Morgunblaðið - 22.01.1998, Síða 40

Morgunblaðið - 22.01.1998, Síða 40
4 0 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Kveöjuathöfn um móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MAGNEU J. INGVARSDÓTTUR, Dalbraut 27, verður í Áskirkju á morgun, föstudaginn 23. janúar, kl. 13.30. Katrín Sigurðardóttir, Guðlaugur Borgarsson, Inga Jóna Sigurðardóttir, Eyjólfur G. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, INGIBJÖRG VALDEMARSDÓTTIR, áður til heimilis á Norðurgötu 4, lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, mánudaginn 19. janúar. Börnin. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, MAGNÚS GUÐMUNDSSON húsgagnasmíðameistari, Grandavegi 47, áður Fornhaga 20, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstu- daginn 23. janúar kl. 15.00. Peim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktar- og líknarsjóð Oddfellow. Guðríður Jónasdóttir, Reynir Magnússon, Kolbrún Kristjánsdóttir, Bogi Magnússon, Sigrún Pétursdóttir og barnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ÞÓRARINSSON járnsmiður, verður jarðsunginn frá Reykhólakirkju laugar- daginn 24. janúar kl. 14.00. Sætaferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.00 á laugar- dagsmorgun. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á hjúkrunarheimilið Barmahlíð. Hallfríður Guðmundsdóttir, Þórarinn Þorsteinsson, Þórunn Játvarðardóttir, Steinunn Þorsteinsdóttir, Valdimar Jónsson, Sigvaldi Þorsteinsson, Kristín Mogensen, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi langafi, HARALDUR GÍSLI BJARNASON trésmfðameistari, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, áður Mánabraut 9, og verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstu- daginn 23. janúar kl. 14.00. Guðjón Haraldsson, Herdís Magnúsdóttir, Bjarnfríður Haraldsdóttir, Sigurður Hjálmarsson, Ólöf Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað í dag, fimmtudaginn 22. janúar, frá kl. 13.00—15.00 vegna jarðarfarar ANTONS ÓLASONAR. B og L. ANTON ÓLASON + Anton Ólason fæddist í Reykja- vík 9. júní 1919. Hann lést á Land- spítalanum í Reykja- vík 13. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Margrét Helgadóttir, f. 3. des. 1896 á Akranesi, d. í Reykjavík 3. sept. 1931, og Óli Kristinn Konráðsson neta- gerðarmeistari, f. á Fáskrúðsfirði 26. mars 1900, d. á Akureyri 7. sept. 1948. Systur Antons eru: (sam- mæðra) Erna Adólfsdóttir, f. 19. ágúst 1923, og (samfeðra) Bella Kristín Óladóttir, f. 21. maí 1924. Anton giftist 8. júní 1940 Kri- stjönu Valdemarsdóttir, f. 30. nóv. 1916 að Veisu í Fnjóskadal, og hófu þau sinn búskap á Akur- eyri. Kristjana og Anton eignuð- ust þijú börn, þau eru: 1) Birgir Eyvík, f. 9. nóv. 1940, fyrri maki Guðrún Emelía Guðnadóttir, f. 2. nóv. 1942, barn þeirra er Halldóra, f. 4. des. 1961 og á hún tvö börn, tvíburana Sigrúnu Leu og Guðrúnu Emeliu, f. 22. maí 1991. Þau skildu. Seinni maki Kristrún Baldurs- dóttir, f. 8. nóv. 1938, d. 5. maí 1989, þeirra börn: Baldur Óli, f. 2. maí 1965, d. 13. sept. 1972, Börk- ur, f. 23. ágúst 1966, maki hans er Hrafn- hildur Óladóttir og eiga þau þrjú börn: Bryndísi _ Björk, Kristrúnu Ösp, og Baldur Óla. Hlynur, f. 22. janúar 1968, maki hans er Inga Huld Pálsdóttir og eiga þau tvö börn, Laufeyju Elísu og Liilý Rut. Krisljana Ösp, f. 13. mars 1973, maki Askell Þór Gíslason. 2) Valborg, f. 11. janúar 1946, ógift og barnlaus. 3) Óli Konráð, f. 17. júní 1947, fyrri maki Helga Ágústdóttir, f. 5. maí 1947, þeirra börn eru Darri, f. 25. maí 1971, og Diljá, f. 3. des. 1979. Þau skildu. Núverandi sambýliskona Óla er Ingibjörg Eggertsdóttir. Utför Antons fer fram frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Margar fallegar og skemmtilegar minningar eigum við systkinin um Anton afa okkar sem lést á Land- spítalanum hinn 22. janúar eftir stutta legu. Með þessu fallega kvæði viljum við kveðja hann og þakka honum fyrir allt og allt, minningarnar munum við geyma í hjarta okkar um ókomna framtíð. Kom, huggari, mig hugga þú, Kom, hönd og bind um sárin, Kom, dögg, og svaia sálu nú, Kom, sól, og þerra tárin, Kom, hjartans heilsulind, Kom, heilög fyrirmynd, Kom, Ijós, og lýstu mér, Kom, líf, er ævin þver, Kom, eilífð, bak við árin. (V. Briem.) Halldóra, Börkur, Hlynur og Kristjana Ösp. Elsku pabbi minn. Eg geri þessi orð Einars Bene- diktssonar að mínum. En ástin er björt sem bamsins trú, hún bliknar í (jóssins geimi, og fjarlægð og nálægð, fyrr og nú, oss fmnst þar í eining streymi. Frá heh til lífs hún byggir brú Og bindur oss öðrum heimi. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri; en auga sér mót öllum oss faðmin breiðir. Saknaðarkveðjur. Þín dóttir, Valborg. Elsku pabbi. Fáein og fátækleg orð til að þakka samveruna sem við áttum. Á þessari stundu streyma minning- arnar gegnum hugann, og þær eru allar bjartar. Fyrstu minningamar frá Akureyri tengjast flutningi í nýja íbúð sem þú innréttaðir af þín- um kunna hagleik. Síðan rekur hvað annað, leikföng- in sem þú smíðaðir, veiðistöngin, fyrsti stuðningurinn á reiðhjólinu og hjólið, fá að fara með þér í vinn- una og heimsóknirnar í sveitina, svona væri lengi hægt að telja. Síðan flytur fjölskyldan til Reykjavíkur og þá fengum við að kynnast fólkinu þínu af Grundar- stígnum, nýrri atvinnu þinni, góðum og tryggum vinnufélögum hjá B og L, sem þú áttir eftir að vera sam- vistum við næstu 40 árin. Þá var komið að því að strákurinn færi í bílpróf, ekki stóð á leiðbein- ingum og æfingunum, minnisstæðar eru allar ferðirnar sem ég fékk að fara með þér um landið og kynnast því, bæði á þjóðveginum og utan vegar, svo og að læra að umgangast landið. Svo kom að því að stofna eig- in fjölskyldu, ekki var síðra að eiga þig þar að, bæði í gleði og sorg. Lengst af bjó ég með minni fjöl- skyldu utan Reykjavíkur og alltaf var sama tilhlökkunin hjá okkur þegar von var á ykkur í heimsókn, eða þegar við skruppum í Sólheim- ana. Þú varðst fyrir áfalli, rétt eftir að þínum farsæla vinnutíma lauk og ég hef oft óskað þess að þú hefðir haft lengri tíma til að eyða með mömmu og fjölskyldunni í rólegheitum á þessum efri árum, en þú tókst þessu áfalli með þínu vanalega æðruleysi og án þess að glata húmornum. Einnig er mér minnisstætt að aldrei heyrði ég styggðaryrði fara á milli ykkar mömmu, og ekki er það lítið veganesti fyrir ungling að leggja út í lífið með þann kærleika sem ég varð aðnjótandi heima. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að vera nálægt þér síðustu árin. Þinn sonur, Birgir. Við Anton Ólason vorum vinnufé- lagar um nokkurra ára skeið á sjö- unda og áttunda áratugnum hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum. Anton hafði lengi séð um standsetn- ingu og afhendingu rússneskra bif- reiða sem allir þekkja sem komnir eru til vits og ára. Þegar mig rekur þarna á fjörur hafði starfsemi þessi farið fram í mikilli skemmu sem ennþá stendur á milli húsa inn við Suðurlandsbraut. í skemmunni og á landareign fyrirtækisins á milli Suðurlandsbrautar og Ármúla, sem nú er, stóðu oft fleiri hundruð miklir kassar sem innihéldu bifreiðir sem komið höfðu langan veg frá Sovét. Þama starfaði gjarnan mikill fjöldi manna og ekki síst unglingar við að Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang^ þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. koma bflunum úr kössunum, á hjól- in og snyrta þá til fyrir afhendingu til íslenskra almúgamanna. Starf- seminni stjómaði Anton af rögg- semi og snyrtimennsku. Samkeppni var að aukast í bílasölu, bílar voru farnir að koma frá Japan og fólk hafði meiri peningaráð. Væntanlega af þeim ástæðum var ákveðið að setja af stað verkstæðisrekstur þar sem reynt yrði að veita þjónustu fyrir nýja bíla meðan þeir væm í ábyrgð seljandans. Þegar ég sagði kunningjunum að til stæði að ég tæki að mér stjórn þessa nýja verk- stæðis sögðu þeir einum rómi að nú gengi ég í gin ljónsins; Toni væri svo heimaríkur að ég fengi engu stjórnað, þvert á móti yrði mér stjómað. Skemmst er frá að segja að hrakspárnar stóðust ekld. Anton reyndist mér hinn besti félagi og ekki síður leiðbeinandi í lífsins skóla. Snyrtimennska, þrifnaður og góð regla var í fyrirrúmi og ég sá að þar var lykillinn að því að starfsemin gengi snurðulaust. Nýtni og útsjón- arsemi Tona komu sér oft vel, því ekki varð gengið að því vísu á þess- um árum að til væm varahlutir, og sendingar komu eftir vikna eða mánaða bið, enda var allt eins víst að það sem mest lá á væri ekki í kassanum. Einn stærsti kostur Ant- ons var trúmennska við húsbændur sína, hann hefði ekki gætt betur að eignum og húsum fyrirtækisins þótt hann hefði átt þau sjálfur. Mest mat ég þó Anton íyrir það að hann var þægilegur í umgengni og skemmti- legur maður, hann sagði prýðisvel frá, hafði gott auga fyrir því spaugi- lega og þekkti fjölda manns viða á landinu, en það virðist undirstöðu- þáttur í fari góðra sögumanna. Nú er þessi gamli vinnufélagi minn og samferðamaður genginn, við gátum lítið talað saman seinni árin svo þetta þankabrot verður síðasta kveðjan. Ingibergur Elíasson. Með nokkrum orðum langar mig að kveðja góðan vin minn, Anton Ólason. Ég kynntist Antoni sem lítil stelpa, en hann var giftur Kristjönu Valdimarsdóttur, frænku minni. Sterk frændsemis- og vinatengsl voru milli þeirra hjóna og mömmu og pabba. Þær báru sama Krist- jönunafnið mamma og Jana frænka. Anton kallaði mömmu alltaf frænku með áherslu og norðlenskum hreim. Hann hafði mjög gaman af að ýkja norðlenskuna og tala um banka, dunka og bauka. Það var árviss við- burður til margra ára að Anton, Jana frænka og börnin þeirra dvöldu í sumarfríi hjá okkur í Grímshúsum, en þau hjónin eignuð- ust þrjú börn, Birgi, Valborgu og Óla Konráð. Mikil var tilhlökkunin þegar þau komu. Anton var svo skemmtilegur. Hann var þéttur á velli, en ótrúlega liðugur. Hann fór í alls kyns leiki með okkur krökkunum, sprellaði og spaugaði, sýndi jafnvel töfrabrögð. Svo var hann ótrúlega laginn að gera við alla hluti. Ég gleymi aldrei þegar þau komu í fyrsta skipti á gamla græna Bedford, sem Ánton hafði svo listilega gert upp. Að sjálf- sögðu voru drengirnir þeirra í sveit hjá frændfólkinu í Hellulandi og Grímshúsum í Aðaldal. Eitt sinn buðu þau hjónin mömmu og Þor- björgu frænku í Hellulandi til Reykjavíkur. Það var dekrað við þær og margir staðir sóttir heim. Þær fengu síðan send albúm með myndum og ferðasögu. Þetta albúm er enn til og hefur mikið verið skoð- að, en mamma naut þess að rifja upp þessar stundir, sem þær frænka áttu með þeim Antoni og Jönu frænku. Seinna, þegar ég var orðin full- orðin og kom til Reykjavíkur í vinnu og skóla, stóð heimili þeirra í Sól- heimum 23 mér opið. Að sjálfsögu lagði Anton mér lífsreglurnar í stór- borginni. Elsku Anton, hafðu hjart- ans þökk fyrir allar gleði- og ánægjustundir, glettni þína og hlýju. Ég bið Guð að styrkja mína góðu frænku Jönu og nánustu skyldmenni. Helga Hallgrímsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.