Morgunblaðið - 15.04.1998, Side 42

Morgunblaðið - 15.04.1998, Side 42
42 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Hér er ein ómissandi! Þessi dýna er svo þægileg að hún ætti að vera til í öllum svefnherbergjum landsins. Bara með því að horfa á hana langar Serta I Skoðaðu w ! hana betur! i mann virkilega til að leggjast. Komdu til okkar og prófaðu. Við finnum örugglega réttu dýnuna fyrir þig. HÚSGAGNAHÖLLIN Bnd*höfðl 20-112 Rvík - S:510 8000 ..............................................................-J Aeúst Amar Þr^iassoa, 8 á I lsafiröi Ágúst er einn af tíu börnum sem hlutu Framtíðarbamastyrk tdssímans. verða píp Hvað námið n’ mmsmggmam PípuLagaiagamaiur ? Framtíðarbörn og Landssíminn hófu í vetur samstarf um að styrkja æsku landsins til náms í tölvu- og upplýsingatækni. Framtíðarbörn eru alþjóðlegur tölvuskóli fyrir börn á aldrinum 4 -14 ára. Námsefnið byggist á þemavinnu þar sem bömin vinna með tölvur og fræðast um tölvutengt efni á skemmtilegan og skapandi hátt. Útibú skólans em í Reykjavík, Keflavík, ísafirði, Vestmannaeyjum, Akureyri, Selfossi, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Hafnarfirði, Akranesi, Dalvik og Sandgerði. Upplýsirtgar og skránirtg er í símd 553 3322 Nýskráningu fylgir: Tveggja mánaða áskzift hjá Inter- netí Landssímans, Framtíðarbarna- bolur og ••• LANDS SÍMINN FRAMTÍÐARBÖRN Verðlaun og viður- kenningar Ekki er álitamál að verðlaun og til- nefningar afþessu tagi kafa jákvæð áhrif Samtímaleiklist í hverju landi hlýtur meiri athygli en ella, sem er litlu landi og þröngu málsvæði eins og okkar gnðarlega mikils virði. Vé: i : rðlaun og viður- kenningar fyrir ár- angur í listrænu starfi em viðkvæm og erfið viðureignar, hvort sem á við val á viðtakanda eða veita slíku viðtöku. Reyndar er langt um liðið síðan íslenskir listamenn hunsuðu viðurkenn- ingar af einhverju tagi, ef undan er skilin uppákoman í Rúðuborg í fyrra þegar Friðrik Þór Frið- riksson afþakkaði viðurkenningu á norrænu kvikmyndahátíðinni svo eftirminnilegt varð. Til að finna einhverja hliðstæðu við þessa uppákomu þarf að fara aft- ur til ársins VIDHORF Eftir Hávar Sigurjónsson 1972 þegar Baldvin Hall- dórsson leikari afþakkaði Silf- urlampann, við- urkenningu leiklistargagn- rýnenda. Silfurlampinn hafði verið veittur árlega í allmörg ár áður en þetta varð en síðan ekki söguna meir. DV braut ísinn að nýju sjö ámm síðar með menn- ingarverðlaunum sínum sem veitt hafa verið árlega allar göt- ur síðan. Menningarverðlaun DV em í sjálfu sér góðra gjalda verð en óneitanlega nokkuð takmarkandi þegar kemur að jafn fjölþættri listgrein og leiklist. Stundum hefur nefnilega virst sem ærið tilefni væri til að verðlauna fleiri en einn það árið; leikara sem skarar fram úr í einni sýningu, leikstjóra fyrir uppfærslu, leik- myndateiknara fyrir leikmynd o.s.frv. Undirritaður sat í dóm- nefnd DV um leiklist fyrir ára- tug eða svo og veit því af reynslu að tilhneiging er til að dreifa verðlaununum eftir eins konar sanngirnisreglu t.d. að velja ekki leikara mörg ár í röð, heldur dreifa verðlaununum á milli greina innan leikhússins. Sú staða hefur hins vegar aldrei komið upp að dómnefnd hafi talið að ástæðulaust væri að verðlauna nokkurn það árið og aldrei hefur nokkur maður gefíð í skyn að valið orkaði tvímælis (opinberlega a.m.k.), eða að þar réðu ferðinni önnur sjónarmið en fagleg og listræn enda hafa aldrei spunnist deilur um niður- stöður dómnefnda DV. Þær hafa að því er virðist reynst giska óskeikular í gegnum áratugina tvo. Enginn hefur heldur móðg- ast svo að hann sæi ástæðu til að afþakka vegsemdina. Þetta segir heilmikið. Ekki fyrir mjög löngu var sú hugmynd á lofti að efna til eins konar íslenskra „óskarsverð- launa“ í leiklist. Að amerískri fyrirmynd yrði stofnuð akademía og haldin mikil veisla með verð- launaveitingum í öllum greinum leiklistarinnar. Ekki veit ég hvers vegna þessi hugmynd hef- ur ekki fengið byr undir báða vængi því þetta er auðvitað af- skaplega fjölmiðlavænt efni og gæti, ef vel tækist til, vakið enn meiri athygli en þegar er á því hversu fjölbreytt íslensk leiklist er. Þar eiga nánast allir verðlaun skilin. Með þessu gæfist einmitt tækifæri til þess að tilnefna alla og verðlauna flesta á hverju ári. Leikskáld eru þau einu úr hópi leiklistarfólks sem eiga kost á sérstakri viðurkenningu en það eru hin tiltölulega nýlegu Leik- skáldaverðlaun Norðurlanda sem veitt eru annað hvert ár af Leiklistarsambandi Norður- landa. Sá háttur er hafður á að stjórn Leiklistarsambands hvers lands skipar dómnefnd sem til- nefnir höfund fyrir leikrit sem frumsýnt var á umliðnum tveim- ur árum. Nýlega var tilkynnt hverjir fimm höfundar á Norður- löndunum hefðu verið tilnefndir í ár. Af Islands hálfu var Kristín Ómarsdóttir tilnefnd fyrir leikrit sitt Ástarsögu 3. Þetta er í fjórða sinn sem Leikskáldaverðlaun Norðurlanda verða afhent en síðast var Arni Ibsen tilnefndur fyrir leikrit sitt Himnaríki, þar áður Ólafur Haukur Símonarson fyrir Hafið og fyrst til að hljóta Leikskáldaverðlaun Norður- landa varð Hrafnhildur Guð- mundsdóttir Hagalín fyrir leikrit sitt Eg er meistarinn. Ekki er álitamál að verðlaun og tilnefn- ingar af þessu tagi hafa jákvæð áhrif. Samtímaleiklist í hverju landi hlýtur meiri athygli en ella, sem er litlu landi og þröngu mál- svæði eins og okkar gríðarlega mikils virði. Þau verk sem njóta tilnefningar eru strax þýdd á eitt Norðurlandamálanna hið minnsta og verða samstundis að- gengileg öllum leikhússtjórum og verkefnavalsnefndum leik- húsa um öll Norðurlöndin. Himnaríki Arna Ibsens hefur t.a.m. verið tekið til sýninga víða á Norðurlöndunum undanfarin tvö ár og þótt vafalaust hefði það gert garðinn frægan án sér- stakrar tilnefningar er jafnljóst að tilnefningin flýtti fyrir og auð- veldaði dreifingu verksins. Önnur verðlaun sem norræn- um leikskáldum standa til boða eru Norrænu útvarpsleikrits- verðlaunin. Þetta eru ný verð- laun, voru fyrst veitt fyrir tveim- ur árum og verða nú afhent í annað sinn í Norræna húsinu á morgun, fimmtudaginn 16. apríl. Útvarpsleikritun hefur um tals- vert langt skeið verið heldur af- skipt grein leikritunar og notið lítillar athygli fjölmiðla og fræð- inga. Er það mjög að ósekju þar sem útvarpsleikritun er síst kröfuminni en leikritun fyrir svið eða sjónvarp. Vonandi verða þessi verðlaun til þess að auka möguleika greinarinnar og hafa sömu áhrif og lýst var að ofan; að íslensk útvarpsleikrit verði þýdd og tekin til flutnings á Norður- löndunum og víðar, svo og að við hér heima fáum að heyra meira af norrænum útvarpsleikritum en verið hefur til þessa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.