Morgunblaðið - 15.03.1998, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998
^-
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
HELGA
KRISTJÁNSDÓTTIR
+ Helga Kristjánsdóttir var
fædd í Reykjavík hinn 19.
jantíar 1923. Htín lést á heim-
ili sínu í Hafnarfirði 5. mars
síðastliðinn og fór útför henn-
ar fram frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði 13. mars.
Fyrir rúmum 40 árum hófu for-
eldrar okkar búskap á Norður-
braut 9 í Hafnarfirði. í húsinu
bjuggu fyrir hjónin Helga Krist-
jánsdóttir og Sigurjón Melberg
> ásamt bömum sínum Lofti og
Ólöfu. Góð vinátta tókst með þess-
um tveimur fjölskyldum og mikill
samgangur var á milli heimilanna.
Þrátt fyrir nokkurn aldursmun
urðu mamma okkar og Helga
miklar vinkonur og á þá vináttu
hefur aldrei borið skugga.
Við systkinin fæddumst flest á
því 12 ára tímabili sem sambýlið
+ Árni Aðalsteinsson fædd-
ist í Hafnarfírði 22. ágtíst
1943. Hann lést 27. desember
1997 og fór útför hans fram
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
6. janúar.
Ég vil minnast vinar míns Áma
Aðalsteinssonar er lést skömmu
fyrir síðustu áramót. Margar
minningar á ég um þennan gamla
^og góða vinnufélaga. Við áttum
góð samskipti þegar við störfuðum
saman hjá dr. Jakob Sigurðssyni.
Arni þótti fyrirmyndarmaður hvað
vinnu snerti og gætti þess vel að
matvælin sem við framleiddum
kæmust sem best til viðtakenda.
Þetta lýsti samviskusemi hans, en
menntun hans nýttist ekki seinni
ár vegna langvarandi veikinda sem
við Helgu og Sigga stóð. Margar
minningar okkar úr æsku eru því
samtvinnaðar minningum um þau
og börn þeirra.
Þegar við systkinin komum nú
saman til að skrifa fáein kveðjuorð
um Helgu Kristjánsdóttur er okk-
ur öllum þakklæti efst í huga.
Þakklæti fyrir að hafa fengið að
vera samferða henni frá barnæsku
og fram á þennan dag. Þakklæti
fyrir hlýju hennar í okkar garð og í
garð barna okkar. Síðast en ekki
síst þakklæti fyrir allar góðu
minningarnar um Helgu og fjöl-
skyldu hennar.
Já, það er margs að minnast,
ótal atburðir rifjast upp þar sem
Helga var, hlý og brosandi og
alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd.
Þau hjónin ráku sælgætisgerð-
ina Kaldá um árabil. Fyrir hver jól
biðum við með eftirvæntingu eftir
hrjaðu hann þangað til yfir lauk.
Ami var vinur vina sinna og
reyndist þeim vel. Arni þurfti að
upplifa mikla erfiðleika, en hann
missti bróður sinn á sviplegan
hátt. Ég man þegar Arni kom inn
á sjúkrastöð SÁÁ og sagði hús-
næðislausa alkóhólista alltaf vel-
komna til sín. Þetta sannaði gæði
og kosti sem ekki eru öllum gefin.
Ég bið algóðan Guð að fylgja
þér til betri heima, sem og Hlölla
bróður þínum. Hér í kveðjuskyni
fer ég með sameiginlega bæn okk-
ar: Guð gef mér æðruleysi til að
sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt, kjark til að breyta því sem
ég get breytt og vit tU að greina
þar á milli.
Þinn vinur,
Jónas Bjarki.
þeim árvissa atburði þegar Siggi
og Helga komu færandi hendi með
kassa fullan af sælgæti úr Kaldá.
Þá fyrst voru jólin örugglega kom-
in, fannst okkur. Á heimili þeirra
hjóna bjó oft Ólöf móðir Helgu.
Ólöfu kölluðum við aldrei annað en
ömmu Lóu. Það var kapítuli út af
fyrir sig að kynnast henni, sigldri
heimskonunni, sem ætíð var sveip-
uð ævintýraljóma í hugum okkar.
Árin liðu og alltaf var Helga
hluti af lífi okkar, jafnt í gleði sem
sorg. Börnin okkar nutu hlýju
hennar og vináttu rétt eins og við.
Það var oft glatt á hjalla þegar
Helga og mamma voru að segja
þeim sögurnar af bernskubrekum
okkar „krakkanna á 9“.
Við eigum því öll minningar um
góða konu, minningar sem munu
lifa með okkur og börnum okkar
um ókomin ár.
Lóu, Lolla og fjölskyldum þeirra
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Guðný, Stefán, Elín, Lára,
Kristján og Osk Magnúsar-
börn.
Afmælis- og*
minningar-
greinar
MIKILL fjöldi minningargreina
birtist daglega í Morgunblaðinu.
Til leiðbeiningar fyrir greina-
höfunda skal eftirfarandi tekið
fram um lengd greina, frágang
og skilatíma:
Lengd greina
Um hvem einstakling birtist
ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar
minningargreinar um sama ein-
stakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínubil
og hæfilega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksentimetr-
ar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma
eða Ijóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka, og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Undirskrift
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Frágangur og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textamenferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er ennfremur unnt að
senda greinar í símbréfi - 569
1115 - og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Vinsamlegast
sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi.
Skilafrestur
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útfór er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn eða
eftir að útför hefur farið fram,
er ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
SAFNAÐARSTARF
Breiðholtskirkj a
10 ára
UM þessar mundir eru tíu ár liðin
frá því að hr. Pétur Sigurgeirsson,
þáverandi biskup Islands, vígði
Breiðholtskirkju að viðstöddu miklu
fjölmenni. í tilefni af þessum tíma-
mótum efnir söfnuðurinn til hátíðar-
messu í dag, sunnudaginn 15. mars,
kl. 14.
I messunni munu þjóna allir þeir
prestar sem þjónað hafa söfnuðin-
um frá stofnun hans, en það eru auk
sóknarprestsins, sr. Gísla Jónasson-
ar, hr. Ólafur Skúlason, biskup, sr.
Lárus Halldórsson og sr. Jón
Bjarman. Þá mun kvennakórinn
Vox Feminae syngja við messuna
undir stjóm Margrétar J. Pálma-
dóttur.
I messunni verður kirkjunni af-
hentur stór bænakertastjaki til
minningar um Gísla Jónasson skóla-
stjóra. Gefendur eru börn Gísla og
afkomendur þeirra. Stjakann smíð-
aði listakonan Þuríður Steinþórs-
dóttir.
Að messu lokinni býður sóknar-
nefnd kirkjugestum að þiggja kaffi-
veitingar í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
Áskirkja. Æskulýðsfélag mánu-
dagskvöld kl. 20.
Btístaðakirkja. Æskulýðsstarf
mánudagskvöld kl. 20.30.
Digraneskirkja. Starf aldraðra á
þriðjudag frá kl. 11. Leikfimi, mat-
ur. Benedikt Amkelsson sýnir muni
og segir frá kristniboðsstarfi í Af-
ríku.
Dómkirkjan. Kl. 11 barnasamkoma
í safnaðarheimilinu, Lækjargötu
14a.
Friðrikskapella. Kyrrðarstund í há-
degi á morgun, mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu
að stundinni lokinni.
Grensáskirkja. Mæðramorgunn
mánudag kl. 10-12. Allar mæður
velkomnar með lítil börn sín. Æsku-
lýðsfélagið mánudagskvöld kl. 20.
Hallgrímskirkja. Orgelleikur og
lestur Passíusálma mánudag kl. 12.
Æskulýðsfélagið Örk mánudags-
kvöld kl. 20.
Langholtskirkja. Safnaðarfélag
Langholtskirkju heldur opinn fund
um æskulýðsstarf kl. 20.30. Fyrir-
lesari er Hreiðar Öm Stefánsson.
Allir velkomnir.
Neskirkja. Starf fyi’ir 10-12 ára
börn mánudag kl. 16. For-
eldramorgunn miðvikudag kl. 10-12.
Þroski barna og örvun.
Árbæjarkirkja. Starf fyrir 7-9 ára
stráka og stelpur kl. 13-14 í safnað-
arheimili Árbæjarkirkju. Æsku-
lýðsfundur yngri deildar kl. 20-22 í
kvöld. Starf fyrir 10-12 ára stráka
og stelpur mánudag kl. 17-18. Allir
velkomnir. Félagsstarf aldraðra á
mánudögum kl. 13-15.30. Fótsnyrt-
ing á mánudögum. Pantanir í slma
557 4521.
Fella- og Hólakirkja. Bænastund
og fyrirbænir mánudaga kl. 18.
Tekið á móti bænarefnum í kirkj-
unni. Æskulýðsfélag unglinga á
mánudögum kl. 20.30. For-
eldramorgunn í safnaðarheimilinu
þriðjudag kl. 10-12.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í kirkj-
unni alla daga frá kl. 9-17. Kyrrðar-
stund mánudag kl. 12. Altarisganga
og fyrirbænir. Léttur hádegisverð-
ur. Sorgarhópur á mánudögum kl.
20 í umsjón prestanna.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag Hjalla-
kirkju kl. 20.30 fyrir unglinga 13-15
ára. Prédikunarklúbbur presta í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er
á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Um-
sjón dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
héraðsprestur.
Kópavogskirkja. Samvera Æsku-
lýðsfélagsins kl. 20 í safnaðarheimil-
inu Borgum.
Seljakirkja. Fundur KFUK mánu-
dag. Fyrir 6-9 ára stelpur kl. 17.15-
18.15 og fyrir 10-12 ára kl. 18.30-
19.30. Mömmumorgnar á þriðjudög-
um kl. 10.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús kl.
20-22 æskulýðsfél. 13-15 ára.
Landakirkja, Vestm. KFUM & K
Landakirkju, unglingafundur í safn-
aðarheimilinu kl. 20.30. Á morgun,
mánudag, bænasamvera og biblíu-
lestur í KFUM & K-húsinu kl.
20.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Svanur Magnússon. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður Mike
Fitzgerald. Ailir hjartanlega vel-
komnir.
Grindavíkurkirkja. For-
eldramorgnar alla þriðjudaga kl.
10-12. Nk. þriðjudag, 17. mars, mun
Sólveig Þórðardóttir, hjúkrunarfor-
stjóri og ljósmóðir, koma í heim-
sókn og halda'fræðsluerindi. TTT-
starfið kl. 17. Spilavist eldri borgara
alla fimmtudaga kl. 14-17. Sóknar-
nefndin.
+
Hjartans þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur,
SEMONU CHRISTIANSEN,
Krummahólum 41,
Reykjavík.
Fyrir hönd vandamanna,
Judith E. Christiansen,
Gunnar Christiansen,
Dagmar Púrí.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát sonar okkar,
ÞORSTEINS BENUM.
Erla og Jörgen Benum,
Gabbrovegen 1,
9022 Krokelvdalen,
Noregi.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför
móður minnar, tengdamóður og ömmu,
-> GUÐNÝJAR ÞÓRARINSDÓTTUR,
Hraunbæ 128,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Árbæjarkirkju.
Hafdís H. Vilhjálmsdóttir, Grímur Kjartansson,
Einar Grímsson,
Guðný Helga Grímsdóttir.
V------------------------------—------------------------------
/INNLENT
Borgarráð
Námsflokk-
arnir fá
9,1 millj.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu Atvinnu- og ferðamála-
stofu um að veita Námsflokkum
Reykjavíkur rúmar 8,4 millj.
króna til að hefja nýtt átaksverk-
efni fyrir skrifstofu- og verslun-
arfólk, sem lengi hefur verið á at-
vinnuleysisskrá.
Jafnframt var samþykkt að
veita 650 þús. í styrk til langtíma
atvinnulausra vegna aukinna
ökuréttinda.
í erindi Námsflokkanna til At-
vinnu- og ferðamálastofu kemur
fram að góð reynsla hafí verið af
átaksverkefnunum. Gert er ráð
fyrir að verkefnið hefjist 23. mars
með sex vikna námi, sem verður
tvíþætt. Lögð verður áhersla á
sjálfsuppbyggingu þátttakenda
og áhersla á að veita þeim endur-
menntun í skrifstofu- og verslun-
arstörfum. Þátttakendum verður
síðan komið í tólf vikna starfs-
þjálfun í ýmsum stofnunum og
fyrirtækjum.
Ný viðhorf í
öldrunarmálum
FORSJÁRHYGGJA er allt of oft
lögð til grundvallar í starfi með
eldri borgurum og lög sem eiga
að tryggja sjálfstæði þeirra eru
ekki nógu afdráttarlaus. Þetta
kom fram á Hrafnaþingi, ráð-
stefnu um ný viðhorf í öldrunar-
málum sem haldin var í Kópavogi
7. mars síðastliðinn.
Á ráðstefnunni kom einnig
fram að oft væri litið á eldri borg-
ara sem einsleitan hóp og að það
brynni við að talað væri við þá
sem óvita. Þá var velt upp spurn-
ingum um það hvort sérlög um
málefni eldri borgara væru tíma-
skekkja og hvort það starf sem
unnið væri með þeim miðaði
fremur að því að þjóna hagsmun-
um þeirra eða kerfisins.
Aurskriða féll
á þjóðveg’inn
SKRIÐA féll yfir þjóðveginn úr
gili fyrir ofan bæinn Bólstaðar-
hiíð í Svartárdal, Austur-Húna-
vatnssýslu á fóstudagskvöld.
Skriðan var 35 m breið og að
mestu krap og grjót. Þjóðvegur-
inn var ruddur þá um kvöldið. Að
sögn lögreglu sakaði engan.
ARNI
AÐALSTEINSSON