Morgunblaðið - 04.04.1998, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 04.04.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 51 1 ) 1 I ) ) ) I ) ) I I ) ) I í ) 1 ) ) ) ) I ) > ) ) ) + Hákonía Jóhanna Pálsdóttir fædd- ist á Hamri á Barða- strönd 4. ágúst 1907. Hún lést á sjúkrahúsi Patreksfjarðar 24. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóna Guðmunds- dóttir, f. 20.9.1870, d. 12.1. 1959, og Páll Guðmundsson, f. 24.8. 1861, d. 14.11. 1936. Hákonía ólst upp á Hamri hjá for- eldrum sínum til tíu ára aldurs en fluttist þá með Jóhönnu systur sinni og manni hennar, Kristjáni Kristó- ferssyni, að Höfðadal í Tálkna- firði og ári síðar, eða 1918, flutt- ist hún með þeim að Litla-Laug- ardal í sömu sveit. Um tvítugt fór hún í vist hjá Ólafi Jóhannessyni útgerðarmanni á Patreksfirði og konu hans Áróru Jóhannesson. Systkini Hákoníu eru: Guðrún, f. 16.10. 1889, d. 27.2. 1970; Kristín, f. 16.6. 1892, d. 13.8. 1946; Jó- hanna, f. 19.4. 1893, d. 28.3. 1962; Jón, f. 25.11. 1894, d. 29.9. 1962; Guðmundur, f. 10.6. 1896, d. 23.12. 1954; Páll, f. 4.9. 1899, d. 24.10. 1942; Þórarinn Bjarni, f. 19.5. 1901, d. 22.5. 1905; Bjami, f. 17.10. 1903, d. 5.7. 1971; Ólöf, f. 24.2. 1905, d. 28.10. 1955; Sigríð- ur, f. 30.1. 1910 og stúlka, f. 20.8. 1913, dó í fæðingu. Hinn 7. desember 1929 giftist Hákonía Guðlaugi Guðmundi Guðmundssyni frá Stóra-Laug- ardal, f. 29.1. 1900. Foreldrar hans voru Arnbjörg Jónatans- dóttir, f. 9.2. 1865, d. 24.11. 1928, Þetta er hinsta kveðja mín til þín, elsku mamma. Nú ert þú farin og ég sakna þín. En sorgin víkur fyrir gleðinni, gleðinni yfir öll þau ár sem ég átti með þér. Guð blessi þig, minningin er mín. Eg elska þig ekki bara vegna þess hvernig þú ert heldur líka fyrir það hvernig ég varð sjálfur í návist þinni. (Nils Ekman.) Margrét. Elsku amma mín. Nú kveð ég þig og það er erfitt. Og það er erfítt að hugsa sér að það sé í síð- asta skiptið. Það er svo margt sem mig langar að segja, en kem ekki orðum að. Það voru forréttindi að fá að ganga með þér í gegnum lífið og fá að hafa þig heima öll þessi ár sem þú varst á Túngötu 25. Þakka þér fyrir allar samverustundirnar og fyrir alla hlýjuna sem ég hef fengið hjá þér. Guð veri með þér. Guðbjörg. Ég vil með örfáum orðum minn- ast ömmu minnar, Hákoníu Jó- hönnu Pálsdóttur. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast henni ömmu minni mjög vel þar sem ég dvald- ist hjá henni og Guðlaugi G. Guð- mundssyni afa mínum, nokkur sumur sem barn. Voru þau þá með búskap í Stóra-Laugardal í Tálknafirði og var ég sendur úr bænum snemma á vorin, til þess að hjálpa til við bústörfin sumar- langt. Ekki var margt barna í næsta nágrenni, þó frændsystkin mín á svipuðu reki væru þar stundum á ferðinni, en þeim mun meiri tíma dvaldist ég með henni ömmu sem var óþreytandi að spjalla við mig, barnið, um heima og geima, en ég að sama skapi óþreytandi að spyrja hana um allt sem fyrir bar. Það var gaman að fylgjast með störfum hennar sem öll voru unnin af sömu alúðinni, hvort sem þau voru stór eða smá. og Guðmundur Guð- mundsson, f. 16.12. 1868, d. 14.6. 1946. Guðlaugur lést 28.2. 1988. Hákonía og Guðlaugur eignuðust átta börn. Þau eru: 1) Arnbjörg, f. 17.6. 1930, gift Haraldi Að- alsteinssyni, f. 14.4. 1927, d. 27.10. 1992. Þau eignuðust 12 börn. 2) Guðmundur, f. 3.8. 1931, kvæntur Jóhönnu Pálsdóttur, f. 24.10. 1932. Þau eiga fjögur börn. 3) Þórður, f. 10.6. 1933, kvæntur Ólöfu Þóru Hafliðadóttur, f. 16.4. 1932. Þau eiga fjögur börn. 4) Páll, f. 6.11. 1935, kvæntur Ástu Torfadóttur, f. 23.9. 1932. Þau eiga fimm börn. 5) Jóna, f. 6.8. 1937, gift Árna Birni Þorvalds- syni, f. 8.2. 1937, d. 16.1. 1986. Þau eignuðust fjögur börn. Sambýlismaður Jónu er Gunnar Sigurðsson, f. 10.2. 1946. 6) Helga, f. 25.8. 1940, d. 29.4. 1941. 7) Sigrún Helga, f. 7.8. 1942, gift Bjarna Andréssyni, f. 24.6. 1938. Þau eignuðust fimm börn. 8) Margrét, f. 9.4. 1950, gift Erni Snævari Sveinssyni, f. 6.5. 1948. Þau eiga ijögur börn. Hákonfa átti 115 afkomendur þegar hún lést. Hún bjó allan sinn búskap í Stóra-Laugardal, en síðustu tíu árin eftir að Guðlaug- ur lést, bjó hún á heimili Mar- grétar dóttur sinnar á Túngötu 25 í Tálknafirði. Utför Hákoníu fer fram frá Stóra-Laugardalskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Minnist ég sérstaklega hve merki- legt mér þótti að sjá hana smyrja brauð með áleggi ofaná í Mána, hundinn á bænum, sem væri hann sem hver annar fullgildur heimil- ismeðlimur. Slík var umhyggjan, hvort sem um var að ræða menn eða málleysingja. í Stóra-Laugardal kynntist ég búskaparháttum liðinna tíma sem gáfu mér að nokkru leyti innsýn í líf fyrri kynslóða og þó að mér hafi á þeim tíma þótt margt full íhalds- samt, hef ég síðar á ævinni þakkað þennan tíma, sem ég tel einar mínar dýrmætustu stundir í lífinu. Æ síðan hefur það verið fastur punktur í tilverunni að koma í Stóra-Laugardal og dveljst þar um lengri eða skemmri tíma og heimsækja þá ömmu sem bjó inni í þorpi hjá Margréti dóttur sinni eftir að afi dó. Alltaf voru endur- fundirnir jafn innilegir og kveðj- urnar hlýjar. Ég kveð þig nú, amma mín, með virðingu og þökk fyrir allt það sem þú hefur gefið mér og mínum og megi góður Guð geyma þig alla tíð. Hafliði og fjölskylda. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Komið er að kveðjustund og minningar um elskulega ömmu fylla hugann. Vinirnir kveðja vin- inn sinn látna segir í sálminum og víst er að þakklæti og vinarþel býr í hjörtum okkar sem eftir lifum og notið fengum mannkærleika ömmu og ástúðar. Á elskulegheit var amma óspör. Amma Hákonía var trúuð kona og ávallt fylgdu einhver blessunarorð kveðjum hennar. Þá bera kvæðin sem hún orti til barnabarna og barnabarna- barna sinna þess glöggt vitni hve fallega þenkjandi og kærleiksrík hún amma var. Þær eru ófáar minningarnar sem við systkinin eigum af ömmu og tengjast komu okkar í sveitina til hennar og afa, er við vorum börn. Allar bera þær vott um þá hlýju og nægjusemi sem ein- kenndi heimili þeirra og gerði samband þeirra svo sérstætt og svo ríkulegt af virðingu. Saman áttu þau langa ævi og marga af- komendur, en afi Guðlaugur lést fyrir tíu árum, 88 ára að aldri. Ókkur eru sérlega minnisstæðar móttökurnar sem við ávallt feng- um eftir langt ferðalag vestur á firði, en þá stóðu gömlu hjónin úti á hlaði með útrétta arma og bros í augum. Þá gleymist seint hafra- grauturinn góði og þær veigar og kræsingar er amma bjó af kost- gæfni og bornar voru á borð fyrir allan frændgarðinn. Við minnumst heyskaparins upp á gamla mát- ann, þar sem við krakkarnir feng- um að taka þátt, þrátt fyrir að oft gerðum við lítið annað en að hoss- ast á heyvagninum, og hvernig okkur var treyst til að sækja egg- in í hænsnakofann á morgnana, þó stundum væru þar kapp meira en forsjá. Við munum öll dýrin í sveitinni - hundinn Mána - og tiplið á tánum í kringum vistarver- ur ömmu og afa er þau blunduðu eftir matinn og sprettina í pollin- um hans Palla. Allt tengist þetta ljúfri æskuminningu og minningu um ömmu og afa í Stóra-Laugar- dal. Eftir fráfall afa, fluttist amma til yngstu dótturinnar, Margrétar, sem var hennar stoð og stytta allt fram í andlátið. Elsku Magga, við kunnum þér bestu þakkir, enda ljóst að amma vildi hvergi frekar vera. Þrátt fyrir að amma flytti í þorpið var gamla býlið ennþá sam- komustaður fjölskyldunanr og sumardvalarstaður æ síðan. Þar eimir enn eftir af gamalli tíð, með varðveislu muna og minja. Það var því sérstakt tilhlökkunarefni þeg- ar ákvarðanir voru teknar innan systkinahópsins um að fara vestur í sumar til að endurlifa sveitasæl- una og kynna hana fleirum, og vonir stóðu til að gömlu konunni entist aldur til að líta nýjustu af- komendurna augum. En kallið er komið og leiðir göf- uglyndra hjóna liggja saman á ný. Við systkinin kveðjum ömmu með þakklæti í huga og söknuð í hjarta. Við biðjum Guð að fylgja henni nú sem endranær. Barnabörn frá Húsavík. Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 I HOTEL LOFTLEIÐIR u:iC<lANOAI« M O T ( [ | HÁKONÍA JÓHANNA PÁLSDÓTTIR + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGI HARALDUR KRÖYER, fyrrv. leigubifreiðastjóri, hjúkrunarheimilinu Skjóli, lést föstudaginn 20. mars sl. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 3. hæð Skjóls fyrir góða umönnun og velvilja. Hjördís Kröyer, Benedikt Guðmundsson, Hulda Kröyer, Andrés Þórarinson, Jón Páll Guðmundsson og fjölskyldur. + Útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR L. PÉTURSDÓTTUR, Stóragerði 17, Reykjavík, áður Helgamagrastræti 5, Akureyri, fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. apríl kl. 13.30. Unnur Agnarsdóttir, Óskar H. Gunnarsson, Gunnhildur Óskarsdóttir, Agnar Óskarsson og barnabarnabörn. + Alúðarþakkir til þeirra fjölmörgu sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og út- farar hjartkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu RAGNHEIÐAR JÓHANNSDÓTTUR frá Bakka í Ölfusi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 21A á Landspítalanum. Engilbert Hannesson, Jóhanna Engilbertsdóttir, Páll Jóhannsson, Valgerður Engilbertsdóttir, Garðar Guðmundsson, Svava Engilbertsdóttir, Gunnlaugur Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, SIGVALDA SIGURÐSSONAR frá Grund á Langanesi, síðast til heimilis I Sunnuhlíð, Kópavogsbraut 1a, Kópavogi. Sigurður Sigvaldason, Gunnlaugur Sigvaldason, Aðalbjörg Sigvaldadóttir, Þorbjörn Sigvaldason. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, SIGRÍÐAR DAGRÚNAR FRIÐFINNSDÓTTUR frá Kjaranstöðum í Dýrafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks 3. hæðar á Sólvangi fyrir góða umönn- un og væntumþykju. Hörður Karlsson, Anna Sigurðardóttir, Þórdís Karisdóttir, Kristinn Ásgrfmsson, Hanna María Karlsdóttir, Sigurborg Daðadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.