Morgunblaðið - 15.04.1998, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
FRÉTTIR
Málefni hafsins rædd á fundi forseta Islands með framkvæmdastjóra SÞ
ísland taki að sér alþjóð-
legt forystuhlutverk
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna (SÞ), lýsti í
samtali við Olaf Ragnar Grímsson,
forseta íslands, á hádegisverðar-
fundi sem hann bauð íslenzku for-
setahjónunum til í fyrradag, að
hann teldi æskilegt að Island tæki
að sér forystuhlutverk í alþjóðlegri
stefnumótun í málefnum hafsins.
Forsetinn og frú Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir komu til landsins í
gærmorgun að lokinni heimsókn
til Mexíkó, með viðkomu í New
York.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Ólafur Ragnar að hann teldi það
mikinn virðingarvott við Island að
framkvæmdastjóri SÞ skyldi fínna
tíma í sínum miklu önnum til þess
að bjóða til þessa hádegisverðar-
fundar, sem nokkrir æðstu emb-
ættismenn SÞ á sviðum efnahags-
og félagsþróunar, þjóðaréttar og
afvopnunarmála sátu einnig, auk
sendiherra íslands, Danmerkur og
Noregs, og síðast en ekki sízt Jef-
frey Sachs, hagfræðiprófessor við
Harvard-háskóla, sem nýlega sótti
ísland heim.
Sagði Ólafur Ragnar greinilegt
að heimsókn Annans til Islands
hefði vakið hjá honum margvísleg-
ar hugmyndir um þá möguleika
sem gætu falizt í þátttöku Islands í
stefnumótun á alþjóðlegum vett-
vangi, einkum á tveimur sviðum,
annars vegar varðandi þau mörgu
málefni sem snerta hafíð og nýt-
Reuters
KOFI Annan, framkvaímdastjóri SÞ, býður forsetahjónin velkomin til
hádegisverðar á heimili sínu í New York í fyrradag.
ingu þess og hins vegar hvernig ís-
land geti verið „lærdómsríkt for-
dæmi fyrir mikinn fjölda smárra
og miðlungsstórra ríkja um víða
veröld og sýnt þeim hvernig þjóð
getur skapað sér góð lífskjör og
velferðarsamfélag eins og það
þekkist bezt í veröldinni, með því
að nýta á skynsamlegan hátt þær
auðlindir sem hafið geymir".
Ólafur Ragnar segir það eðlilegt
að menn spyrji að því hér heima,
hvaða ástæður liggi að baki þess-
um mikla áhuga hjá erlendum
ráðamönnum og sérfræðingum á
stöðu Islands.
Island
fyrirmynd
„Ég held það sé einkum tyennt,
sem liggur að baki,“ sagði Ólafur.
„Annars vegar eru málefni hafsins
að þeirra dómi á mai-gvíslegan hátt
mjög brýn og vaxandi viðfangsefni
hins alþjóðlega samfélags á nýrri
öld. Þau hafi verið vanrækt; haf-
réttarsáttmálinn hafí einungis ver-
ið einn áfangi á langri braut og
mikið verk sé óunnið, bæði hvað
varðar samkomulag milli ríkja og
svo í allri skipulagningu auðlinda-
nýtingar hafsins.
Hins vegar hafí þeir skoðað ríki
heims og komizt að þeirri niður-
stöðu að það séu aðeins örfá ríki
sem geti verið íyi-irmynd í þessum
efnum og Island sé að þeirra dómi í
fremstu röð.
Flug
hafið til
Minnea-
polis
FLUGLEIÐIR hófu áætlunar-
flug til Minneapolis í Banda-
ríkjunum 9. apríl sl. og verður
flogið íjórum sinnum í viku
til að byrja með en fimm
sinnum í viku frá 1. maí. Gera
Flugleiðir ráð fyrir að veltu-
aukning félagsins vegna
Minneapolis-flugsins verði
rúmlega einn milljarður króna
vegna nýrra farþega og frakt-
viðskipta.
Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, Arne Carlson, rikis-
stjóri í Minnesota og Hörður
Sigurgestsson, stjórnarfor-
maður Flugleiða opnuðu þessa
nýju leið formlega við athöfn
á fiugvellinum í Minneapolis
eftir fyrstu lendingu Flug-
leiðavélar.
Morgunblaðið/Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Hundaeigendur
krefjast úrbóta
HUNDAEIGENDUR hafa farið
fram á úrbætur á aðbúnaði hunda
og hundaeigenda á Geirsnefi. I
bréfí sem hundaeigendur sendu
skrifstofu borgarstjóra kemur
fram að þeir telji aðbúnað sinn og
hundanna til útivistar í Reykjavík
óviðunandi. Eins og stendur sé
staðurinn sá eini í Reykjavík þar
sem hundaeigendur geti haft
hunda sína lausa. Um 1.200 hundar
eru skráðir í Reykjavík og milli 100
og 200 manns koma á Geirsnef á
degi hverjum.
Hundaeigendur koma með til-
lögur til breytinga og nefna meðal
annars að lýsa þurfí upp svæðið,
koma þurfí fyrir skýli og bekkjum,
skilti verði sett upp þar sem há-
markshraði sé tilgreindur (15
km/klst.) og hraðahindrunum verði
komið fyrir á veginum.
í bréfínu benda hundaeigendur
á að bílstjórar aki oft á miklum
hraða um veginn og að hundum
stafí hætta af vírum og blysum
sem liggja vítt og breitt um svæð-
ið vegna áramótabrennu og fiug-
eldasýningar sem séu árlega á
nefínu.
I lok bréfsins segir: „Við trúum
því að vilji borgaryfirvalda standi
til þess að það svæði sem við þurf-
um að dvelja langdvölum á verði
a.m.k. gert jafn aðlaðandi og annað
skipulagt útivistarsvæði borgar-
innar og þá hannað með tilliti til
þarfa þeirra sem þangað koma á
hverjum degi.“ Undir skrifa
hundaeigendur.
Fulltrúar hundaeigenda hafa
þegar setið fund með garðyrkju-
stjóra þar sem farið var yfir óskir
þeirra og á fundi forsvarsmanna
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu 6. apríl sl. ræddi borgar-
stjóri um aðstöðu hundaeigenda á
svæðinu þar sem ákveðið var að
leita lausna á þessum vanda fyrir
svæðið allt, þ.e. bjóða upp á svæði
og aðstöðu sem hentar á fleiri en
einum stað.
MORGUNBLAÐIÐ
Doktor í
læknisfræði
•RAGNAR Bjarnason lauk nýlega
doktorsprófi í læknisfræði frá Há-
skólanum í Gautaborg, Svíþjóð.
Rannsóknir
Ragnars
beindust að
ákvörðunum á
vefjanæmi fyrh'
vaxtai'hormóni
hjá börnum og
fullorðnum.
Hann setti upp
nýja aðferð til að
mæla bindiprótein fyrir vaxtarhorm-
ón. Bindiprótein vaxtarhormóns
samsvarai- þeim hluta vaxtarhorm-
óns viðtækisins sem er utan við
frumuvegginn.
Við sjaldgæfan sjúkdóm, svo kall-
að Laron sambirting, er þetta
bindiprotein óvirkt og vaxtarhormón
getur því ekki ræst vaxtarhormóns
viðtækið. Margir hafa bundið vonir
við að mælingar á þessu bindi-
próteini gæti því gefið vísbendingu
um þéttni eða starfsemi vaxtarhorm-
óns viðtækja í líkamanum hjá ein-
staklingum án erfðagalla í viðtæki
vaxtarhormóns. Sýnt var fram á
mikinn breytileika í styrk þessa
bindipróteins í blóði, bæði milli ein-
staklinga og hjá vaxandi börnum yf-
ir árið. Hins vegar reyndist lítil
fylgni milli magns bindipróteinsins
og svari einstaklingsins við vaxtar-
hormón meðferð.
Þá þróaði Ragnai- nýja aðferð (Q-
RT-PCR) til mælinga á vefjabirtingu
annars hormóns, insulin-like growth
factor I, sem að talið er að sé stjórn-
að, af vaxtarhormóni og að sé ábyrgt
fyrir flestum áhrifum vaxtarhormóns
í vefjum líkamans. Sýnt var fram á
að það er önnur stjórnun á þessu
efni í þverrákóttum vöðvum en í
blóði, sem gefur vonir um að fá fram
betri þekkingu um hvað það er sem
að ákvarðar vefjanæmi vaxtarhorm-
óns milli einstaklinga og hjá sama
einstakling við ólíkar aðstæður.
Ragnar er fæddui’ í Reykjavík 13.
október 1959 og lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
haustið 1978. Hann tók embættis-
próf við læknadeild Háskóla íslands
vorið 1985. Ragnar starfaði við ýms-
ar deildir sjúkrahúsanna í Reykjavík
áður en að hann hélt tO Svíþjóðar til
framhaldsnáms í bamalækningum
1989, fyrst 2 ár í Borás og frá 1992
við barnadeild Sahlgrenska sjúkra-
hússins í Gautaborg.
Leiðbeinendur Ragnars við dokt-
orsnámið voru dr. Lena Carlsson og
prófessor Kerstin Albertsson-
Wikland við Gautaborgar-háskóla.
Andmælandi Ragnars vai’ dr. Mart-
in Savage við St. Bartholomew/s
Hospital í London.
Foreldrar Ragnars eru Elísa
Kjærnested ræstitæknir og Bjarni
Sigurgrímsson bifreiðastjóri. Upp-
eldisfaðii’ Ragnars er Kári Þór Jóns-
son vélstjóri. Kona Ragnars er Sig-
rún J. Kristjánsdóttir bókasafns-
fræðingur og eiga þau tvö börn,
Guðrúnu Elísu, 15 ára, og Kára, 10
ára. Ragnar starfar sem sérfræðing-
ur í innkirtla- og efnaskiptasjúk-
dómum á barnasjúkrahúsi Sa-
hlgrenska sjúkrahússins í Gauta-
borg.
-----------------
Fylgi Reykjavík-
urlista eykst
REYKJAVÍKURLISTINN fengi
61,4% og Sjálfstæðisflokkurinn fengi
38,6% ef kosið yrði nú til borgar-
stjómar í Reykjavík samkvæmt
skoðanakönnunum Gallup, sem gerð
var símleiðis dagana 18. til 30. mars
og 26. mai’s til 9. apríl sl.
Úrtakið var tilviljunarúrtak tæp-
lega þúsund Reykvíkinga og svöruðu
um 70%. Spurt var; ef kosið yrði í
dag til borgarstjórnar og í framboði
væru R-listi, sameiginlegt framboð
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags,
Framsóknarflokks og Kvennalista
og D-listi Sjálfstæðisflokks, hvorn
listann myndir þú kjósa? Röð list-
anna var breytt milli viðtala.