Morgunblaðið - 04.04.1998, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Passíuteikn-
ingar eftir
Valgerði
Bergsdóttur
SÝNING á teikningnm eftir
Valgerði Bergsdóttur mynd-
listarmann verður opnuð í
Hallgrímskirkju eftir messu á
pálmasunnudag 5. apríl. Val-
gerður sýnir þar í boði Lista-
safns Hallgrímskirkju og
Listvinafélags Hallgríms-
kirkju.
Þar getur að líta sjö stórar
blýteikningar á pappír er lýsa
atburðum dymbilviku, eins og
þeim er lýst í Biblíunni.
Stærsta myndin ber nafnið
í loftsal. Kvöldmáltíð, og sýnir
Jesúm frá Nasaret með læri-
sveinunum ásamt Maríu
Magdalenu við máltíðina að
kvöldi skírdags. Hinar mynd-
irnar nefnast Bænin,
Miskunnin, Dimman, Fómin,
Fullkomnunin og loks Birtan.
Myndimar era sérstaklega
unnar til þess að vera í Hall-
grímskirkju nú um páskana,
en eiga sér þó nokkum að-
draganda. Framdrög þeirra
flestra vora gerð fyrir
nokkram áram og tengdust
vinnu Valgerðar við lýsingu
Sólarljóða, með glugga Reyk-
holtskirkju í huga, en afrakst-
ur þeimar vinnu sýndi Val-
gerður árið 1993. Síðan þá
hefur Valgerður verið skóla-
stjóri Myndlistarskólans í
Reykjavík og ekki sýnt verk
sín opinberlega, en vinnur að
teikningum á útfærslu glugg-
anna í Reykholtskirkju nú á
vormánuðum.
Sýningin stendur til 14. maí.
Bellman
í Hauks-
húsum
BELLMANSKVÖLD verður
á vegum Lista- og menningar-
félagsins Dægradvalar í
Haukshúsum á Alftanesi (bláa
húsinu við sjóinn) sunnudag-
inn 5. aprfl kl. 20.30. Dagskrá:
Bellmanskynning - Arni
Bjömsson, einsöngur - Berg-
þór Pálsson. Tónlist; Björn
Th. Ámason fagott, Kjartan
Óskarsson klarinett, Snorri
Öm Snorrason gítar. Þulur
Ami Bjömsson.
Með æskufögrum hljómi
TÓJVLIST
Listasaln fslands
KÓRTÓNLEIKAR
Flutt voru íslensk kórlög, þjdðlag-
araddsetningar, ættjarðarsöngvar,
madrigalar og messa eftir Haydn.
Einsöngvarar voru Árný Ingvarsddtt-
ir, María IV^jöll Jónsdóttir, Jónas Guð-
mundsson og Eiríkur Hrafnsson.
Hljóðfæraleikur var í höndum Jósefs
Gíslasonar og félaga úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands, undir forystu
Szymons Kuran. Stjórnandi Marteinn
H. Friðriksson. Miðvikudaginn 1.
apríl 1998.
KÓR Menntaskólans í Reykjavík,
undir stjórn Marteins H. Friðriks-
sonar, hefur starfað í nokkur ár og
hélt sl. miðvikudag vortónleika sína í
Listasafni Islands. Tónleikaiw
hófust á þremur íslenskum þjóðlög-
um, fyrst Austan kaldinn á oss blés í
ágætlega gerðri raddsetningu kór-
stjórans, þá Vísum Vatnsenda-Rósu
og síðast Vera mátt góður, sem kór-
inn söng einraddað í þeirri frumgerð
er Bjarni Þorsteinsson skráði í þjóð-
lagasafni sínu. Öll lögin vora vel flutt,
fallega hljómandi og með skýrum
framburði, og var síðasta lagið, Vera
mátt góður, sérlega líflega sungið.
Nýtt tónverk eftir Þorkel Sigur-
bjömsson, við fimm vísm- úr Borgar-
ljóðum eftir Gunnar Dal, vai- næst á
efnisskránni. Það er skemmtilega
gert verk, spunnið utan um mynd-
rænan textann, og var flutningmánn
sérlega skýr, bæði er varðar tónmót-
un og framburð textans.
Þrú- madrigalar, gamalkunnii' vin-
ir, Now is the month of maying eftir
Morley, Chi la gagliai'da eftir Donato
og Innsbruck eftir Isaac, vora að
mörgu leyti vel sungnir þótt tónstað-
an reyndist á köflum nokkuð eríið.
Að öðra leyti var flutningurinn glað-
legur í tveimur íyrri lögununum og
það þriðja sungið veikt, sem gerði
tónstuðninginn erfiðari. Þetta kom
sérlega vel fram í tveimur ættjarðar-
lögum, sem sungin vora hressilega,
og þá var tónstuðningurinn í lagi.
Lögin voru Minni Ingólfs eftir Jónas
Helgason og Island ögrum skorið eft-
ir Sigvalda Kaldalóns. Þar var tón-
staðan sérlega góð, einkum í Minni
Ingólfs, þai’ sem sópraninn blómstr-
aði með björtum tóni.
Einsöngvari með kórnum var Mar-
ía Mjöll og söng hún einsöng í Qui
sedes úr Gloria eftii- Vivaldi. María
er nemandi í söng og var söngur
hennai’ samkvæmt því, en í heild fal-
lega mótaður, og með henni lék
stjómandinn á orgel.
Kórinn lauk fyiri hluta tónleikanna
með laginu Ó undur lífs eftii’ Jakob
Hallgrímsson og Halelúja, dýrð sé
drottni eftir J.S. Bach. Perlan hans
Jakobs var mjög fallega sungin, en
ýmislegt vantaði í lagið eftir Bach,
þótt það væri í heild fallega flutt.
Eftir hlé var sunginn Gaudeamus
igitur og Skólaminni eftir Atla Heimi
Sveinsson, ágætt lag, sem kórinn
söng vel. Lokaviðfangsefnið var
Missa brevis St. Joannis de Deo eftii’
Joseph Haydn. Þetta er lítil orgel-
messa með strengjasveit og auk
kórsins sungu fjögur ungmenni
kvartettþættina en fyrri hlutinn af
Benedictus, sem er ritaður fyrir
sópraneinsöng, vai’ sunginn af Ar-
nýju Ingvai’sdóttur söngnema, er
flutti þessa fallegu aríu af þokka. í
heild var söngur kórsins í messunni
nokkuð góður, en þegar tónleikamir
eru „gerðir upp“ var söngurinn best-
ur og gæddur æskufögram hljómi í
íslensku lögunum og þá oft sérlega
fallega hljómandi og með einstak-
lega skýrum framburði, eins og t.d. í
þjóðlagaútsetningunum, tónverki
Þorkels, Minni Ingólfs og lagi Jak-
obs Hallgrímssonar.
Jón Ásgeirsson
Áshildur og Einar
í Digraneskirkju
ÁSHILDUR Haraldsdóttir flautu-
leikari og Einar Kristján Einarsson
gítarleikari halda tónleika í Digra-
neskirkju mánudaginn 6. apiíl nk.
kl. 20.30. Á efnisskránni era verk
eftir Astor Piazzolla, Láras Gríms-
son, Francis Poulenc, Mauro, Giuli-
ani, Jaques Ibert og Heitor Villa-
Lobos.
Áshildur Haraldsdóttir tók burt-
fararpróf frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík sautján ára gömul og hélt
haustið 1983 til Bandaríkjanna til
framhaldsnáms.
Áshildur hefur hlotið fjölda verð-
launa fyrir leik sinn. Hún hefur leik-
ið einleik með Sinfóníuhljómsveit Is-
lands, Umea Symphony Orchestra,
London Region Symphonia og fleiri
hljómsveitum.
Hún hefur haldið fjölda einleiks-
tónleika, komið fram í útvarpi og
sjónvarpi á öllum Norðurlöndum og
í Frakklandi og leikur reglulega í
BBC í Englandi, einnig hefur hún
hljóðritað nokkra geisladiska.
Einar Kristján Einarsson nam
gítarleik við Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar og lak burtfarar-
prófí árið 1982 og stundaði fram-
haldsnám í Manchester í Englandi,
auk þess að sækja námskeið hjá
Alirío Diaz, José Luis Gonzales o.fl.
Einar Kristján lauk einleikara- og
kennaraprófí frá Guildhall School of
Music árið 1987 og hefur síðan
haustið 1988 kennt gítarleik við Tón-
skóla Sigursveins og Tónlistarskóla
Kópavogs.
Einar Kristján hefur víða komið
fram á tónleikum m.a. í Svíþjóð og
Englandi og hér heima. Hann hefur
leikið með Caput-hópnum og komið
fram sem einleikari með Sinfóníu-
hljómsveit íslands, Kammersveit
Reykjavíkur o.fl.
Einar Kristján var þátttakandi í
íslenskri gítarhátíð í Wigmore Hall
1993 og hlaut starfslaun úr listasjóði
1995.
Þau Áshildur og Einar Kristján
leiddu saman hesta sína í fyrsta sinn
á gítardegi í Gerðubergi í mars sl.
ÁSHILDUR Haraldsdóttir og
Einar Kristján Einarsson.
Elleftifyrirlestur „Laxnessársins" íNorrœna húsinu áþriðjudaginn:
Skrafað við skáld
Sjp- (A °2 - \°r - Ólafur Ragnarsson rceðir um kynni sín af Halldóri L,axness og vinnubrögð skáldsins
Ellefti fyrirlesturinn um Halldór Laxness og verk hans á vegum Laxnessklúbbssins og Vöku-Helgafells verður fluttur í Norræna húsinu næstkomandi þriðjudag, 7. apríl og hefst kl. 17.15. Þar ræðir Ólafur Ragnarsson, bókaútgefandi, um kynni
sín af Halldóri Laxness, orðfæri skáldsins, ritstörf og vinnubrögð. Samkoman er
öllum opin og aðgangur ókeypis. í fyrirlestri sínum, sem Ólafur nefnir „Skrafað við skáld“ mun hann vitna í samtöl sín við Halldór Laxness gegnum tíðina og jafnframt ýmsar áður óbirtar heimildir frá ferli skáldsins svo sem „nótissubækur" hans og bréf sem í leynast fróðlegar upplýsingar, „uppteikningar" bóka hans og kvæði sem ekki hafa enn komið á prent. Ólafur Ragnarsson hefur verið „forleggjari" Nóbelsskáldsins frá 1985 en auk þess skrifað innganga og skýringar með bókinni Af menníngarástandi, úrvali greina og ritgerða Halldórs frá þriðja tug aldarinnar. Ólafur tók einnig saman bókina Lífsmyndir s\álds ásamt Valgerði Benediktsdóttur en þar er fjallað um ævi og feril Halldórs Laxness.
I-’YRIRLESTUR í
NORRÆNA IIÚSINU VAKAHELGAFELL
Á l’KIÐJUDAGINN Laxnessklúbburinn
KL. 17.15
TRIÓ Björns Thoroddsen ásamt Agli Ólafssyni leikur
á Múlanum á sunnudagskvöld.
Bjössi, Gunni, Geiri
og Egill á Múlanum
TRÍÓ Björns Thoroddsen ásamt
Agli Ólafssyni leikur á Múlanum
sunnudaginn 5. apríl kl. 21.
Tónleikarnir eru hluti af tón-
leikaröð Múlans 1998 þar sem boð-
ið hefur verið upp á fjölbreytta
dagskrá f vetur. Björn Thoroddsen
gítarleikari, Gunnar Hrafnsson
kontrabassaleikari, Ásgeir Óskars-
son trommuleikari og Egill Ólafs-
son söngvari flytja djasstónlist,
frumsamin verk og þekkta slag-
ara, sem þeir félagar hafa útsett
fyrir tríóið.
30. sýning
á Grandavegi 7
ÞRÍTUGASTA sýning á Grandavegi
7 eftir Vigdísi Grímsdóttur verður á
morgun, sunnudag.
Grandavegur 7 var frumsýndur á
liðnu hausti og hefur verið sýndur
síðan. Iíjartan Ragnarsson og Sigríð-
m’ Mai'grét Guðmundsdóttir eiga
leikgerð verksins, sem byggist á
verðlaunaskáldsögu Vigdísar Gríms-
dóttur.
Grandavegur 7 er saga fjölskyldu
og húss, söguhetjan er ung stúlka
sem er skyggn og gerist sagan á
mörkum þessa heims og annars.
Leikendur era Margrét Vilhjálms-
dóttii’, Bergur Þór Ingólfsson, Sigrún
Edda Bjömsdóttir, Jóhann Sigurðar-
son, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Valdi-
mai’ Örn Flygenring, Magnús Ragn-
arsson, Vigdís Gunnarsdóttir, Elva
Ósk Ólafsdóttir, Þröstur Leó Gunn-
arsson, Ingrid Jónsdóttir, Hjálmar
Hjálmarsson og Gunnar Hansson.
Kjartan Ragnarsson leikstýrir.
ÚR sýningunni Grandavegur 7.