Morgunblaðið - 22.01.1998, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 22.01.1998, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF í DAG Safnaðarstarf Samkoma í Fíla- delfíu í kvöld SAMKOMUR samkirkjulegu bæna- vikunnar halda áfram í kvöld með samkomu í Fíladelfíukirkjunni og hefst hún kl. 20.30. Ræðumaður kvöldsins verður Miriam Óskarsdóttir, kafteinn í Hjálpræðishernum. Lofgjörðarhóp- ur Fíladelfíu syngur og einnig verð- ur mikill almennur söngur. Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomur bænavikunnar. Þorrahátíð í Neskirkju NÆSTKOMANDI laugardag, þann 24. janúar, klukkan 16 verður þorrahátíð í Neskirkju. Fram verð- ur borinn hefðbundinn þorramatur á hlaðborði, sfldarréttir og heitt saltkjöt. Margt verður sér til gamans gert. Hjónin Sigrún Magnúsdóttir, borg- arfulltrúi, og Páll Pétursson, félags- málaráðherra, flytja minni karla og kvenna. Miriam Óskarsdóttir syng- ur einsöng og stjómar samkvæmis- leikjum. Reynir Jónasson leikur á harmoniku undir léttsveiflu og fjöldasöng. Þátttöku þarf að tilkynna kirkju- verði í síma 551 6783 á milli klukkan 16-18 fyrir fóstudagskvöld. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14-17. Biblíulestur í safn- aðarheimilinu kl. 20.30. Dómkirkjan. Kl. 14-16 opið hús í safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a, fyrir alla aldursflokka. Kl. 17.15 samverustund fyrir böm 9-10 ára. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgeltónlist. Léttur hádegis- verður á eftir. Háteigskirlya. Starf fyrir 6-9 ára böm kl. 17 í safnaðarheimilinu. Kvöldsöngur með Taizé-tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun, endumæring. Allir velkomnir. Langholtskirkja. Foreldra- og dag- mömmumorgunn kl. 10-12. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnað- arheimilinu á eftir. Samverustund fyrir eldri borgara kl. 14. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17. Neskirkja. Biblíulestur kl. 15.30. Ferðir Páls postula. Sr. Frank M. Halldórsson. Árbæjarkirkja. Starf fyrir 10-12 ára stráka og stelpur kl. 16.30-17.30 í Ártúnsskóla. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn á morgun kl. 10-12. Digraneskirkja. Kl. 10 mömmumorgunn. Leikfími aldraðra kl. 11.15. Bæna- og kyrrðarsstund kl. 18. Bænaefni má setja í bæna- kassa í anddyri kirkjunnar eða hafa samband við sóknarprest. Kl. 20.30 félagsvist hjá kirkjufélaginu. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11- 12 ára kl. 17. Grafarvogskirkja. Mömmumorg- unn kl. 10-12. Efni m.a. fyrirlestrar, bænastund o.fl. Kaffí. Æskulýðsfé- lag, 14-16 ára, kl. 20-22. Hjallakirkja. Starf fyrir 7-9 ára kl. 16. Kópavogskirkja. Starf eldri borg- ara kl. 14-16 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Fundur KFUM fyrir 9-12 ára stráka kl. 17.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 11-12 ára böm kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu. Æskulýðsfundur kl. 20-22. Hafnarfjarðarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í Vonar- höfn, Strandbergi. Opið hús í Von- arhöfn, Strandbergi fyrir 8-9 ára böm kl. 17-18.30. Vídalínskirkja. Biblíulestur kl. 21. Bæna- og kyrrðarstund kl. 22. Víðistaðakirkja. Mömmumorgunn kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15-18.30. Akraneskirkja. Fýrirbænaguðsþjón- usta kl. 18.30. Beðið fyrir sjúkum. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Bænasamkoma vegna sameigin- legrar bænaviku kristinna safnaða. Ræðumaður Miriam Óskarsdóttir. Allir hjartanlega velkomnir. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin frá kl. 16-18. Starfsfólk kirkjunnar á sama tíma í Kirkjulundi. Kyrrðar- og fræðslustund kl. 17.30. Ferm- ingamndirbúningur er á þriðjudög- um og fimmtudögum. Landakirkja, Vestmannaeyjum. TTT-starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Danir, Norðmenn og Banda- ríkjamenn mæta á bridshátíð 13.-16. febrúar 17. bridshátíð BSÍ, BR og Flug- leiða fer fram á Hótel Loftleiðum helgina 13.-16. febrúar. Gestir bridshátíðar að þessu sinni eru: Sabine Auken, Evrópumeistari í tvímenningi kvenna 1995 og 1997 og einn besti kvenbridsspilari í heiminum í dag. Með henni koma landsliðsmennirnir Jens Auken, Morten Andersen og Sören Christi- ansen, sem unnu bronsið á ólympíu- mótinu á Ródos 1996. Norska landsliðið, sem varð í þriðja sæti á heimsmeistaramótinu í Túnis 1997 kemur. Það er þannig pjóðlegur Þorramatu ems oa þú vilt hafo hann Ráðgjöf og pantanir i sima: r S KUTAN Hólshrauni Hafnarfirdi VEISLUSALUR OG ÞJ0NUSTA skipað: Terje Aa, Glen Grötheim, Erik Sælensminde og Boye Brogeland. Frá Bandaríkjunum koma Roger Bates, einn af núverandi handhöf- um Rosenblum-bikarsins, sem hann vann í Albuquerque 1994, og Fred Hamilton, sem var meðlimur í hinni frægu amerísku Ásasveit, sem náði Bermúdaskálinni aftur til Ameríku 1976 eftir margra ára einokun Bláu sveitarinnar frá Italíu. Skráning er hafín á skrifstofu BSÍ í s. 587-9360. Hægt er að skrá sig á heimasíðu Bridssambandsins og þar eru allar upplýsingar um mótið. Slóðin er: http://www.is- landia.is/— isbridge íslandsmót i parasveitakeppni Verður spilað í Þönglabakkanum helgina 31. janúar og 1. febrúar, mótið hefst kl. 11. Það er tilvalið að byrja að hita upp fyrir Evrópumótið í parakeppni, sem verður í Achen í Þýskalandi 28. mars til 3. aprfl nk. Skráning í s. 587-9360. HSM pappírstætarar Leiðandi merki - Margar stærðir Þýzk gæði - Örugg framleiðsla HSM 386 Nú kr. 87.079 m/vsk. Áður kr. 106.468 m/vsk. j. nsTvniDssoN hf. Skipholti 33.105 fievkjovík. siml 533 3535 VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Lof sé honum VELVAKANDA barst eft- irfarandi bréf: „Islensk náttúrufegurð er einstök og við sem lifum og hrærumst í þessari stórbrotnu fegurð hljótum að draga dám af henni, ekki satt? Að búa í tíguleg- um fjaliasal, í nánd virkra eldstöðva, lifandi jökla og heitra linda, með djúpa listræna og magnþrungna sögu þjóðar sinnar í far- angrinum, eru forréttindi, sem ber að þakka fyrir og virða. Sitjandi í hægindinu heima í stofu, og snortinn meðtaka náttúru lands síns ímynd og skilmerki- legan meðfylgjandi texta höfúndar, jafnast á við koss og faðmlög fjallkon- unnar okkar. Maður fyllist þakklæti og stolti í senn. Er maður virkilega svona ríkur, á maður allt þetta og það næstum óafvitandi? Þvílíkt ríkidæmi. Allt þetta á silfúrfati og stóran hlut af sjálfum sér færir höf- undurinn okkur nú á sunnudagskvöldum. Ómar Ragnarsson er enginn nýgræðingur á sviði þjóðlífsmynda, né sem skemmtikraftur. Minnugur fyrri ára þegar hann ásamt myndatöku- manni íslenska sjónvarps- ins sótti heim sérstætt fólk á landsbyggðinni, gleymist þeim eflaust seint er sáu. Nú með hjálp „Frúarinn- ar“ (flugvél hans) slær hann nýjan hljómfagran streng í hörpu sinni, streng sem hrífur okkur hin og fær lúin gömul hjörtu til að slá hraðar. Þjóðina alla að skjánum hvert sunnudagskvöld og eykur jafnframt við verð- skuldaða frægð sína. Lof sé honum. Einn sjötugur. Hver ber ábyrgð? VELVAKANDA barst eft- irfarandi bréf: „Stundum velti ég fyrir mér hvers vegna engin sprunga er í steinhúsum byggðum á fyrri hluta þessarar aldar. Kunnu þá- verandi handverksmenn svona vel til verka? Hverju er um að kenna, að síðustu áratugina eru að myndast sprungur í hverju fjöleignarhúsinu af öðru? Slælegum vinnu- brögðum verktaka, inn- lendri sementsframleiðslu eftir 1950 eða kunna menn í dag, þrátt fyrir próf, ein- faldlega ekki að byggja hús? Það er grátlegt þegar heiðarlegt launafólk, sem tekið hefur á sig ævilanga skuldabyrði til að eignast þak yfir höfuðið, með til- heyrandi hótun um eigna- missi ef ekki er staðið í skilum á gjalddaga, er líka þvingað til stórfelldr- ar lántöku til greiðslu úr eigin vasa á göllum, sem upp koma skömmu eftir á. Fyrir stuttu leiddu saman skoðanir sínar í ríkisútvarpinu tveir arki- tektar. Báðir höfðu fullan vilja á að gera Reykjavík að nútímaborg með snotr- um háhýsum. I því sam- bandi vil ég vekja athygli á eftirfarandi: Við hverju mega íbúðarkaupendur í væntanlegum háhýsum búast þegar aðeins þriggja hæða fjöleigna- hús, byggt 1995, er komið með sprungur í inn- og út- veggjum 1996? Eg vil enda þetta með viðvörun til fólks, sem hef- ur í hyggju kaup á íbúðum í nýjum og nýlegum íbúða- blokkum. Gangið úr skugga um hver ber ábyrgðina á göllunum áður en múrarnir fara að hrynja! Guðrún Jacobsen. Góð þjónusta ÉG vil þakka fyrir frá- bæra þjónustu á veitinga- staðnum Vinstri bakkan- um í Hamraborg í Kópa- vogi. Þetta er nýr, frábær staður, skemmtilega inn- réttaður með yndislegt starfsfólk og góðar veit- ingar. 120150-4999. merktur en ekki með 61. Þeir sem hafa orðið varir við Arnold hafí samband í síma 568 1523. Oskilaköttur á Alftanesi Dýrahald Ljósgrár fress týndur SVARTUR og hvítur köttur hefur gert sig heimakominn í Hátúni á Álftanesi síðustu vikur. Hann er svartur í andliti og á baki, með hvíta fætur, hvítt trýni og blesu upp á milli augn- anna. Hann er með svartan blett á annarri nösinni. Hann á ósköp bágt og greinilega búinn að vera á flækingi einhvern tíma því hann er reyttur og tættur, ákaflega var um sig og styggur. Þiggur að vera í fríu fæði en lætur ekki ná sér. Kann- ist einhver við þennan kött má hann hafa sam- band í vs. 569- 1323, 899-4943 eða heimasíma 555-4409. Arnold er týndur Arnold er týndur. Hann hvarf frá Langholts- vegi 19, 4. desember sl. Arnold er svartur og hvítur fress, stór og eyrna- ÞESSI Ijósgrái loðni fress á myndinni fyrir ofan týndist úr Stangarholti laugardaginn 10. janúar. Hann er með skærgræna ól og er mjög gæfur. Þeir sem hafa orðið varir við hann hafi samband í síma 552 1001. Kettlingur óskar eftir heimili 7 VIKNA kettlingur (læða) óskar eftir heimili. Er kassavön. Uppl. í síma 567 2502. Víkverji skrifar... ATHYGLI Víkverja hefur verið vakin á því, að í Morgunblað- inu hinn 16. janúar var frétt á bls. 8, þar sem skýrt var frá því að „frumkvöðlar að stofnun Cargolux“ hefðu fengið alþjóðlega viðurkenn- ingu. Fjórmenningrnir eru Einar Ólafsson, Gunnar Björgvinsson, Jóhannes Einarsson og Robert Arendal. Athugasemdin var gerð við að fjórmenningarnir hefðu hvorki ver- ið eigendur né stofnendur Car- golux, heldur hefðu Loftleiðir verið stofnandi félagsins ásamt tveimur erlendum aðilum. Fjórmenning- arnir hefðu hins vegar unnið mjög gott starf við framkvæmd stofnun- arinnar, en þeir voru starfsmenn Loftleiða þegar Cargolux var stofnað. x x x UM STOFNUN Carolux er fjallað í Alfreðs sögu og Loft- leiða, sem Jakob F. Ásgeirsson blaðamaður skráði og út kom 1984. Þar segir Alfreð Elíasson um stofnunina: „Þegar þotuöld var fyr- irsjáanleg í Loftleiðasögu, tókum við að velta fyrir okkur, hvað hægt væri að gera við Monsana. Miklar skuldir hvíldu á þeim, viðhaldið á þeim hafði verið geysidýrt, því ein- ungis 39 slíkar vélar höfðu verið framleiddar í heiminum og þeir höfðu fallið mjög í verði, Monsarn- ir, og máttu raunar kallast óseljan- legir, eins og Sexurnar. Við komumst þó í samband við hóp at- vinnulausra sænskra flugmanna, sem gerðu okkur freistandi tilboð. Sænsku flugmennirnir töldu sig hafa vilyrði fyrir lánsfé í bönkum, en það brást á síðustu stundu og ekkert varð úr samningum. Flug- mönnunum fannst sem þeir hefðu verið sviknir og sögðu farir sínar ekki sléttar í sænsku dagblöðunum og vöktu þær frásagnir athygli Christer Salén, annars bróðurins, sem átti Salén-skipafélagið sænska (Rederi A.B. Salenia). Salén var þá geysiöflugt og hafði á sínum snær- um allt að 30% allra ávaxtaflutn- inga í heiminum. Forráðamenn skipafélaga í Svíþjóð höfðu um nokkurt skeið verið að velta fyrir sér möguleikum á vöruflutningum í flugvélum og var félagskapur þeirra nefndur Pegasus-hópurinn. Christer Salén vildi reyna fyrir sér uppá eigin spýtur og athuga mögu- leikana á því að flytja ávexti með flugvélum í framtíðinni. Christer hafði því samband við okkur, en Monsarnir, sem sænsku blöðin sögðu að væru til sölu, voru, sem fyrr segir smíðaðir til vöruflutn- inga og þeim mátti auðveldlega breyta á nýjan leik. Við höfðum reyndar haft það í huga alla tíð að breyta Mosnsunum aftur til vöru- flutninga, þegar það hentaði og við höfðum haft af þeim full not sem farþegaflugvélum. Það var t.d. unnt að opna afturhluta Monsanna og eftir að stélið hafði verið sveigt í hálfhring, myndaðist hleðsluop, 3 metrar í þvermál, sem gerði ferm- ingu og affrermingu mjög auð- velda.“ XXX OG ÁFRAM heldur Alfreð frá- sögn sinni: „Haustið ‘69 létum við breyta fyrsta Monsanum til vöruflutninga. Það var sá stutti TF-LLJ Þorvaldur Eiríksson, og rákum við hann sem vöruflutninga- vél fram yfir áramót 1970. Sú til- raun lofaði góðu um rekstur eigin- legs vöruflugfélags. Hinn 4. mars 1970 seldum við síðan vélina að hálfu til Salén og sama dag var stofnað í Lúxemborg nýtt leiguflugfélag, Cargolux Airlines International S.A. Stofnendur voru Loftleiðir, Salén og Luxair (ásamt einstaklingum ýmsum í Lúxem- borg) og skiptist eignarhlutinn í þrjá jafnstóra hluta.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.