Morgunblaðið - 15.04.1998, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 15.04.1998, Qupperneq 50
50 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær systir okkar og mágkona, RAGNA VALGERÐUR SIGFÚSDÓTTIR, lést á Landspítalanum föstudaginn 10. apríl. Nikulás Sigfússon, Sigurður Sigfússon, Eggert Sigfússon, Guðrún Þórarinsdóttir, Anna Maria Þórisdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, SIGRIÐUR VIGFÚSDÓTTIR frá Flögu í Skaftártungu, Hjarðarhaga 60, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 8. apríl, verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 17. apríl kl. 10.30. Sigríður Valdís Sigvaldadóttir, Sveínbjörn Guðmundsson, Margrét Sigvaldadóttir, Gísli Dagsson, Kristján Sigvaldason, Sveinbjörg Vigfúsdóttir, Gísli Vigfússon, Friðrik H. Vigfússon, Sigríður V. Vigfúsdóttir, Lilja Margrét Möller og langömmubörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur, SVERRIR S. EINARSSON rektor Menntaskólans við Hamrahlið, Drápuhlíð 40, lést á heimili sínu aðfaranótt 2. páskadags. Karólína Hulda Guðmundsdóttir, Helga Sverrisdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Guðmundur Sverrisson, Kristín Sverrisdóttir, Einar Sigurjónsson. + Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, EWALD ELLERT BERNDSEN, Ránargötu 8, Reykjavík, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16. apríl kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Krabbameins- félag Islands. Hulda Knútsdóttir, Baldvin Berndsen, Sigurður Berndsen, Edda Guðmundsdóttir, Ellert Berndsen, Eydís Mikaelsdóttir, Björgvin Berndsen, Birgir Berndsen, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL ÁSGEIRSSON málarameistari frá Fróðá, Stýrimannastíg 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 17. apríl kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsam- legast bent á barnadeild Hringsins. Ólafur R. Karlsson, Hrefna Einarsdóttir, Bergljót Ó. Karlsdóttir, Ásgeir Karlsson, Guðrún Skúladóttir, Sigrún Karlsdóttir, Ármann Ásmundsson, Stefán Karlsson, Karen Karlsson, Már Karlsson, Sigurður K. Karlsson, Sofffa Árnadóttir, barnabörn og langafabörn. GUÐRÚN ÁSDÍS STURLA UGSDÓTTIR + Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir fæddist á Stokkseyri 26. febrúar 1932. Hún lést á heimili sínu 6. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Aðal- heiður Eyjólfsdóttir, f. 27. júlí 1909, og Sturlaugur Guðna- son, f. 18. ágúst 1904. Sturlaugur lést áriðl985, en Að- alheiður býr í Reykjavík á 89. ald- ursári. Guðrún ólst upp á Stokkseyri ásamt fjórum systk- inum. Þau eru: Guðni Sturlaugs- son, f. 30. maí 1933, d. 6. febrúar 1987, Margrét Sturlaugsdóttir, f. 7. maí 1936, Viktor Ingi Stur- laugsson, f. 14. nóv- ember 1940, og Einar Sturlaugsson f. 1. mars 1944. Bróður- sonur Guðrúnar, Jak- ob Guðnason, ólst einnig upp með systkinunum. Hinn 23. maí 1953 giftist Guðrún Þor- steini Þóri Alfreðs- syni, f. í Hafnarfirði 30. júlí 1931. Foreldr- ar hans voru Ólafía Dagbjört Þorsteins- dóttir, f. 18. nóvem- ber 1910, og Alfreð Þórðarson hljóðfæraleikari í Vestmannaeyj- um, f. 21. október 1912. Þorsteinn ólst upp á Kílhrauni á Skeiðum hjá móður sinni og fósturföður, Valdimar Guðmundssyni bónda, f. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SÆMUNDSSON f. THORSTEINSON, lést á Landakoti miðvikudaginn 8. apríl sl. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 17. apríl kl. 15.00. Helga Jóhannsdóttir, Jón Marinó Samsonarson, Gyða Jóhannsdóttir, Haukur Arnar Viktorsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og systir, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Áskirkju, fimmutdaginn 16. apríl kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti Sjálfsbjörg, landsamband fatlaðra, njóta þess. Þór Jóhannsson, börn og systkini hinnar látnu. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN BENEDIKTSDÓTTIR, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtu- daginn 2. apríi sl., verður jarðsungin frá Lang- holtskirkju föstudaginn 17. apríl kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hennar, láti Orgelsjóð Langholtskirkju njóta þess. Hrefna Sigurðardóttir, Ólafur Björnsson, Kolbrún Sigurðardóttir, Höskuldur Elíasson, Erla G. Sigurðardóttir, Benedikt Sigurðsson, Auður Eiríksdóttir, Jóhann E. Sigurðsson, Laufey Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÁSGEIR Ó. EINARSSON dýralæknir, Sólvallagötu 23, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 17. apríl kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknar- stofnanir. Lára Sigurbjörnsdóttir, Guðrún L. Ásgeirsdóttir, Ágúst Sigurðsson, Einar Þorsteinn Ásgeirsson, Sigrún V. Ásgeirsdóttir, Pétur Guðgeirsson, Þórdís Ásgeirsdóttir, Hjörtur Ingólfsson, Áslaug K. Ásgeirsdóttir, Halldór Bjarnason. 2. september 1902. Foreldrar Þorsteins og fósturfaðir eru nú látin. Þorsteinn lést á heimili sínu 11. mars sl. Guðrún og Þorsteinn byggðu hús sitt á Suðurbraut 3 í Kópa- vogi, þar sem þau bjuggu alla tíð frá árinu 1956. Auk húsmóður- starfa vann Guðrún við verslun, framreiðslu og rekstur mötu- neyta. Synir Guðrúnar og Þor- steins eru tveir: 1) Sturlaugur Þorsteinsson, f. 25. febrúar 1953, verkfræðingur og bæjar- stjóri Hornafjarðar, kvæntur Helgu Lilju Pálsdóttur. Börn þeirra eru Steinar Þór, f. 6. des- ember 1977, Guðrún Ásdís, f. 4. mars 1983, og Stefán Örn, f. 6. ágúst 1986. 2) Valdimar Óli Þor- steinsson, f. 5. desember 1957, veitingasfjóri, kvæntur Katrínu Guðmundsdóttur. Sonur þeirra er Þorsteinn Óli, f. 31. maí 1987. Valdimar bjó áður með Rigmor Jensen og áttu þau saman Ann Kristine, f. 22. júní 1977. Börn Katrínar af fyrri sambúð eru Guðmundur, f. 31. október 1973, og Kristján Freyr, f. 7. janúar 1977. Útför Guðrúnar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku tengdamamma. Það er erfitt að hugsa sér lífið og tilveruna án þín. Okkur er þakklæti efst í huga fýiir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Við höfum báðar búið með strákunum þínum á jarðhæðinni ykkar tengdapabba á Suðurbrautinni. Þar áttum við yndisleg ár. Við höfum stundum búið fjarri ykkur, og langar vegalendir hafa oft aðskilið okkur. Það hefur samt ekki komið í veg fyrir gott samband og alltaf hefur verið jafngott að koma á Suðurbrautina. Þar höfum við alltaf átt gott athvarf, alitaf áttir þú eitthvað gott með kaff- inu og það sem meira var virði: ástúð og umhyggju í stórum skömmtum. Skömmu eftir áramót greindist þú með ólæknandi krabbamein. Þú tókst þeirri fregn með ólýsanlegum dugnaði og þreki, en þín heitasta ósk var að fá að koma heim, eftir tveggja mánaða legu á sjúkrahúsi. Við gátum með aðstoð góðra ættingja og frá- bærrar vinnu starfsfólks heima- hlynningar krabbameinsfélagsins, hjálpað þér heima þessar síðustu vikur. Erfiðleikamir jukust enn þeg- ar Steini þinn dó daginn eftir að þú komst heim. Þrátt fyrir erfiðleikana var baráttuhugurinn mikill og við gleymum aldrei þeirri reisn sem þú bjóst yfir, allt fram á síðasta andar- tak. Það var yndislegt að geta verið með þér og var þetta okkur mjög lærdómsríkur og einstaklega dýr- mætur tími. Nú vitum við að þú ert komin tO Steina þíns og að þið hafið það bæði gott og njótið samvistanna eins og þið gerðuð áratugum saman. Guð gefi þér frið og okkur styrk til að njóta allra góðu minninganna sem við eigum um þig. Þínar tengdadætur, Helga Lilja Pálsdóttír og Katrín Guðmundsdóttir. Elsku Gunna amma okkar er látin eftir erfið veikindi sem hún barðist svo hetjulega við sl. þrjá og hálfan mánuð. Hún var mjög ákveðin og sterk kona. Þegar við vorum hjá ömmu og afa, gerðum við alltaf eitt- hvað skemmtilegt, t.d. fórum í bfl- túra eða í sund eða hjálpuðum þeim í garðinum og margt fleira. Þegar við vorum yngri var amma alltaf búin að taka upp barnaefni úr sjónvarpinu fyrir okkur og þegar við svo vöknuð- um á morgnana var alltaf tilbúinn morgunmatur því hún og afi fóru svo snemma á fætur. Fyrir tæpum mánuði dó afi og þá fylltumst við mikilli sorg en þá varst það þú, amma, sem styrktir okkur. Við trúum því og treystum að núna líði þér vel og sért komin til afa. Við kveðjum ykkur bæði með söknuð í huga en þökkum ykkur fyrir allt sem þið gerðuð fyrir okkur. Guðrún Ásdís, Stefán Örn, Anja Ríkey og Þorsteinn Óli. • Fleiri minningargreinar um Guð- rúnu Ásdísi Sturlaugsdóttur bíða birtingar og munu birtast i biaðinu næstu daga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.