Morgunblaðið - 04.04.1998, Page 22
22 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Jörð skaif
á Italíu
ÖFLUGUR jarðskjálfti skók
miðhluta Ítalíu snemma í gær-
dag. Jarðskjálftinn mældist 4,7
á Richter en enginn varð fyrir
meiðslum og aðeins minnihátt-
ar skemmdir urðu á bygging-
um. I september síðastliðnum
létust 11 manns í jarðskjálftum
á þessu sama svæði og margir
urðu heimilislausir.
Brottrekstrar
í Litháen
HELSTU leiðtogar Litháens,
þ.m.t. forseti og forsætisráð-
herra, kröfðust í gær brott-
reksturs yfirstjórnanda lithá-
enska hersins, Juris Dalbinsh,
fyrir þátttöku hans í minning-
arhátíð fyrrum SS-manna.
Guntar Krasts, forsætisráð-
herra, hefur einnig ákveðið að
reka efnahagsráðherra sinn úr
ríkisstjóm fyrir slælega
frammistöðu í starfi.
Iraska
stúlkan látin
ÍRASKA stúlkan Amal Saeed
lést á sjúkrahúsi í Amsterdam í
gær. Saeed,
sem var fimm
ára, komst í
heimspress-
una um síð-
ustu jól þegar
CNN-sjón-
varpsstöðin
gerði veikind-
um hennar
skil sem og
slæmu
ástandi heil-
brigðismála í Irak. I kjölfarið
ákvað Friður 2000 í samvinnu
við hollensk góðgerðarsamtök
að flytja Saeed til aðhlynningar
í Hollandi.
Le Pen segir
stöðu sína
sterkari
FRANSKI öfgasinninn Jean-
Marie Le Pen sagði í gær dóm-
inn sem hann hlaut í fyrradag,
þar sem hann var sviptur borg-
araréttindum, runninn undan
rifjum frímúrara og pólitískra
andstæðinga sinna. Hann sagði
hinsvegar að dómurinn kæmi
til með að styrkja pólitíska
stöðu sína frekar en hitt.
Vopnaeftir-
liti lokið
VOPNAFTIRLITSMENN
Sameinuðu þjóðanna luku í gær
fyrsta hluta eftirlits á átta for-
setahöllum í Irak. Niðurstöður
leitarinnar eru ekki enn Ijósar
en eftirlitsmennimir halda í
dag frá Bagdad.
Amal
Saeed
Norodom Ranariddh yfírgefur Kambódíu
Segir stjórnvöld hafa
gert för sína erfiða
NORODOM Ranariddh prins lauk
heimsókn sinni til Kambódíu í gær
eftir að hafa dvalið í Phnom Penh
síðan á mánudag. Hann sagði við
komuna til Bangkok í Thailandi að
stjórnvöld Hun Sen í Kambódíu
hefðu gert ferð sína erfiða og að þörf
væri á betri öryggisviðbúnaði þegar
liði að áætluðum kosningunum í júlí.
Óeirðir brutust ítrekað út á götum
Phnom Penh milli stuðningsmanna
prinsins og andstæðinga á meðan á
dvöl Ranariddhs stóð.
Petta var fyrsta heimsókn Ranar-
iddhs til heimalands síns síðan hann
hélt í útlegð á síðasta ári. Ranariddh
sigraði í kosningunum árið 1993 en
var velt úr sessi í fyrra af aðstoðar-
forsætisráðherra sínum, Hun Sen,
og fylgdu blóðug átök í kjölfar þess.
Heimsókn Ranariddhs nú hefur vak-
ið aftur upp spennu milli fylkinga
mannanna tveggja og kvartaði prins-
inn undan því að öryggis vegna hefði
hann varla getað yfirgefið hótelher-
bergi sitt.
Hun Sen lét dæma Ranariddh fyr-
ir öryggisglæpi í fyrra mánuði en
Sihanouk konungur, faðir Rana-
riddhs, náðaði Ranariddh í samræmi
við friðarsamkomulag sem Japanir
standa á bak við og sem ætlað er að
tryggja Ranariddh eðlilega þátttöku
í stjórnmálalífi landsins. Þetta sam-
komulag gerði Ranariddh nú kleift
að heimsækja heimaland sitt og
ræddi hann við diplómata, fulltrúa
Sameinuðu Þjóðanna og flokksmenn
sína í ferðinni.
Hun Sen hefur boðað til kosninga
þann 26. júlí og hefur Ranariddh gef-
ið í skyn að hann kunni að bjóða sig
fram. Hann sagði í gær að sanngirni
vegna yrði Hun Sen að auka öryggis-
aðstæður. Stjórnvöld hafna kröfum
Ranariddhs og segja að hann hefði
auðveldlega getað ferðast óhultur
um hefði hann það viljað.
Reuters
Frelsisstyttan í Tókýó
LÍKAN af Frelsisstyttunni var
tekið upp úr kössum í Tókýó í
gær, en þangað hafði það verið
flutt sjóleiðis frá París. Ferðin
tók mánuð og var líkaninu skipt í
sex hluta. Frelsisstyttan var
hönnuð af Frakkanum Frederic-
Auguste Bartholdi og gáfu
Frakkar Bandaríkjamönnum
hana. Líkanið verður sett upp í
Tókýó í tilefni að franskri menn-
ingarhátíð er haldin er til að
styrkja vináttubönd Tókýó og
Parísar.
Milosevic
reynir að
vinna tíma
Pristina. Reuters.
SÚ FYRIRÆTLUN Slobodans
Milosevics, forseta Júgóslavíu, að
boða til þjóðaratkæðis um hvort leyfa
eigi erlendum ríkjum að miðla málum
í málefnum Kosovo-héraðs, hefur
sætt harðri gagnrýni erlendis, sem
og í Kosovo, þar sem Albanir eru í
miklum meirihluta. Milosevic boðaði
til atkvæðagreiðslunnar í von um
stuðning almennings í Serbíu við að
hafna erlendum afskiptum af sátta-
umleitunum serbneskra yfirvalda og
fulltrúa Albana í Kosovo.
Leiðtogi Kosovo-Albana, Ibrahim
Rugova, sakaði Milosevic í gær um
að hunsa vilja þjóða heims. Þá réðist
Javier Solana, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, harkalega
að ákvörðun Milosevics. Sagðist Sol-
ana þess fullviss að erlendis yrði litið
á hana sem „tilraun til að vinna tíma
og því aukist líkurnar á átökum."
Serbneska þingið tekur endanlega
ákvörðun á mánudag um hvort efnt
verður til þjóðaratkvæðisins.
Dæmdir
fyrir líkams-
hlutastuld
BREZKI myndhöggvarinn Anth-
ony-Noel Kelly var í gær sakfelld-
ur ásamt tæknimanni á rann-
sóknastofu
sjúkrahúss í
London fyrir að
hafa stolið lík-
amshlutum í nafni
listsköpunar.
Kelly, sem er
bróðursonur her-
togans af Norfolk,
naut aðstoðar
Neils Lindsay, að-
stoðarmanns á rannsóknastofu
Royal College of Surgeons við að
komast yfir líkamshluta úr fólki,
sem hann svo gerði afsteypur af
og sýndi sem framúrstefnulega
höggmyndalist.
Kelly fékk níu mánaða fangelsi
fyrir athæfið og er gert að af-
plána að minnsta kosti helmings
þess tíma. Lindsey fékk hálfs árs
skilorðsbundinn dóm.
‘---------------
Kelly
Fimm fær-
eyskra sjó-
maiina saknað
Þórshöfn. Morgunblaðið.
EKKERT hefur spurst til færeysks
fiskibáts með fimm manna áhöfn,
sem hvarf á mipvikudagskvöld á
milli Færeyja og íslands. Hans hef-
ur verið leitað á sjó og úr lofti en án
árangurs. Hafa nokkrir fiskikassar
fundist en ekki er vitað hvórt þeir
eru úr bátnum. Veður var þokkalegt
er hann hvarf.
Báturinn, Sjóbugvin, er 40
brúttótonn og var á heimleið er
hann hvarf. Aðrir bátar voru á
svæðinu og höfðu þeir síðast spurn-
ir af Sjóbugvin á þriðjudagskvöld.
Leit hófst hins vegar á fimmtudag
og hélt áfram í gær en þá leituðu
um tuttugu bátar, danskir og fær-
eyskir, auk þyrlna og Gulfstream-
flugvélar danska hersins sem var
kölluð frá íslandi.
Schengen-aðild Austurríkis gengin í gildi
Gæzla afnumin milli
Italíu, Austurríkis
og Þýzkalands
Bonn. Reuters.
GÆZLA á landamærum Þýzka-
lands, Austurríkis og Ítalíu var af-
numin um mánaðamótin, þegar
samningur Austurríkis um fulla að-
ild að Schengen-samningnum svo-
kallaða gekk í gildi.
Vegabréfaeftirlit á landamærum
níu aðildarríkja Evrópusambandsins
(ESB), sem fullgilt hafa Schengen-
samninginn, var afnumið í desember
síðastliðnum, en samið var um að
eftirlit á landamærum Austurríkis
myndi haldast óbreytt til 1. apríl á
þessu ári.
Eftir afnám landamæraeftirlits
milli þessara þriggja ríkja má ætla
að margur ferðalangurinn gleðjist,
Fákafeni 11,
sími 568 9120.
■■■■■■■■■■■■■■
jjafavara í úrvali
‘Datía
EVRÓPA^
því að á liðnum árum hefur það verið
fástur liður á aðalsumarleyfistíman-
um, að gífurlegar biðraðir myndist á
landamærunum, þar sem hraðbraut-
irnar í gegn um Alpana liggja.
Margir innan Schengen-svæðisins
voru hikandi við að opna fyrir hindr-
unarlaust streymi fólks frá Italíu til
annarra Evrópulanda, þar sem
ítölsk stjórnvöld þykja hafa staðið
sig misjafnlega í að sinna eftirliti á
ströndum og flugvöllum landsins,
þangað sem margir ólöglegir inn-
flytjendur frá N-Afríku, Albaníu og
fleiri löndum hafa streymt.
Forsendan fyrir því að hægt sé að
afnema eftirlit á innri landamærum
Schengen-ríhjanna án þess að
minnka öryggi íbúa svæðisins er að
þau herði eftirlit á ytri landamærum
þess. Bæði ítölsk og austurrísk
stjómvöld hafa heitið því að gera
eftirlit á sínum ytri landamærum
skilvirka.
Velmegun í Evrópusambandinu
Sæti Var Land
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
(1.)
(2.)
(3.)
(4.)
(5.)
(6.)
(7.)
(10.)
(8.)
(11.)
(12.)
(9.)
(13.)
(14.)
(15.)
Lúxemborg
Danmörk
Beigía
Austurríki
Þýskaland
Holland
Frakkland
írland
Ítalía
Finnland
Bretland
Svíþjóð
Spánn
Portúgal
Grikkland
PPS
1997
32,885
23,673
21,787
21,217
20,927
20,773
20,243
19,757
19,609
19,270
18,985
18,935
15,106
13,786
13,187
-----:—,----——■——------------.----------------
Kaupgeta er mæld með tilbúinni einingu (purchasing power
standard, PPS), sem byggirá getu fólks til að kaupa ákveðinn
pakka af vörum og þjónustu.
1996
30,999
22,578
20,889
20,441
20,274
19,842
19,556
18.147
18,950
18,039
17,900
18,526
14,304
13.147
12,484
Irar fram úr Svíum
Brussel. Reuters.
ÍRAR héldu á síðasta ári áfram að
mjakast upp eftir yfirlitstöflunni yfir
velmegun aðildarríkja Evrópusam-
bandsins, ESB. Þetta kom fram í töl-
um sem hagstofa ESB, Eurostat,
birti í vikunni.
Þjóðarframleiðsla írlands á hvem
íbúa, miðað við kaupgetu, óx í 19.757,
úr 18.147 árið 1996. Þar með er ír-
land komið í áttunda sæti velmegun-
arlistans, úr því tíunda 1996.
Hagvöxtur á írlandi var 8,3%
1997, en meðalhagvöxtur í ESB-
löndunum 15 var á sama tíma 2,6%.
Samkvæmt tölum Eurostat var hag-
þróun óhagstæðust í Svíþjóð á síð-
asta ári. Þjóðarframleiðsla Svía á
mann dróst saman á árinu, úr 18.935
1996 í 18.526. Með þessu féll Svíþjóð
úr níunda sæti velmegunarlista
ESB-ríkjanna í það tólfta.
Lúxemborg og Danmörk eru eftir
sem áður í efstu sætum listans. Þjóð-
arframleiðsla á mann í Lúxemborg
jókst úr 30.999 1996 í 32.885 í fyrra.
Þetta er tvöfalt hærri stuðull en
gilda í snauðustu löndum sambands-
ins, Grikklandi, Spáni og Portúgal.