Morgunblaðið - 04.04.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 9
FRÉTTIR
Á ANNAN tug silunga veiddist á dorgveiðimóti unglinga í Reynisvatni
og á myndinni eru hressir krakkar með afla sinn.
Byrjaði
vel í
Skaftá
GOÐ veiði var fyrstu dagana í
Skaftá frá landi Nýjabæjar, en veiði
hófst þar á miðvikudag eins og víðar
á svæðinu. Tvo fyrstu dagana veidd-
ist kvótinn, eða tíu sjóbirtingar. Að-
eins er veitt á eina stöng og er
dagskvótinn fimm fískar. Auk þeii'ra
sem teknir voru, var nokkrum físk-
um sleppt. Þetta voru aðallega sjó-
birtingar, allt að 11 punda, en einnig
nokkrar bleikjur.
„Það er erfitt að slá föstu hvernig
þetta verður. Það var mikill
frostakafli í mars og þar á undan
hafði verið óeðlilega mikið vatn í
ánni. Farvegurinn fylltist þá af krapi
og spilltist. Þar að auki er erfitt að
meta hvort mikið er eða lítið af físki,
því þessir sem voru að veiða hérna
veiddu bara á flugu og voru í hífandi
roki. Það verður því kannski meira
hægt að ráða í ástandið eftir einn eða
tvo virkilega góða daga,“ sagði Þor-
steinn Gíslason, bóndi á Nýjabæ, í
samtali við Morgunblaðið.
Reytingur var á sjóbirtingsslóð-
um seinni part fimmtudags, en
minna en efni stóðu til vegna hvass-
viðris. Veiði var að glæðast í gær-
morgun enda þá mikil veðurblíða og
vötn tær og falleg og mikill fiskur
undir.
Hölkná „komin heim“
A komandi sumri mun íslenskum
stangaveiðimönnum standa til boða
að veiða í Hölkná í Þistilflrði í fyrsta
skipti um langt ái'abil, eða frá 1982,
en áin hefur lengi verið leigð erlend-
um veiðimönnum, verið lítt stunduð
og alveg lokuð heimamönnum.
Stangaveiðifélagið Stekkur hefur
gengið frá samningi um leigu á
tímabilinu 23. ágúst til 20. septem-
ber á komandi sumri.
„Nú hefur landeigendum verið
heimilað að selja tímabilið eftir að
útlendingarnir hætta veiðum. I
fyrra veiddu Svisslendingar frá 10.
júlí til 13. ágúst og var áin friðuð eft-
ir það,“ sagði Eiríkur St. Eiríksson,
einn leigutaka, í samtali við Morg-
unblaðið. Eiríkur sagði enn fremur
að Hölkná hefði gefíð að jafnaði 95
laxa á sumri síðustu árin en það
væri um helmingi minni veiði heldur
en nágrannaárnar Svalbarðsá og
Sandá væru að gefa. „Þetta eru svo
líkar ár í einu og öllu, að það er
freistandi að ætla að skýringin sé
einföld, áin sé hreinlega ekki stund-
uð jafn mikið. Okkur félögunum líst
annars afar vel á þetta, áin er heldur
vatnsmeiri heldur en t.d. Sval-
barðsá, hún er 16-18 kílómetrar
með fjölda veiðistaða. Þá er spáin
fyrir Þistilfjörðinn mjög hagstæð,“
bætti Eiríkur við.
SVFR stóð fyrir dorgveiðimóti
barna og unglinga innan vébanda fé-
lagsins fyiir skömmu. Mótið var
haldið á Reynisvatni og tóku alls 30
börn þátt í mótinu og ásamt að-
standendum voru um 70 manns á
ísnum þegar mest var.
Mikið úrval!
Hátíðarfatnaður og sportfatnaður
h&QýGafithiUi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
AÐALSTÖDIN
IFUJGftlMj ISLANDSI
Hjómsveit
Geirmundar
BROADWS
HÓTEL fSLANDI
Mi5a- og borðapantanir í síma 533 1100.
Verð 4.900, matur og sýning. 2.200, sýning. 1.000, dansleikur.
leikur fyrir dansi
14 manna hljómsveit undir
stjórn Þóris Baldurssonar.
ZH'ynnir er Jón Axel Ólafsson.
Antikhúsgögn, Mosfellsbæ
Margskonar góð antikhúsgögn frá síðustu öld og byrjun
þessarar s.s. oval maghony-borð, buffet, skenkar, skrifborð
og ýmislegt fleira, þó eingöngu húsgögn.
Er í nýju Álafossverksmiðjunni v/Reykjaveg (við hliðina á Atlanta).
Símar 566 6042 og 892 3041 (Ólafur).
Opið laugard. og sunnud. frá kl. 14-18
og á þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá kl. 20.30-22.30.
; n
Fallegar dragtir, jakkar,
buxur, kjólar og pils
POLARN O. PYRET
Kringlunni, sími 568 1822
~~CCOcCZUeT~
Komfort-síðbuxurnar
komnar
Opiðídagkl. 10-16
éZ/nífcuírú
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll, Háaleitsbraut 1, 3. hæð,
105 Reykjavík
Símar: 515 1735, 515 1738
Bréfasími: 515 1739
Netfang: utankjorstada@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanninum í
Reykjavík, Skógarhlíð 6, 3. hæð, virka daga kl. 9.30 - 15.30.
Skrifstofan gefur upplýsingar um allt sem lýtur að
sveitar-stjórnakosningunum 23. maí n.k.
SJÁLFSTÆÐISFÓLK!
Hafið samband ef þið verið ekki heima á kjördag
Langur laugardagur /
15% afsl. af
SONIA RYKIEL PARIS
fatnaði í dag. v\
■
Laugavegi 4, sími 551 4473. ■■^— i
r
Hætt að reykja?
s
I dag
Tilboðsverð á nikótínlyjjum
jrá Nicorette®
NICDRETTE
Við stöndum meðþér
LAUGAVEGS APÓTEK
Laugaveg 16,101 Reykjavík
Sími 552 4045