Morgunblaðið - 22.01.1998, Síða 10

Morgunblaðið - 22.01.1998, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samningur Skógræktarfélags Reykjavíkur og Hitaveitunnar um skógrækt og uppgræðslu Nýtt svæði til útivistar í Hvammsmörk FORSVARSMENN Skógræktar- félags Reykjavíkur og Hitaveitu Reykjavíkur undirrituðu í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur samning um uppgræðslu- og skógræktarstarf á rúmlega 100 hekturum lands á jörðunum Hvammi og Hvammsvík í Kjós, sem Hitaveitan keypti árið 1996. Þetta land, sem er beggja vegna þjóðvegarins, er sá hluti jarðanna sem ekki verður nýttur til orkuöflunar eða annarrar starf- semi í samræmi við umhverfis- skipulag. Með þessu er ætlunin að koma upp skipulögðu útivistar- og trjá- ræktarsvæði fyrir borgarbúa. Jafn- framt verður stuðlað að því að hóp- ar, félög og fyrirtæki í Reykjavík geti fengið til ræktunar landnema- spildur, sem verða hluti af útivistar- svæðinu og almenningi heimil för um þær eftir gönguleiðum. Jafnframt því sem samningurinn var undimtaður var kynnt náttúru- farskönnun sem gerð hefur verið á svæðinu undir umsjón Borgarskipu- lags og Hitaveitunnar en Landmót- un ehf. sá um skipulagsvinnuna. Sambærileg náttúrufarskönnun og landnýtingaráætlun hefur áður ver- ið gerð á jörðum veitustofnana í Grafningi. Að náttúrufarskönnuninni. hafa komið Náttúrufræðistofnun ís- lands, sem var falið að gera úttekt á jarðfræði, gróðurfari og fuglalífi, Fornleifastofnun íslands, sem vinn- ur fyrir hönd Arbæjarsafns að skráningu fornleifa og Skógræktar- félag Islands, sem gerir athugun á skógræktarskilyrðum. Þá sér korta- gerðarfyrirtækið Isgraf um gerð grunnkorts á tölvutæku formi. Fjölbreytt útivistarstarfsemi Meginmarkmið skipulagsvinn- unnar í Hvammi og Hvammsvík er að vemda og nýta landkosti jarð- anna í þágu fjölbreyttrar útivistar- starfsemi. Gerðar verða tillögur um aðkomuvegi, göngu- og reiðleiðir, uppbyggingu á þjónustu og afmörk- un á ræktunarsvæðum. Þá verða skilgreind vemdarsvæði vegna náttúm og sögu og þau tengd möguleikum við umhverfisfræðslu í tengslum við fræðslustíga og til- heyrandi upplýsingaskilti. Um leið og Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar Veitustofnana, lýsti ánægju sinni yfir samningnum við Skógræktarfélagið, vitnaði hann í nýútkomna bók Friðþórs Eydal, Vígdrekar og vopnagnýr. Þar er mynd og frásögn af bandarískum sjóliðum, sem rann það til rifja að sjá engan trjágróður á athafna- svæðum sínum í Hvalfirði og plönt- 'CSxSJW‘ JReyniveJlír Morgunblaðið/Kristinn GUNNAR Kristinsson hitaveitustjóri, Alfreð Þorsteinsson, formaður sijórnar Veitustofnana, og Ólafur Sig- urðsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, undirrita samning um skógrækt og uppgræðslu á rúm- lega 100 hektara landi í Hvammi og Hvammsvík í Kjós. uðu þvi í Hvammsvík einu litlu grenitré, sem þeir kváðu vera eina tréð á öllu íslandi. Það tré er hins vegar hvergi sjáanlegt nú og kvaðst Alfreð sannfærður um að byrlegar blési fyrir skógrækt Reykvíkinga á svæðinu á komandi árum. Olafur Sigurðsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, sagði undirritun samningsins marka ánægjuleg tímamót fyrir skógræktarmenn. Hann minntist þess að um það bil hálf öld væri nú liðin frá því að Reykjavíkurborg og Skógræktarfélag Reykjavíkur gerðu með sér samning um að fé- lagið tæki að sér umhirðu og upp- græðslu útivistarsvæðis borgarinn- ar í Heiðmörk. Það land væri nú því sem næst fullplantað og ekki lengur hægt að verða við óskum áhuga- samra skógræktarmanna og starfs- mannahópa um að taka land í fóstur í nágrenni borgarinnar. Því væri svæðið í Hvammi og Hvammsvík, sem mun verða kallað Hvamms- mörk, kærkomin viðbót. í ávarpi sínu að undirritun samn- ingsins lokinni kvaðst Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hlakka mikið til að aka inn Hval- fjörðinn að tveimur til þremur ára- tugum liðnum og sjá hann viði vax- inn milli fjalls og fjöru. Umhverfisskipulag \\v a l f j ö r ð u r Hvammur og Hvammsvík Núverandi sumarbúsi ■I Landnemaspildur Jarðamörk iíai Þjónustumiastöo 1) ■(Hvammsvík , w(«»> Hvammsvik Neðriháls Laxarvogur Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson NOKKRAR skemmdir urðu á dráttarbfl þegar hann valt með tengivagn á mótum Vesturlandsvegar og Akra- nesvegar um klukkan hálftólf í gær. DRÁTTARBÍLL með tengivagn valt á vegamótum Vesturlands- vegar og Akranesvegar laust fyr- ir hádegi í gær. Á tengivagninum var steypt húseining sem fara átti á Grundartanga. Ökumaður slapp ómeiddur. Nokkuð hvasst var og vegurinn blautur þegar óhappið varð. Flutningabfllinn valt rólega Dráttarbíll valt með tengivagn á hliðina og tengivagninn með og urðu talsverðar skemmdir á bfln- um. Að sögn lögreglunnar í Borg- arnesi tafðist umferð um Vestur- landsveg nokkuð fram eftir degi en vegurinn lokaðist þó ekki. Síð- degis tókst að hífa bfl og vagn á réttan kjöl og koma einingunni á leiðarenda. Pólverjarnir undirrituðu samninga sem þeir skildu ekki Krafa gerð um að far- gjaldið verði lækkað VERKALÝÐSFÉLAG Raufarhafn- ar hefur krafist þess að Jökull hf. lækki verð á fargjöldum sem íyrir- tækið ætlast til að verkafólk frá Pól- landi greiði vegna ferðar þess frá Póllandi til Raufarhafnar. Jökull hef- ur ekki fallist á þessa kröfu, en hefur boðist til að lengja greiðslutímann. Jökull tók flugvél á leigu og sótti verkafólkið til Póllands. Stefnt hafði verið að því að 13 yrðu með í för til íslands, en þrír skiluðu sér ekki á réttum tíma í flugvélina og því varð kostnaður á mann hærri en annars hefði verið. Jökull lagði út fyrir far- gjaldinu, en ætlar að draga gjaldið af kaupi starfsfólksins, samtals um 92 þúsund krónur. A þriðjudag var haldinn fundur með Pólverjunum, trúnaðarmönnum og stjómendum Jökuls um þetta mál. Kristján Snædal, formaður Verkalýðsfélags Raufai'hafnar, sagði að á fundinum hefði þess verið krafist að fargjaldið yrði lækkað, en forráðamenn Jökuls hefðu ekki orð- ið við því. Þeir hefðu hins vegar boð- ist til að lengja greiðslutímann og láta endurgreiðslurnar taka mið af tekjum fólksins. Fengu ekki upplýsingar um réttindi sín Kristján sagði að málinu væri ekki lokið af hálfu verkalýðsfélags- ins. Félagið væri að afla sér upplýs- inga um verð á ferðum frá Póllandi til Raufarhafnar, en svo virtist sem hægt væri að komast þessa leið fyr- ir mun lægri upphæð en Jökull hefði boðið Pólverjunum upp á. Kristján sagði að greinilegt væri að Pólverjamir væra illa upplýstir um kjör sín og réttindi. Verkalýðs- hreyfingin og aðrir sem koma að málum þeirra mættu taka sig á í þeim efnum. Samningar sem fólkið hefði gert væra á frönsku, íslensku og ensku og fram hefði komið á fund- inum á þriðjudag að það skildi ekki samningana. Ráðningarfyrirtækið sem réð fólkið til starfa hefði ekki gert því grein fyrir réttindum sínum. Kristján sagði að Pólverjarnir hefðu fengið upplýsingar um að far- gjaldið til íslands kostaði 1.000 doll- ara eða um 73 þúsund krónur, en því hefði ekki verið sagt að þessi kostn- aður næði eingöngu til ferðarinnar frá Gdansk til Keflavíkur. Umdeild nýbygging við Laugaveg 53b Ibúar kæra ákvörðun borg- aryfirvalda ÍBÚAR í nágrenni lóðar númer 53b við Laugaveg í Reykjavík hafa kært byggingaráform skipulags- og umferðamefndar Reykjavíkur- borgar á lóðinni til úrskurðar- nefndar skipulags- og byggingar- mála. Tillaga að byggingu um 2.000 feimetra steinhúss á umræddri lóð og niðurrif tveggja gamalla timb- urhúsa var samþykkt á fundi skipulags- og umferðamefndar hinn 15. desember sl. og staðfest í borgarráði degi síðar. Kæra íbúanna er í tveimur lið- um. Annars vegar er kærð niður- staða skipulags- og umferðar- nefndar um nýtingu lóðarinnar á Laugavegi 53b og hins vegar er kærð meðferð nefndarinnar á mál- inu. Undir kæruna skrifa þau Elín Ebba Ásmundsdóttir, Jon Kjell Seljeseth, Svava Guðmundsdóttir, Friðrik Bridde, Þorkell Ólason og Árni Júlíusson. íbúarnir segja í kærunni að verði byggt á umræddri lóð sam- kvæmt samþykktri tillögu skipu- lags- og umferðamefndar muni umhverfi þeirra og eignir bíða um- talsvert tjón. Skuggi yrði mikill vegna fyi-irhugaðrar byggingar og umferð vegna göngustígs og bíla- geymslu myndi valda veralegum óþægindum. Þá segir í kærunni að skipulags- og umferðarnefnd hafi ekki sýnt þá aðgát sem þörf sé á við samþykkt byggingaráforma á svæðum án deiliskipulags. Ibúar Hverfisgötu 70 hafi til dæmis farið skriflega fram á viðræður við skipulagsyfir- völd vegna málsins um miðjan des- ember sl. en þeirri beiðni hafi ekki verið sinnt. Þá hafi íbúar Lauga- vegar 53b lagt fram sáttatillögu til nefndarinnar um breytingu á ný- byggingunni, en hún hafi ekki verið rædd innan nefndarinnar. Auk þess hafi íbúi á Laugavegi 53a farið skriflega fram á að borg- aryfirvöld tækju afstöðu til þyrp- ingar íbúðarhúsa innan reitsins með því að gera deiliskipulag. Þeirri beiðni hafi ekki verið sinnt. Ennfremur hafi einn nefndarfull- trúi, Guðrún Jónsdóttir, lagt fram greinargerð um byggingarreitinn í heild sinni með tillögu að breyting- um, en sú greinargerð hafi heldur aldrei verið rædd. Áskilja sér rétt til skaðabóta I kærunni fara íbúarnir fram á að úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála, sem skipuð er af umhvei'fisráðherra, felli úr gildi staðfestingu borgarráðs á sam- þykkt skipulags- og umferðar- nefndar frá desember sl. Auk þess fara þeir fram á að afstaða verði tekin til þyrpingar íbúðarhúsa inn- an reitsins með því gera deiliskipu- lag. Ibúarnir áskilja sér ennfremur rétt til skaðabóta verði byggt samkvæmt samþykktri tillögu skipulags- og umferðarnefndar frá 15. desember si. og segja að í þeirri samþykkt hafi ekki verið tekið tillit til sjónarmiða íbúa hverfisins. h

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.