Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frambjóðendur til formennsku í VSÍ um framboðin Snýst ekki um persónu og störf sitjandi formanns FRAMBJÓÐENDURNIR tveir til for- mennsku í Vinnuveitendasambandi íslands, segja kosningamar ekki snúast um persónu og störf sitjandi formanns. Víglundur Þorsteins- son, frambjóðandi Samtaka iðnaðarins, segir að framböð sitt eigi annars vegar rætur að rekja til þess að iðnaðurinn kalli eftir for- mennsku eftir 9 ára samfellda formennsku sjávarútvegsins og hins vegar til framtíðar- skipulagsmála samtaka vinnuveitenda. Olafúr B. Ólafsson, formaður Vinnuveit- endasambands íslands, sagðist svo sem ekkert um mótframboðið hafa að segja. „Kjörnefnd hefur komið saman, eins og lögin mæla fyrir um. Niðurstaða hennar er að mæla með end- urkjöri formanns og ég hef fallist á að gefa kost á mér.“ Um hvort mótframboðið væri honum von- brigði og hvort hægt væri að túlka það öðru- vísi en sem gagnrýni á störf hans sem for- manns, sagði Ölafur að sín persóna skipti minnstu í þessu sambandi. „Meginmálið er að við varðveitum okkar samstöðu sem allra best,“ sagði hann. Hann sagði að það væri ekki sitt að fjölyrða um aðfinnslur þær sem hefðu orðið til þess að Samtök iðnaðarins ákváðu að bjóða fram Víglund. Áhrif útvegsmanna Haraldur Sumarliðason, formaður Samtaka iðnaðarins, sem bera fram Víglund Þorsteins- son sem sitt formannsefni, sagði að samtökun- um þætti eðlilegt að það væri jafnvægi í því hverjir leiða Vinnuveitendasambandið með til- liti til stærðar og greiðslna til samtakanna. „I öðru lagi finnst okkur að ekki hafi verið tekið á því að allir borgi með sama hætti inn til sam- takanna þrátt fyrir reglur þeirra. í þriðja lagi hefur manni stundum virst að tiltölulega litlir hópar, en mikilvægir, réðu óþarflega miklu Morgunblaðið/Golli FRAMBJÓÐENDURNIR Ólafur B. Ólafsson og Víglundur Þorsteinsson á leið til fram- kvæmdastjórnarfundar VSI í gær. miðað við það sem þeir leggja til,“ sagði Har- aldur Sumarliðason og játti því að hann ætti þar við útvegsmenn. Ekkert samræmi sé milli áhrifa og greiðslna útvegsmanna innan VSI. Samtök iðnaðarins beri hins vegar hitann og þungánn af herkostnaðinum. Aðspurður um ástæður fyrir framboði sínu sagði Víglundur Þorsteinsson: „Ég hef fallist á að verða frambjóðandi Samtaka iðnaðarins til formennsku í Vinnuveitendasambandinu. Fyr- ir því eru þær ástæður, í fyrsta lagi, að iðnað- urinn er að kalla eftir formennsku eftir 9 ára samfellda formennsku sjávarútvegsins. I öðru lagi eru þarna áhersluatriði í sambandi við framtíðarskipulagsmál samtaka vinnuveit- enda, sem iðnaðurinn vill koma á framfæri og ég tala fyrir á vettvangi VSÍ ef ég næ kjöri. Vinnuveitendur eru vel inni í þeirri umræðu." Víglundur sagði að framboð sitt beindist ekki að persónu núverandi formanns VSÍ þótt áherslumunur væri í umræðunni um skipu- lagsmálin. Harður árekstur á Gullinbrú ÞRÍR voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur á Gullinbrú um klukkan 9.20 í gærmorgun. Kalla þurfti til tækjabíl slökkviliðsins í Reykjavík þar sem einn hinna slös- uðu festist í bifreið sinni. Umferð um Gullinbrú tepptist um ríflega tveggja tíma skeið vegna árekstursins. Samkvæmt upplýsingum lögreglu voru meiðsli tveggja minniháttar en þriðji ein- staklingurinn fékk áverka á höfuð. Allir voru hinir slösuðu fluttir á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur en einn fékk að fara til síns heima fljótlega. Karlmaðurinn sem fékk höfuðáverka átti að vera til eftirlits á sjúkrahúsinu næstu daga sam- kvæmt upplýsingum þaðan en bú- ist var við að kona sem slasaðist fengi að fara fyrr. Tildrög árekstursins eru óljós og í rannsókn að sögn lögreglu. ---------------- Orri frá Þúfu fer ekki á landsmót ÁKVEÐIÐ hefur verið að stóð- hesturihn Orri frá Þúfu verði ekki sýndur til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi á landsmótinu sem haídið verður á Melgerðismelum í Eyja- firði í sumar. Þetta var ákvörðun félagsfúndar hjá Orrafélaginu sem haldinn var í fyrrakvöld. Það kemur því að öllum líkindum í hlut eigenda Pilts frá Sperðli að veita viðtöku Sleipnisbikamum sem er ein eftirsóttasta viðurkenn- ing landsmótanna. ■ Afkvæmasýningu Orra /45 Gert að sæta vararefsingu vegna hárrar fjársektar Handtekinn tveimur dögum fyrir fyrningu Lyfja og Lyfjakaup Hagkaups hefja beinan innflutning 10-30% ódýrari lyf frá Norður- löndum LYFJA og Lyfjakaup sem rekur lyfjaverslanir Hagkaups hafa nú haf- ið eigin innflutning á lyfjum frá Norðurlöndunum. Um er að ræða sömu lyf og eru á markaði á íslandi. Með þessum innflutningi fást ýmis lyf 10-30% ódýrari en hjá lyfjaheild- sölum hér á landi, að sögn fram- kvæmdastjóra Lyfju og Lyfjakaups. Lyfja tók til starfa fyrir tveimur árum, eftir að lyfsala var gefin frjáls. Fyrirtældð rekur nú tvö apótek, við Lágmúla í Reykjavík og á Setbergi í Hafnarfirði. Eigendur fyrirtækisins, Ingi Guðjónsson og Róbert Melax, eiga auk þess hlut í Lyfjakaupi sem rekur þrjár lyfjabúðir í tengslum við verslanir Hagkaups. „Lyfja reið á vaðið með lækkun lyfjaverðs og afslætti af lyfseðils- skyldum lyfjum. Þrátt fyrir það að stjórnvöld lækkuðu álagningu lyfja á smásölustigi á síðasta ári og juku jafnframt hlutdeild sjúklinga í lyfja- kostnaði höfum við aukið afslætti til neytenda. Til þess að mæta því höf- um við aukið hagræðingu í rekstri," segir Ingi Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Lyfju. Hann segir að lyfjaheildsölur sem flytja inn erlend frumlyf hafi ekki veitt afslætti og með beinum innflutningi væru fyrir- tækin að skapa svigrúm til enn frek- ari lækkunar smásöluverðs. Hingað til hafa lyfjaframleiðendur og umboðsmenn þeiiTa í einstökum löndum ákveðið dreifileiðir. Markað- imir hafa verið lokaðir og verðlagn- ing því verið mismunandi auk þess sem sveiflur í gengi gjaldmiðla hafa áhrif á verðlagið. Róbert Melax, framkvæmdastjóri Lyfjakaups, segir að þetta hafi breyst með gildistöku samningsins um Evrópska efnahags- svæðið. Nú sé unnt að kaupa lyf framhjá umboðsmönnum. „Við kaup- um lyf frá heildsölum á því Norður- landanna þai' sem þau eru ódýrust," segir Róbert. Hann telur að þetta sé í fyrsta skipti sem þetta er gert, ekki aðeins hér á landi heldur á Norður- löndunum. Segir að þeir félagamir reki það stór apótek að þetta sé þeim mögulegt. Róbert og Ingi leggja á það áherslu að þeir séu að kaupa ná- kvæmlega sömu lyf og innlendir lyfjaheildsalar hafa á boðstólum. Verð er nokkuð mismunandi milli landa, sumar tegundir lyfja eru ódýrari hér en margar er hægt að kaupa inn á lægra verði á hinum Norðurlöndunum. Þeir segjast sækja lyfin þangað sem þau era ódýmst og segja að munurinn á inn- kaupsverði sé gjaman á bilinu 10- 30%. „Þessi beini innflutningur veitir okkui- svigrúm til að lækka lyfja- verðið enn frekar," segja Ingi og Ró- bert. Innflutningurinn er þegar haf- inn. DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef- ur fellt þann úrskurð að ákvörðun lögreglu Um að færa rúmlega fimmtugan veitingamann í Reykja- vík til afplánunar vararefsingar vegna 4,3 milljóna króna fjársektar skuli standa. Veitingamaðurinn kærði ákvörðun lögreglu 16. apríl síðastliðinn, en hann var handtek- inn 14. apríl sl. og hóf þegar að af- plána ellefu mánaða langa vara- refsingu. Greiðslufrestur bættist við Maðurinn taldi refsingu sína fymda þar sem fimm ár voru liðin frá því dómur féll. í úrskurði ráðu- neytisins kemur fram að dómur Hæstaréttar féll 19. mars 1993 og þar var manninum gert að greiða 5,5 miHjónir króna innan fjögurra vikna, ellegar kæmi ellefu mánaða fangelsi í stað sektarinnar. Fjög- urra vikna fresturinn hafði mnnið út 16. apríl 1993 og miðist fimm ára fymingartími við þann dag, liggi fyrir að fymingarfrestur sektar- refsingar og þar með vararefsingar hafi rannið út hinn 16. apríl 1998. Hæstiréttur dæmdi veitinga- manninn 19. mars 1993 í níu mán- aða fangelsi fyrir að skila ekki söluskatti og staðgreiðslu skatta, auk þess að greiða sekt að upphæð 5,5 milljónir króna til ríkissjóðs, en sæta ellegar vararefsingu sem ákveðin var ellefu mánuðir. Maður- inn hóf afplánun fangelsisrefsing- Samdi um að greiða lögreglu 75 þúsund á mánuði arinnar í lok ágúst 1993 og afplán- aði hana til loka nóvember sama ár. Fyrr það ár, eða í apríl, var lög- reglu í Reykjavík falið að birta manninum dóminn og innheimta sektina og sakarkostnaðinn. Hon- um var birtur dómurinn mánuði eftir að hann var látinn laus, eða í desember 1993. Tæpum þremur áram síðar, eða 23. ágúst 1996, var gerður samn- ingur milli veitingamannsins og lögreglustjórans í Reykjavík um greiðslu dæmdrar sektar og sakar- kostnaðar. í samningnum segir að sekt ásamt sakarkostnaði nemi 5.862.689 krónum og skuli embætti lögreglustjórans í Reykjavík inn- heimta skuldina. Átti að greiða 75 þús. á mánuði Samdi veitingamaðurinn um að 1. september 1996 skyldi hann greiða 75 þúsund krónur upp í skuldina og sömu fjárhæð mánað- arlega út árið 1997, samtals 1,2 milljónir króna. Eftirstöðvarnar, 4.662.689 krónur, skyldi maðurinn tryggja með veði eða ábyrgð eigi síðar en 1. janúar 1998, og greiða með sama hætti þar til skuldin væri að fúllu greidd. Miðað við þessa greiðsluáætlun embættis lögreglunnar í Reykjavík hefði maðurinn verið 62 mánuði að greiða skuldina, þar af um 60 mán- uði eftir að hún var fyrnd. Þessi innheimtuaðferð mun vera í and- stöðu við fyrirmæli dómsmálaráðu- neytisins um innheimtu sekta, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. í því sambandi er bent á m.a. að áminning sú sem sýslu- manni á Akranesi var veitt í byrjun mars fyrir að hafa gert samkomu- lag um greiðslu sektar, byggðist á því að samkomulagið hefði ekki verið í samræmi við gildandi lög 'sem kveða á um innheimtu sekta innan árs frá endanlegum dómi. Taldi fyrningartíma liðinn Veitingamaðurinn lét aldrei um- samda tryggingu í té og mun hafa farið til útlanda í ársbyrjun og dvalist í London um hríð. Hann kom til landsins skömmu áður en hann var handtekinn, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Hann mun þá hafa talið að fyrningartím- inn væri liðinn. Tveimur dögum eftir handtök- una, 16. apríl síðastliðinn, sendi maðurinn og síðar lögmaður hans dómsmálaráðuneytinu síðan áður- nefnda stjórnsýslukæra, þar sem hann gerði kröfu um að vera þegar látinn laus úr afplánun vararefs- ingar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.