Morgunblaðið - 15.04.1998, Side 1

Morgunblaðið - 15.04.1998, Side 1
96 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 84. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Forseti rússnesku diínmimar vill komast hjá kosningum Reuters Brestir í samstöð- una gegn Kírijenko Moskvu. Reuters. LÍKUR á að rússneska þingið sam- þykki Sergei Kíríjenko sem forsæt- isráðherra jukust nokkuð í gær þegar forseti dúmunnar, Gennadí Seleznykov úr flokki kommúnista, hvatti til, að þingið sætti sig við hann. Borís Jeltsín, forseti Rúss- lands, segist munu rjúfa þing og efna til kosninga hafni þingið Kíríj- enko þrisvar en það mun greiða um hann atkvæði öðru sinni á fóstudag. „Við verðum að fallast á skdpan hans,“ sagði Seleznykov á frétta- mannafundi í gær eftir að hafa átt fund með Jeltsín. „Örlög dúmunnar eru þúsund sinnum mikilvægari en Kíríjenko." Þótt þessi yfirlýsing sé sigur fyrir Jeltsín er björninn langt í frá unninn, enda hafa kommún- istaflokkurinn og íylgiflokkar hans lýst yfir, að þeir muni fella Kíríjen- ko öðru sinni. Opin atkvæðagreiðsla? Kommúnistar segja Kíríjenko óhæfan vegna ungs aldurs og reynsluleysis, hann er 35 ára, en Vladímír Ryzhkov, fyrsti varafor- seti dúmunnar, hvatti þingmenn til að styðja hann. Hann bjóst þó ekki við, að hann yrði samþykktur á föstudag. Grígorí Javlínskí, leiðtogi hins frjálslynda Jabloko-flokks, ætl- ar ekki að styðja Kíríjenko, sem honum líkar þó vel við, og segir ástæðuna vera einræðistilburði Jeltsíns í sambandi við útnefning- una. Forsætisnefnd dúmunnar ákvað í gær að taka til umræðu í dag hvort Jeltsín beri að koma með annað for- sætisráðherraefni fyrir atkvæða- greiðsluna á fóstudag og dúman vill líka fá úr því skorið fyrir stjórnlaga- dómstólnum hvort forsetinn geti boðið upp á sama manninn tvisvar. Þá verður einnig rætt hvort breyta skuli kosningareglum þingsins þarinig að kjörið verði ekki leyni- legt, heldur fyrir opnum tjöldum. Gæti það gert Kíríjenko erfitt fyrir þar sem stuðningur einstakra þing- manna við hann gæti þá bakað þeim reiði flokksleiðtoganna. Reuters ERIK Asbrink, fjármálaráðherra Svíþjóðar, með geisladisk með fjár- lögunum, sem hann lagði fram á þingi í gær. Reykinga- menn ánægðir Stokkhólmi. Reuters. ÞAÐ hljóp heldur betur á snærið hjá sænskum reykingamönnum þegar ríkisstjómin tilkynnti í gær, að skattar á tóbaki yrðu lækkaðir um 27%. Er þetta öfúgt við það, sem verið hefur að gerast víðast hvar, en tilgangurinn með lækkun- inni er að vinna gegn gífiirlegu smygli á tóbaksvörum til Svíþjóðar. Þetta kemur fram í sænsku fjár- lögunum, sem kynnt voru í gær, og mun vindlingapakkinn fara úr 405 kr. ísl. í rúmar 327 kr. Smygl og skipulögð glæpastarfsemi hafa aukist í Svíþjóð síðan landsmenn gengu í Evrópusambandið og mikil hækkun á vindlingum á síðasta ári hefur ýtt undir smygl á tóbaki, sem er nú næstum sjö sinnum meira en 1995. Afgangur á fjárlögum Þótt tóbaksskattar hafi verið lækkaðir er lítið um aðrar skatta- lækkanir í sænsku fjárlögunum, sem þykja einkennast af var- kárni. I þeim er gert ráð fyrir 3% hagvexti næstu þrjú árin og lítilli verðbólgu og helsta takmarkið er að koma atvinnuleysi niður í 4% fyrir árslok 2000. Vextir hafa verið á niðurleið, greiðslujöfnuð- urinn er hagstæður og gert er ráð fyrir afgangi á Qárlögum, sem nemur 1,6% af þjóðarfram- leiðslu. Sögulegi samkomu- lag í höfn á N-Irlandi SAMBANDSFLOKKUR Ians Pais- leys, DUP, sem er næststærstur flokka sambandssinna á Norður-ír- landi, ætlar í dag að hefja auglýs- ingaherferð gegn samkomulaginu sem tókst á milli deiluaðila á fóstu- dag. Margir sambandssinnar á Norður-írlandi hafa lýst yfir óánægju sinni með samningana en þrátt fyrir það vonast Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Bertie Ahern, forsætisráðherra ír- lands, til þess að íbúar Norður-Ir- lands samþykki samningana í þjóð- aratkvæðagreiðslu sem fram fer beggja vegna landamæra írlands 22. maí næstkomandi. Vona þeir að nú megi hefja það verkefni að græða sár sem eiga aldagamlar rætur. Samkomulaginu hefur víðast hvar verið fagnað og Bill Clinton sagðist tilbúinn til að heimsækja Norður- írland í maímánuði til að stuðla að samþykkt samkomulagsins. Nokkr- ir sambandssinnar hafa hins vegar hafnað afskiptum Clintons og sjálf- ur segist Clinton hlíta dómi Blairs og Aherns í þessu máli, ekki megi spilla fyrir líkunum á að samningur- inn verði samþykktur. ■ Von í stað/36-37 Dulmálslykill GSM- símanna ráðinn Fiskdauði við Hong Kong MIKILL þörungablómi við Hong Kong hefur á skömmum tíma drepið um 1.500 tonn af eldisfiski, en það er um helm- ingur alls fisks í sjókvíum við borgina. Er tjónið talið nema allt að einum milljarði ís- lenskra króna. Hafa eigendur eldiskvíanna farið fram á bæt- ur frá stjórnvöldum en þau hafna því og segjast aðeins munu aðstoða þá með hag- stæðum lánum. Líklegt þykir að þörungablóminn stafi af vaxandi mengun. Þörungarnir setjast á tálknin í fiskinum þannig að hann kafnar. HÓPUR tölvusérfræðinga við Berkeley-háskólann í Kaliforníu segist hafa rofið dulmálslykilinn sem notaður er til að koma í veg fyrir að hægt sé að stela upplýs- ingum úr GSM-símakortum sem nota má til að „klóna“ kortin og nota á ólöglegan hátt. Lykillinn er notaður í rúmlega 80 milljónum stafrænna síma um allan heim og hefur til þessa þótt örugg vörn gegn tilraunum til að „klóna“ GSM-símakort. Vísinda- mennirnir notuðu, að sögn New York Times, öflugar tölvur til að komast að leyninúmeri, sk. SIM- númeri (Secret Identity Module), í kortinu sem notendur setja í símann. Ef óprúttnir menn réðu yfir þessari tækni gætu þeir not- að upplýsingarnar til að gjald- færa símtöl á ólöglegan hátt. Slík misnotkun hefur verið vaxandi vandamál þegar eldri (analog) gerðir farsíma eru annars vegar. Grunsamlega auðvelt? Vísindamennirnir sem réðu dulmálið greindu einnig frá því að þrautin hefði verið auðveldari en þeir bjuggust við. Þeir gáfu sér að dulmálslykillinn hefði verið veiktur af ráðnum hug með það fyrir augum að leyniþjónustur gætu hlerað samtöl í stafrænum símum með aðstoð öflugra tölva. Rannsóknarhópurinn byggði þessa kenningu á því að síðustu tíu tölumar í lyklinum eru ein og sama talan, eða núll, og það hefði gert verkefnið mun auðveldara. Lykillinn kallast A5 og er svokall- aður 64 bita lykill, sem undir venjulegum kringumstæðum þyk- ir mjög erfitt að ráða. --------------- Havel á batavegi Prag. Reuters. VACLAV Havel, forseti Tékk- lands, var á batavegi í gær eftir að hann var skorinn upp í skyndingu vegna bráðrar iðrasýkingar. I ljós kom, að digurgirnið hafði sprungið eða göt komist á það. Havel, sem er 61 árs að aldri og tók við forsetaembætti öðru sinni í janúar, var í frii í Týrólsku Ölpun- um þegar hann kenndi sér meins. Var hann fluttur strax til Inns- brucks í Austurríki þar sem hann var skorinn upp án tafar. Tókst að- gerðin vel að sögn lækna, sem sögðu líka, að ekki hefðu fundist nein meinvörp en Havel var skor- inn upp við krabbameini í lungum fyrir tveimur árum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.