Morgunblaðið - 04.04.1998, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Mál kærunefndar
j afnréttismála
Kirkju-
garðarnir
sýknaðir í
héraðsdómi
HÉRAÐSDÓMUR Reykja-
víkur hefur sýknað Kirkju-
garða Reykjavíkurprófasts-
dæma af kröfum kærunefnd-
ar jafnréttismála fyrir hönd
konu sem sótti um starf for-
stjóra Kirkjugarða Reykja-
víkurprófastsdæma og taldi
sig hæfari en þann mann
sem hlaut starfið. Krafðist
konan þess að ráðning
mannsins í stöðuna yrði
dæmd ólögmæt og jafnframt
að henni yrðu greiddar róm-
lega 9,8 milljónir króna
vegna tekjutaps.
Ráðning með
eðlilegum hætti
í dómi héraðsdóms segir
að ekki verði annað séð en
ráðning í starfið og undir-
búningur þeirrar ákvörðun-
ar hafi verið með eðlilegum
hætti. Jafnréttislög girði
ekki fyrir eðlilegt svigrúm
atvinnurekanda við mat á
starfshæfni, enda verði þau
meginsjónarmið sem höfð
hafi verið að leiðarljósi við
ráðningu í umrætt starf ekki
talin ómálefnaleg. Þá beri að
líta til þess að ekki hafi verið
lögbundnar sérstakar hæfn-
iskröfur um forstjórastarfið.
Ólafur Ragnar Grímsson hitti forseta Mexíkó
_ >
Ræddu hlut Islands í upp-
byggingu sjávarútvegs
FORSETI Islands, hr. Olafur
Ragnar Grímsson, átti á fimmtu-
dag fund með Ernesto Zedillo for-
seta Mexíkó ásamt fulltrúum ís-
lenskra sjávarútvegsfyrirtækja. A
fundinum var rætt um árangurinn
af starfi íslenskra sjávarútvegsfyr-
irtækja í Mexíkó og þátttöku
þeirra í framtíðaruppbyggingu
sjávarútvegs í landinu.
Ásamt forseta íslands sátu fund-
inn fulltrúar Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og dótturfyrirtækis-
ins Coldwater í Bandaríkjunum,
fulltrúar Granda og Þormóðs
ramma-Sæbergs og samstarfsaðila
þeirra í Mexíkó og fyrirtækjanna
J. Hinriksson, Netagerðar Vest-
fjarða og Mexice, sem starfar í
Mazatlán og nágrenni.
Forsetahjónin komu síðdegis á
miðvikudag til Mazatlán og heim-
sóttu þar fyrst háskóla borgarinn-
ar. Verið er að koma á samstarfi
milli háskólans á Akureyri og há-
skólans í Mazatlán, sem meðal ann-
ars mun felast í nemendaskiptum
háskólanna og samstarfi á ýmsum
fræðasviðum. Ræddu forsetahjónin
þar við forsvarsmenn háskólans og
nemendur sem sérstakan áhuga
hafa á námsdvöl á Islandi.
Hjá borgarstjóra
Mazatlán
Borgarstjóri Mazatlán tóku á
móti forsetahjónunum í ráðhúsi
borgarinnar og síðan efndi borgar-
stjórnin til kvöldverðar til heiðurs
íslensku forsetahjónunum þar sem
Eldur kæfður
Straumsvík
*
í
TALIÐ er að eldur, sem logað hefur
í gryfju með úrgangi í Straumsvík
undanfamar vikur, hafi verið
slökktur, að sögn Reynis Kristjáns-
sonar, forstöðmnanns áhaldahúss
Hafnarfjarðar. í liðinni viku var um
þrjátíu vörubílsförmum af leirgrús
sturtað yfir gryfjuna og segir Reyn-
ir að svo virðist sem það hafi nægt
til að kæfa eldinn.
„Við vorum einn dag að keyra
efni á eldinn og sturtuðum um 200
rúmmetrum af efni yfir, sem er
heldur minna en við áttum von á.
Nú er hætt að krauma þar sem við
sjáum til og við munum fylgjast
með til að vera vissir um að alveg sé
dautt í gryfjunni," segir hann.
XRN! BJÖRNSSON
Lausn eftir deilur
Starfsmenn áhaldahússins tóku
að sér að slökkva eldinn eftir að
deilur risu um kostnað við slökkvi-
starf sem áður hafði farið fram á
milli núverandi eigenda svæðisins
og Hafnarfjarðarbæjar, en eigend-
umir höfðu dælt sjó á eldinn síðan
hann kviknaði fyrir um sex vikum.
Heilbrigðisfulltrúi á Hafnarfjarðar-
svæði í samvinnu við slökkviliðs-
stjóra ákvað að reynt yrði að kaf-
færa eldinn með fyrrgreindum
hætti.
Reynir kveðst eiga von á að timb-
urúrgangurinn í gryfjunni verði
kurlaður niður og fluttur í burtu.
mmm
\ Skemmtileg og aðgengileg
í bók byggð upp á svipaðan
hátt og Saga daganna
Fjallað er um merkisdagana
I ævi hvers og eins, um siði,
! venjur og sagnir sem tengjast
atburðum á borð við fæðingu,
1 skírn, fermingu, trúlofun,
brúðkaup eða útför.
Reuters
ÓLAFUR Ragnar Grímsson og Ernesto Zedillo við upphaf viðræðn-
anna í Los Pinos, opinberum bústað forsetans í Mexikóborg.
voru fulltrúar íslensku fyrirtækj-
anna og ýmsir fulltrúar úr atvinnu-
lífi og stjómkerfi borgarinnar.
A fimmtudagsmorgun snæddu
forsetahjónin morgunverð með
fulltrúum úr atvinnulífi borgarinn-
ar og síðan sótti fiugvél Mexíkófor-
seta þau og fulltrúa íslensku fyrir-
tækjanna í Mazatlán og flutti þau
til Mexíkóborgar til fundar við
Emesto Zedillo forseta Mexíkó. Að
þeim fundi loknum flutti flugvél
forsetans forsetahjónin og Islend-
ingana aftur til Mazatlán, þar sem
átti að kynna starfsemi íslensku
fyrirtækjanna ýmsum fulltrúum
sjávarútvegs á svæðinu. Um kvöld-
ið efndu íslensku fyrirtækin til
kvöldverðar þar sem ýmsir fulltrú-
ar úr æðstu stjóm ríkisins og
Mazatlánborgar vom ásamt for-
setahjónunum.
í gær héldu forsetahjónin til Gu-
yamas þar sem þau hugðust heim-
sækja frystihús og útgerð sem ís-
lensk fyrirtæki reka og verða við-
stödd stofnun íslensk-mexíkósks
sölufyrirtækis á sviði sjávarafurða.
Vélin sem nauðlenti
Eldsneytis-
laus vegna
bilunar
SKULI Jón Sigurðarson, forstöðu-
maður Rannsóknarnefndai- flug-
slysa, segir ljóst að flugvélin sem
nauðlenti á Nesjavallavegi í fyrra-
kvöld hafi orðið eldsneytislaus sök-
um bilunar.
„Hreyfillinn stöðvaðist hjá honum
þannig að flugmaðurinn þurfti að
nauðlenda, en orsök hreyfilstöðvun-
arinnar var eldsneytisskortur. Við
teljum skýringuna vera þá að bilun
hafi orðið í eldsneytiskerfi hans með
þeim afleiðingum að bensín lak út,“
segir Skúli Jón.
Talið er að um bilun í elds-
neytisloka hafi verið að ræða og flug-
maðurinn ekki getað uppgötvað lek-
ann. Hann hafði sett eldsneyti á vél-
ina fyrir um fimm klukkustunda flug
áður en hann hóf sig á loft frá
Reykjavíkurflugvelli um hálfum öðr-
um tíma áður en hún varð að nauð-
lenda.
Skúli Jón segir ekki um algenga
bilun að ræða og verði málið rann-
sakað frekar.
-----------------
Sinueldur í Breiðholti
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík
fór í fyrrinótt og slökkti sinueld
við Amarbakka í Breiðholti og er
þessi „árvissi en hvimleiði“ vor-
boði sennilega sá fyrsti af því
tagi sem kemur til kasta slökkvi-
liðs, það sem af eru þessu ári,
samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliði.
Slökkvilið bendir sérstaklega á
að sinueldar stefna oft gömlum
trjám og annarri náttúru í voða,
auk þeirrar hættu sem af þeim
getur stafað. Þeim eindregnu til-
mælum er beint til foreldra og
forráðamanna bama að brýna
fyrir bömum að kveikja ekld
sinuelda.
Skemmdu
jarðveg utan
vegar
LÖGREGLAN í Keflavík hafði um
21.30 í fyrrakvöld afskipti af vamar-
liðsmönnum í tveimur jeppum sem
óku utan vegar á Vogastapa við
Snorrastaðartjamir og spændu þar
upp jarðveg með aksturslagi sínu.
Jarðvegur er mjög viðkvæmur
um þessar mundir, enda klaki að
fara úr jörðu. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni í Keflavík
drulluspóluðu jeppamir á svæðinu.
Rætt var við mennina, þeim gert
skylt að laga til eftir sig og hafa lög-
reglu borist upplýsingar um að þeir
hefðu hafið það starf í gærmorgun.
Vamarliðsmennimir báru fyrir
sig að þeir hefðu ekki séð skilti sem
bönnuðu þetta háttarlag. Almennt
er bannað að aka utan vegar og er
öllum vamarliðsmönnum kynntar
gildandi reglur hérlendis við kom-
una til landsins.
D-listinn ríður á vaðið í kosningabaráttunni
„Verður snörp baráttau
Laugavegi 18 ♦ Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
KOSNINGABARATTAN í
Reykjavík hófst formlega í gær-
morgun þegar Júlíus Vífill Ingv-
arsson og Bryndís Þórðardóttir,
frambjóðendur Sjálfstæðisflokks,
heimsóttu vinnustaði við Súðarvog.
„Kosningabaráttan er formlega
hafin,“ sagði Júlíus Vífill í gær.
„Við fóram á nokkra vinnustaði,
heimsóttum menn við störf sín og
kynntum fyrir þeim í stuttu máli
áform okkar á næsta kjörtímabili.“
Hann sagði að þeim hefði verið vel
tekið. Þau hefðu farið í fyrirtæki af
minni gerðinni, heimsótt jámsmiðj-
ur, bólstrara og viðgerðaverkstæði.
„Fram að kosningum hyggjumst
við fara í mjög mörg fyrirtæki af öll-
um stærðum og gerðurn," sagði Júh'-
us Vífill. ,J>essar heimsóknir era
miðaðar við að heilsa upp á menn
persónulega og tala við þá augliti tíl
auglitis."
Hann sagði að spumingar hefðu
verið af ýmsum toga, en skipulags-
mál hefðu verið ofarlega á baugi,
einkum hvað listinn hygðist fyrir til
að halda starfsemi fyrirtækja innan
borgarmarkanna.
„Við svörum þessu fólki því að við
munum lækka fasteignagjöldin, sem
nemur hækkim R-listans í upphafi
kjörtímabils, eða um 26%,“ sagði
hann.
Morgunblaðid/Ásdís
BRYNDÍS Þórðardóttir og Júlíus VífíU Ingvarsson, frambjóðendur D-
lista í komandi kosningum, ræða við Harald Harðarson, Magnús
Gíslason, Snorra Magnússon og Öm Jóhannsson hjá Stálprýði.
Júlíus Vífill vildi ekki láta uppi
hvemig kosningabaráttu Sjálf-
stæðisflokksins í borginni yrði
háttað, en sagði að frambjóðendur
listans myndu hefjast handa á því
að fara í fyrirtæki og ræða við fólk
á persónulegum nótum.
„Ég væri að segja of mikið ef ég
færi að tiltaka nákvæmlega hvem-
ig við ætlum að heyja okkar bar-
áttu,“ sagði hann. „En hún á eftir
að verða mjög snörp og þeir, sem
hafa kvartað undan því að við höf-
um ekki gert nægilega mikið hing-
að til, munu svo sannarlega fá að
sjá til okkar á næstunni."