Morgunblaðið - 15.04.1998, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDSBANKINN
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 15
Bréf fráfar-
andi banka-
stjóra Lands-
bankans
BJÖRGVIN Vilmundarson sendi
bankaráði Landsbanka Islands hf.
eftirfarandi bréf, dagsett á Land-
spítalanum 12. apríl:
Eins og bankaráði Landsbanka
íslands hf. er kunnugt hef ég und-
anfarin tvö ár átt við mikil og alvar-
leg veikindi að stríða. Nú að undan-
förnu hef ég tvívegis þurft að fara
snögglega til langdvala á sjúkrahús.
Þegar ég var ráðinn aðalbankastjóri
Landsbanka Islands hf. hafði ég
góða von um að heilsa mín færi
batnandi og ég mundi geta gegnt
þessu starfi með fullri starfsorku.
Nú er hins vegar svo komið að ég
mun enn þurfa að dvelja langdvöl-
um á sjúkrahúsi og læknar ráð-
leggja mér eindregið að einbeita
mér að því að ná sæmilegri heilsu á
nýjan ieik og hætta amk. tímabund-
ið föstum störfum.
Landsbanki Islands hf. mun á
næstunni þurfa að takast á við
margvísleg ný og spennandi verk-
efni. A þeim tímum þarf Lands-
bankinn á að halda öflugri forystu.
Af þessum sökum og með vísan til
heilsufars míns vil ég hér með óska
eftir að fá að láta af störfum aðal-
bankastjóra Landsbanka Islands
hf. Eg hef varið allri starfsævi
minni í þágu Landsbankans og er
þakklátur fyrir þann tíma og fyrir
þau verkefni sem ég hef fengið að
takast á við og óska Landsbanka
Islands hf. alls hins besta í framtíð-
inni.
Yfírlýsing Halldórs
Guðbjarnasonar
Halldór Guðbjarnason sendi fjöl-
miðlum eftirfarandi yfirlýsingu sem
dagsett var 13. apríl:
Landsbanki f slands hefur undan-
farið lent í brennipunkti opinberrar
umræðu um málefni sem undirrit-
aður hefur ekki borið, og getur ekki
borið ábyrgð á. Tilefni umræðunn-
ar hefur skaðað Landsbanka ís-
lands, niðurlægt starfsmenn bank-
ans, og valdið þeim óþægindum.
Með hagsmuni bankans, eigend-
anna og starfsmannanna í huga tel-
ur undirritaður ljóst, að endur-
skipuleggja þarf yfirstjórn bankans
og raunar allt stjórnkerfí hans. Við
þessar aðstæður telur undimtaður
réttast að veita viðskiptaráðherra
svigrúm til að endurskipuleggja yf-
irstjórn Landsbanka íslands og
beita sér fyiir tæmandi úttekt á
þeim innri málefnum hans, sem
hafa verið efst á baugi síðustu vik-
ur.
Því hef ég undirritaður í dag af-
hent formanni bankaráðs Lands-
banka íslands uppsagnarbréf mitt
sem bankastjóri Landsbanka ís-
lands.
Undirritaður telur sig hafa gegnt
bankastjórastarfinu af samvisku-
semi og kostgæfni í hvívetna, og í
fullu samræmi við ákvæði laga,
samþykktir bankans, erindisbréf,
ráðningarsamning og starfskjör.
Væntanleg skýrsla Ríkisendurskoð-
unar um laxveiðiferðir, risnu og
annan kostnað mun staðfesta það.
Undirritaður óskar starfsmönn-
um og Landsbankanum velfarnaðar
á komandi árum og lýsi mig jafn-
framt reiðubúinn til viðræðna um
frekari störf í þágu bankans, sé
þess óskað, að lokinni nauðsynlegri
endurskipulagningu á yfirstjórn
hans.
Fréttatilkynning
bankaráðs
Bankaráð Landsbankans sendi
frá sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu að kvöldi 13. apríl:
I dag hefur Sverrir Hermanns-
son, bankastjóri, afhent formanni
og varaformanni bankaráðs Lands-
banka íslands hf. bréf þar sem
hann óskar eftir lausn frá starfi
sínu sem bankastjóri Landsbanka
íslands hf.
Frábær fyrirtæki
1. Framúrstefnuhúsgagnaverslun á góðum stað í borginni til sölu
strax vegna sérstakra ástæðna. Flytur inn frá Ameríku, einnig
gjafavöru frá Evrópu. Verð aðeins 1 millj. + lager.
2. Raftækjaverslun á frábærum stað. Stórir sýningargluggar.
Verslunarsambönd fylgja innlend sem erlend. 30 ára fyrirtæki.
Gott verð. Laus strax.
3. Blóma- og gjafavöruverslun. Sérkælir og skreytingaherbergi.
Frábær aðstaða til allra hluta. Með stærri blóma- og gjafavöru-
verslunum landsins. Miklir möguleikar og frábær staðsetning.
4. Tölvufyrirtæki, flytur inn og setur saman tölvur og þjónustar
þær. Margir fastir viðskiptavinir og góðir þjónustusamningar.
Lítil yfirbygging. Selstvegna flutnings eiganda til útlanda.
Ath. höfum góða kaupendur að heildverslunum
og framleiðslufyrirtækjum.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVE R I
SfMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Morgunblaðið/Kristinn
BANKARAÐ Landsbankans gekk í gærmorgun á fund Finns Ingólfssonar bankamálaráðherra. Frá vinstri: Kjartan Gunnarsson, Jóhann Ársælsson,
Anna Margrét Guðmundsdóttir, Finnur Ingólfsson, Helgi S. Guðmundsson og Birgir Þór Runólfsson.
Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra um uppsagnir bankastjóra Landsbankans
FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð-
herra segist telja að það hafi verið
skynsamleg ákvörðun hjá fyrrver-
andi bankastjórum Landsbankans
að segja störfum sínum lausum í
ljósi þeitrar miklu umræðu sem
verið hefur um bankann undan-
fama daga og vikur.
„Þar sem þeir gera þetta í þeim
tilgangi að skapa frið og sátt um
bankann svo hægt sé að byggja aft-
ur upp það traust og þann trúnað
sem þarf að vera milli bankans
þjóðarinnar sem eiganda bankans
tel ég að þeir hafi brugðist rétt við
og gert skynsamlega hluti í því að
segja starfi sínu lausu,“ sagði Finn-
ur í samtali við Morgunblaðið.
Aðspurður um hvort hann hefði
beitt sér fyrir því að bankastjórarn-
ir segðu upp störfum sínum sagði
Finnur svo ekki vera. Hann sagðist
hins vegar hafa rætt við Halldór
Guðbjarnason um stöðu bankans en
hann hefði hins vegar ekki beitt
hann neinum þrýstingi í því að
segja af sér.
„Hann tók þá ákvörðun algjör-
lega einn og sjálfur," sagði Finnur.
Gerði tiliögu um Halldór sem
aðalbankastjóra
í gærmorgun átti Finnur fund
með bankaráði Landsbankans og
sagðist hann þar hafa farið yfir
stöðu málsins.
„Ég gerði tillögu til bankaráðsins
um það að það yrði ráðinn einn að-
albankastjóri sem væri Halldór Jón
Kristjánsson. Það var hins vegar
bankaráðsins að taka ákvörðun um
það og formaður bankaráðsins
gerði síðan tillögu um það til
bankaráðs. Sú tillaga var samþykkt
samhljóða, og það tel ég vera af-
skaplega mikilvægt miðað við þá
stöðu sem bankinn var í,“ sagði
hann.
I samþykktum Landsbanka ís-
lands hf. er gert ráð fyrir að við
bankann sé starfandi einn aðal-
bankastjóri og tveir bankastjórar,
og sagðist Finnur hafa rætt það við
bankaráðið að hann teldi eðlilegt að
nýr bankastjóri og bankaráðið
hefðu það sem sitt fyrsta verk að
fara yfir skipulag bankans og gera
tillögur um breytingar á skipulag-
inu eftir því sem nauðsynlegt væri
og leita allra leiða til að spara í
rekstri og ná eins mikilli hag-
kvæmni og nokkur kostur væri.
„Ég lýsti því yfir að ef það væri
talið nauðsynlegt að breyta sam-
þykktum þá væri ég tilbúinn til að
beita mér fyrir því að það yrði gert
í þá veru að með því mætti ná fram
aukinni hagkvæmni í rekstri bank-
ans,“ sagði Finnur.
Aðspurður sagðist Finnur telja
það víðs fjam að hægt væri að líta
á ráðningu Halldórs J. Kiistjáns-
sonar sem pólitíska þar sem hann
hefði ekki hugmynd um hvar í póli-
tískum flokki Halldór væri.
„Ég veit það bara eitt um hann
að hann hefur verið ráðuneytis-
stjóri í viðskiptaráðuneytinu og iðn-
aðan-áðuneytinu frá 1996 og hefur
reynst þar afskaplega farsæll í
starfi og dugmikill starfsmaður. Ég
er algjörlega sannfærður um það
að hann er réttur maður á réttum
stað sem aðalbankastjóri Lands-
bankans. Hann var formaður þeirr-
ar nefndar-sem sá um undirbúning
að stofnun hlutafélaganna og hann
hefur verið aðstoðarbankastjóri
Evrópubankans í London. Þar af
leiðandi hefur hann reynslu á þess-
um sviðum, og að auki hefur hann
unnið að mörgum öðrum stórum
verkefnum," sagði Finnur.
Bankastjóri Búnaðarbankans
hefur óskað eftir úttekt
Aðspurður um hvort hann teldi
ástæðu til þess að Ríkisendurskoð-
un færi ofan í saumana á málum hjá
Búnaðarbankanum og öðrum stofn-
unum á sambærilegan hátt og nú
hefði verið gert hjá Landsbankan-
um sagði Finnur að einn af banka-
stjórum Búnaðarbankans hefði
sjálfur óskað eftir því að það yrði
gert.
„Það sem snýr að upplýsingagjöf
til mín í þessum efnum þá hef ég
enga ástæðu til að ætla annað en að
þær upplýsingar sem mér hafa ver-
ið færðar og spurst hefur verið fyr-
ir um á Aiþingi hafi verið réttar,"
sagði Finnur.
Bankastræti 8, sími 551 3140.
Sendum í póstkröfu.
‘Meðan birgðir endast.
versluninni Söru
LLINIQUt
Allt þetta fylgir kaupum á Clinique snyrtivörum
fyrir 3.500 kr. eða meira dagana 15.-18. apríl.*
Gjöfin inniheldur:
Rinse-Off Foaming Cleanser 30 ml.
Freyðandi farðahreinsir.
Clarifying Lotion 2 60 ml.
'ivatn.
aily Different Moisturizing
ml. Rakakrem
Superbalanced Makeup 15 ml.
Andlitsfarði nr. 05
Lip-shaping Pencil 8 gr.
Varalitablýantur, Perfect amber, 08.
Long Last Soft Shine Lipstick 4 gr.
Varalitur, Creamy nude, 03.
Glosswear SPF 82,8 gr.
Varagloss, Honey bee, 01.
Varalitabursti.
•Varalitahulstur.
Skynsamleg- ákvörðun
hjá bankasljórunum