Morgunblaðið - 22.01.1998, Side 52

Morgunblaðið - 22.01.1998, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM GARTH Brooks er einn vin- sælasti sveita- söngvari Banda- ríkjanna. O.J. Simp- son ber sig saman við Jesú Krist RUÐNINGSKAPPINN og leikar- inn O.J. Simpson gaf út um margt athyglisverðar yfírlýsingar í opin- skáu viðtali við íþróttafréttamann á ESPN-sjónvarpsstöðinni í Los Ang- eles í vikunni. Hann líkti sjálfum sér við frelsar- ann Jesú Rrist og einnig Móses og Job. Hann greindi jafnframt frá því að honum þætti hann hafa verið sví- virðilegum órétti beittur og að hann ynni ötullega að því að hafa hendur í hári morðingja eiginkonu sinnar Nicole Brown og vinar hennar Ron Goidman. O.J. var sem kunnugt er sýknaður af morðinu í hæstarétti, en sagður bera ábyrgð á verknaðinum I einkaréttarhaldi sem fjölskyldur hinna vegnu höfðuðu gegn honum. Hvað varðar samlíkingar við stór- menni Biblíunnar sagði O.J. meðal annars: „Hvort sem ég kem að Jesú eða Móses þegai- ég blaða í gegnum sagnfræði eða Biblíuna, eða bara Job, þá sé ég að aliir hafa þeir gengið í gegnum svipaðar 'hremmingar og ég hef mátt þola. I því ijósi sé ég biblíuna. Hún er fyrir mér landakort sem er varðað skilaboðum. Ein boðin eru þessi: Svona lagað getur komið fyrir þig, ekki síður en þá.“ Fréttamaðurinn spurði O.J. þá hvemig hann tæki nið- urstöðum nýlegrar skoðana- könnunar sem bentu til að 70% landa hans tryðu því að hann hefði í raun myrt Nicole og Goldman. O.J. svaraði: „Eg vildi óska að sú væri ekki raunin, en ég tók strax þann pól í hæðina að ég þyrfti aðeins að svara fyrir Guði. Aðrir skiptu ekki máli.“ Ruðningshetjan fyrrver- andi lauk máli sínu með því að lýsa biturleika yfir banda- ríska réttarkerfinu. Hvergi annars staðar væri hægt að sýkna mann og gera hann skaðabótaskyldan þrátt fyrir það. „Eg hef þó losað mikla reiði úr sinni mínu og ég geri allt sem ég get til að hafa uppi á hinum raun- -verulega morð- ingja. Eg er með tvo spæj- ara á mínum prjónum og nokkra sjálf- boðaliða sem safna gögn- um,“ bætti O.J. við. O.J. SIMPSON í viðtals- þættinum „Up Close“ með Chris Myers. Brooks borgaði bak við tjöldin Ástúðleg umhyggja og lifandi litir í litalínunni frá MARBERT. Þú getur valið um 6 tegundir af andlitsfarða frá MARBERT allt eftir því hvemig húð þín er. Andlitsfarðinn inniheldur vítamín og UV filter sem virkar gegn skaðlegum áhrifum í umhverfmu. Við bjóðum upp á skemmtileg tilboð í litalínunni í næstu MARBERT verslun. Kynning í dag, fimmtudag. HOLTS APÓTEK Glæsibæ, sími 553 5212. Kynning á morgun, föstudag í Mjódd, sími 587 0203. ► BANDARISKI sveitasöngvar- inn Garth Brooks slapp fyrir horn í réttarsalnum í vikunni, er samkomulag náðist við stefnand- ann og lagasmiðinn Guy Thomas sem sakaði Brooks um að hafa stolið að stórum hluta lagi frá sér, breytt því lítillega og sett síð- an nafn sitt við það. Lagið „Convictions of the Heart“ eftir Thomas var flutt af Kenny Loggins árið 1993. Thom- as hélt því fram að lagið „Stand- ing Outside the Fire“ væri sama lagið í flutningi Brooks á skifunni „In Pieces". Þar er lagið skráð sem hugarsmíð Brooks, en þess má geta að Brooks hefur selt 5 milljónir eintaka af „In Pieces". Málið hafði verið rekið í réttar- sölum um hríð, en er komið var að því að lögmenn deilenda skyldu viðra samantektir fyrir kviðdómi barst það mönnum til eyrna að samkomulag hefði náðst á bak við tjöldin. Hvorki Brooks né Thomas vildu greina frá sam- komulaginu, en talið var næsta víst að Thomas hefði þegið dá- góða summu. Grunur leikur á að Brooks hafi þarna verið afhjiípaður með óhreint mjöl f pokahorninu og fréttamenn spurðu hann á leið út úr réttarsalnum hvort eitthvað mætti ekki læra af skaki af þessu tagi. Brooks svaraði því kok- hraustur: „Nei, ég býst ekki við að ég hafi lært nokkurn skapaðan hlut nema ef vera skyldi að mað- ur verður að halda sínu striki. Og ef maður endar í réttarsalnum þá er um að gera að standa fyrir máli sínu og livika í engu.“ Kaffibarinn - Mannlífinu og stemmningunni á Kaffibarn- uni gerð skil í máli og myndum/Sjá bls. 54. dag^lSgistónleikumíHinu Hósinu og á tónleikum í Norð- urkjallara MH um kvoldið. ■ ÁRTÚN Hljómsveitin Tríóið leikur á fdstudagskvöld. Húsið opnað kl. 22.30. Á laugardagskvöld verður stórdansleikur með Harmonikufélagi Reykjavíkur. Húsið opnað kl. 22. ■ BARÞJÓNAKEPPNI íslands- meistarakeppni barþjóna 1998 verður haldin í Perlunni dagana 24. og 25. janúar. M.a. verður vínsýning í Perlunni og er aldurstakmark 20 ára og hátíðarkvöldverður á sunnudags- kvöld þar sem hljómsveitin Saga Class leikur til kl. 3. Verð með þriggja rétta kvöldverði er 4.500 kr. ■ BROADWAY/HÓTEL ÍSLAND Á fóstudagskvöld verður haldið hið ár- lega Sólarkaffi Isfirðingafélagsins. Meðal skemmtiatriða má nefna Omar Ragnarsson og Diddú. IHjómsveit Stefáns P. leikur fyrir dansi. ■ CAFÉ AMSTERDAM Þriggja manna hljómsveit frá Borgarnesi, Úlrik, leikur fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagskvöld. Hljóm- sveitina skipa: Bjarni Helgason, gítar, Orri Sveinn Hauksson, trommur, og Halldór Hóim Krist- jánsson, bassi. ■ CAFÉ ROMANCE Breski píanó- leikarinn Liz Gammon leikur þriðju- dags- til sunnudagskvöld frá kl. 22 fyr- ir gesti veitingahússins. ■ FEITI DVERGURINN Tónlistar- maðurinn Einar Jónsson leikur fóstu- dags- og laugardagskvöld. ■ FJARAN Jón Moller leikur á píanó fyi-ir matargesti. ■ FJÖRUGARÐURINN Þorraveisl- ur að hætti víkinga. Vfldngasveitin leikur og syngur fyrir matargesti og leikur einnig fyrir dansi. ■ FÓGETINN Á fimmtudagskvöld leikur hljómsveitin Lekkert sem skip- uð er þeim Orra Harðar, Jóni Ingólfs og Ragnari Emils. Á fóstudags- og laugardagskvöld leikur trúbadorinn Hermann Ingi Hermannsson jr. Á sunnudagskvöld er Nýliðakvöld en þá kemur fram Vilhjálmur frá Egilsstöð- um. Á miðvikudagskvöld flytur hljóm- sveitin I hvítum sokkum efni af nýjum geisladiski. ■ GRAND HÓTEL v/Sigtún Gunnar Páll leikur og syngur perlur dægur- lagatónlistarinnar fyrir gesti hótelsins fóstudags- og laugardagskvöld frá kl. 19-23. ■ GULLÖLDIN Á laugardagskvöld verður þorrahlaðborð og hefst það kl. 20. Svensen & Hallfunkel leika fyrir dansi alla helgina. ■ HITT HUSIÐ Hljómsveitin Sakt- móðigur leikur á síðdegistónleikum og hefjast þeir kl. 17 á Kakóbarnum Geysi. Aðgangur er ókeypis. ■ HÓTEL SAGA Fimmtudags- og sunnudagskvöld er Mímisbar opinn frá kl. 19-1. Föstudags- og laugardags- kvöld opið frá kl. 19-3. Gieðigjafamir André Bachmann og Kjartan Baldurs- son leika fyrir gesti perl- ur áranna ‘50-’58. Súlna- salur verður lokaður þessa helgina vegna einkasamkvæma. ■ I N G H Ó L L SELFOSSI Hljóm- sveitimar Soma og Soðin fiðla halda tón- leika á fimmtudags- kvöld. Tónleikamir hefíast kl. 23 og er miðaverð 500 kr. ■ ÍRLAND Á fóstu- dagskvöld verður hið íslenska Country- dansfélag með ókeypis danskennslu milíi kl. 20 og 21 og danssýningu á eftir til kl. 23. Hljómsveitin 8-viUt leikur síð- an fyrir dansi. Hljómsveitin leikur einnig laugardagskvöld. ■ KAFFI KJARKUR, Þingholts- Sam( 5riJOnSSOn ,e kvöld. stræti 5 Á fimmtudagskvöld leika Óskar Guðjónsson saxófónleikari, Hilmar Jensson gítarleikari og Matthí- as Hemstock trommuleikari lög af ný- útkomnum diski Óskars, FAR. Tónleik- amir hefjast kl. 22. Á föstudagskvöld leikur hljómsveitin Woofer og á laugar- dagskvöld þeytir Dj. JónÞór skífur og H'JDtlCal flfill*') ■ KAFFI RÉYKJAVÍK Hljómsveitin Hálft í hvom leikur iostudags- og laug- ardagskvöld. Á sunnudagskvöld Ieikur Eyjólfur Kristjánsson. ■ KRINGLUKRÁIN Hljómsveitin Sælusveitin leikur fimmtudags-, föstu- dags- og sunnudagskvöld. Á laugar- dagskvöld tekur svo við hljómsveitin Limósín. í Leikstofunni fóstudags- og laugardagskvöld leikur trúbadorinn Viðar Jónsson. ■ NAUSTIÐ er opið fimmtudags- og sunnudagskvöld tii kl. 1. Föstudag og laugardag til kl. 3. Eldhúsið opnað kl. 19. Marion Herrera frá Frakklandi leikur matartónlist á hörpu. ■ NAUSTKJALLARINN er opinn fostudags- og laugardagskvöld. Lifandi tónlist bæði kvöldin. Hljómsveitin Gammel Dansk leikur fóstudagskvöld og hljómsveitin Þotuliðið laugardags- kvöld. Opið til kl. 3 bæði kvöldin. ■ NORÐURKJALLARI MH Á föstudagskvöld kl. 21 verður haldin pönkhátið MH undir yfirskriftinni: PÖNK ‘98. Þetta er í þriðja sinn sem þessir tónleikar ern haldnir. Miðaverð er 300 kr. Hljómsveitiraar sem troða upp að þessu sinni eru: Örkuml, Sakt- móðigur, Kuml, Forgarður helvitis, Kúkur og af nýju sveitunum em Roð, bisund, Kristinius og Spitsign. ■ NÆTURGALINN Á fimmtudags- kvöld verður kántrýkvöld með Viðari Jónssyni frá kl. 21-01. Á fostudags- og laugardagskvöld leikur Galabandið ásamt Önnu Vilhjálms. Á sunnudags- kvöld leikur Hljómsveit Hjördísar Geirs gömlu og nýju dansana frá kl. 22-1. ■ REYKJAVÍKURSTOFAN við Vesturgötu er opin föstudag og laug- ardag til kl. 3. ■ ROSENBERG Hljómsveitirnar Croysztans og Woofcr leika fóstu- dagskvöld. Óvænt skemmtiatriði. Hús- ið verður opnað kl. 22.30. Aðgangseyri verður stillt í hóf. 18 ára aldurstak- mark. ■ SJALLINN AKUREYRI Hljóm- sveitin Sóldögg leikur laugardags- kvöld. TILKYNNINGAR í skemmtanara- mmann þurfa að berast í síðasta lagi á þriðjudögum. Skila skal tilkynningum til Kolbrúnar í bréfsíma 569 1181 eða á netfang frett@mbl.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.