Morgunblaðið - 15.04.1998, Qupperneq 2
2 MIÐVTKUDAGUR 15. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umhverfísráðherra fellst
á lagningu Búrfellslínu
GUÐMUNDUR Bjarnason um-
hverfisráðherra hefur fallist á lagn-
ingu 400 kV Búrfellslínu 3A frá Búr-
fellsvirkjun að Lyklafelli við Sand-
skeið.
Að því er fram kemur í frétt frá
umhverfisráðuneytinu hefur lagning
línunnar að mati ráðuneytisins nei-
kvæð áhrif á umhverfið á svonefndri
Ölkelduhálsleið, þ.e. frá Sogi um Öl-
kelduháls að Orustuhólshrauni, en á
hinn bóginn er ljóst að Landsvirkjun
hafði ótvírætt leyfi iðnaðarráðherra
frá árinu 1991 til að leggja 220 kV
eftir þeirri leið.
I fréttinni segir að í úrskurði
skipulagsstjóra frá 23. janúar sl. um
mat á umhverfísáhrifum 400 kV Búr-
fellslínu 3A hafi verið krafíst frekari
mats og að borin yrðu saman um-
hverfisáhrif línunnar á Ölkelduháls-
leið annars vegar og svonefndri Ölf-
usleið hins vegar, þ.e. frá Sogi um
Grafningsháls og Ölfus að Orustu-
hólshrauni. Landsvirkjun hafí kært
þennan úrskurð til umhverfisráð-
herra, sem hefur nú fallist á lagn-
ingu línunnar.
Rýrir útivistargildi svæðisins
I úrskurði ráðuneytisins segir orð-
rétt: ,Að mati ráðuneytisins er Ijóst
að hin fyrirhugaða lagning 400 kV
Búrfellslínu 3A og sú röskun á landi
sem fylgir framkvæmdinni, þar með
talið vegna vegagerðar, hafa nei-
kvæð áhrif á umhverfíð á svonefndri
Ölkelduhálsleið.
Umrætt svæði er að miklu leyti
ósnortið og mun framkvæmdin tví-
mælalaust rýra útivistargildi þess.“
í frummatsskýrslu og kæru Lands-
virkjunar kom fram að hún myndi
nýta sér heimild sína til að reisa 220
kV Búrfellslínu 3A fengist ekki leyfi
fyrir 400 kV línu. Um það segir í
niðurstöðu ráðuneytisins: „Það er
mat ráðuneytisins að spennuhækk-
un Búrfellslínu 3A úr 220 kV í 400
kV ásamt breytingu á möstrum og
leiðurum muni ekki hafa í för með
sér umtalsvert skaðlegri áhrif á
umhverfið en lagning 220 kV línu á
svonefndri Ölkelduhálsleið.
Breyting vegna lagningar 400 kV
línu í stað lagningar 220 kV línu er
einkum af sjónrænum toga. A móti
kemur að flutningsgeta linunnar
eykst verulega, sem til lengri tíma
litið verður til þess að þörf fyrir
nýjar raflínur frá Þjórsársvæðinu
til höfuðborgarsvæðisins verður
minni en ella.
.
m JUTd f5$
Beið bana í
bílslysi
TÆPLEGA þrjátíu og þriggja ára
gamall maður, Arni Þorkelsson, beið
bana í bílslysi undir Ólafsvíkurenni
snemma á mánudagsmorgun, þegar
bifreið sem hann ók fór út af vegin-
um og hafnaði á hlöðnum grjótgarði.
Bifreiðin var á leið til Ólafsvíkur
frá Hellissandi, þegar hún virðist
lenda í lausamöl með þeim afleiðing-
um að ökumaður missti stjóm á bif-
reiðinni og missti hana utan vegar.
Hún valt síðan og hafnaði á hlöðnum
sjóvarnargarði utan með veginum.
Tilkynning um slysið barst til lög-
reglu Ólafsvík tíu mínútur í sex á
mánudagsmorgun en Árni var látinn
þegar að var komið. Farþegi sem var
í bifreiðinni slapp lítið slasaður.
Arni heitinn var fæddur 26. maí
árið 1965, til heimilis að Skólabraut á
Hellissandi. Ámi var fráskilinn og
lætur eftir sig tvö börn.
Ráðherraskipti á morgun
Friðriki þökk-
uð störfin
NOKKRIR þingmenn stjómar-
andstöðu sáu ástæðu til þess að
þakka Friðriki Sophussyni frá-
farandi fjármálaráðherra sér-
staklega fyrir samstarfíð á liðn-
um árum við umræður um fjár-
aukalög íyrir árið 1997 á Aiþingi
í gær.
Friðrik lætur af embætti fjár-
málaráðherra á morgun,
fímmtudag, en mun áfram
gegna þingmennsku. Við emb-
ætti fjármálaráðherra tekur
Geir H. Haarde.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Alþýðubandalags og
óháðra, Kristín Ástgeirsdóttir,
þingmaður utan flokka, Sighvatur
Björgvinsson og Ágúst Einars-
son, þingmenn þingflokks jafnað-
armanna, voru meðal þeirra sem
þökkuðu ráðherra fyrir samstarf-
ið í ráðherratíð hans og óskuðu
honum velfamaðar í framtíðinni.
Fjármálaráðherra þakkaði sömu-
leiðis alþingismönnunum kærlega
fyrir samstarfið og fyrir hlý orð í
sinn garð.
Morgunblaðið/Emil Þór
Brúargerð
yfir Gígju
gengur vel
SMÍÐI nýrrar brúar yfir Gígju-
kvísl í stað þeirrar sem Skeiðar-
árhlaupið hreif með sér gengur
yómandi vel að sögn Guðmundar
Helga Gunnarssonar verksljóra
við brúarsmíðina og er vinnu-
flokkurinn þessa dagana að und-
irbúa sig undir að steypa mið-
hluta brúargólfsins, sem er um
130 metrar að lengd. Alls er brú-
in um 300 metra löng, auk þess
sem 18 metra landbrýr eru við
hvom enda hennar. Hafíst var
handa við verkið í lok nóvember
og gert er ráð fyrir að brúin
verði tilbúin um mitt sumar. Ár-
mannsfell er verktaki.
Frakki j
gafst upp
á göngu
yfir landið
LÖGREGLAN á Selfossi sótti á
laugardag franskan ferðamann |
sem hafði gefíst upp á göngu sinni P
þvert yfir landið sökum meiðsla á
fótum. Landi hans og ferðafélagi
gekk að Gullfossi og bað um hjálp.
Mennirnir voru tveir á ferð, ann-
ar tuttugu og níu ára gamall og
hinn hálffertugur. Þeir lögðu upp
frá Laugarfelli í Eyjafirði og héldu
þaðan til Hveravalla og síðan Hvít-
ámess og þaðan til Hagavatns það- j
an sem ganga átti til Laugarvatns j
en við svo búið gafst maðurinn upp i
á göngu sinni.
Fætumir illa famir
Hann var þá með hælsæri, tæm-
ar vom illa marðar og einnig ristin.
Svo slæm voru sárin eftir þrammið
að sldnn hafði farið af á mörgum
stöðum og úr blæddi samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu. Talið er j
að hann hafi verið illa skóaður.
Félagi hans skildi hann eftir við I
vatnið og fór að Gullfossi, þar sem j
hann fékk vegfaranda til að hringja
úr bílasíma sínum í lögreglu og til-
kynna að ferðafélagi sinn væri
meiddur á fæti og kæmist ekki
hjálparlaust til byggða. Lögreglu-
menn fluttu hann síðan á heilsu-
gæslustöðina á Selfossi þar sem
búið var um meiðsli hans.
Strandamenn i
mótmæla
flutningi
sýslumanns
VIÐ utandagskrámmræðu á Al- j
þingi í gær gagnrýndu þingmenn i
úr stjóm og stjórnarandstöðu Þor- '
stein Pálsson dómsmálaráðherra P
fyrir þá hugmynd að ætla að flytja
Sigurð Gizurarson, sýslumann á
Akranesi, í sýslumannsembættið á
Hólmavík. Yfir 200 Strandamenn
hafa skrifað undir mótmæli við
hugmyndina og hvetja þingmenn
Vestfjarða til að koma í veg fyrir
þessi áform.
Þorsteinn Pálsson gaf við um- j
ræðuna til kynna að ekki stæði til j
að falla frá hugmyndinni en benti á ,
að sýslumaðurinn á Akranesi hefði *
andmælarétt til 20. apríl. Einar K.
Guðfínnsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks, sagði ákvörðun ráðherra
óskynsamlega og skoraði á hann að
endurskoða afstöðu sína. Gunn-
laugur M. Sigmundsson, þingmað-
ur Framsóknaifiokks, sagði málið
hafa vakið reiði í Strandasýslu og
vonaðist til að ráðherra fyndi aðra
lausn á málinu. Steingrímur J. Sig-
fússon, þingmaður Alþýðubanda-
lags og óháðra, sagði þessa ákvörð-
un mjög undarlega stjórnsýslu.
■ Þingmenn gagnrýna/20
Sérblöð í dag
Fyrir hverja
skal votta?
Ördeyða á
»Hryggnum‘7C2
ÍS framleiddi
minna 1997/C3
Andsnúnir
hvalveiðum/C8
SH2ÍI
D UM SJAVARÚTVSQ
»••••••••••
oröimblnbib
Framarar náðu síðasta sætinu í
undanúrslitunum/B3
Spennandi toppbarátta á Englandi og
Ítalíu/B8
Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is