Morgunblaðið - 15.04.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 51
, f
j
I
i
j
:
i
i
i
j
$
t
d
í
j
4
4
4
4
4
4
I
4
SIGURJON
KJARTANSSON
+ Sigtirjón Kjart-
ansson fæddist í
Reykjavík 17. júní
1928. Hann lést í
Reykjavík 27. mars
síðastliðinn. Hann
var sonur Ragnhild-
ar Sumarlínu Magn-
úsdóttur, f. í Kjós,
dóttir Magnúsar
Magnússonar bónda
í Hvammsvík, Kjós,
og víðar, og Kjart-
ans Bjarnasonar, f. í
Þverárhreppi. Móð-
ir Siguijóns átti
annan dreng með
Ágúst, en hann lést
Kjartani,
ungur að
skoða vélamar en það
var áhugamál hans og
hans æskudraumur var
að verða flugmaður en
vegna sjóndeprunnar
varð hann aldrei að
veruleika.
Margt væri hægt að
tína saman og segja frá
en nú eru þetta allt fal-
legar minningar.
Um leið og ég kveð
þig, kæri vinur, votta
ég henni Betu, systkin-
um þínum, tengdafor-
eldi-um og öðrum fjöl-
skyldumeðlimum
dýpstu samúð mína.
Ragnar Hallsson.
aldri. Einnig átti Ragnhildur
böm með Alberti Pálssyni og
Jóhannesi Birkiland, skáldi.
Sigurjón var um hríð í Pétursey
í Mýrdal en fór síðan að Stór-
hólma í Leiru.
Sambýliskona Siguijóns var
Elísabet Hulda Hauksdóttir.
Útför Siguijóns fór fram frá
Fossvogskirkju 3. apríl.
Hann Sigurjón Kjartansson er
látinn eða Siggi frændi minn. Siggi
var rólegur maður og var ekki að
flýta sér mikið. Tók lífínu með
stóískri ró og ég hafði mikið gaman
af því að tala við hann þegar ég bjó
enn í foreldrahúsum. Hann og kona
hans Elísabet sem á samúð mína
vegna fráfalls maka síns. Siggi og
Beta komu oft heim til móður minn-
ar og voru þau þá að koma úr göngu.
Ég man eftir Sigga frænda fyrst
þegar ég var 6 ára og hann vann á
Keflavíkurflugvelli. Þá var ekki mik-
ið um erlent sælgæti, því var það
himnasending að eiga frænda sem
vann á vellinum. Hann kom oft heim
með góðgæti sem var þá aðeins lúx-
us þeirra sem gátu ferðast til út-
landa. Hann kom ávallt með eitt-
hvað handa okkur, mér og systur
minni. Hann var með góðan húmor
og oft stríddi hann okkur, fyrst með
því að segjast ekki hafa komið með
neitt. En hann brást ekki aðdáend-
um sínum í Vesturbænum. Ég mun
ávallt minnast samverustunda okkar
á heimili móður minnar.
Hann kom oft heim til móður
minnar, Ingibjargar, vestur í bæ, sat
hann þar mörgum stundum og ræddi
við mig um allt á milli himins og
jarðar. Við töluðum mikið um áhuga-
mál hans sem voru flugvélar og hafði
hann mikinn áhuga á flugvélum og
fræddi hann mig ávallt um flugvélar.
Sagði hann sögu þeirra ásamt fróð-
leiksmolum sem aðeins menn með
hámenntun á sviði flugs vissu. Ef
hann hafði áhuga á einhverju þá vissi
hann allt um viðfangsefnið, slík var
viska hans. Hann vann í nálægð við
flugvélar. Mig langar að segja margt
um Sigga frænda en einhvern veginn
þegar einhver nákominn feUur frá er
manni mest hugsað til litlu augna-
blikanna sem minntu mann á við-
komandi persónu. Gjafmildi Sigga
og hvernig hann talaði alltaf við
mann eins og maður væri fullorðinn
gerðu hann að aðlaðandi persónu í
huga mér. Ég man eftir mörgu með
Sigga frænda sem ekki er hægt að
tíunda í minningargrein. En ég er
glaður að hafa fengið að kynnast
honum.
Hinrik Fjeldsted.
Hinn 3. apríl sl. var borinn til
grafar hann Sigurjón Kjartansson.
Ég kynntist honum Sigga, eins og
hann var alltaf kallaður, í verka-
mannasjoppunni hjá Varnarliðinu.
Haustið ‘96 var tími kominn til að
fara á eftirlaun en hann hafði beðið
eftir þvi í dágóðan tíma. Hann lang-
aði til að eyða fleiri stundum með
sambýliskonu sinni, henni Betu.
Þau áttu fallegt heimili í Sjálfs-
bjargarhúsinu í Reykjavík þar sem
þau buðu alltaf alla velkomna. Ég
fór oft í heimsókn til þeirra og við
áttum margar ánægjustundir sam-
an. Ofarlega í huga mér er heimsókn
okkar út á Reykjavíkurflugvöll til að
Fyrrverandi vinnufélagi okkar
og vinur Sigurjón Kjartansson,
Siggi eins og hann var oftast kallað-
ur, vann i þrjá áratugi hjá verka-
mannadeild Varnarliðsins. Siggi
skilaði hlutverki sínu vel og sam-
viskusamlega. Þrátt fyrir að hann
var sjónskertur háði það honum
ekki í leik og starfi. Siggi var mjög
góður og skemmtilegur félagi og
góður sögumaður með afbrigðum.
Sögurnar hans slógu oftar en ekki í
gegn og fylgdust allir spenntir með
þegar hann þuldi sögurnar svo
listavel.
Siggi hafði alla tíð mikinn áhuga á
flugvélum. Hann hafði því einstak-
lega gaman af því að vinna við flug-
brautirnar, fylgjast með og segja
okkur félögunum frá öllum þeim
tegundum sem bar fyrir augu. Sjálf-
ur hafði hann alltaf mikinn áhuga á
að gerast atvinnuflugmaður en sjón-
depran aftraði honum alla tíð frá því
að láta drauminn rætast.
Miklu meira væri hægt að segja
um hann Sigga og mun hans verða
sárt saknað. Elsku Beta, við vottum
þér og aðstandendum hins látna fé-
laga og vinar okkar dýpstu samúð.
Vinnufélagarnir.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
FJÓLA VILMUNDARDÓTTIR,
Meistaravöllum 31,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju á morgun,
fimmtudaginn 16. apríl, kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hennar, er bent á
Krabbameinsfélag íslands.
Sigurður Helgi Sveinsson,
Þyri Dóra Sveinsdóttir, Kjartan Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRÐUR INGIMUNDUR ÞÓRÐARSON,
Norðurbrún 1,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtu-
daginn 2. apríl, verður jarðsunginn frá Áskirkju
í dag, miðvikudaginn 15. apríl, kl. 13.30.
Jóhannes G. Þórðarson,
Hulda M. Þórðardóttir, Þorvaldur Þórðarson,
Jóna G. Þórðardóttir, Þorsteinn Eyjólfsson,
Ágústa Á. Þórðardóttir, Leo van Beek,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför
JENSÍNU ÁGÚSTU JÓHANNSDÓTTUR,
sem lést fimmtudaginn 26. mars sl.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Hrafnistu
í Reykjavík.
Jóhann Hjálmarsson, Ragnheiður Stephensen,
Katrfn R. Hjálmarsdóttir, Eysteinn Bjarnason,
Gerður Elín Hjálmarsdóttir, Sigurður Guðjónsson,
Þorvarður Hjálmarsson,
Örn Hjálmarsson, Linda H. Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir færum við öllum ættingjum og vinum sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
VIGFÚSAR VIGFÚSSONAR,
Sléttuvegi 17.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Halldórsdóttir,
Þór Vigfússon, Bára Andersdóttir,
Pétur A. Vigfússon, Sigurrós Sigurðardóttir,
Jóna Vigfúsdóttir, Kjartan Kjartansson,
Hallfríður Vigfúsdóttir, Skúli H. Oddgeirsson,
Nils Nilssen, Edda Waage,
Sigurður Þórsson, Jóna Ingimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma
okkar,
ANNA HULDA EINARSDÓTTIR
frá Borg,
Brekkustíg 35,
Njarðvík,
verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 17. apríl kl. 14.00.
Einar Jónsson, Hafdfs Garðarsdóttir,
Jón, Garðar, Anna Huida og Víðir.
t
Sonur okkar, bróðir og mágur,
PÁLL ARI PÁLSSON,
Þverbrekku 4,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtu-
daginn 16. apríl kl. 15.00.
Sólveig Jónsdóttir,
Jóna Pálsdóttir,
Gunnar Steinn Pálsson,
Þórunn Pálsdóttir,
Páll Bjarnason,
Garðar Gfslason,
Lilja Magnúsdóttir,
Hafþór Kristjánsson.
t
Eiginmaður minn og faðir,
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
frá Ásbjarnarstöðum,
sem lést laugardaginn 4. apríl, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju
föstudaginn 17. apríl kl. 14.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi eða líknarstofnanir.
Guðrún Halldórsdóttir,
Vigdfs Kristjánsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRiSTÍNAR AUÐUNSDÓTTUR,
Bólstaðarhlíð 45.
Vilhelmína Ólafsdóttir, Björn Ævarr Steinarsson,
Pétur Ólafsson, Margrét Hilmarsdóttir,
Sfmon Ólafsson, Guðrún S. Thorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirna, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR L. PÉTURSDÓTTUR,
Stóragerði 17,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á hjarta-
deild Landspítalans fyrir frábæra umönnun.
Unnur Agnarsdóttir, Óskar H. Gunnarsson,
Gunnhildur Óskarsdóttir, Arnór Þ. Sigfússon,
Agnar Óskarsson, Margrét Ásgeirsdóttir
og börn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
fráfall eiginmanns míns, tengdasonar, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞÓRHALLS HALLDÓRSSONAR,
Eyrarholti 6,
áður Þúfubarði 5,
Hafnarfirði.
Þorgerður Guðmundsdóttir,
Friðrikka Bjarnadóttir,
Birna Þórhallsdóttir, Hafsteinn Aðalsteinsson,
Ólöf Dóra Þórhallsdóttir, Ari Sigurfinnsson,
Þorgerður Hafsteinsdóttir, Bjöm Þorfinnsson,
Hafdís Hafsteinsdóttir, Guðrún Halla Hafsteinsdóttir,
Elfa Björg Aradóttir, Ellert Þór Arason,
Þórhallur Björnsson, Arnór Björnsson.