Morgunblaðið - 04.04.1998, Page 11

Morgunblaðið - 04.04.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 11 FRETTIR Laxveiðikostnaður Landsbankans 1993-97 var vantalinn um 13 millj. kr. Kostnaður dótturfélaga nam tæpum 11 millj. kr. KOSTNAÐUR Landsbankans og dótturfélaga hans af laxveiðiferðum á árunum 1993-1997 nam tæplega 41,7 milljónum kr. og var hann van- talinn um 13 millj. kr. í fyrra svari bankans til viðskiptaráðheiTa og Alþingis. Mismunurinn sundurgreinist þannig, samkvæmt bréfí bankaráðs Landsbankans til viðskiptaráð- herra 2. apríl sl., að kostnaður Landsbankans vegna veiðileyfa nam í reynd á umræddu tímabili 20,4 millj. kr. og var sá kostnaður vantalinn um rúmar sex millj. kr., kostnaður bankans vegna annarra útgjalda af laxveiðiferðum nam í reynd 10,5 millj. kr. og var sá kostnaður vantalinn um 6,6 millj. kr. Samtals hefur Landsbankinn því vantalið vegna veiðileyfa og annarra útgjalda tæpar 13 millj. kr. Kostnaður Landsbréfa 6,3 milljónir króna Engar upplýsingar voru gefnar vegna laxveiðikostnaðar dótturfé- laga Landsbankans í fyrra svari bankans. I bréfí bankaráðs til við- skiptaráðheiTa kemur fram að kostnaður dótturfélaga Lands- bankans vegna laxveiðileyfa á um- ræddu tímabili nam um 7,3 millj. kr. og önnur útgjöld dótturfélaga vegna laxveiðiferða námu 3,4 millj. kr. Smatals var kostnaður dóttur- félaganna á tímabilinu vegna lax- veiðiferða tæpar 11 millj. kr. Samanlagður kostnaður Lands- bankans og dótturfélaga bankans vegna veiðileyfa nam því 27,7 millj. kr. og önnur útgjöld i tengslum við veiðiferðirnar voru um 14 millj. kr. Auk Landsbankans var farið í veiðiferðir öll árin á vegum Lands- bréfa hf. og nam heildarkostnaður félagsins vegna laxveiðiferða tæp- lega 6,3 millj. kr. A vegum Hamla hf. var farið í laxveiðiferðir öll árin að árinu 1993 undanskildu og nam heildarkostnaður Hamla rúmum 2,2 millj. kr. Farið var í laxveiði- ferðir á vegum Regins hf. á árun- um 1993 og 1994 og nam saman- lagður kostnaður félagsins 1,8 millj. kr. Loks nam kostnaður Rekstrarfélagsins hf. vegna lax- veiðiferða á árinu 1994 424 þúsund kr. samkvæmt yfirliti bankaráðs Landsbankans. Bankaráð Iætur athuga risnu og ferðakostnað I bréfí bankaráðsins til viðskipta- ráðherra sl. fimmtudag segir m.a.: „Þegar formanni og varaformanni bankaráðs var greint frá niðurstöð- um þessum mánudaginn 30. mars sl. og bankaráðinu greint frá því í beinu framhaldi óskaði það sam- stundis eftir þvf við Ríkisendur- skoðun að hún athugaði einnig alla risnu Landsbanka Islands 1994 til 1997 svo og ferðakostnað innan- lands og erlendis og aksturs- og bifreiðakostnað. Tilgangur með þessari viðbótarathugun er m.a. sá að staðreyna að þær upplýsingar sem gefnar hafa verið af hálfu bankans til viðskiptaráðuneytis um þessa þætti í rekstri hans hafi verið fullnægjandi. Þessi athugun stend- ur nú yfir.“ Veiðiferðir í níu laxveiðiár A þessu fimm ára tímabili var farið í veiðiferðir á vegum Lands- bankans og dótturfélaga hans öll árin í Selá, Hrútafjarðará, Víði- dalsá og Laxá í Aðaldal. Einnig var farið í veiðiferðir sum árin í Vatns- dalsá, Þverá, Laxá í Dölum, Stóru- Laxá og Straumfjarðará. I bréfinu kemur ennfremur fram að veiðileyfin vora keypt af eftir- töldum félögum á tímabilinu: Sporði hf., Lóni sf., Bálki ehf., Lax- árfélaginu, Streng sf., Snasa ehf., Veiðifélagi Grímsár og Tunguár og Straumfirði sf. Formaður bankaráðs Landsbanka Islands um rangar upplýsingar um laxveiðikostnað Þeir sem ábyrgð bera fái tækifæri til útskýringa HELGI S. Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, segir nauðsynlegt að bankaráðið fái skýra mynd af því hvernig stendur á því að viðskiptaráðherra fékk í hendur rangar upplýsingar um laxveiði- kostnað bankans, og að þeir sem beri ábyrgðina og sendu þessar upplýsingar frá sér þurfi að fá tæki- færi til að útskýra af hverju þetta gerðist og með hvaða hætti. „Við fáum þarna upplýsingar með þessum hætti sem við höfðum ekki fengið áður. Við bregðumst við með því að láta útvíkka þetta þar sem bankinn hafði áður gefið upplýsing- ar og þá þykir okkur eðlilegt að láta skoða það í því Ijósi. Til að geta dregið einhverja rétta og skýra mynd af þessu teljum við að við verðum að bíða eftir niðurstöðum Ríkisendurskoðunar. Við verðum að virða þann rétt hvers einstaklings að hann fái að svara eða útskýra það sem hann hefur sent frá sér. Það eru auðvitað bankastjórar bankans sem bera ábyrgð á stjórn- un bankans sem slíkri,“ sagði Helgi. Hann sagði að allar upplýsingar sem bankaráðið fengi á sitt borð væru samansettar og samanteknar af ytri og innri endurskoðun bank- ans, og í þeim kæmu fram allar upp- lýsingar sem gæfu bankaráðinu tækifæri til að sinna eftirlitsskyldu sinni. Ekkert rautt ljós „Komi eitthvað upp eða eitthvað reynist að í bankanum þá fáum við rautt Ijós, en það hefur ekkert slíkt komið inn á mitt borð á meðan ég hef verið þarna frá 1995 um að það sé eitthvað torkennilegt eða óeðli- legt í sambandi við þetta,“ sagði Helgi. Um hugsanleg viðbrögð banka- ráðsins sagði Helgi að ekkert væri hægt að segja um þau fyrr en allar skýringar á málinu lægju fyrir. „Við höfum það algjörlega í heiðri að vera ekki með neinar yfirlýsing- ar um þetta nema fá skýringar fyrst,“ sagði hann. Kostnaður Landsbanka Islands og dótturfélaga vegna laxveiðiferða 1993-97 Veiðileyfi Annar kostn. Landsbanki Islands Landsbréf hf, Reginn hf. 5.194.100 2.743.741 941.890 .323.200 56.685 Samtals 7.937.841 941.890 1.379.885 r-T7T-M ■ Landsbanki íslands 3.248.000 2.154.906 5.402.906 Landsbréf hf. 848.000 457.242 1.305.242 Hömlurhf. 441.450 Reginn hf. 405.550 441.450 405.550 Rekstrarfélagið hf. 424.050 424.050 5.367.050 2.612.148 7.979.198 Landsbanki íslands 4.766.984 2.660.958 7.427.942 Landsbréf hf.t. m 848.000 467.829 1.315.829 Hömlur hf. W; 468.000 184.900 652.900 Landsbanki íslands 3.941.030 1.022.708 4.963.738 Landsbréf hf. t 848.000 498.241 1.346.241 Hömlurhf. kMkSBí 480.000 299.890 779.890 5.269.030 1.820.839 7.089.869 Landsbanki íslands 3.244.660 1.981.048 5.225.708 Landsbréf hU 848.000 506.338 1.354.338 Hömlurhf. 360.000 1.173 361.173 4.452.660 2.488.559 Fiarhæðir eru á verðlagi hvers árs 6.941.219 Vill láta skoða eldri svör bankans JÓHANNA Sigurðardótth', þingmaður þingflokks jafnað- armanna segir það mjög alvar- legt mál að viðskiptaráðherra og Alþingi hafi verið veittar rangar upplýsingar um kostn- að vegna laxveiðiferða á vegum Landsbankans. Það gefi tilefni til þess að fram fari athugun á því hvort aðrar upplýsingar, sem fram hafa komið um bank- ann og snerta ýmsar kostnað- argreiðslur, hafi verið réttar. Þingið fékk fyrrgreindar upp- lýsingar að beiðni Jóhönnu. „Ég er nú að ganga frá bréfi til forseta Alþingis þar sem ég fer þess á leit að forsætisnefnd þingsins feli Ríkisendurskoðun að sannreyna hvort fleiri upp- lýsingar sem stjórnendur Landsbankans hafa gefið við- skiptaráðherra og ráðherra síðan veitt Alþingi hafi verið réttar,“ segir Jóhanna. „Frá síðasta þingi er um að ræða svör við fyrirspurnum um starfskjör og lífeyrisréttindi banka- og aðstoðarbankastjóra ríkisbankanna, greiðslur fyrir setu í dótturfyrirtækjum og stofnunum bankanna og stjórn- argreiðslur, ferða- og bíla- hlunnindi stjórnenda þeirra. Frá þessu þingi er um að ræða risnu, dagpeninga, bifreiða- og ferðakostnað bankans.“ Jóhanna segist einnig ætla að krefjast svara við því hvort þessar nýju upplýsingar breyti einhverju. um árlegan fjölda laxveiðiferða. Einnig þui-fi að meta hve margar ferðanna séu í raun til að viðhalda og afla nýrra viðskiptasambanda. HONDA á d y r a 1 . 4 S i 9 0 h e s t ö i l Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri Innifalið í verði hílsins Honda Civic 1.5 LSi VTEC 1.550.000,- 115 hestöfl Fjarstýrðar samlæsingar 4 hátalarar Hæðarstillanlegt ökumannssæti Sjálfskipting 100.000,- 1400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautun4 Loftpúðar fyrir ökumann og farþega4 Rafdrifnar rúður og speglar4 ABS bremsukerfi4 Samlæsingar 4 14" dekk4 Honda teppasett4 Ryðvörn og skráning4 Útvarp og kassettutæki 4 Verð á gntuna: 1 455 000, Sjálfskipting kostar 100.000,- [0 HONDA Sfmi: 520 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.