Morgunblaðið - 09.01.1998, Síða 60
60 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
FÖSTUDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Stöð 2 >-20.55 Gamanleikarinn
^ Leslie Nielsen er einn þeirra
lánsömu skapgerðarleikai-a sem voru
„uppgötvaðir" í annað sinn þegar fer-
ill þeirrra hefði að öllu jöfnu verið að
lognast út af. Nielsen varð skyndi-
lega vinsæll í íyrsta sinn á löngum
ferli og hefur leikið í hverri aðsóknar-
mjmdinni á fætur annaiTÍ í ellinni.
Flestar eru skopstælingarfrægra
mynda. Þessi endurvinnsia hófst 1980
með Airplane en Á tæpasta svaði
(Spy Hard, ‘96) er ein sú nýjasta. Að
þessu sinni er skotmarkið sjálfur
James Bond, sem hér nefnist WD 40
(Nielsen) og takmark hans að bjarga
heiminum úr höndum brjálaðs hers-
J höfðingja (Charles Durning). For-
múlan er orðin þreytuleg og tæpast
þess umkomin að virkja hláturtaug-
arnar. Nielsen er sem fyrr furðu fylg-
inn sér og bjargar því sem bjargað
verður. ★ ★
Sjónvarpið >21.05 Þá er komið að
„valmynd mánaðarins" á „stöð allra
landsmanna“ og ekki beint heillandi.
Helst hallast ég að mynd sem heitir
því vel viðeigandi nafni Sá á kvöl-
ina (Choiœs) og segir af raunum
dómarans George C. Scott sem verð-
ur að endurskoða afstöðu sína til fóst-
ureyðinga þegar dóttir hans (Melissa
Gilbert) og síðar ung eiginkona
(Jacquline Bissett) verða báðar
ófrískar... Sjónvarpsmynd frá ‘95
samkvæmt upplýsingum frá RÚV.
Hefur greinilega lent þar í yngingar-
meðferð því hún er gerð ‘86, kom út á
myndbandi skömmu síðar og hlaut
★★V!í í Myndbandahandbókinni 1990.
Þar sögðum við AI m.a.: „Vel leikin,
ekki síst af Melissu Gilbert, sem er
vel sjóuð í lífsins táradal eftir margar
strangar vertíðir í Húsinu á slétt-
unni...
Annar valkostur er hin sænska
Brúðkaup Elinóru (Elinors Bröll-
op) þar sem Henry Meyer, einn helsti
húmoristinn í sænskri kvikmynda-
gerð (enda Breti), stýi-ir gamanmynd
um mann sem „bjargar" stúlkunni
sinni frá því að giftast öðrum. Með
Jonas Malmsjö og Ewu Fröling.
Gleymið þeim þriðja, Jóa og eld-
fjallinu (Joe Versus the Volcano,
‘90), sem er einn versti skellur
Hollywood á síðari árum. Afspyrnulé-
leg, jafnvel Tom Hanks og Meg Ryan
illþolandi. Myndbandahandbókin gef-
ur -kVi.
Stöð 2 >22.20 Kletturinn (The
Rock, ‘96). Sjá umsögn í ramma.
Sjónvarpið >23.35 „Cult-“myndh-
eru ekki öllum að skapi, en Rukkar-
inn (Repo Man, ‘84), telst í þeim
hópi. Söguhetjan er bílainnheimtu-
maðurinn Emilio Estevez, sem lendir
í óútreiknanlegum og ómældum
hremmingum í vafasömu stai’fi. Kol-
svartur húmorinn er undarlegur en
oft vel heppnaður og vakti athygli á
leikstjóranum, Alex Cox, sem hefur
fátt gert markvert síðan. Forvitnileg
og frumleg en ekki að allra smekk.
Sýn >22.35 Hollywood endurgerði
hina kunnu hrollvekju Fluguna (The
Fly) ái-ið 1985. Með fínum árangri,
enda sjálfur David Cronenberg við
stjórnvöUnn. Nú er komið að fam-
haldinu, sem er tekið að þynnast.
Eric Stoltz leikur aðalhlutverkið.
Enginn annar en Frank Darabont
(Rita Hayworth og Shawshank-fang-
elsið) er einn höfunda, en er ekki
kominn á skrið. ★★
Stöð 2 >0.35 Ef B-leikarinn
Christopher Lambert á enn ein-
hverja aðdáendur, þá er myndin Ref-
skák (Knight Moves, ‘92) hvað helst
fyrir þá. Lambert er ótrúverðugur
sem keppandi á áskorendamóti fvrir
heimsmeistarakeppnina í skák. Lík
fara að hrannast upp í kringum hann.
Myndin verður aldrei áhugaverð eða
spennandi. Með Diane Lane. ★1/2
Stöð 2 >2.30 Hættuspil (Dancing
With Danger, ‘94) nefnist þessi frum-
sýning á sjónvarpsmynd sem er fallin
í gleymsku og finnst hvergi. Um
einkaspæjara sem er ráðinn til að
finna týnda eiginkonu. Á ykkar
ábyrgð.
Sæbjörn Valdimarsson
Hús byggt á bjargi
1. Með nóg af hárgeli og allt greitt aftur f „Vampire’s Kiss“.
2. Mjög stuttklipptur í myndinni „Face/Off“.
3. Með nokkurs konar „kótelettu“-greiðslu í „Guarding Tess“.
4. Afturgreiddur listamannabrúskur í myndinni
„Moonstruck”.
5. Sambland af Elvis- og JFK-hárgreiðslu i „Peggy Sue Got
Married".
6. Úfinn og lufsulegur í „Raising Arizona”.
7. Snoðklipptur í hasarmyndinni „The Rock“.
8. APPELSÍNUGUL broddaklipping í „Valley Girl“.
Hinar
mörgu hár
greiðslur
Cage
> LEIKARINN
Nicolas Cage hefur
leikið margar
furðulegar per-
sónur á ferli sín-
um og skartað
hinum ýmsu hár-
greiðslum. Á
myndunum má
sjá greiðslur allt
frá því hann lék í
unglingamynd-
inni „Valley
Girl“ í upphafi
ferilsins til
greiðslunnar í
myndinni „Con-
Air“ sem er ein
af nýrri mynd-
um kappans.
Stöð 2 >22.20 Maður er nefnd-
ur Jerry Bruckheimer og er einn
traustasti og frægasti framleiðandi
hasarmynda í Hollywood. Þær eru
undantekningarlitið fín afþreying
með miklum átökum, kúlnahríð og
þrungnar spennu en jafnframt
glórulitlar. Kletturinn (The
Rock, ‘96) er ein sú besta og naut
mikilla vinsælda í kvikmyndahús-
um í hitteðfyrra. Landgönguliðar
flotans, undir stjórn Eds Harris,
taka fangelsiseyjuna illræmdu,
Alcatraz, í gíslingu og hóta
íbúum San Francisco kjarn-
orkuveislu ef ekki verður
gengið að kröfum þeirra.
Nicolas Cage leikur
Dansnámskeið
I MYNDINNI
„ConAir" var
Cage sérlega hár-
prúður með síða
lokka.
hálfóðan leyniþjónustumann sem
fær fyrrverandi fangann Sean
Connery sér til halds og trausts til
að komast inn í óárennilegt virkið
á „Klettinum", eins og Alcatraz er
jafnan kallað í Vestrinu. Gjörsam-
lega heilalaus, verið ekki að velta
ykkur upp úr ótrúverðugri at-
burðarásinni, hún er ekki til þess
gerð, aðeins að skemmta. Og tekst
það með ágætum. Auk stjamanna
tveggja gleðja finir aukaleikarar
eins og Ed Harris, John C.
McGinley og William Forsyth aug-
að. Hans Zimmer sér um tónlistina
og sjónvarpsauglýsingamaðurinn
Michael Bay leikstýrir með látum.
★★★
Þjóðdansafélags
Reykjavíkur
hefjast 12. janúar 1998 að Álfabakka 14a.
Gömludansanámskeið á mánudögum
kl. 20.30 og kl. 21.30
Verð krónur 6.000,00 12 skipti
Barna og unglinganámskeið
á þriðjudögum eða laugardögum
Verð á námskeiðunum eru:
3-5 ára kr. 3.500.-,
6-8 ára kr. 5.000,-,
9 ára og eldri kr. 6.000,-
Ath. Systkinaafsláttur 25%.
Framhaldsnámskeið í Línudansi
þriðjudaga kl. 20.00
íslenskir VÍKIVAKAR
á fimmtudögum kl. 20.30
Upplýsingar og innritun í síma 587 1616
DANSHUSIÐ
Artún
%
A--
Vagnhöfða 11, simar 567 4090 og 898 4160, fax 567 4092
Gömlu og nýju dansarnir á föstudagskvöld
Húsið opnað kl. 22.00
Hljómsveitin Léttir sprettir
Laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Tvöföld áhrif frá Ólafsfirði
íA(œturjaunn
Smiðjuvegi 14, ‘J(ópavojji, sími 587 60S0
‘Dansstaður
Föstudags- og laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Galabandið ásamt Önnu Vilhjálms
Sunnudagskvöld leikur hljómsveit
Hjördísar Geirs
gömlu og nýju dansana
JAY Leno hefur fengið
marga fræga gesti í
gegnum árin og var fyrstur
til að fá Hugh Grant í
heimsókn eftir atvikið með
Divine Brown forðum.
Jay Leno
framlengir
til 2003
GRÍNISTINN Jay Leno gerði á
dögunum fimm ára samning við
NBC sjónvarpsstöðina um að
stjórna áfram viðtalsþættinum
„The Tonight Show“ sem er einn
sá vinsælasti í Bandaríkjunum.
Leno tók við stjórn þáttarins
af Johnny Carson árið 1992 og
hefur átt gífurlegum vinsældum
að fagna og hefur iðulega orðið
ofan á í samkeppni við helsta
keppinaut sinn David Letterman.
í samtali við New York Post
sagðist Leno vera hæstánægður
með samninginn enda líki honum
vel við starfið sitt.
„Þetta var mjög einfalt samn-
ingaferli. Þeir spurðu hvað ég
vildi fá borgað og ég sagði þeim
að koma mér á óvart,“ sagði
Leno en hvorki hann né NBC
vildu tjá sig um innihald samn-
ingsins. Uppi voru getgátur um
að Leno fengi um einn milljarð
króna í árslaun fyrstu þrjú árin
og svo 1,2 milljarða króna síð-
ustu tvö árin. Þessu neitaði
grínistinn en sagðist þó hafa
gaman af því að þéna dágóðar
upphæðir.
Áð sögn Warren Littlefield hjá
NBC voru enn tvö ár eftir af
gamla samningi Lenos en vegna
vinsælda hans og frábærrar
frammistöðu hefði verið ákveðið
að launa honum samkvæmt því.
Með samningnum geta fon-áða-
menn NBC-sjónvarpsstöðvarinn-
ar andað aðeins léttar en yfirvof-
andi brotthvarf grinistans Jerry
Seinfeld frá stöðinni er mikill