Morgunblaðið - 15.04.1998, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 57*.
i
i
i
i
í
i
i
i
i
4
Í
i
i
i
i
i
i
i
4
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Vetrarstarf
í Vatnaskógi
FLESTIR þeir, sem þekkja til
starfs Skógarmanna í Vatna-
skógi, tengja starfíð sumrinu og
þeirri starfsemi sem sumarbúðir
eru. En nú er umfangið orðið
meira á veturna, eftir að Vatna-
skógur fékk heitt vatn. Var
t.a.m. metmæting á fermingar-
barnanámskeiðin á umliðnu
hausti. Allstók 1.791 fermingar-
barn þátt í námskciðunum.
Einnig hafa verið skólabúðir þar
í vetur, auk þess sem margir aðr-
ir leigja búðirnar, sérstaklega yf-
ir helgar. Að venju verður kristi-
legt skólamót yfír bænadagana,
sem hefur verið fastur liður í
starfi Vatnaskógar.
Verið er að innrétta nýjan
svefnskála, sem kemur í stað eins
gamals og úr sér gengins. Verð-
ur hann tekinn í notkun í sumar,
og bætir mikið svefnaðstöðuna á
staðnum.
Kapellan í Vatnaskógi þarfnast
gagngerra endurbóta, þar sem í
ljós hefur komið að innviðir
hennar voru orðnir feysknir og
fúnir. Seint í vetur var hafizt
handa við lagfæringar á kapell-
unni, og miðar viðgerðum áfram
á henni eins og ijárhagsstaða
Skógarmanna leyfír.
A síðasta sumri dvöldu alls
1.172 í 14 flokkum frá því í end-
uðum maí og út september. Hafa
feðgahelgarnar notið sérstakra
vinsælda. Sýndi það sig bezt í
fyrra, þegar þurfti að bæta við
annarri feðgahelgi vegna mikill-
ar eftirspurnar.
Skráning í sumarbúðirnar í
sumar hefst mánudaginn 20. apr-
íl, og hin árlega kaffi- og randa-
Fyrirlestur um
barnaasma
DR. ERLA Kolbrún Svavarsdóttir,
lektor í HÍ, flytur á morgun kl. 17 í
hátíðarsal Háskóla íslands fyrirlest-
urinn: Fjölskyldur ungra barna með
asma (0-6 ára): Áhrif seigluþátta á
vellíðan mæðra og feðra.
„Asmi er einn algengasti langvar-
andi sjúkdómunnn meðal barna á
Vesturlöndum. í dag eru u.þ.b. 10%
af börnum undir sex ára aldri í
Bandaríkjunum með asma og hér á
landi er talið að 14-16% af börnum
undir sex ára aldri séu með asma.
Það getur verið streituvaldandi fyrir
foreldra að hugsa um ungt barn með
langvarandi asma. Tilgangur rann-
sóknarinnar var að meta fjölskyldu-
og umönnunarálag og meta sam-
bandið milli álagsins, seigluþátta
innan fjölskyldna (þrautseigju fjöl-
skyldunnar (FH)) og þess að skilja
sjálfan sig í ákveðnu samhengi
(SOC) og áhrif þeirra á vellíðan
mæðra og feðra þegar foreldrar eiga
bam með asma. Tilgátur um
temprandi áhrif (moderating effect)
seigluþátta foreldra á sambandið
milli fjölskyldu og rannsóknina var
Seiglulíkanið (the Resiliency Model
of Family Stress, Adjustment and
Addaptation (McCubbin & McCubb-
in, 1993; 1996). Sjötíu og sex banda-
rískar fjölskyldur (75 mæður og 62
feður) sem áttu 6 ára barn eða yngra
með asma tóku þátt í rannsókninni.
Tímafrekasta umönnunaratriði
fyrir bæði mæður og feður var að
veita barninu andlegan stuðning að
styðja við þroska barnsins og að
meðhöndla aga og hegðunarvanda-
mál hjá barninu. Erfiðasta umönn-
unaratriðið fyiir feður og næsterfið-
asta umönnunaratriði fyrir mæður
var að meðhöndla bamið í
asmakasti. Fjölskylduþrautseigja og
það að skynja sjálfan sig í ákveðnu
samhengi útskýrðu 58% af breyti-
leikanum á vellíðan mæðra.
Fjölskydluálag, upplifunin af því að
skynja sjálfan sig í ákveðnu samhengi
og fjölskylduþrautseigja útskýrðu
67% af breytileikanum á vellíðan
feðra. Niðurstöður úr rannsókninni
veita heilbrigðisstarfsfólki aukinn
skilning á hlutverki seigluþátta (SOC
og FH) hjá mærðum og feðrum og
áhrifum fjölskyldu- og umönnunará-
lags á vellíðan foreldra þegar fól-
skyldur eiga ungt barn með langvar-
andi asma,“ segh- í fréttatilkynningu.
Aðalfundur Skógræktar-
félags Hafnarfjarðar
Endurreisn
gróðurs í Land-
námi Ingólfs
AÐALFUNDUR Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar verður haldinn í
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, Sverrissal,
fimmtudaginn 16. apríl kl. 20.30.
Dagskrá fundarins er í fyrsta lagi
venjuleg aðalfundarstörf en að þeim
loknum mun Ingvi Þorsteinsson
náttúrufræðingur flytja erindi með
myndum um endurreisn gróðurs í
Landnámi Ingólfs.
Þriðjudaginn 21. þ.m. mun Skóg-
ræktarfélag Hafnarfjarðar sjá um
fræðslu- og myndakvöld \ Mörkinni
6, húsnæði Ferðafélags Islands, og
hefst það klukkan 20.30. Þar mun
Aðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðu-
maður á Mógilsá, flytja erindi um
alaskaöspina og ræktun hennar. Er
fundurinn öllum opinn.
Arlegar skógargöngur ó höfuð-
borgarsvæðinu verða að þessu sinni
helgaðar ræktunarsvæðum eintak-
linga og af tíu göngum verða þrjár í
umsjá Skógræktarfélags Hafnar-
fjarðar. Verður sú fyrsta 28. maí og
þá farið um ræktunarsvæði Hákonar
Bjamasonar við Hvaleyrarvatn.
Onnur gangan verður 4. júní og þá
skoðað landið hans Jóns í Skuld og
sú þriðja 11. maí. Verður þá farið í
Kapelluhraun og gengið um ræktun-
arsvæði þeirra Þorbjörns Sigur-
geirssonar, Björns Þorsteinssonar,
Brodda Jóhannessonar og Marteins
Björnssonar. Hefjast göngurnar kl.
20.30 og taka um tvo tíma.
Erindi
um Papúa
Nýju-Gíneu
KARL Benediktsson heldur erindi á
vegum Félags landfræðinga í kvöld
kl. 20.30 í stofu 201 í Odda. Öllum er
heimill aðgangur.
„Karl hefur nýverið lokið doktors-
prófi frá The Australian Natinal
University í Canberra í Ástralíu og
mun í erindinu segja frá vettvangs-
rannsókn sinni í Asarodal í hálönd-
um Papúu Nýju-Gíneu. Rannsóknin
snerist um tilurð og þróun markaða í
landbúnaðarsamfélögum hálandanna
og þær breytingar sem þetta hefur
haft í fór með sér.
Fólk á þessum slóðum bjó í skamm-
an tíma við sjálfsþurftabúskap. Til-
koma markaðsviðskipta hefur breytt
ýmsu í efnahagslífi og samfélagsgerð
en jafnframt lifa mörg einkenni gamla
samfélagsins góðu lifi. Þar á meðal
eru gjafaskipti, sem skipta afar miklu
máli í daglegu lífi en byggjast á allt
öðrum forsendum en viðskipti á mark-
aði. Breytt landnýting, auk mikillar
fólksfjölgunar, vekur einnig spum-
ingu um hvort umhverfinu kunni að
verða ofboðið í náinni framtíð.
Kaii mun nota skyggnur og tón-
dæmi til að gefa almenna hugmynd
um náttúru og mannlíf í þessu litríka
landi. Boðið verður upp á kaffi - að
sjálfsögðu ekta nýmalað arabica frá
Papúu Nýju-Gíneu,“ segir í fréttatil-
kynningu.
Norðurlönd til
aldamóta
BENT A. Koch, ritstjóri frá Dan-
mörku, dvelst hér á landi í boði sjóðs
Selmu og Kay Langvads við Háskóla
Islands en þeim sjóði er ætlað að efla
menningartengsl Islands og Dan-
Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson
KAPELLAN í Vatnaskógi þarfn-
ast gagngerrar breytingar.
brauðssala Skógarmanna verður
að venju á sumardaginn fyrsta í
húsi KFUM/K við Holtaveg.
Formaður Skógarmanna í
Vatnaskógi er Ársæll Aðalbergs-
son Keflavík.
merkur. Hann flytur opinberan fyr-
irlestur á vegum sjóðsins í dag kl. 17
í Norræna húsinu. Fyrirlesturinn
nefnist „Norden foran ártusind-
skiftet“ og verður hann fluttur á
dönsku. Öllum er heimill aðgangur.
„Bent A. Koch á að baki langan
starfsferil við blaðamennsku og
fréttaþjónustu. Hann var m.a. aðal-
ritstjóri Kristeligt Dagblad og Fyens
Stiftstidende um langt árabil og síðar
forstjóri Ritzau-fréttastofunnar.
Hann beitti sér á sínum tíma öttul-
lega fyrir afhendingu íslenskra hand-
rita úr dönskum söfnum til Islands
og var hlutur hans veigamikill. Hann
var ennfremur formaður byggingar-
nefndar Norræna húsisns í Reykja-
vík og var það mikið áhugamál hans
að sú stofnun kæmist á fót. Bent hef-
ur í störfum sínum stuðlað mjög að
auknum tengslum Islands og Dan-
merkur,“ segir í fréttatilkynningu.
Gengið frá
Austurvelli að
Tjaldhóli
í MIÐVIKUDAGSKVÖLDGÖNGU
Hafnargönguhópsins í kvöld verður
minnt á elstu fornleið landsins, al-
faraleið frá Reykjavík suður fyrir
lægðina milli Öskjuhlíðanna en þar
voru gatnamót leiðanna til Suður-
nesja, austur í sveitir og til vesturs-
og norðurlands.
Farið verður kl. 20 frá akkerinu
við Hafnai’húsið að austanverðu, upp
Grófina á Austurvöll og þaðan yfir
Arnarhól og með Arnarhólsholtinu,
yfir Breiðumýri og framhjá Háaleiti
niður að Tjaldhóli við Fossvogsbotn.
Til baka eftu- nýja Strandstígnum að
Efra-Lyngbergi, síðan um skógar-
götur Öskjuhlíðar og niður í Hljóm-
skálagarð. Gönguferðinni lýkur við
Hafnarhúsið. Við Tjaldhól verður
kynnt fyrirhuguð göngustígagerð og
hugmynd um nýja gönguhópa. Allir
eru velkomnir.
LEIÐRÉTT
Páskahretið 1963
VEGNA greinar í páskablaði Morg-
unblaðsins um páskahretið mann-
skæða 1963 hafði Ólöf Guðmunds-
dóttir á Akureyri samband við blaðið
og vildi koma eftirfarandi leiðréttingu
á framfæri: Annar skipverjanna, sem
tók út af vélbátnum Hring frá Siglu-
firði, hét fullu nafni Kristján Viktor
Ragnarsson, þá búsettur á Siglufirði.
Ólöf og hann voru heitbundin og
höfðu hugsað sér að ganga í hjóna-
band síðar á árinu, en hún bar son
þeirra undir belti er hinh- hörmulegu
atburðir áttu sér stað. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á að í greininni var
Kifstján Viktor sagður hafa verið ein-
hleypur og búsettur á Akureyri.
Ennfremur leiðréttist hér með að
Ottó Hörður Ósvaldsson, sem fórst
með Súlunni, var í sambúð og lét eft-
ir sig fjögur börn, en þess var ekki
getið í greininni. Eru aðstandendur
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
UR DAGBOK LOGREGLUNNAR
Lögregla sátt eftir
páskahelgina
Dagbók lögreglunnar
8. til 14. apríl
PÁSKAHELGIN gekk vel fyrir
sig hjá lögreglu. Mikið var um af-
skipti af ökumönnum vegna gi-uns
um ölvunarakstur, hraðaksturs og
ýmissa annarra umferðarlaga-
brota. Nokkifr ökumenn urðu að
sjá eftir ökuskírteini sínu vegna
umferðarlagabrota.
Skemmtanahald með ágætum
Skemmtanahald borgarbúa og
gesta þein-a virðist hafa gengið
nokkuð vel en þetta eru fyrstu
páskar þar sem leyfður er rýmri
opnunartími skemmtistaða. Það er
gert á grundvelli nýrra laga um
helgidagafrið sem samþykkt voni
vorið 1997.
Um miðjan miðvikudag hafði
lögreglan afskipti af ökumanni á
Grettisgötu.
Ökumaðurinn er grunaður um
ölvun við akstur en þá fundust
einnig í bifreiðinni ætluð fíkniefni
og eins verðmæth’ hlutir sem öku-
maður og farþegi hans gátu engar
skýringar gefið á. Mennimir voru
vistaðir í fangageymslu lögreglu.
Sama kvöld barst lögreglu tilkynn-
ing um að eldur hefði komið upp í
potti í Skógahverfi í Breiðholtí er
verið var að hita feiti. Skemmdir
urðu á eldhúsinnréttingu.
Laust eftir hádegi á fimmtudag
tilkynnti karlmaður að fi-á sér hefði
verið stolið veski og fjármunum.
Maðurinn hafði verið á skemmti-
stað við Hlemmtorg og softiað ölv-
unarsvefni og á meðan hafði ein-
hver fjarlægt fjármunina. Veskið
fannst á salemi skemmtistaðarins
en engir fjármunir vom í því.
Klukkan 18.30 var ökumaður
stöðvaður á Vesturlandsvegi eftír
að hafa mælst á 120 km hraða þar
sem 60 km er hámarkshraði. Öku-
maður var fluttur á lögreglustöð-
ina, sviptur ökuréttindum í 3 mán-
uði og sektaður um rúmlega 30
þúsund. Skömmu síðar vai- lög-
reglu tilkynnt að ökutæki hefði
verið ekið á ljósastaur við Kjarr-
veg. Þar reyndist ökumaðurinn að-
eins 13 ára og hafði tekið bílinn
traustataki. Ekki urðu meiðsl á
fólki af þessu hættulega athæfi
bamsins, en skemmdir urðu á
ljósastaur og ökutæki.
Um miðjan fóstudag var lög-
reglu tilkynnt að ökutæki hefði
verið ekið á umferðareyju í Ár-
múla við Hallarmúla. Skemmdir
urðu á umferðarmerkjum og
einnig á ökutæki sem þó hafði
verið ekið brott án þess að til-
kynna um óhappið. Skömmu efth-
klukkan sjö um kvöldið var til-
kynnt um innbrot í fyrirtæki á
Laugavegi. Brotist hafði verið inn
um bakdyr og unnar skemmdir á
gluggum og hurð og stolið skipti-
mynt, síma og símbréfatæki.
Fékk reykeitrun
við eldamennsku
Tæpum hálftíma síðar var lög-
reglu tilkynnt um lausan eld við
Norðurbrún. Þai- hafði kviknað
eldui- í potti er ölvaður maður gerði
tilraun til eldamennsku. Maðurinn
var fluttur á slysadeild vegna
gruns um reykeitrun en talsverður
reykm- kom við matreiðsiutilraun-
h-nar. Skömmu síðar stöðvaði lög-
reglan ökumann á Miklubraut við
Skeiðarvog eftir að hann hafði ekið
á 135 km hraða þar sem 60 km há-
markshraði er. Ökumaðurinn var
fluttur á lögreglustöð, sviptur öku-
réttindum í 4 mánuði og gert að
greiða 36 þúsund króna sekt vegna
þessa glæfraaksturs í borginni.
Um klukkan fimm um nóttina
voru höfð afskipti af ökumanni
vegna hraðaksturs á Vesturlands-
vegi. I ljós kom að ökumaðurinn,
sem er grunaður um að hafa ekið
undh- áhrifum áfengis, hafði þrjá
umfram fai’þega og hafði einnig
vanrækt að færa ökutæki sitt til
árlegrar skoðunai-. Ökumaður og
bifreið voru því flutt á lögreglustöð
þar sem ökumaður fór til hefð-
bundinnar skýrslu og blóðtöku, en
skráningamúmer bílsins voru fjai--
lægð. Ökumaðuiinn má búast við
umtalsverðri sekt vegna þessa
aksturs auk annan-ar refsingar.
Um morguninn var lögi-eglu til-
kynnt um að ökutæki hefði verið
ekið útaf á Suðurlandsvegi austan
Bláfjallaafleggjara. Ökumaður
hafði hlotið minniháttar meiðsli en
nokkrai’ skemmdir voru á ökutæk-
inu. Ökumaðurinn er grunaður um
að hafa ekið biffeiðinni undir áhrif-
um áfengis. Um klukkan hálftíu
var lögreglu tilkynnt um innbrot í
íbúarhús í Árbæjai’hverfi. Stolið
hafði verið hJjómflutningstækjum.
Þá var lögreglu tilkynnt um inn-
brot á Laugavegi. Þar hafði hurð
verið spennt upp bakatil og síðan
stolið miklu magni af herrafatnaði.
Skömmu fyrir hádegi var lög-
reglu tilkynnt um að skemmdir
hefðu verið unnar á 9 ökutækjum
sem stóðu í stæði við
Flugafgreiðslu við Þorragötu.
Brotnar voni hliðan-úður, mikið
rótað í bílunum, en ekki hggui’ fyr-
ir hversu miklu var stolið þar sem
ekki hafði tekist á ná til allra eig-
enda. Laust eftir klukkan 18 var
lögreglu tilkynnt um að ökutæki
hefði verið ekið á Ijósastaur á
Framnesvegi við Hringbraut. Öku-
maður kvaitaði undan eymslum í
hné og fingri en ætlaði sjálfur á
slysadeild til aðhlynningar. Tals-
vert eignatjón varð.
Klukkutíma síðar barst lögreglu
tilkynning um að búið væri að
brjóta margar rúður í húsi á lóð
gæsluvallar í Breiðholti. Kl. 22:14
var lögreglu tilkynnt um að öku-
tæki hefði verið ekið á umferðar-
eyju í Armúla við Hallarmúla. Það
er önnur slík tilkynning sem lög-
reglu berst þessa helgi. Aksturs-
stefnumerki hafði vantað á eyjuna.
Skömmu fyi’h’ miðnætti var
ökumaður á bifhjóh stöðvaður á
Vesturlandsvegi eftir að hafa
mælst á 144 km hraða á vegar-
kaflaþar sem 90 km hámarkshraði
er. Ökumaður var fluttur á lög-
reglustöðina og sviptur ökurétt-
indum í 1 mánuð og gert að greiða
20 þúsund króna sekt. Á sunnudag
skömmu fyrir hádegi var lögreglu
tilkynnt um að ekið hefði verið á
ljósastaur á bílastæði við íbúarhús
við Ki-ingluna. Staurinn lagðist á
hliðina og varð að aftengja hann.
Þá kom í ljós að ökutækið hafði
ekki verið fært til skoðunar eins og
reglur segja til um og voru skrán-
ingarnúmer því fjarlægð af því.
Kl. 14:00 var lögreglu tilkynnt
um að minniháttar bilun hefði orðið
á loka eins af tumum Ábui’ðar-
verksmiðjunnar svo þeir misstu lít-
ilsháttar út af skotgasi. Um hádegi
á mánudag var ekið á gangandi pilt
á Reykjavegi í Mosfellsbæ. Hann
var fluttur á slysadeild með sjúkra-
bifreið en hann kvai’taði undan
eymslum í baki og vinstri fæti. Á
þriðjudag, stundarfjórðungi eftir
miðnætti, var ökumaður stöðvaður
á Suðurlandsvegi en hann hafði
verið mældur á 141 km hraða þar
sem 90 km er hámarkshraði. Öku-
maður má vænta fjársekta.
Flúði af vettvangi
Klukkan 4:09 var lögreglu til-
kynnt að ökumaður hefði valdið
skemmdum á símklefa við
Kirkjustræti. Þegar ná átti tal af
honum ók hann af vettvangi, suð-
ur Sæbraut á miklum hraða og
virti ekki umferðarreglur. Það
náðist að stöðva akstur bifreiðar-
innar við Kleppsveg og þar var
ökumaður og farþegi hans hand-
teknir og færðir á stöð. Ökumað-
urinn er grunaður um ölvun við
akstur.