Morgunblaðið - 15.04.1998, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
I kvöld er dregið í Víkingalottóinu
um tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag
Vilji samviskunnar
til ilja með net fyrir augum. Þessi
klæðnaður hindrar sjón kvenna, og
hafa margar þeiiTa orðið fyrir bíl-
um. Þessi flík er svo dýr að hún
kostar sem nemur þriggja til fímm
mánaða launum. Þess vegna hafa
fáar konur efni á að eignast hana,
svo að fjöldi kvenna skiptist á að
klæðast henni til þess að geta kom-
ist út fyrir hússins dyr á margra
daga fresti. En þessi fatnaður er
nauðsynlegur af því að „konuandlit
spillir mönnum, sem eru ekki vensl-
aðir henni,“ eins og talsmaður
þeirra orðar það.
Á heimili þeirra skal dregið fyrir
glugga og þær mega ekki fara til
læknis sem er karlmaður, og konur
mega ekki starfa sem læknar. Þar
að auki er almennt útgöngubann á
kvöldin. Konur mega ekki heldur
gefa sig á tal við karlmenn, nema
þeir séu þeim nátengdir.
Talibanar liafa einnig bannað
brúður, flugdreka og bréíþoka.
Upplýstum Islendingum kann að
þykja þessi bönn hlægileg. En í Ka-
búl er ekki hlegið. Þung viðurlög
eru við brotum á þessum reglum, og
„trúarlögregla“ - mestan part ungir
menn - eru sífellt vopnaðir á þönum
um borgina og þeir hýða konur á
staðnum með rafmagnsvírum og
loftnetsstöngum, sem þeir brjóta af
bílum. Nýlega var höggvið framan
af þumalfingri konu fyrir að bera
naglalakk. Refsing fyrir þjófnað er
að höggva útlim af mönnum. Og sé
fólk staðið að hórdómi er það sett í
sérstaka gröf sem nær fólki í axlir
(konan klædd í burqa) og grýtt til
dauða. í mars 1996 var ung kona
grýtt fyrir að reyna að flýja land og
litlu síðar var tilkynnt að 225 konur
hefðu verið hýddar opinberlega fyr-
ir að hlíta ekki reglum um klæðnað.
Talibanar eru að framkvæma
vilja Guðs, sem þeir nefna Allah,
þótt samtök islamskra ríkja (52
talsins) neiti að viðurkenna yfirráð
þeirra. Varla getur öllu skýrara
dæmi um það hvernig skilningur á
vilja Guðs getur sundrað mönnum.
Það á ekki aðeins við um ofstækis-
fulla múhameðstrúarmenn. Það á
við um allt trúarofstæki, og reyndar
allt ofstæki hvort sem það byggist á
trú eða annars konar hugmynda-
fræði. I hvert sinn sem einhver seg-
ir: „Þú átt að vera eins og ég“ - get-
ur ofstækið skotið rótum. Og þegar
samviska manna er bundin ofstæki,
getur hún vissulega leitt til hinna
verstu verka. Þess vegna er um-
burðarlyndið lykill að friðsamlegri
sambúð - nema hvað ofstæki verður
ekki umborið.
Höfundur er prófessor í íslenskum
bókmenntum við Háskóla Islands.
Vandinn er sá, segir
Njörður P. Njarðvík,
að raunverulegan vilja
Guðs þekkir enginn.
veislur, áramótafagnaðir, samkom-
ur þar sem bæði karlar og konur
eru samtímis, ljósmyndir og mál-
verk af mönnum og dýrum, tóbak
og áfengi, tímarit, dagblöð og flest-
ar bækur? Jafnvel fagnaðarlæti og
klapp, þótt ekki sýndist mikið eftir
til að klappa íyrir.
Er maðurinn vitlaus, segir
kannski einhver. En þetta hefur
gerst nýlega, fyrir um það bil þrem-
ur árum. Ekki hér að vísu, heldur í
Afganistan þegar talibanar hrifsuðu
völd.
Og ekki nóg með það. Talibanar
bera sérstaka umhyggju fyrir kon-
um. „Kona er eins og að eiga rós,“
sagði menntamálaráðherra talibana
við bandarískan blaðamann. „Þú
sérð um að hún hafi vatn og hefur
hana fyrir þig til að horfa á og njóta
ilmsins. Hún er ekki borin úr húsi
fyrir aðra að þefa af.“
Þessi umhyggja birtist í því að
konur mega ekki ganga í skóla af
neinu tagi og þær mega ekki vinna
utan heimilis. Þær mega ekki mála
sig eða bera skartgripi, ekki vera
stuttklipptar eða reyta á sér auga-
brúnirnar, ekki bera litrík eða hvít-
leit klæði, ekki vera í gagnsæjum
sokkum eða á háum hælum, ekki
láta heyrast fótatak, ekki tala hátt
eða hlæja á almannafæri. Og helst
ekki fara út af heimili sínu nema í
erindum sem eru stjórnvöldum
þóknanleg. Og þá skulu konur klæð-
ast burqa sem hylur þær frá hvirfli
Skraning hefst 11. april og
námskeiðið byrjar 1 5. apríl.
SAMVISKAN getur jafnvel
komið mönnum til hinna
verstu verka. Þannig komst
Þorsteinn Gylfason prófessor að
orði í fyrirlestri er hann flutti á ráð-
stefnu um siðfræði og samvisku,
sem Aiþjóðlega Sam-Frímúrara-
reglan stóð fyrir nýlega. I þessum
hluta erindisins ræddi Þorsteinn
um það hverju samviska mannsins
lyti og tók dæmi af Heinrich Himm-
ler. Samviska hans laut því sem
hann taldi vera í húfi, framtíð
þýskrar menningar. Og til þess að
tryggja framgang þess málstaðar
yrðu menn að vera reiðubúnir til að
leggja mikið í sölurnar. Meira að
segja að vinna illvirki. Menn yrðu
að yfirstíga þann veikleika að hliðra
sér hjá vondum verkum og gæta
þess jafnframt að láta slík verk ekki
skemma sig.
Við vitum hver þau verk voru.
Þetta minnir að sumu leyti á
Galdra-Loft, sem vildi ná valdi á
hinu illa og beita því mikla valdi til
góðra verka, með eftirfarandi rök-
semdafærslu: „Þegar ég tek það illa
í þjónustu mína, til þess að fram-
kvæma eitthvað gott, - hvað er þá
gott og hvað er þá illt.“
En Himmler var brjálaður, segir
þá kannski einhver. Og þetta gerð-
ist fyrir löngu. Nú vita menn betur.
- Málið er ekki alveg svo einfalt.
Það snýst um þá einkennilegu þver-
sögn er menn gera illt og eru sann-
færðir um að þeir séu að gera það
sem rétt er og gott. Það snýst um
hollustu við málstað og sannfær-
ingu. Það getur snúist um hug-
myndafræði í stjórnmálum, en ekki
síður þegar menn telja sig vera að
framkvæma vilja Guðs. Vandinn þar
er hins vegar sá að raunverulegan
vilja Guðs þekkir enginn, og hætt er
við að menn séu að framkvæma eig-
in vilja undir yfirskini æðri máttar-
valda.
Hvernig litist mönnum á það, ef
hér yrði allt í einu bannað sjónvarp,
kvikmyndir, myndbönd, tónlist,
dans, leikfóng og leikir, brúðkaups-
Veldu á milli þess að vera í lokuðum
hópum og/eða nýta almenna tíma
með aðhaldi þjálfara.
Morgun- og kvöldhópar
Leikfimi, spinning, tækjaþjálfun,
mælingar og fræðsla.
Didda og Linda
koma ykkur á rétta sporið.
mu
Gail flísar
1 TT
T=»i
ís I liu111
Stórhdffia 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Meðal annarra orða
Konur og karlar
Flottari ■ friiö með
sex vikna átaki I Mætti!
Við hjálpum þér að taka á málunum
og komast í þjálfun fyrir sumarið.
á
C
C
V
Q
r
1
C
c
c
4
(
c
4
C
4
i
c
c
4