Morgunblaðið - 15.04.1998, Qupperneq 72
' * Drögum næst
ÍSLANDSFLUB g»rlr tlotrum imtrt mO BJúgm 570 8090 i HMQ0pntlvlll|Ptv 15iapríL HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KIiINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMIBS91100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ(SIMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Einn bankastjóri ráðinn að Landsbankanum eftir afsögn þriggja
Morgunblaðið/Ásdís
HINN nýi bankastjóri, Halldór J. Kristjánsson, á blaðamannafundi í gær. f bakgrunni eru þrír framkvæmdastjórar
bankans, Brynjólfur Helgason, Jakob Bjarnason og Barði Árnason.
Bankinn verði í fremstu
röð í Norður-Evrópu
ÞRÍR bankastjórar Landsbanka Ís-
lands hf. sögðu af sér á öðrum degi
páska og var Halldór J. Kristjáns-
son, ráðuneytisstjóri iðnaðar- og
ll' '•viðskiptaráðuneytisins, í gær ráðinn
nýr bankastjóri.
Halldór sagði í gær að markmið
sitt væri að bankinn yrði í fremstu
röð í Norður-Evrópu. Hann sagði
ráðningu sína ópólitíska en Halldór
er flokksbundinn sjálfstæðismaður.
Finnur Ingólfsson sagði að tími
pólitískra bankastjóra væri liðinn.
Helgi S. Guðmundsson, formaður
bankaráðs Landsbankans, sagði í
gær að misjafnar forsendur væru
íyrir því að bankastjóramir þrír,
Björgvin Vilmundarson, Halldór
Guðbjamason og Sverrir Her-
mannsson, sögðu af sér.
„Einn gerir það vegna veikinda
. og tveir gera það vegna þess að þeir
1 -^elja að þeirra persóna hafí áhrif á
ímynd bankans. Ég er þakklátur
fyrir það að þeir meta það með
þessu hætti,“ sagði bankaráðsfor-
maðurinn á blaðamannafundi í gær.
Öllu bruðli
stað þriggja og segir svo í bókun frá
fundi bankaráðs í gær: „Með vísan
til samþykkta fyrir Landsbanka ís-
lands hf. hefur bankaráðið í dag
ákveðið að fyrst um sinn verði ein-
ungis ráðinn aðalbankastjóri en
ráðningu annarra bankastjóra
frestað. Jafnframt samþykkir
bankaráðið að taka skipulag æðstu
framkvæmdastjómar bankans til
endurskoðunar, m.a. með tilliti til
þess að í framtíðinni verði einn
bankastjóri við bankann. Þetta tel-
ur bankaráðið rétt að unnið verði í
samvinnu bankaráðs og viðskipta-
ráðuneytis."
Viðskiptaráðherra mun við um-
ræður á Alþingi sem hefjast eiga
klukkan 11 í dag kynna skýrslu Rík-
isendurskoðunar um Landsbank-
ann. Olafur G. Einarsson, forseti
Alþingis, sagði að fyrirkomulag um-
ræðunnar yrði á þann veg að ráð-
herrann fengi 15 mínútur, talsmenn
þingflokkanna 10 mínútur hver og
aðrir þrjár mínútur. Gert er ráð fyr-
ir að umræðan geti staðið í allt að
tvo tíma.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
og óháðra skrifaði forseta Alþingis
bréf í gær og fór fram á að hliðstæð
úttekt yrði gerð á Búnaðarbanka og
Seðlabanka og fram fór á Lands-
bankanum. Ákvað forsætisnefnd Al-
þingis eftir fund sinn í gær að óska
eftir því við Ríkisendurskoðun að
hún ráðist í umbeðna úttekt. Búnað-
arbankinn hafði fyrir páska óskað
eftir slíkri rannsókn.
■ Landsbankamálið
12/13/14/15/16/36
Ölvunarakstur
272 um-
ferðar-
slys á
síðustu
5 árum
AÐ meðaltali hefur einn ölvað-
ur ökumaður valdið umferðar-
slysi í hvenn viku á síðastliðn-
um fímm árum, að því er fram
kemur í skriflegu svari dóms-
málaráðherra, Þorsteins Páls-
sonar, við fyrirspum Hjálm-
ars Amasonar, þingmanns
Framsóknarflokks, sem dreift
var á Alþingi í gær. Er svarið
byggt á upplýsingum frá Um-
ferðarráði sem skráðar em
samkvæmt skýrslum frá lög-
reglu.
210 karlar
AIls hafa 272 ölvaðir öku-
menn valdið umferðarslysum;
banaslysum eða slysum með
meiðslum, á ámnum 1993 til
1997. Þar af em karlar 210 en
konur 62. Flestir þessara öku-
manna em í aldurshópnum frá
17 til 20 ára.
I svarinu kemur einnig
fram að alls 11 banaslys hafi
orðið í umferðinni á síðastliðn-
um fímm ámm vegna ölvun-
araksturs. Þeir, sem hlotið
hafa mikil meiðsl í umferðar-
slysum vegna ölvunaraksturs
á undanfömum 5 ámm, em
102, en alls hafa 306 hlotið lítil
meiðsl vegna slíkra slysa á
sama tíma.
Hlutfall ölvunarslysa af
heildarfjölda umferðarslysa á
síðastliðnum fimm ámm er frá
4,6% til 5,9%. Sé þetta hlutfall
borið saman við sams konar
slys á hinum Norðurlöndunum
á síðastliðnum fímm ámm
kemur í ljós að hlutfall ölvun-
arslysa í Danmörku er frá 15
til 17%, í Svíþjóð er hlutfallið
3,2% til 4,5%, en í Noregi var
þetta hlutfall 8,5% árið 1993,
en 7,1% árið 1994.
Laxveiðiferðir Sverris Hermannssonar á vegum Landsbanka íslands
Námu 3,6% til 4,5% af
heildarkostnaði bankans
verði hætt
Kjartan Gunnarsson, varafor-
maður bankaráðsins, sagði á blaða-
mannafundinum að gmndvallar-
breytinga væri þörf. „Mér finnst
sjálfgefið og sjálfsagt að Lands-
bankinn hætti öllu bmðli á þessu
-^sviði. Það er augljóst af þeim upp-
iýsingum sem fram hafa komið, að
þetta hefur allt keyrt úr hófí hér í
bankanum og það er sjálfgefið og
sjálfsagt - og bankaráðið mun nátt-
úrlega beita sér fyrir því - að á
þessu sviði verði gmndvallarbreyt-
ing. Ég þarf ekki að skýra þetta mál
nánar. Þetta er augljóst.“
Ráðinn er nú einn bankastjóri í
í LANDSBANKA íslands liggja fyrir útreikn-
ingar um hver kostnaður Landsbanka Islands
vegna veiðiferða Sverris Hermannssonar
reyndist vera á árabilinu 1995 til 1997, sem hlut-
fall af heildarkostnaði bankans á þessu tímabili.
Reyndist kostnaður vegna veiðiferða hans vera
á bilinu 3,6% til 4,5% af heildarkostnaði bank-
ans. Þetta kemur fram í samtali við Sverri Her-
mannsson, fráfarandi bankastjóra Landsbank-
ans, í Morgunblaðinu í dag.
Sverrir upplýsir að árið 1995 hafi útlagður
kostnaður bankans vegna laxveiðiferða hans
verið rúmlega 386 þúsund krónur, en heildar-
laxveiðikostnaður bankans það ár nam 9,4 millj-
ónum króna. Arið 1996 var kostnaður vegna lax-
veiða Sverris 256 þúsund krónur, en heildar-
kostnaður bankans það ár nam 7,1 milljón
króna. Arið 1997 greiddi Landsbankinn 312 þús-
und krónur vegna laxveiða Sverris, en það ár
var heildarkostnaður bankans 6,9 milljónir
króna.
Bankaráðið hafði fulla
vitneskju um laxveiðar
Sverrir segir að bankaráð Landsbankans hafi
öll árin haft fulla vitneskju um laxveiðar á veg-
um Landsbanka íslands og aldrei gert nokkrar
athugasemdir við þær. Það sé rangt að banka-
ráð hafi samþykkt að beina því til bankastjómar
árið 1993 að hætta öllum laxveiðum. Slík sam-
þykkt hafi aldrei verið gerð.
Sverrir vísar því einnig á bug, að í skýrslu
Ríkisendurskoðunar séu gerðar athugasemdir
við stóran kostnaðarlið í risnu - vínveitingar.
Hann hafi fljótlega eftir að hann varð banka-
stjóri Landsbanka íslands verið gerður að eins
konar veislustjóra bankans. Hann hafi haldið ut-
an um veisluhöld og skipulagningu og því iðu-
lega verið bókaður fyrir slíkum veislum, hvort
sem þær voru á vegum bankaráðs eða Lands-
bankans.
„Þetta hefur nú verið fært í rétt horf í skýrslu
ríkisendurskoðanda, eftir að upplýst hefur verið
að því fari víðsfjarri að þetta sé einhver
einkarisna mín - þetta er risna alls bankans,“
segir Sverrir Hermannsson.
■ Við bankastjórarnir/14