Morgunblaðið - 15.04.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
________________________________MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 35
LISTIR
Ljóðasafn aust-
fírskra höfunda
FÉLAG ljóðaunnenda á Austur-
landi vinnur að undirbúningi út-
gáfu ljóðasafns eftir austfirska
höfunda og er útkoma þess áætluð
um mitt næsta ár. Þá verða 50 ár
liðin frá útgáfu safnsins Aldrei
gleymist Austurland sem hefur að
geyma ljóð eftir 73 Austfirðinga.
Utlit er fyrir að helmingi fleiri höf-
undar birti ljóð sín í hinu nýja
safni og það verði hátt á fjórða
hundrað síður að stærð.
Vöktu áhuga
ljóðvina
Hugmyndin að útgáfunni kom
fram á undirbúningsfundi að stofn-
un félagsins snemma árs 1996 en
ákvörðun um útgáfuna var tekin á
síðasta ári. Þá leitaði stjórnin til
félagsmanna eftir ábendingum um
austfirska höfunda sem erindi
ættu með kveðskap sinn í væntan-
legt safn. Aform félagsins um út-
gáfuna voru einnig kynnt í fjöl-
miðlum. Stjórnarmenn fundu brátt
að útgáfumálin vöktu áhuga ljóð-
vina á Austurlandi og ekki síður
meðal brottfluttra Austfirðinga.
A fyrsta aðalfundi félagsins,
sem haldinn var í Ekkjufelli hinn
1. nóvember síðastliðinn, var kosin
ritnefnd til að vinna áfram að und-
irbúningi útgáfunnar og til að
hrinda henni í framkvæmd. Nefnd-
ina skipa þeir Aðalsteinn Aðal-
steinsson, Fellabæ, Guðjón Sveins-
son, Breiðdalsvík, og Magnús Stef-
ánsson, Fáskrúðsfirði, en þeir hafa
stýrt félaginu frá stofnun þess. Að-
alfundurinn heimilaði ritnefndinni
að ráða ritstjóra að útgáfunni og
verður það gert undir vorið þegar
vinna við handrit bókarinnar hefst
fyrir alvöru.
Höfundar skulu senda ljóð sín til
ritnefndar íyrir apríllok. Stefnt er
að því að bókin verði tilbúin til
prentunar um næstu áramót og
komi út á miðju ári 1999 eins og
áður sagði.
Ljóðunnendur
77 talsins
Félag Ijóðaunnenda á Austur-
landi var stofnað fyrir tæpum
tveimur árum og félagar eru orðn-
ir 77 talsins. Þeir eru búsettir víðs
vegar um Austurland og nokkrir í
öðrum landshlutum. Útgáfumálin
hafa verið helsta viðfangsefni fé-
lagsins en einnig hefur það staðið
fyrir ljóðakvöldum á Egilsstöðum,
Breiðdalsvík.og Djúpavogi.
Næsta verkefni félagsins er
hagyrðingamót í félagsheimilinu
Skrúð laugardaginn 18. apríl en þá
helgi standa yfir menningardagar
á Fáskrúðsfirði. Stjórn félagsins
áformar einnig að halda almennan
fund á gistiheimilinu í Tærgesens-
húsi á Reyðarfirði laugardaginn 9.
maí næstkomandi. Þar verður
gerð grein íýrir stöðu útgáfumál-
anna og framtíð félagsins rædd.
Fundinum lýkur síðan með ljóða-
dagskrá félagsmanna. Þessar tvær
samkomur verða auglýstar síðar.
Einsagan -
ólíkar leiðir
• Háskólaútgáfan hefur gefið
út bókina Einsagan - ólíkar
leiðir. Atta ritgerðir og eitt
myndlistarverk. Ritstjórar eru
Erla Hulda Halldórsdóttir og
Sigurður Gylfi Magnússon.
A síðustu tveimur árum hefur
einsagan, sem nefnist microhi-
story á ensku rutt sér til rúms
sem rannsóknaraðferð í ís-
lenskri sagnfræði. Hópurinn
sem hér kveður sér hljóðs með
ritgerðasafni þessu hefur leitast
við að tileinka sér aðferðir ein-
sögunnar með einum eða öðrum
hætti. Rannsóknh’ þessara
fræðimanna varpa ljósi á mögu-
leika einsögunnar þar sem hér
eru tekin til umfjöllunar efni
með nokkru öðru móti en venju-
lega er gert í sagnfræði.
Höfundar bókarinnar og rit-
stjórar eru allir sagnfræðingar
og heiti ritgerða þeirra er eftir-
farandi: Davíð Ólafsson „Að
skrá sína eigin tilveru. Dag-
bækur, sjálfsmynd og heims-
mynd á 18. og 19. öld“. - Erla
Hulda Halldórsdóttir og Sig-
urður Gylfi Magnússon, „For-
máli - Imba mey og afkomend-
ur hennar.“ - Inga Huld Há-
konardóttir, „Annáll sigranna."
- Jón Aðalsteinn Bergsveins-
son, „Allt lífið, öll tilveran er
órekjandi vefur. Um sjálfsævi-
sögu Matthíasar Jochumsson-
ar.“ - Kristrún Halla Helga-
dóttir, „Hagir prestsekkna." -
Monika Magnúsdóttir, „Það var "
fæddur krakki í koti.
Um fósturbörn og ómaga á
síðari hluta nítjándu aldar.“ -
Sigrún Sigurðardóttir, „Tveir
vinir. Tjáning og tilfinningar á
nítjándu öld.“ - Sigurður Gylfi
Magnússon, „Félagssagan fyrr
og nú.“ - Svavar Hávarðsson,
„Dauðastund. Glíma Bjöms
Halldórssonar í Loðmundarfirði
við líf og dauða.“ Loks má geta
þess að kápu bókarinnar prýðir
verk eftir myndhöggvarann
Ragnhildi Stefánsdóttur sem
nefnist Ein-vera og fjallar lista-
maðurinn um verk sitt í bók-
inni.
Hugarheimur
alþýðumanna greindur
Það sem höfundar eiga sam-
eiginlegt auk notkunar sinnar á
aðferðum einsögunnar er að
þeir vinna alhr við persónulegar
heimildir á borð við dagbækur,
sjálfsævisögur, sendibréf og
fræðilega spurningalista. Þess-
ar heimildir eru nýttar til þess
að greina hugarheim alþýðu-
manna á átjándu, nítjándu og
tuttugustu öld, fólks sem stóð á
mótum gamla tímans og þess
nýja og tjáði sig á einn eða ann-
an hátt um daglega lífsreynslu
sína.
Bókin er 247 bls. ogkostar
1.990.- Háskólaútgáfan sér um
dreifingu.
Einleikara-
próf í Fella-
og Hólakirkju
TÓNLEIKAR
verða haldnir á
vegum Tónlistar-
skólans í Reykja-
vík í Fella- og
Hólakirkju
fimmtudaginn 16.
apríl kl. 20.30.
Tónleikarnir
Álfheiður eru síðari hluti
Hrönn Haf- einleikaraprófs
steinsdóttir. Alfheiðar Hrann-
ar Hafsteinsdótt-
ur fiðluleikara frá skólanum. Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir leikur
með á píanó.
A efnisskrá eru Sónata í F-dúr
op. 1 nr. 12 eftir G. Fr. Hándel,
Sónata op. 27 nr. 3 eftir E. Ysaye,
Indroduction og Rono Capriccioso
eftir C. Sains-Saéns og Sónata nr. 9
op. 47 (Kreutzer) eftir L.v. Beet-
hoven.
--------------
Píanótónleik-
ar á Akranesi
ÞORSTEINN
Gauti Sigurðsson
píanóleikari mun
leika í Safnaðar-
heimilinu Vina-
minni í kvöld mið-
vikudagskvöld 15.
apríl kl. 20.30
A efnisskránni
eru verk eftir
Chopin, Prokofi-
ev, Debussy,
Rachmaninoff og Liszt.