Morgunblaðið - 15.04.1998, Side 23

Morgunblaðið - 15.04.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 23 STÚLKURNAR sjö eftir að úrslit höfðu verið kunngjörð. F.v. Erna Höskuldsdóttir, Þórhalla Sigurðardóttir, Hrefna Björnsdóttir, Ásta Yr Esradóttir, Halldóra Hallgrímsdóttir, Fanney G. Sigurþórsdóttir og Helga Rún Guðjónsdóttir. Súðavíkurstúlka fal- legust á Vestfjörðum ísafirði - Ásta Ýr Esradóttir, 18 ára nemi frá Súðavík var kjörin fegurðardrottning Vestfjarða á úrslitakvöldi Fegurðarsam- keppni Vestfjarða sem haldin var í veitingahúsinu Krúsinni á ísafirði. Auk þess að vera kjörin feg- ursta stúlka Vestfjarða, reyndist Ásta Ýr vera með fegurstu fót- leggina. Ljósmyndafyrirsæta Vestfjarða var kjörin Fanney G. Sigurþórsdóttir, 18 ára nemi frá Flateyri, og vinsælasta stúlkan, sem keppendur velja sjálfir, var Þórhalla Sigurðardóttir, 22 ára nemi frá Patreksfirði. Húsfyllir var á úrslitakvöldinu. Dómnefnd kvöldsins skipuðu þau Astrid Elvarsdóttir, fegurðar- drottning VestQarða 1996, Elín Gestsdóttir, framkvæmdastjóri Ungfrú ísland, Silja Allansdóttir, framkvæmdasfjóri Fegurðarsam- keppni Vesturlands, Hrafn Frið- björnsson, eigandi Stúdió Ágústu og Hrafns, og Magnús Hávarðar- son prenthönnuður. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson FEGURÐARDROTTNING Vestfjarða, Ásta Ýr Esradóttir frá Súðavík. íþróttamaður HSH valinn Grindavík Listi jafn- aðar-og fé- lagshyggju- fólks Grindavík - Nýstofnað bæjar- málafélag jafnaðar- og félags- hyggjufólks í Grindavík sem samanstendur af Alþýðu- flokki, Alþýðubandalagi og óháðum hyggst bjóða fram í komandi bæjarstjómarkosn- ingum undir nafninu Grinda- víkurlistinn. Þessir hópar hafa nú í bæj- arstjóm þrjá fulltrúa af sjö. Grindavíkurlistinn eins og fé- lagsskapurinn nefnist mun bjóða fram undir listabók- stafnum J. I framhaldi af prófkjöri Gr- indavíkurlistans 28. febrúar síðastliðinn þar sem efsta sæt- ið var bindandi hefur kjör- nefnd stillt upp eftirfarandi lista til bæjarstjórnarkosning- anna í maí: 1. Hörður Guðbrandsson verkstjóri, 2. Pálmi Ingólfsson kennari, 3. Þómnn Jóhanns- dóttir húsmóðir, 4. Garðar Páll Vignisson kennari, 5. Ingibjörg Reynisdóttir skrif- stofumaður, 6. Magnús Andri Hjaltason sölumaður, 7. Jóna Herdís Sigurjónsdóttir skrif- stofumaður, 8. Anna Schmidt verkamaður, 9. Trausti Harð- arson forstöðumaður, 10. Andrea Hauksdóttir sjúkra- liði, 11. Valgerður Á. Kjart- ansdóttir bankastarfsmaður, 12. Jón Gröndal kennari, 13. Pétur Vilbergsson vaktmaður, 14. Sigurður Gunnarsson vél- stjóri. Ólafsvík - Þing Héraðssambands Snæfellsness- og Hnappadalssýslu var haldið í Ólafsvík 21. mars sl. Gestir þingsins vom Ellert B. Schram, forseti fþrótta- og Ólympiúsambands fslands, Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri þess, og Sæmundur Runólfsson, framkvæmdasljóri UMFÍ. Ellert veitti Kjartani Páli Ein- arssyni gullmerki og Elfu Ár- mannsdóttur og Eggert Kjartans- syni silfurmerki fyrir vel unnin störf í þágu íþróttanna. Sæmund- ur veitti Lilju Stefánsdóttur og Eiði Björnssyni starfsmerki UMFÍ fyrir vel unnin störf í þágu íþróttastarfseminnar. Fijálsíþróttamaður HSH árið 1997 er Illugi Pálsson, UMFG. Körfuknattleiksmaður ársins er Tómas Hermannsson, Snæfelli. Knattspyrnumaður ársins var kjörinn Zikret Þór Mehic, Vík- ingi. Hestaíþróttamaður ársins er Lárus Ástmar Hannesson, Snæ- fellingi. Sundmaður ársins er Berglind Valdimarsdóttir, Snæ- felli, og var hún jafnframt út- nefnd íþróttamaður ársins 1997 hjá HSH. Þinghaldið tókst með ágætum. Allir þinggestir fengu tösku í tilefni 70 ára afmælis UMF Víkings. Lúðrasveitin Snær sá um veitingar sem voru í boði Snæ- fellsbæjar. Nýkjörinn formaður HSH er Guðmunda Jenný Her- mannsdóttir, Snæfelli. , Morgunblaðið/Helgí Kristjánsson SIGRÚN Ólafsdóttir afhendir Tómasi Hermannssyni verðlaun hans sem körfuknattleiksmanns ársins. Sendibíll brann Vaðbrekka, Jökuldal - Sendibíll á bænum Hrafnabjörgum í Jökulsár- hlíð á Héraði brann til kaldra kola á páskadagskvöld. Bóndinn á Hrafnabjörgum var að gangsetja sendibílinn eftir að hann hafði staðið óhreyfður um nokkurt skeið. Bíllinn hafði ekki verið lengi í gangi er eldur varð laus í honum og varð bíllinn alelda á svipstundu, og þótt reynt væri að slökkva í honum með þremur handslökkvitækjum er tiltæk voru á bænum hafði það ekk- ert að segja á eldinn. Slökkviliðið á Egilsstöðum var kallað út og slökkti það eldinn í bíln- um og ekki var nein hætta á að kviknaði í nálægum byggingum vegna þess að bíllinn var nokkum spöl frá mannvirkjum. Þó kviknaði lítilsháttar sinueldur umhverfis bíl- inn. Að sögn sjónarvotta sást ol- íuslóð eftir bílinn síðasta spölinn svo talið er að olía hafi lekið ofan á púst- greininn sem orsakað hafi eldinn. Sendibíllinn gjöreyðilagðist í eldin- um og brann í honum allt sem brunnið gat. Morgunblaðið/Egill Egilsson GUÐMUNDUR Björgvinsson, formaður Ibúasamtakanna gerði grein fyrir verkefnum samtakanna. A • • Ibúasamtök On- undarfjarðar með almennan fund Flateyri - íbúasamtök Önundar- fjarðar héldu nýlega fund til að kynna íbúum Flateyrar þau verk- efni sem samtökin vinna að. Ljóst er að víða þarf að taka til hendinni í bæjarfélaginu og brýnt þykir mönnum að fá svar við bréf- um varðandi áframhaldandi stað- setningu söluskála Esso sem eyðilagðist í snjóflóðinu. Söluskál- inn stóð við aðkomuna í bæinn og eru ennþá ummerki eftir stað- setningu hans. Verðmæti eru ennþá fýrir hendi, svo sem tankar í jörðu niðri og ýmsar lagnir. Enn hafa ekki fengist greinargóð svör við því hvort samskonar skáli verði reistur á ný. Ljóst er að ef sams konar skáli yrði reistur yrðu gerðar miklu meiri kröfur hvað varðar burðarþolsstyrkleika slíks húss. Spurt var á fundinum hvað valdi töfum á framgangi málsins, en yfirvöld hafa ekki svarað bréf- um frá því í júlí 1997. Bæjarbúar eru þegar famir af stað með und- irskriftalista til að knýja á um svör. Af öðrum málum var fjallað um „Ellefsensverkefnið" en uppi eru áform um að reisa hús í svip- uðum stíl og Ráðherrabústaður- inn er, en í þessu húsi yrði bæði sögð saga hvalveiða í Norðurhöf- um og varð veitt Ellefsenssafn. Hugmyndin hefur þegar fengið góðan hljómgrunn bæði hjá fjöl- miðlum og hinni opinberu stjórn- sýslu. Mikill áhugi er fyrir hendi í Noregi og er jafnvel rætt þar um að markaðssetja Önundar- fjörð sem ferðasvæði. Að svo stöddu er ekkert hægt að segja til um hvort af byggingu hússins verður en línur munu skýrast í kringum 1. júní hvað varðar framkvæmd málsins. I lokin voru mönnum kynntar hugmyndir varðandi útgáfu á kynningarbæklingi sem hefði að geyma sögu Önundarfjarðar frá landnámi til dagsins í dag hvað varðar atvinnusögu t.d. hvalveiða og fiskveiða og einnig sögu bú- skaparhátta. Einnig yrði saga og afleiðingar snjóflóðsins skráðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.