Morgunblaðið - 15.04.1998, Page 6
QiQAjavtuoaoíí
MORGUNBLAÐIÐ
f ..... >V«tír> 5r ÍTTT0ACIU>IJVGII/
6 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
FRÉTTIR
F-15A EAGLE vélin sem eldingu laust niður í.
Myndin er tekin 8. apríl 1998 í flugtaki frá
Keflavíkurflugvelli.
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
P-3C Orion vélin frá VP-16 flugsveitinni sem flaug
með viðgerðarmenn til Lakenheath.
Ný flugsveit varnarliðs-
ins fer víða um Evrópu
LAUGARDAGINN 4. apríl komu til
Keflavíkur sex F-15 þotur frá þjóð-
varðliði Flórída. Þetta er í fyrsta sinn
sem þjóðvarðlið þessa ríkis tekur þátt
Lega hafíss við landið
Siglingaleið-
in fyrir
Langanes
greiðfær
TF-SÝN, flugvél Landhelgis-
gæslunnar kannaði í gær haf-
ísinn úti fyrir Norðaustur-
landi.
Næst landi lá íshraflið 35
sjómílur norð-norðaustur af
Hraunhafnartanga. Siglinga-
leiðin um Langanes og Mel-
rakkasléttu er því vel greiðfær
en búist er við að ísinn reki
eitthvað suður næstu daga „og
því er betra að vera á varð-
bergi þótt leiðin sé greiðfær
núna,“ segir Þór Jakobsson
veðurfræðingur hjá Veður-
stofu íslands.
Vel greiðfært er um Vestfirði
og eru vindáttir næstu daga
hagstæðar þar sem spáð er
suðlægum áttum. Búist er við
að ísinn lóni norðaustan við
landið á næstunni og bráðni þar
smám saman. Hann mun þó að
öllum líkindum ekld hverfa fyrr
en í maí, en lega hans við landið
fer að sjálfsögðu eftir vindátt-
um, segir Þór.
I síðustu viku rifnaði hluti af
meginísnum og rak inn í
Bakkaflóa og Þistilfjörð. Grá-
sleppuveiðimenn á þessum
slóðum neyddust til að draga
inn net sín sem annars hefðu
getað skemmst af völdum íss-
ins. A páskadag hafði svo dreg-
ið úr ísnum eftir að hluti af
honum hafði bráðnað, strandað
eða rekið aftur út á haf.
í vörnum íslands. Sveitin er 159. flug-
sveit úr 125. flugdeild og kemur hing-
að í stað sveitar frá þjóðvarðliði
Oregonríkis sem hér hefur dvalist sex
vikur á hverju ári frá 1995. Oregon
liðið var í þetta sinn önnum kafið við
gæslustörf við landamæri íraks frá
Inchirlik flugstöðinni í Tyrklandi.
Sveitin frá Flórída ætlar að nota
veru sína hér og afla sér verðmætrar
reynslu í samskiptum við flugheri
NATO í Evrópu. Er það sjálfsagt ein
af ástæðunum fyrir að þeir komu
með sex vélar en ekki fjórar eins og
vamarsamkomulagið gerir ráð fyrir
að iágmarki.
Eldingu laust niður í vél
Þriðjudaginn 7. apríl fóru þrjár
vélar þeirra til Karup flugstöðvar-
innar í Danmörku. Daginn eftir
flugu þær æfíngaflug á móti MIG 29
vélum þýska flughersins sem stað-
settar eru á Laage flugstöðinni í
Þýskalandi. Síðar sama dag flugu
þær til Lakenheath flugstöðvarinnar
í Englandi. A skírdag sneru þær aft-
ur til Keflavíkur en á föstudaginn
langa komu þrjár vélar aftur til La-
kenheath og lentu þar í slæmu veðri.
Eldingu laust niður í eina vélanna í
aðflugi en hún lenti klakklaust.
Um helgina fór síðan P-3C Orion
vél frá Keflavík með flugvirkja til
Lakenheath til að skoða vélina sem
skemmdist. Svo sérstaklega vill til
að Orion vélamar sem hér era nú frá
flugsveitinni VP-16 og F-15 vélamar
koma frá sömu flugstöð í Flórída,
eða Jacksonville flotastöðinni, sem
er ein aðalbækistöð Orion véla á
austurströnd Bandaríkjanna.
Tvær F-15 vélar snera síðan til
Keflavíkur á annan í páskum.
I næstu viku era væntanlegar
nokkrar þýskar Tornado vélar, sem
munu æfa með F 15 vélunum alla
vikuna.
Andlát
SVERRIR S.
EINARSSON
SVERRIR Sigurjón
Einarsson, rektor
Menntaskólans við
Hamrahlíð, lést á heim-
ili sínu aðfaranótt ann-
ars páskadags, á fimm-
tugasta aldursári.
Sverrir fæddist á Sel-
fossi 29. júlí 1948. For-
eldrar hans vora hjónin
Kristín Helgadóttir,
sem nú er látin, og Ein-
ar Sigurjónsson, fyrr-
um verkstjóri hjá Vega-
gerð ríkisins á Selfossi.
Sverrir lauk stúd-
entsprófi frá stærð-
fræðideild Kennaraskóla íslands
árið 1971, fil. cand. prófi í stærð-
fræði frá Stokkhólmsháskóla 1976
og kennaraprófi frá Kennarahá-
skólanum í Stokkhólmi 1977. Hann
var í skólastj ómunarnámi við
Skolledarhögskolan í Örebro í Sví-
þjóð veturinn 1992-
1993.
Sverrir var stærð-
fræðikennari við
Menntaskólann við
Hamrahlíð frá 1979 til
1986 en ' þá var hann
ráðinn áfangastjóri.
Hann starfaði sem kon-
rektor 1988-1995 og
var skipaður rektor
MH 1. janúar 1996.
Sverrir starfaði sem
fararstjóri á Ítalíu, í
Egyptalandi og ísrael á
áranum 1982-1989.
Hann var félagi í Karla-
kór Reykjavíkur frá 1980.
Eftirlifandi eiginkona Sverris er
Karólína Hulda Guðmundsdóttir og
eiga þau saman tvö böm. Sverrir
eignaðist tvær dætur með fyrri
konu sinni, Rannveigu A. Jóhanns-
dóttur kennara.
Nýkomnar vörur
Vattefni, svart og hvítt, 1.755 kr. m.
Vattfóður, svart og dökkblátt, 790 kr. m.
Kraftefni, svart og dökkblátt, 1.265 kr. m.
OgUÖ-búðirnar
Bæjarstjórn Seltjarnarness
Ekki íbúðabyggð
við Nesstofu
BÆJARSTJÓRN Seltjarnamess
hefur samþykkt að hætt verði við
íbúðarbyggð í Norðurtúni við Nes-
stofu. Að sögn Sigurgeirs Sigurðs-
sonar bæjarstjóra var samþykkt að
breyta deiliskipulaginu og að þar
verði grænt svæði, en styr stóð um
12-14 hús sem fyrirhugað var að
reisa en hætt hefur verið við.
A fundi bæjarstjórnar lögðu full-
trúar meirihluta fram bókun, þar
sem segir meðal annars að ákvörð-
un um að byggja ekki á Norðurtúni
sé tekin vegna vilja bæjarbúa um að
ekki verði byggt á svæðinu. Máls-
rök fyrir upphaflegum hugmyndum
hafi breyst, meðal annars vegna
fjárhagslegra forsendna og nýrra
viðhorfa í útivistar- og umhverfis-
málum.
I bókun bæjarfulltrúa Neslista er
því fagnað að nú skuli vera fallið frá
byggingu við Nesstofu. Málsrök
hafi ekki breyst eins og haldið sé
fram í bókun Sjálfstæðisflokksins.
Flokkurinn hafi gefist upp og breytt
fyrri afstöðu og reyni þa'nnig að afla
sér vinsælda fyrir næstu sveitar-
stjórnarkosningar.
I bókun Jóns Hákons Magnús-
sonar, forseta bæjarstjórnar, segir
hann það fagnaðarefni að endanlega
hafi verið fallið frá öllum frekari
byggingaráformum á vestursvæð-
um Seltjarnamess. Svæðið um-
hverfis Nesstofu eigi um alla fram-
tíð að vera útivistar- og náttúra-
svæði. Friðunin hafi verið eitt af
þeim málefnum sem hann hafi
barist fyrir.
Vegna bókunar Jóns lögðu full-
trúar Neslista fram bókun og
minntu á að Jón hefði staðið fyrir
tillögugerð að 24 húsum við Nes-
stofu fyrir skömmu í skipulags-
nefnd og í bæjarstjóm. Lýsa þeir
ánægju með að hann skuli bóka
gegn sinni fyrri tillögu.
Morgunblaðið/Margrét Ágústsdóttir
HOFUNDUR bókarinnar, Lisa McQuale, Þorgeir Baldursson, forstjóri
Odda, Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra, Paul Taylor, ritstjóri
bókarinnar, og Árni Sigurðsson, framkvæmdastjóri Oddi Printing í
Bandaríkjunum.
Oddi prentar fyrir Smithsonian-stofnunina
Fékk lof fyrir hönn-
un og vandaða vinnu
Washington. Morgunbladið.
PRENTSMIÐJAN Oddi hefur ný-
lega lokið hönnun og prentun á
bók fyrir Smithsonian-stofnunina
í Bandaríkjunum og í tilefni af
útgáfunni var haldin hátíðarsam-
koma í Freer Gallery of Art í
Washington.
Bókin, sem er 200 síður og
prentuð í 35.600 eintökum, heitir
á frummáiinu Treasures of Two
Nations. Thai Royal Gifts to the
United States of America, og
verður hún seld í Bandarxkjunum
og Tælandi. I bókinni eru myndir
og umfjöllun um þjóðargjafir
Tælendinga til Bandaríkjamanna
síðastliðin 150 ár.
Ritstjóri bókarinnar, dr. Paul
Taylor, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að samstarfið við Odda
hefði verið afar ánægjulegt.
Staðið hefði verið við allar tíma-
áætlanir, öll vinna og hönnun
hefði verið mjög vönduð og verð
og gæði mjög samkeppnisfær. Þá
hefði tælenska sendiráðið í Was-
hington, sem styrkti útgáfu bók-
arinnar, mælt með fyrirtækinu.
Fleiri verkefni möguleg
Prentsmiðjan Oddi hefur und-
anfarin átta ár starfrækt skrif-
stofu í New Jersey undir forystu
Árna Sigurðssonar og hefur fyr-
irtækið fram að þessu aðallega
verið með verkefni í New York
og nágrenni. Að sögn Odda-
manna vonast þeir til þess að
þetta verkefni verði til þess að
auka viðskipti þeirra í Was-
hington. Áttu þeir Árni og Þor-
geir Baldursson, forstjóri Odda,
nokkra fundi með aðilum sem sjá
um útgáfu á vegum Smithsonian-
stofnunarinnar og töldu þeir að
þeim loknum hugsanlegt að fleiri
verkefni myndu fylgja í kjölfarið.
Borgarbókasafn
Ókeypis til
18 ára aldurs
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt tillögu menningarmála-
nefndar um að skírteini Borg-
arbókasafns fyrir börn og ung-
linga til 18 ára aldurs verði
ókeypis.
Jafnframt var skrifstofu-
stjóra borgarstjómar falið að
afla upplýsinga um lagalega
þýðingu þess að sjálfræðisald-
ur hefur verið hækkaður úr 16
í 18 ár og hugsanleg áhrif þess
á gjaldskrár hinna ýmsu stofn-
ana og þjónustufyrirtækja
borgarinnar.