 22.
Kdl _ Dxal+ 23. Kc2
Dxa2+ 24. Kcl _ Hf7
25. Rg5 _ Rxc4 26.
Bxc4 _ Dxc4+ 27. Kb2
Dd4+ 28. Kbl
Db6+ og hvítur gafst
upp Skákþing Reykja-
víkur 1998 hefst á
sunnudaginn kemur,
þann 11. janúar. í að-
alkeppninni verða
tefldar ellefu umferðir
eftir svissnesku kerfi.
Umhugsunartími er
1,5 klst. á 30 leiki og
síðan 45 mínútur tíl að
ljúka skákinni. Teflt
verður þrisvar í viku, á mið-
vikudögum og föstudögum kl.
19.30 og á sunnudögum kl.
14.00. Óllum er heimil þátt-
taka á skákþinginu og er
skráning hafin í símum fé-
lagsins 5813540 og 5681690
og á tölvupóstí trÉmmedia.is.
Keppni í unglingaflokki
hefst síðan laugardaginn 24.
janúar kl. 14.00
Ailar uppiýsingar um skák-
þingið og starfsemi Taflfélags
Reykjavfloir má firrna á heima-
síðu félagsins sem er:
http//www.mmediajsTtr.
SVARTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
AMSKIPTI
FORELDRA 06 BARNA
Nú er að hefjast nýtt náinskeið fvrir
foreldra í samskiptuin foreldra og barna.
Leiðbeinendur eru sólfræðingarnir
Ilugo Þórisson og Wilhelm Norðfjörð.
Skráning og upplýsingar
í síma 562 1132 og 562 6632
„Ef allirfœru á svona samskipta-
námskeið yrði jörðin paradís
fyrir börnin okkar“
Jón Börkur Ákason, Þjóðfræðinemi, Háskóla íslands
1 Virðing
• Ábyrgð
• Tillitssemi
• Sjálfstæði
• Ákveðni
• Hlustun
• Sameiginlegar
lausnir
Víkverji skrifar...
VINUR Víkverja skaut að hon-
um þeirri hugmynd sinni að
grafin yrðu neðanjarðargöng út í
Viðey. Segir hann þetta blasa við nú
þegar gerð Hvalfjarðarganga hefur
tekist jafn vel og raun ber vitni. í
Viðey sé nægt byggingarland undir
íbúðarbyggð en ljóst sé að skortur
verði á því innan borgarmarkanna
áður en langt um líður.
Ekki er Víkverja ljóst hverjar
viðtökur þessi hugmynd fær en hún
er vissulega frumleg og því er henni
komið á framfæri hér í dálkinum.
XXX
Á hefur velunnari Víkverja sent
honum pistil þar sem harðlega
er mótmælt saltaustri á götur borg-
arinnar. Segir hann í kjölfarið komi
tjöruþvottur með tilheyrandi sóða-
skap utandyra sem innan, öllum til
ama. Þetta séu þó aðeins smámunir
miðað við eyðileggingu gatnakerfis
borgarinnar. Fyrir þessu standi
strætisvagnstjórar en þeir verði
bara að aka eftir aðstæðum eins og
aðrir. Athugandi væri að senda
vagnstjóra SVR til Akureyrar til að
kenna þeim að aka í hreinum snjó!
XXX
NÝR rikissaksóknari tók til
starfa um síðustu áramót, Bogi
Nilsson. Er hann hinn fjórði í röð-
inni sem gegnir þessu mikilvæga
embætti.
Athyglisvert er, að embætti sak-
sóknara ríkisins, nú embætti ríkis-
saksóknara, var ekki stofnað fyrr en
árið 1961. Hlutverk ríkissaksóknara
er að fara með ákæruvaldið, en
fram að þeim tíma fór dómsmála-
ráðherra með það. Valdimar Stef-
ánsson var fyrsti saksóknari ríkis-
ins, frá 1. júlí 1961 til dánardægurs
23. apríl 1973. Þórður Bjömsson
varð rfldssaksóknari frá 1. júlí 1973
uns hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir 30. júní 1986. Þá tók við emb-
ættinu Hallvarður Einvarðsson,
sem lét af störfum fyrir aldurs sakir
nú um áramótin.
Allir þessir menn eiga það sam-
eiginlegt að koma frá embættum
sem önnuðust rannsóknir afbrota-
mála. Valdimar og Þórður voru yfir-
sakadómarar í Reykjavík og Hall-
varður og Bogi voru rannsóknarlög-
reglustjórar ríkisins og Bogi nú síð-
ast ríkislögreglustjóri.
XXX
EKKI verður almættinu nógsam-
lega þakkað fyrir þann milda
vetur sem við íslendingar höfum
fengið að njóta. Sunnlendingar hafa
áður kynnst svona snjóléttum vetri
en Norðlendingar og Vestfirðingar
hafa ekki átt slíku að fagna. Nú
lengir daginn hægt og bítandi og er
hann nú orðinn nær klukkutíma
lengri en þegar hann var skemmst-
ur 21. desember sl. Og brátt kemur
vorið með blóm í haga!