Morgunblaðið - 22.01.1998, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Óskað eftir viðræðum um sameiningu Breiðdalsvíkur og Egilsstaða
80 km milli sveitarfélaganna
og yfír Breiðdalsheiði að fara
HREPPSNEFNDIN á Breiðdals-
vík hefur óskað eftir viðræðum
við bæjarstjórn Egilsstaða um
möguleika á sameiningu sveitar-
félaganna. Áttatíu kílómetrar eru
á milli staðanna og yfir Breiðdals-
heiði að fara.
Hreppsnefnd Breiðdalshrepps
samþykkti að óska viðræðna við
sveitarstjórnirnar á Djúpavogi og
Egilsstöðum um sameiningu.
„Það virðist ekki vera áhugi á
þessu á Djúpavogi og við ætlum
því að athuga með Egilsstaði,“
seg^ir Rúnar Björgvinsson, sveit-
arstjóri á Breiðdaisvík. Helgi
Halldórsson, bæjarstjóri á Egils-
stöðum, sagði að bæjarstjóminni
þætti sjálfsagt að ræða við full-
trúa Breiðdælinga en tók fram að
málið væri á algeru byijunarstigi.
Of lítið sveitarfélag
fbúar Breiðdalshrepps eru um
300 og segir sveitarstjórinn að
menn telji að sveitarfélagið sé fúll-
lítil eining til að fullnægja þeim
skyldum sem á það em lagðar.
Eftir að Búlandstindur hf. á
Djúpavogi keypti frystihús og
meginhluta kvóta Breiðdalsvíkur
kom til umræðu að sameina sveit-
arfélögin en þegar til kom reynd-
ist ekki áhugi á því á Djúpavogi.
Þá var sameining Fáskrúðsfjarð-
ar, Stöðvarfjarðar og Breiðdals-
víkur felld í kosningum árið 1993.
Eftir að nokkrir hreppar á
Fljótsdalshéraði sameinast Egils-
stöðum við næstu sveitarstjómar-
kosningar mun nýja sveitarfélag-
ið liggja að Breiðdalshreppi.
Hinsvegar er yfír Breiðdalsheiði
að fara og 80 km Ieið milli stað-
anna og þar em vetrarsamgöng-
ur ekki öruggar. Þegar farið er
um fírðina er leiðin milli staðanna
130 kílómetrar.
iyðisfjörður
Edilsstaðír'
Neskaupstaði
Fáskrú ðsfjörðu r
ÍBreiðdalsvík
tn stækkaí
O L-l svæíi
Starfsleyfi fyrir Vegas
Nýr lög- _
reglusljóri
settur vegna
vanhæns
SETTUR hefur verið lögreglustjóri
til að fara með ákvörðun um starfs-
leyfi fyrir skemmtistaðinn Vegas
sem borgarráð hefur mælst til að
verði afturkallað. Er ástæðan sú að
burðarveggur hafði verið fjarlægður
og settar súlur í stað hans. Ráðu-
neytið hefur skipað Karl Gauta
Hjaltason, fulltrúa sýslumannsins á
Selfossi, til að vera settur lögreglu-
stjóri í þessu máli.
Þegar borgarráð sendi lögreglu-
stjóraembættinu í Reykjavík tilmæli
um að starfsleyfi yrði afturkallað
vegna breytinga sem gerðar höfðu
verið óskaði embætti lögreglustjóra
eftir því við dómsmálaráðuneytið að
settur yrði lögreglustjóri til að taka
afstöðu í málinu. Er það vegna
skyldleika lögreglustjóra og eins for-
ráðamanns staðarins og telst því
embættið vanhæft til að taka málið
til afgreiðslu.
Meðan tekin er afstaða til tilmæla
borgarráðs er starfsemi skemmti-
staðarins ótrufluð. Gera má ráð fyrir
að ákvörðun setts lögreglustjóra geti
legið fyrir eftir nokkra daga.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Brúarvinna við Elliðaár
ÞÓTT kalsalegt væri um að litast í höfuðborginni í borgarinnar sem unnu að því að leggja járngrindur
gær, var engan bilbug að finna á starfsmönnum yfir trégólf efstu brúarinnar yfir Elliðaár í éljunum.
Ránstil-
raun við
Gnoðarvog
HETTUKLÆDDUR maður gerði
tilraun til vopnaðs ráns í söluturni
við Gnoðarvog klukkan 18:20 í
gær. Maðurinn, sem var vopnaður
hnífi, tilkynnti sölustúlkunni að
þetta væri vopnað rán og skipaði
henni að leggjast á gólfið. Hann
stökk síðan inn um afgreiðslulúg-
una og að peningakassanum.
Stúlkan, sem er annar eigandi
söluturnsins, fór hins vegar ekki
að tilmælum hans um að leggjast
niður. Hún náði að ýta á neyðar-
hnapp og setja öryggiskerfið í
gang. Við það lagði árásarmaður-
inn á flótta og stökk aftur út um
lúguna án þess að taka hnífinn eða
nokkuð annað með sér.
Stúlkan sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að auðvitað
hefði sér brugðið. Þetta hefði allt
gerst mjög snöggt og hún ekki haft
tíma til að hugsa, bara brugðist
ósjálfrátt við.
--------------
Forsætisráð-
herra skipar
landafunda-
nefnd
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
skipaði í gær nefnd til að gera til-
lögur til ríkisstjómarinnar um það
með hvaða hætti eigi að minnast
þess að um aldamótin verða liðin
1000 ár frá landafundum íslend-
inga í Vesturheimi.
I fréttatilkynningu frá forsætis-
ráðuneyti segir að nefndinni sé
jafnframt ætlað að fylgja eftir þeim
tillagna sinna, sem ríkisstjómin
samþykki.
í nefndinni eiga sæti Sigurður
Helgason, forstjóri og formaður
hennar, Steindór Guðmundsson
verkfræðingur, Anna Spffía Hauks-
dóttir prófessor, Atli Ásmundsson
blaðafulltrúi og Komelíus Sig-
mundsson forsetaritari. Einar
Benediktsson sendiherra mun
starfa með nefndinni.
Fasteignamat hækkaði á öllum tegundum eigna um a.m.k. 4,5% 1. desember síðastliðinn
Verð 70-110 fm hús-
næðis ekki hækkað
Tæpan helming hækkunar vísitölu neysluverðs nú í janúar
má rekja til hækkunar á húsnæðislið vísitölunnar. I umfjöllun
Hjálmars Jónssonar kemur fram að Fasteignamat ríkisins kunni
að hafa ofáætlað almenna hækkun á markaðsverði húsnæðis við
ákvörðun fasteignamats, en það er grunnur fasteignaskatta sem
eru önnur helsta tekjulind sveitarfélaganna í landinu.
VÍSITALA neysluverðs hækkaði
um 0,6% milli mánaðanna desember
og janúar og má rekja helming
þeirrar hækkunar eða 0,3% til
hækkunar á húsnæðislið vísitölunn-
ar. Hækkun húsnæðisliðarins sund-
urliðast þannig að tæpan helming
eða 0,14% má rekja til 1,8% hækk-
unar á markaðsverði húsnæðis,
samkvæmt gögnum Hagstofunnar.
0,09% hækkunar vísitölunnar má
rekja til 4,4% hækkunar á gjöldum
vegna húsnæðis, en þar er um að
ræða hækkun fasteignaskatta vegna
þess að fasteignamat á húsnæði
hækkaði 1. desember samkvæmt
ákvörðun yfirfasteignamatsnefndar.
Aðrir liðir höfðu minni áhrif á
hækkun húsnæðisliðarins, svo sem
hækkun húsaleigu og viðhalds.
Samkvæmt ákvörðun yfirfast-
eignamatsnefhdar hækkaði mats-
verð íbúðarhúsa, íbúðarlóða, og bú-
jarða ásamt íbúðarhúsum og útihús-
um almennt um 4,5% 1. desember
síðastliðinn. Þó hækkaði matsverðið
um 9% á Akranesi, Hellissandi, Rifi,
Ólafsvík, Grundarfirði, Sauðárkróki,
Siglufirði, Húsavík, Þórshöfn, Fella-
bæ, Egilsstöðum, Neskaupsstað,
Hellu, Eyrarbakka og Borgamesi,
nema hvað húsnæði í fjölbýli þar
hækkaði um 12%. íbúða- og lóða-
verð hækkar einnig um 12% í
Stykkishólmi, Hólmavík, Vopnafirði
og Djúpavogi. Þá er óbreytt mats-
verð á íbúðum og lóðum á Patreks-
firði, Bíldudal, Bolungarvík og
Seyðisfirði.
I nýjasta hefti markaðsfrétta
Fasteignamats rfkisins sem út kom í
desember kemur hins vegar fram að
fermetraverð á húsnæði af stærð-
inni 70-110 fermetrar í fjölbýli á höf-
uðborgarsvæðinu hefur sáralítið
breyst á síðastliðnu ári. Mælikvarði
á verðbreytingar á þeirri stærð hús-
næðis, sem er hvað algengust í land-
inu og langsamlega mest af á höfuð-
borgarsvæðinu, er lítið eitt hærri í
síðastliðnum nóvember miðað við
nóvembermánuð árið 1996 eða 104,0
samanborið við 103,1. Mælingarnar
byggjast á gerðum kaupsamningum
en skylt er að skila afriti þeirra til
Fasteignamatsins.
Stærsta og minnsta
húsnæðið hækkaði
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins stafar hækkun markaðs-
verðs á húsnæði um 1,8%, sem Hag-
stofan mælir, af hækkun á verði
stærsta og minnsta húsnæðisins í
desembermánuði. Því er hins vegar
ekki til að dreifa við hækkun fast-
eignamatsins, þar sem frá því var
gengið í nóvember miðað við þær
upplýsingar sem þá lágu fyrir um
verðþróun á haustmánuðum.
4,5% hækkun fasteignamats á
langstærstum hluta húsnæðis í
landinu þýðir samsvarandi hækkun
fasteignaskatta að frádregnu 1% af-
skriftum sem almennt eru vegna
íbúðarhúsnæðis. Hækkun matsins
ætti þannig að þýða um 3,5% hækk-
un tekna sveitarfélaganna af fast-
eignasköttum á íbúðarhúsnæði
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins.
Magnús Ólafsson, forstjóri Fast-
eignamats ríkisins, sagði aðspurður
um þetta að þau gögn sem Fast-
eignamatið hefði haft í höndunum
hefðu bent til þess að verðlag færi
hækkandi, en það virtist ekki hafa
gengið eftir í þeim mæli sem ráð
var fýrir gert, samkvæmt þeim töl-
um sem nú lægju fyrir um verðþró-
un á 70-110 fermetra íbúðarhús-
næði.
Hann sagði að samkvæmt lögum
um fasteignamatið ætti það að end-
urspegla markaðsverð viðkomandi
eignar í nóvembermánuði ár hvert.
„Þeir sölusamningar sem við vorum
búnir að fá bentu til að þessi hækk-
un væri eðlileg," sagði Magnús enn-
fremur. Hann bætti við að lög um
fasteignamatið væru komin til ára
sinna og mjög eðlilegt að þau yrðu
endurskoðuð.
Hann sagði að með matinu væri
verið að reyna að komast eins ná-
lægt verðþróuninni almennt og
kostur væri og reyna að fella hana í
eina tölu. Verðþróunin gæti hins
vegar verið aðeins mismunandi
milli einstakra tegunda eigna. Af-
skriftarreglur varðandi húsnæði
gerðu það síðan að verkum að
hækkun matsins væri í kringum
3,5% almennt talað.
Aðspurður hvort ekki yrði að
lækka matið aftur úr því að sú
hækkun sem búist var við hefði ekki
gengið eftir, sagði Magnús að það
yrði bara að skoða þegar þar að
kæmi.
Hann benti einnig á að fasteigna-
mat stærri eigna hefði lækkað um
5-7% árið 1995 og 6-7% árið 1996
eða samanlagt um nálægt 13%.
Þarna væri um að ræða stórar eign-
ir, bæði í einbýli og fjölbýli, og hefði
lækkun matsins miðast við þróun
markaðsverðs á þeim tíma.
I.
I
fi
i
í
1
!
I
l
S
I
i
:
I
j
i
I
i
i