Morgunblaðið - 15.03.1998, Síða 26

Morgunblaðið - 15.03.1998, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÆRAST AUKIN VÖLD í HENDUR BANKARÁÐSINS? starfið yrði þyngra í vöfum. Oft þarf að taka ákvörðun með stuttum fyrii-vara.“ Birgir er spurður hvort það geti ekki valdið erfiðleikum að stjórn- málaflokkarnir ráði skipun í banka- stjórastöðurnar. Kemur þessi til- högun ekki niður á fagmennskunni hjá þankanum? „í rauninni fer það eftir þeim einstaklingum sem veljast til þess- ara starfa. Við skulum átta okkur á að útnefning seðlabankastjóra er mjög pólitísk í öllum löndum. A hin- um Norðurlöndunum koma margir bankastjóranna úr pólitísku um- hverfi, sumir hafa verið stjórnmála- menn. Síðan fer það eftir mönnun- um hve miklir árekstrar verða milli stjómmálanna og fagmennskunnar, fer eftir því hvernig þeir eru gerðir. Eg hef aldrei orðið var við það að einhverjir séu að reyna að ráðskast með það sem ég er að gera.“ Dæma menn óalandi og óferjandi Birgir er minntur á ásakanir þess efnis að stjórnmálaflokkarnir noti oft tækifærið til að útvega mönnum góð störf eftir langt og erfitt stríð í stjóm- málunum. Verið sé að hjálpa mönnum til að hætta. Finnst honum þetta réttmæt gagn- rýni? „Mér finnst þessi gagnrýni ekki rétt- mæt, hún virðist vera séríslenskt fyrirbæri. Ástæðuna veit ég ekki. Það er viss til- hneiging hér, miklu sterkari en víða ann- ars staðar, til að dæma menn óalandi og óferjandi ef þeir hafa komið nálægt stjórnmálum. Þeir eiga ekki að vera gjaldgengir eftir það þótt vitað sé að stjórnmálamenn búi yfir verðmætri reynslu og annars konar reynslu en margir hafa. Þeir hafa dálítið aðra sýn á þjóðfélagið en ýms- ir sem hafa starfað í stofnunum alla sín ævi,“ segir Birgir ís- leifur. Formaður banka- ráðs Seðlabankans, Þröstur Ólafsson, seg- ist telja eðlilegra fyr- irkomulag að í stofn- un sem þessari væri einn aðalbankastjóri og hugsanlega aðstoðarbankastjór- ar. „Ég held að tillögurnar frá 1992 hafi að flestu leyti vísað í rétta átt. Astæðurnar fyrir því að banka- stjórarnir era þrír era sögulegar, eins og hjá ríkisbönkunum. Upp- haflega var þetta pólitísk skipting, á rætur í tíma Jónasar frá Hriflu og byijaði í Landsbankanum. Síðan varð þetta uppskrift sem menn not- uðu annars staðar og einnig í Seðla- bankanum þegar hann tók til starfa 1961 þótt hann sé annars konar stofnun en hinir bankarnir.“ Breytt hlutverk Seðlabankans Þröstur bendir á að hlutverk seðlabankans hafi breyst mjög á síðari áram, gjaldeyriseftirlit sé nánast horfið. Vaxtastýring og önn- ur miðstýring efnahagslífsins séu að víkja fyrir aukinni áherslu á markaðsöflin þótt reynt sé að stýra í gegnum markaðina til að tryggja jafnvægi. „Ef bankaeftirlitið fer út, eins og flest bendir til, er kjörið tækifæri til að líta á þessi mál. Það þarf hvort sem er að taka banka- lögin í gegn ef eftirlitið verður tekið frá bankanum." Helgi S. Guðmundsson, formaður h gigi bankaráðs Landsbankans hf., seg- ist almennt vera þeirrar skoðunar að nóg sé að hafa einn bankastjóra og hann miði þá við reynslu sína af Landsbankanum. „Ég þekki ekki nægilega vel til Seðlabankans en get ímyndað mér að sama eigi við þar, að einn stjómandi dugi. Þetta er eins og í fyrirtækjum að best er að forstjóri sé einn og Seðlabank- inn er varla svo stór að þörf sé á meira en einum.“ Oft hefur verið um það rætt að fækka beri bankastjórastöðunum. Helgi er spurður hver sé að hans mati ástæðan fyrir tregðunni. Eru ítök stjórnmálaflokkanna þeim svo dýnnæt að þeir vilji ekki fækka áhrifastöðum sem þeir ráða? „Það er erfitt að svara þessu en við eigum mjög erfitt með að koma okkur út úr svona hefðum. Það hef- ur lengi verið talað um að þarna sé um að ræða skipti á milli flokkanna og auðvitað sjá það allir. Ég held að menn séu ekki komnir á þann tíma- punkt að hægt sé að taka á þessu en ég held að þetta muni breytast í náinni framtíð. Ég treysti mér ékki til að full- yrða að Seðlabankinn eigi að fá aukið sjálfstæði. Hitt er annað mál að ég vil benda á að það er mjög erfitt að heimfæra það sem gert er erlendis upp á aðstæður okkar. Við verðum að fara varlega í það, ekki er alltaf víst að þær aðferðir henti okkur hér heima. Atvinnuvegir og fleira er svo einhæft, vægi sjávarút- vegsins svo mikið og ég held að fram til þessa að minnsta kosti hafi verið nauðsynlegt að hafa kerfið með þessum hætti. Ég held að ís- lenskt hagkerfi sé þannig að það þurfi ákveðna stýringu þó að ákveðið frelsi sé auðvitað nauðsyn- legt.“ Hann er spurður hvort bein af- skipti stjórnmálamanna af Seðla- bankanum komi niður á faglegum Steingrímur Hermannsson Birgir ísleifur Gunnarsson Þröstur Ólafsson Helgi S. Guðmundsson ÖRFÁ SÆTI LAUS „Sjálfstæði í krafti faglegrar þekkingaru ER tillögur um að gera ríkis- bankana að hlutafélögum voru í undirbúningi var rætt um að að- eins einn bankastjóri yrði í hverjum þeirra. Ur þessu varð þó ekki og ljóst að stjórnmála- flokkarnir voru ekki reiðubúnir að leggja af gamalt kerfi sem tryggt hafði þeim áhrif en bent er á að verði stofnanirnar einka- væddar sé aðeins verið að fresta óhjákvæmilegum breytingum. Hluthafar inuni ekki sætta sig við að bönkunum sé um alla framtíð stjórnað af mönnum sem flokkarnir líti í reynd á sem full- tnia sína. Krafist verði faglegrar kunnáttu. Formaður efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis er Vil- hjálmur Egilsson. „Ég sé nú ekki að það skipti svo miklu hve margir banka- stjórarnir eru. Mikilvægast er að það sé ákveðin verkaskipting á milli þeirra og ábyrgðin sé ljós. í því sambandi er það staða for- manns bankastjórnar sem skiptir meira en það hver titillinn er. Seðlabankinn er af öðru tagi en ríkisbankarnir, þeir eru fyrir- tæki. Hann er að einhveiju leyti stjórnvald og það er ekkert óeðlilegt að um einhveijar ákvarðanir hans fialli fjölskipað vald. Það gæti vel gengið að hafa einn bankastjóra en þá myndi bankaráðið fá veigameira hlut- verk.“ Hann segir að sjálfstæðir seðlabankar í öðrum ríkjum hafi venjulega verið stofnaðir þar sem um sé að ræða einhvers kon- ar sambandsríki og nefnir Þýskaland sem dæmi. Þar hafi seðlabanki ekki verið byggður upp sem hluti af miðstýrðu stjórnkerfi heldur samstarfs- stofnun nokkurra eininga, í Þýska- Iandi sambandsríkj- anna 15. „Stoftiunin hefur orðið til í ger- óUku umhverfi hér.“ í ágætum farvegi Vilhjálmur er spurður hvort hann álíti aö efla þurfi sjálfstæði seðla- bankans, jafnvel með nýjum seðla- bankalögum. „Mér hefur nú ekki fund- ist mikil þörf á að breyta lögunum. St- arf bankans hefur verið á ágætum farvegi á síðustu árum. Hann hefur einbeitt sér að tiltölulega þröngu hlutverki seðlabanka og ég held að þetta sé góð þróun. Þetta hefur í raun- inni þýtt að meiri fagleg kunn- átta hefur flust inn í bankann á þessu sviði og hann fær aukið sjálfstæði með því að hafa stöðugt meira vit á málunum. Hann öðlast sjálfstæði í krafti faglegrar þekkingar á markaðn- um. Þessi þróun hefur orðið án þess að lögunum hafi verið breytt.“ Hann er spurður hvort banka- stjórastöður ( Seðlabankanum hafi stundum verið notaðar eins og hálfgert dvalarheimili fyrir dasaða sljórnmálaskörunga sem liafi viljað hafa það eitthvað náð- ugra síðustu starfsárin. Vilhjálm- ur svarar því til að samband sljórnmálamanna og þjóðarinnar sé flókið og minni oft á blöndu af ást og hatri. „Það er eiginlega spurning hvað stjórnmálamenn mega gera ef þeir hætta í stjórnmálum, hvar þeir mega þá hasla sér völl. Fyrirtæki eru yfir- leitt hrædd við að ráða menu til starfa ef þeir eiga að baki feril í stjórnmálum. Það er barist gegn því að þeir fari í sendiherrastöður eða stjórnunarstöður í bönkunum og þess háttar stofnunum. Einhver þyrfti að kanna hvað sljórn- málamenn mega að áliti háværustu gagnrýnendanna gera ef þeir hætta í stjórnmálum eftir fimmtugt. Mér finnst að með seðlabankastjórastöður eigi að fara eins og önnur störf. Það eigi ekki að loka þeim fyrir stjórn- málamönnum en þeir eiga heldur ekkert að einoka þau.“ Að geta tekið ákvörðun En er hætta á að faglegu kröf- urnar verði útundan í starfi bankans ef æðstu menn eru ráðnir á forsendum stjórnmála- flokkanna? „Mér finnst að mestu skipti að bankastjórinn hafi faglegan bak- grunn á einhveiju sviði og síðan er gott að innan bankans sé góð fagleg þekking til að treysta þær ákvarðanir sem teknar eru. Meginkostir góðs seðlabanka- sljóra eru hæfni til að taka rétt- ar ákvarðanir og geta til að koma þannig fram fyrir hönd hagkerfisins út á við að menn fái á því traust. Sjálf manngerðin skiptir miklu máli. Menn geta verið mestu fræðimenn á ákveðnu sviði en ófærir um að taka ákvörðun." Vilhjálmur Egilsson „Þetta er forkastanlegt kerfi“ ÁGÚST Einarsson, alþingismað- ur og prófessor, var formaður nefndar sem árið 1992 lagði fram tillögur um róttækar skipu- Iagsbreytingar á Seðlabankanum en þær náðu ekki fram að ganga. Hann segir mestu skipta að skipulag og lög um stofnunina verði endurbætt í takt við breytta tíma. „Seðlabankiun á að vera sjálf- stæður og vinna á sínu afmark- aða sviði í peningamálum en ekki vera undir handarjaðri fram- kvæmdavaldsins, eins og gert er ráð fyrir í núverandi löggjöf. Þá má minna á pólitísku afskiptin sem hafa komið fram hvað eftir annað við skipun í bankastjóra- stöður. Frumvarp um þetta efni, uppstokkun, var unnið fyrir nokkrum árum en ekki náðist um það pólitísk samstaða." Ágúst segist telja það skyn- samlegt að flytja bankaeftirlitið frá bankanum og sameina það vátryggingaeftirlitinu eins og nú er talið vera á döfinni; þetta hafi verið stefna jafnaðarmanna. Að fækka bankastjórum myndi vera af hinu góða en aðalatriðið sé að raunverulegt sjálfstæði bankans sé tryggt. „Við sjáum að seðla- bankar alls staðar í nágranna- löndum okkar hafa verið gerðir sjálfstæðari gagnvart fram- kvæmdavaldinu. Menn telja þetta vera affarasælast í efnahags- stjórninni og það liefur skilað verulegum árangri. Hér á landi erum við mörgum árum á eftir í þess- um efnum. Við höfum ekki farið þessa leið vegna þess að stj ór nmálaflokk- arnir hafa kosið að halda yfirráðum í reynd yfir Seðla- bankanum og vilja hafa tækifæri til að senda stjórn- málamenn í stöður þar, eins og margoft hefur gerst. Það hefur ekki verið bankan- um til framdráttar. Sjálfstæðið er í mínum huga grundvallaratriði en ekki hvort skipaður verður aðalbankastjóri og svo nokkrir aðstoðarbanka- stjórar. Ef menn vilja raunveru- lega uppstokkun verður að auka sjálfstæðið og kalla þá til verka reynda seðlabankamenn en það myndi gerast af sjálfu sér með annarri löggjöf og öðrum hugs- unarhætti. Hins vegar er langt í land með að það gerist liér. Mér sýnist enginn vilji vera í þá átt hjá ráðamönnum að gera Seðla- bankann að sjálfstæðri stofnun." Ekki hlutverk almannavaldsins Ágúst er spurður hvort ekki séu nógu margir möguleikar hér á að „sparka mönnum upp“ eins og það hefur verið orðað, þ.e. finna þægi- legar virðingarstöður handa þeim sem vilja losna eftir áratugi úr argaþrasi stjórnmál- anna en jafnframt hafa áhrif og jafnvel góð eftirlaun. „Menn hafa verið leysa ákveðin vanda- mál og þetta hefur komið niður á Seðla- bankanum og við- skiptabönkunum. Það á ekki að vera hlut- verk almannavaldsins að tryggja öldruðum stjórnmálamönnum lífsviðurværi á efri árum en margir fyrrverandi alþingis- menn og ráðherrar gætu gert gagn í fyrirtækjum og ijöldasam- tökum. Það hafa sumir þeirra gert. Þá er ekki nauðsynlegt að hugsa aðeins um æðstu stöður í bönkum til að tryggja sér Iífeyri upp á allt milljón á mánuði. Þetta er forkastanlegt kerfi. Við höfum ekki losnað út úr þessu vegna þess að segja má að allir stjórnmálaflokkarnir séu samdauna þessu kerfi. Skera verður upp herör gegn því. Mis- tök í efnahagsmálum á undan- förnum árum eiga að hluta til rætur að rekja til Seðlabankans og hagsmunavörslu inu.“ Ágúst Einarsson I ósjálfstæðis pólitískrar í bankakerf- ii.Tiívuir' _ ískrar ±J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.