Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 LANDSBANKINN MORGUNBLAÐIÐ Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður lands og mikilvægt sé að almenn- ingur geti borið saman viðskipta- hætti og verklag þessara keppi- nauta. „I ljósi sérstakrar umræðu um laxveiðiferðir, hálendisferðir og hestaferðir, sem þátt í risnukostn- aði bankastofnana, er óskað eftir því að sérstaklega verði gerð grein fyrir þeim þáttum í rekstri Islands- banka hf.“ Þá segir að ljóst sé að hlutafélög hafí ekki talið sér skylt að svara spurningum af þessum toga og bor- ið við viðskiptaleynd. „Ekki verður hins vegar séð hvernig hlutafélaga- bankar í eigu einkaaðila geta leng- ur skotið sér á bakvið slík rök í ljósi umræðu síðustu daga og vikna. Trúverðugleiki íslenska bankakerf- isins er að veði og mikilvægt að Is- landsbanki hf. eins og aðrar banka- stofnanir leggi spilin á borðið í þessum efnum,“ segir einnig í bréfi Guðmundar Arna. Hann lætur í ljósi þá skoðun að hægt ætti að vera að veita umbeðnar upplýsing- ar innan hálfs mánaðar, standi vilji til þess. Höfðu ekki fengið bréfíð Hvorki Valur Valsson, banka- stjóri Islandsbanka, né Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs- ins, höfðu fengið bréf þingmannsins um kvöldmatarleytið í gær. „Mér finnst þetta lýsa svolítið því sem þingmaðurinn er að leita eftir án þess að hann sjái til þess að bréfið komist til viðtakenda," sagði Krist- ján Ragnarsson í samtali við Moi'g- unblaðið þegar hann var inntur álits á bréfi þingmannsins. „Við höfum mjög virkt kostnað- araðhald í íslandsbanka og ég tel að hluthafar bankans þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að þar sé farið illa með fé. Samkvæmt lögum um hlutafélög geta hluthafar spurt á hluthafafundi um hluti eins og þessa og þeim yrði svarað þar. Við berum ábyrgð gagnvart hluthöfum og munum svara spurningum þeirra, komi þær fram, i samræmi við þau lög sem við störfum eftir," sagði Kristján og kvaðst geta staðhæft að þessir hlutir væru mjög hófsamir í Islandsbanka og ekki í líkingu við það sem um væri að ræða í Lands- bankanum. Kristján sagði næsta fund bankaráðs ekki fyrirhugaðan fyrr en í síðustu viku mánaðarins og ekki væri að vænta svars til þing- mannsins fyrr en þá, hafi bréf þá borist. Landsbankaskýrslan verður rædd á Alþingi í dag Oskir um að fram fari úttektir í öðrum bönkum ÞINGFLOKKUR Alþýðubanda- lagsins og óháðra hefur sent forseta Alþingis bréf með ósk um hliðstæða úttekt á Búnaðarbankanum og Seðlabankanum og fram hefur farið á Landsbankanum. Þá hefur Guð- mundur Arni Stefánsson, þingmað- ur Alþýðuflokksins, ritað bankaráði íslandsbanka og óskað eftir upplýs- ingum um risnu, bifreiða- og ferða- kostnað bankastjóra og starfskjör bankastjóra og aðstoðarbanka- stjóra. Bankastjóm Búnaðarbanka Is- lands óskaði eftir því í síðustu viku að Ríkisendurskoðun gerði hlið- stæða úttekt í bankanum og fram hefur farið í Landsbankanum. Sagði Þorsteinn Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri verðbréfasviðs bank- ans, að Ríkisendurskoðun hefði þegar svarað og sagt að slík athug- un myndi fara fram en tímasetning hefði ekki verið afráðin. í bréfi þingflokks Alþýðubanda- lagsins og óháðra er farið fram á það við forsætisnefnd Alþingis að hún beiti sér fyrir því að Ríkisend- urskoðun vinni hliðstæða úttekt á Búnaðarbanka og Seðlabanka og fram hefur farið á Landsbankanum og að gerð verði skýrsla um þær út- tektir sem komi til umræðu á AI- þingi. Jafnframt verði kannað hvort útibú bankanna hafi verið látin bera risnukostnað yfirstjórnar bankanna og að gerð verði grein fyrir því sér- staklega. Reiknað með tveggja tíma umræðu Ólafur G. Einarsson, forseti Al- þingis, sagði bréf þingflokks Al- þýðubandalags og óháðra hafa ver- ið tekið fyrir í forsætisnefnd þings- ins í gær. „Við afgreiddum það með því sem er nú að verða venjubund- inn háttur, við sendum það Ríkis- endurskoðun með ósk um að hún tæki það til afgreiðslu og vísuðum til fyrra bréfs sem hafði komið frá þingflokki jafnaðarmanna, þannig að þetta skarast svolítið,“ sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði jafnframt að eitt- hvað af umbeðnum upplýsingum myndi koma fram í skýrslu Ríkis- endurskoðunar um Landsbankann sem kæmi til umræðu í þinginu ár- degis í dag. Hefur verið gengið frá fyrirkomulagi hennar. Umræðan á að hefjast klukkan 11 og kynnir viðskiptaráðherra þá skýrsluna og hefur til þess 15 mínútur. Síðan fá Morgunblaðið/Þorkell SKYRSLA Rfkisendurskoðunar rædd á Alþingi fyrir páska. Finnur Ingólfsson í ræðustól og Jóhanna Sigurðardóttir hlýðir á mál hans. talsmenn þingflokkanna 10 mínút- ur hver og aðrir þrjár mínútur og sagði Ólafur reiknað með að um- ræðan gæti staðið í allt að tvo tíma. í bréfi Guðmundar Árna Stefáns- sonar segir meðal annars að ljóst sé að Islandsbanki sé í samkeppni við Landsbanka íslands, Búnaðar- banka íslands og Seðlabanka ís- Banka- ráðsmenn kosnir á stofnfundi FULLTRÚAR í bankaráð- um Landsbanka Islands hf. og Búnaðarbanka fslands hf. voru samkvæmt lögum um stofnun hlutafélaga um bankana kosnir á stofn- fundum bankanna. Fundirnir voru haldnir fyrir yfirtöku hlutafélags- bankanna á ríkisviðskipta- bönkunum um siðustu ára- mót. Viðskiptaráðherra fer samkvæmt lögunum með eignarhlut ríkisins í bönk- unum. Aður en ríkisviðskipta- bönkunum var breytt í hlutafélög voru fulltrúar í bankaráðin hins vegar kosnir af Alþingi og skipaði viðskiptaráðherra formenn bankaráðanna. AÐALFUNDUR verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl 1998, kl. 17:00 á Grand Hótel Reykjavík, Gullteigi. HLUTABRÉFA SJOÐURINN Dagskrá aðalfundar Hlutabréfasjóðsins hf.: 1. Venjuleg aðalfundarstörfj sbr. 14. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga til breytinga á 3. gr. samþykkta félagsins. Tillagan felur í sér rýmkun fjárfestingaheimilda. 3. Heimild til stjórnar um kaup á hlutabréfum félagsins á næstu átján mánuðum, sbr. lög nr. 2/1995 um hlutafélög. 4. Onnur mál, löglega upp borin. Erindi: Hvernig fóta íslenskir fjárfestar sig á erlendum hlutabréfamörkuðum? Sigurður B. Stefánsson framkvæmdastjóri VIB. Dagskrá, tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Kirkjusandi, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Hluthafár eru hvattir til að mæta! REKSTRARAÐILI: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. • Aðili að Verðbréfaþingi íslands, Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910. „Tel að komið sé að kaflaskilum“ „ÉG tel að komin séu kaflaskil og það sem hefur gerst í kjölfar Lands- bankamálsins er eðlilegt. Það var ekki við öðru að búast en að banka- stjórarnir færu og ég tel skynsam- legt hjá þeim að hafa gert það sjálf- ir,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir al- þingismaður í samtali við Morgun- blaðið í gær. Jóhanna lagði upphaflega fram fyrirspurnina á Alþingi um laxveiði- kostnað Landsbankans. Þá lagði hún í gær fram á Alþingi fyrirspurn til iðnaðarráðherra um risnu, ferðakostnað, dagpeninga og bílahlunnindi síðustu fimm ára hjá Landsvirkjun og kostnað af laxveið- um ef þær hefðu verið stundaðar. „Við erum að mínu viti að sigla inn í nýja tíma þar sem kallað er meira eftir ábyi’gð og siðferði. Þetta er upphafið að þvi og menn munu kalla eftir nýjum leikreglum. Mér sýnist nokkuð ljóst að skoða verði af fullri alvöru að setja siðareglur í stjórn- sýslunni um meðferð á opinberum fjármunum. Þetta mál í Landsbank- anum er prófsteinn á siðferði í þjóð- félaginu,“ sagði Jóhanna ennfremur. „Ég mun síðan leggja fram frum- varp um að í öllum ársreikningum ríkisfyrirtækja og ríkistengdra fyrir- tækja verði birtar ítarlegar sundui’- liðanir á þessum atriðum er varða risnu, ferðakostnað, dagpeninga og annað.“ Nýjar leikreglur Jóhanna kveðst telja að þessar um- ræður og hugsanleg siðbót í hinu op- inbera eigi eftir að ná almennt út í at- vinnulífið. „Enda er þjóðfélagið að breytast og þjóðin farin að veita meira aðhald og gera meiri kröfur um siðbót í þessum efhum. Þetta er að skila sér nú og mun halda áfram. Ég held að menn muni setja nýjar leikreglur og þeir sem ei-u í ábyrgðarstöðum sýni ábyrgð. Þetta eru menn í vel launuð- uin störfum og þeir eiga að axla ábyrgð ef þeim misferst í embættis- færslum sínum og þai- er ég að tala um að fara vel með fé skattborgar- anna og sýna aðhald og spamað." Jóhanna kvaðst hafa óskað eftir því strax og rangar upplýsingar komu fram varðandi Landsbankann að farið yrði einnig í Búnaðarbank- ann og Seðlabankann og kannaður kostnaður vegna risnu, laxveiða og ferðalaga og sagði hún að þingflokk- ur jafnaðarmanna hefði einnig farið fram á stjórnsýslulega úttekt á bönkunum og þá verður farið ofan í öll þessi mál. „Hins vegar er mörg- um spurningum ósvarað og ég held að J)að sé alveg nauðsynlegt að fá öll dótturfyrirtækin upp á borðið.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.