Morgunblaðið - 09.01.1998, Qupperneq 68
Heimilisbankinn
á Internetinu!
ÚNAÐARBANKINN
traustur banki
Mmiát
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLADID, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
BÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Beðið
eftir snjó
Á SKÍÐASVÆÐUM landsins eru
menn í viðbragðsstöðu og bíða í of-
væni eftir snjó. Sömu sögu er að
segja hjá Landgræðslunni, þar sem
menn hafa áhyggjur af kali ef fryst-
ir harkalega á auða jörð.
Hjá Vegagerðinni og gatnamála-
stjóra sparast háar fjárhæðir sem
allajafna er varið til snjómoksturs á
þessum tíma árs, en á móti kemur
að slitlag fer mjög illa þar sem ekið
er á nagladekkjum á auðum og rök-
um götum.
Þrátt fyrir snjóleysið var góð sala
í skíðum fyrir jólin og telja kaup-
menn ekki ólíklegt að frami Kristins
Björnssonar á skíðabrautinni hafí
þar haft sitt að segja.
Sparnaður vegna/6
Rætt um flutning Bústaða-
safns í Borgarleikhúsið
BORGARLEIKHÚSIÐ gæti orðið vettvangur
fjölbreyttari menningarstarfsemi en nú nái hug-
mynd um að flytja þangað útibú Borgarbóka-
safnsins í Bústaðakirkju fram að ganga, en
leigusamningur safnsins í Bústaðakirkju er að
renna út. Að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur borgarstjóra er hugmynd þessi á algjöru
frumstigi, en rætt hefur verið um að byggja við
anddyri leikhússins komi til þess að safnið verði
flutt í Borgarleikhúsið.
„Það þarf að flytja safnið og þá hafa menn ver-
ið að velta því fyrir sér inn á þessa miðju þarna
þar sem fólkið kemur flest. Okkur fannst áhuga-
vert að skoða Borgarleikhúsið í þessu sambandi
vegna þess að við teljum að þarna sé um að ræða
starfsemi sem styðji hvor við aðra og úr geti orð-
ið svolítið skemmtilegt samspil með leikhúsi og
bókasafni. Þá gæti þetta orðið þess valdandi að
það komi fleiri inn í þetta hús og í því verði meiri
umferð, sem ég held að geti ekki síst stutt við
leikhússtarfsemina,“ sagði Ingibjörg Sólrún.
100 þúsund gestir á ári
Bent hefur verið á ýmsa kosti þess að flytja Bú-
staðasafnið í Borgarleikhúsið. Þá gæti stórt and-
dyri leikhússins, sem nú stendur autt og ónotað
yfir daginn, nýst sem veitingastaður í tengslum
við bókasafnið og um leið mætti setja þar upp
sýningar á vegum safnsins. Einnig væri hægt að
halda fyrirlestra á vegum safnsins í salarkynnum
leikhússins.
Þessar hugmyndir eru hins vegar skammt á
veg komnar og hafa ekki enn verið lagðar fram í
borgarráði en verði af þessu má búast við að sýnu
fleiri hafi viðkomu í Borgarleikhúsinu en áður.
Árlega eru um 100 þúsund komur safngesta í Bú-
staðasafn, en alls eru komur í aðalsafn og öll útibú
Borgarbókasafnsins um 580 þúsund á ári, að sögn
Önnu Torfadóttur borgarbókavarðar. Verði þetta
útibú flutt í Borgarleikhúsið má jafnvel búast við
enn fleiri gestum vegna nálægðarinnar við Kringl-
una.
RÆTT hefur verið um að byggja við anddyri Borgarleikhússins og flytja Bústaðasafn Borgarbókasafnsins þangað.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Afgerandi niðurstaða í atkvæðagreiðslu sjómanna
Mikill meirihluti sam-
þykkti verkfallsboðun
TALNINGU atkvæða um boðun verkfalls var lokið í nær öllum aðildarfélög-
“'ufn Sjómannasambands íslands í gærkvöldi eða á yfir 90% atkvæða og varð
niðurstaðan afgerandi. Samþykkti meirihluti í öllum félögunum að tveimur
félögum undanskildum að fara í verkfall 2. febrúar, hafi samningar ekki náðst
fyrii' þann tíma, skv. upplýsingum Hólmgeirs Jónssonar, framkvæmdastjóra
Sjómannasambandsins. 73,8% þeirra sem afstöðu tóku sögðu já en 26,2% nei.
Þá var verkfallsboðun samþykkt í sjö af átta félögum innan Farmanna- og
fiskimannasambands Islands. Niðurstöður lágu ekki fyrir úr atkvæðagreiðslu
nokkurra minni sjómannafélaga í gærkvöldi en úrslit voru ljós í öllum stærstu
sjómannafélögunum.
Verkfallsboðun var samþykkt í
einstökum félögum með allt frá
51,2% greiddra atkvæða og upp í
90%. Á kjörskrá í þeim félögum þar
sem úrslit lágu fyrir voru 2.684, þar
af kusu 1.444 eða 53,8%.
Boðun verkfalls var felld í Verka-
lýðs- og sjómannafélagi Skaga-
strandar með sjö atkvæðum gegn
fjórum og munu félagsmenn þess
því ekki taka þátt í boðuðum verk-
fallsaðgerðum. Sömu sögu er að
segja um félagsmenn í Bárunni á
Eyrarbakka, en þar voru fjórir á
kjörskrá og felldu þeir allir verk-
fallsboðun.
Eldur í bíl í
. Jiafnarfirði
KONA brenndist nokkuð á hendi í
gærkvöld þegar eldur kom upp í bíl
hennar þar sem hún var á ferð í
Hafnarfirði. Hún var ein í bflnum.
Vegfarandi sá þegar eldur kom
upp í bflnum og kallaði á slökkvilið
og urðu nokkrar skemmdir á bfln-
sem var nýlegur smábíll af jap-
ífhskri gerð.
Verkfallsboðunin var samþykkt í
öllum verkalýðs- og sjómannafélög-
um á Vestfjörðum sem eru innan Al-
þýðusambands Vestfjarða.
Hringnum lokað
Talning atkvæða skipstjóra og
stýrimanna í Farmanna- og fiski-
mannasambandinu um boðun verk-
falls fór einnig fram í gær. Sjö af
átta aðildarfélögum samþykktu
verkfallsboðun, en eitt félag, Verð-
andi í Vestmannaeyjum, var á móti.
Guðjón A. Ki-istjánsson, forseti
FFSÍ, sagði að það hefði engin áhrif
á heildarniðurstöðuna þar sem
hringnum um landið hefði verið lok-
að, en Sjómannafélagið Jötunn í
Vestmannaeyjum samþykkti verk-
fallsboðunina.
Vélstjórar koma til sáttafundar
með viðsemjendum hjá ríkissátta-
semjara fyrir hádegi í dag og eftir
hádegi koma fulltrúar sjómanna og
yfirmanna til sáttafundar með út-
vegsmönnum.
Evrópusambandið bannar inn-
flutning á ferskum Nilarkarfa
SH hætt sölu
EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur sett bann við innflutningi á ferskum Nílar-
karfa úr Viktoríuvatni og gekk bannið í gildi frá og með 31. desember sl.
ESB greip til þessa ráðs vegna kólerufaraldurs, sem upp kom í Úganda um
miðjan desembermánuð. Innflutningsbannið hefur bein áhrif á starfsemi
SH sem verið hefur að byggja upp viðskipti með ferskan Nilarkarfa úr
Viktoríuvatni í Belgíu, Hollandi, Lúxemborg og Frakklandi, en karfinn er
fluttur með beinu flugi frá Úganda til Bnigge í Belgíu tvisvar í viku og til
stóð að fjölga ferðum upp í þrjár í viku þegar bannið skall á um áramótin.
SH flutti samtals 800 tonn ^ af
ferskum Nílarkarfaflökum frá Úg-
anda til Evrópusambandslandanna
á síðasta ári, en þurfti að stöðva inn-
flutninginn um leið og bannið skall
á, að sögn Péturs Edvarssonar,
framkvæmdastjóra söluskrifstofu
SH í Belgíu. Söluverðmæti Nílar-
karfans er um 5,20 dollarar á kfló.
Vonir standa til að
banninu verði aflétt
„Fyrir okkur er þetta mjög leið-
inlegt, en ég var mjög ánægður í
dag þegar ég fékk þær fréttir á faxi
að líklega yrði banninu aflétt hinn
31. janúar nk., að minnsta kosti
gagnvart Brugge þar sem skoðun-
arstofan, sem skoðar allan okkar
fisk, er viðurkennd af ESB,“ sagði
Pétur í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Sennilegt er að allur sá fisk-
ur, sem kemur inn til Oostende og
tékkaður er þai-, fái að fara í gegn
auk þess sem fréttir benda til þess
að menn séu að ná tökum á faraldr-
inum í Úganda. Við erum þvi að
vona að hægt verði að hleypa fiskin-
um inn með mjög ströngu eftirliti."
Að sögn Péturs fæst Belgíu-skrif-
stofa SH eingöngu við ferskfiskinn-
flutning. Hins vegar ætti bannið
ekki að hafa áhrif á innflutning á
frystum Nílarkarfa sem söluskiif-
stofur SH í París og Hamborg
sinntu lítillega.