Morgunblaðið - 22.01.1998, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vatnslitir og
teikningar í
. Stöðlakoti
JÓHANN Jónsson opnar sýningu
á vatnslitamyndum og teikningum
í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6, laug-
ardaginn 24. janúar.
Jóhann er fæddur árið 1948 og
hélt sína fyrstu einkasýnigu 1987
í Akogeshúsinu í Vestmannaeyj-
um og í Stadsbibliotek Borlange í
Svíþjóð 1990. Hann hefur einnig
tekið þátt í nokkrum samsýning-
um.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 14-18 og henni lýkur 8.
febrúar.
VERKIN á sýningu Jóhanns
eru unnin á árinu 1997.
Lítilræði af Ítalíu
MYNDLIST
Gallerf Fold
MÁLVERK
Jónas Viðar Sveinsson. Opið daglega
frá 10-18, laugardaga 10-17 og
sunnudaga 14-17. Aðgangur ókeypis.
Til 25. janúar.
JÓNAS Viðai’ nam við listaakadem-
íu í Carrara á Italíu og dvöl hans
þar hefur greinilega markað spor í
list hans. Málverk Jónasar reyna að
endurvekja hið ítalska andrúmsloft,
sérstaklega í gegnum liti, hlýja gula
og bleika liti, marmara-bleikan,
okkurgulan, laxableikan, ferskju.
Allar myndirnar eru einlitar, en á
miðjum myndunum eru örsmáar
fígúrur, ein eða tvær saman, án
nokkurs umhverfis til að halla sér
að: Listamaðurinn, konan (eða lista-
gyðjan), Amor, vængjaður fiskur.
Fígúrurnar búa ekki yfir neinni sér-
stakri frásögn, þær eru frekar eins
og örlitlir skúlptúrar úr gifsi, án
boðskapar og án nokkurrar merk-
ingar, nema þeirrar að hafa ein-
hverja almenna skírskotun í hið
„ítölskulega".
Annars má segja að það hafi lengi
verið til tvær Ítalíur; hin landfræði-
lega Italía og hin ímyndaða Ítalía
listarinnar. Það er ekki síst sú síðari
sem hefur heillað, þar sem saga,
goðsagnir og munúð renna saman í
eitt. En eins og þessi Ítalía hugans
er nú heillandi þá getur hún h'ka
haft lamandi áhrif á ímyndunaraflið.
Hún hefur allt, og það þarf engu að
bæta við - eða réttara sagt: það er
ekki hægt að bæta neinu við!
Jónas Viðar er hálffertugur
Akureyringur, sem hefur sýnt
reglulega fyrir norðan, eftir því sem
mér sýnist af sýningarskrá. Óneit-
anlega verður manni hugsað til ann-
ars málara frá Akureyri, Kristínar
Gunnlaugsdóttur, sem stúderað hef-
ur hinn ítalska menningarheim. En
þar er ólíku saman að jafna, því það
vantar einhvern innri karakter í
þessar myndir Jónasar Viðars.
Fígúrurnar Ijá myndunum írónískt
yfirbragð sem fær mann til að velta
fyrir sér hvaða hugur fylgir máli.
Gunnar J. Arnason
Púað á Vínarfílharmóníuna
Madríd. Reuters.
SÁ fáheyrði atburður átti sér
stað á tónleikum Vínarfflharmón-
íunnar í Madríd að áheyrendur
púuðu á hljómsveitina fyrir að
leika falskt í Bolero eftir Ravel.
„Söguleg stund“ sagði einn tón-
leikagesta í samtali við dagblaðið
E1 País að loknum tónleikunum.
„Áhorfendur í Madríd gerðu upp-
reisn gegn einni þekktustu sin-
fóníuhljómsveit heims.“
Bolero var siðasta verkið á efn-
isskrá Vínarfflharmóníunnar, en
fram að því höfðu tónleikarnir
verið áfallalausir. Fyrst fór óbó-
Ieikari út af laginu, þá hornleik-
ari. Fljótlega renndi básúnuleik-
ari sér í kjölfarið enjiá var áhorf-
endum nóg boðið. „Ut með ykkur,
út með ykkur,“ hrópuðu þeir á
hljómsveitina. Talsmenn tónlist-
arhússins þar sem tónleikarnir
voru haldnir túlkuðu atburðinn
sem óánægju með túlkun hljóm-
sveitarinnar á hinu þekkta verki
Ravels.
Lorin Maazel, stjórnandi Vínar-
fflharmóníunnar, lét sem hann
heyrði ekki hróp áhorfenda og
liélt tónleikunum áfram, undir
lófataki fáeinna kurteisra tón-
leikagesta.
Vínarfflharmónían er 156 ára
gömul og ein virtasta hljómsveit
heims. Hún komst í fréttirnar fyr-
ir skemmstu er hún neyddist til
að veita konum aðgang, en sú
stefna hennar að ráða aðeins
karlkyns hljóðfæraleikara hefur
sætt mikilli gagnrýni.
Þú klippir út myndina hér til
hliðar og límir á svarseðilinn
sem birtist á síðu 49 í
Morgunblaðinu 14. janúar.
Þá átt þú möguleika á að
vinna ferð fyrir tvo í Tívolí í
Kaupmannahöfn, miða á
sýninguna Bugsy Malone
eða geisladisk með tónlist-
inni úr sýningunni.
Mynd 7 af 10
bff.
IjsTjOnu
porountlaiijb
Stokkhólmur ‘98 -
menningarárið hafið
með pomp og prakt
„GÖTULIST" í Stokkhólmi.
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið.
OPNUN menningarhöfuðborgar-
ársins í Stokkhólmi um helgina fór
fram í óvenjugóðu veðri, sem þó
kom sér ekki að öllu leyti vel fyrir
menninguna. Mildur vetur hefur
að visu sparað sænskum bæjarfé-
lögum milljónir í snjómokstur, en í
staðinn kostað menningarárið í
Stokkhólmi snjó- og ísmokstur. ís-
höll í Kungstradgárden í miðbæn-
um er að utan eins og snjóhrúga
sem hefur verið rutt af götunni, en
inni koma í Ijós hvelfíngar með
listaverkum úr ís. A neðanjarðar-
brautarstöðvum og götum borgar-
innar voru víða uppákomur og
sýningar opnaðar í sjö söfnum
samtímis. En þótt ekki hafí skort
flugeldasýningu og aðrar uppá-
komur eru ýmsir hræddir um að
fjármál ársins séu ekki í sem
traustustum farvegi.
Engin hátið án skamm-
stafana: K-98
Engin er hátíð án skammstaf-
ana og menningarárið í Stokk-
hólmi gengur undir heitinu K-98.
Menningin var borin út á götur og
stræti, svo menningin kom til
fólksins en ekki fólkið til menning-
arinnar, og auðvitað fylgdist sjón-
varp og útvarp með og sendi út af
kappi. Hin stórbrotna íshöll laðaði
að sér þúsundir manna, þótt það
þyrfti tækni í formi kælileiðslna til
að forða höllinni frá að breytast í
formlausa snjóhrúgu. Tærar ís-
blokkir að norðan höfðu verið
fluttar til borgarinnar og mynd-
uðu uppistöðu í höllinni, auk þess
sem listamenn hjuggu þær til.
Inni var líka bar, þar sem boðið
var upp á drykki í litlum ísblokk-
um, holuðum út eins og glös. Efa-
laust rétt hitastig á þeim drykkj-
um. Höllin var svo þakin snjó, sem
aldrei þessu vant var ekki hægt að
moka saman á náttúrulegan hátt,
heldur þurfti að búa hann til með
ísvélum. Hitinn var vel yfir frost-
marki, sem er einstakt á þessum
tíma árs, en nú stefnir í kólnandi
veður svo höllin stendur væntan-
lega lengi enn.
A torginu við Kulturhuset var á
laugardaginn uppákoma til að
marka opnun menningarárs barna
og unglinga. A Östermalm-torginu
stigu dansarar fram og dönsuðu
ballett. I strætó stigu leikarar
fram, gengu meðal farþeganna og
fóru með ljóð fyrir þá. Á einni neð-
anjarðarbrautarstöðinni sviptu
verðirnir sig varðarfötunum og
stóðu þá í búningum sem hæfðu
Mozart-óperutextunum sem þeir
fluttu, því þetta voru ekki venju-
legir verðir, heldur nemendur
Óperuskólans. Á annarri stöð var
gospel-tónlist á dagskrá og á einni
lestarlínunni var flutt leikrit. Það
fór því ekki framhjá þeim sem
áttu leið um miðborgina um helg-
ina að mikið stendur til.
Ný safnahús - óvissa
vegna fjárskorts
En söfn og aðrir menningar-
staðir lágu heldur ekki á liði sínu.
Ein helsta myndlistarsýning árs-
ins kallast Ai-chipelag og er haldin
á sjö söfnum, sem sinna annars
ekki nútímalist. Á afmörkuðum
svæðum á söfnunum er komið upp
nútímalistasýningum, sem síðan
verður skipt út fimm sinnum yfir
árið. Einn helsti viðburður ársins
verður svo opnun nýuppgerðs
Moderna Museet 14. febrúar á
Skepsholmen. Á fyrstu sýningunni
verður list frá sjöunda áratugnum,
en síðan tekur við sýning á verk-
um spænska málarans Miro. Sjálft
safnið þykir eitt besta nútímalista-
safn í Evrópu, svo þar er af nógu
að taka. Um svipað leyti verður
einnig opnað á hólmanum safn um
byggingarlist. I vor verður haldin
söguhátíð, sem beinir athyglinni
að gömlum bæjarhlutum borgar-
innar, svo eitthvað sé nefnt.
Fjárhagshlið menningarborg-
anna hefur löngum verið erfið
viðureignar. Þrátt fyrir ítrekaðar
fullyrðingar um að menningarárið
í Kaupmannahöfn stæði undir sér
fór svo að á því varð halli upp á
um 300 milljónir íslenskra króna.
I raun kannski ekki slæmt, því alls
fóru um tíu milljarðar til hátíðar-
innar, helmingur frá hinu opin-
bera og helmingur frá einkaaðil-
um. í Stokkhólmi leggur hið opin-
bera til svipaða upphæð og í Dan-
mörku, en hins vegar hafa aðeins
fengist um 500 milljónir íslenskra
króna frá einkaaðilum og það
veldur áhyggjum. Um þúsund at-
riði eru á dagskrá, en enn er ekki
ljóst hve mörg verða í raun fram-
kvæmd. Borgin Þessalóníka í
Grikklandi, þar sem menningarár-
ið var haldið hátíðlegt í fyrra, hef-
ur nú lent í vandræðum vegna
uppgjörsins, því Evrópusamband-
ið, sem leggur til upphæð til hvers
menningarárs, er ekki sátt við
bókhaldið og hyggst fara nánar í
saumana á rekstrinum.
Síðustu
sýning’ar
Leikfélag Reykjavíkur
Augun þín blá
SKEMMTIDAGSKRÁNNI Aug-
un þín blá, sem byggð er á lögum
og textum Jónasar og Jóns Múla
Árnasona úr söng- og gamanleikj-
um, fer senn að ljúka og eru tvær
sýningar eftir.
Flytjendur eru Andrea Gylfa-
dóttir, Bergþór Pálsson, Jóhanna
Jónas, Kjartan Guðjónsson, Selma
Björnsdóttir, Theodór Júlíusson
og Víðir Stefánsson. Hljómsveit
skipa Kjartan Valdemarsson,
Gunnlaugur Briem, Sigurður
Flosason og Þórður Högnason.
Sýningar verða laugardaginn
24. janúar og fimmtudaginn 12.
febrúar kl. 20.30.
áHMF'ÁRÍK HEELSÖEFMI
Auka orku, úthald og einbeitingu
Fást í mörgum heilsubúðum, apótekum og mörkuðum
'+MÍÍÍlSSÍiÍS*
BIO QINON Q-10
Hykur orku, úthald og vellíðan
URTE PENSIL
Sólhattur
og Propolis
virka vel saman.
Gæðaefni
Skallin Plus
vinur magans
_ Bio Silica.
járn í melassa
PROPOLIS
Gæðaefni frá
Healthilife
Sterkir Propolis
belgir (90 stk.)
virka sérlega vel.
Þú getur treyst heilsuefnum
frá Parma Nord 100%
Bio-Biloba Ginkgo
Bio-Selen + Zink
Bio-Chróm - grennandi
Bio-Giandin Bio-Caroten
Bio-Calcium Bio-Magnesium
Bio-Fiber Bio-E-vítamín
Bio-Zink Bio-Marin
Sími 557 6610.