Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 6

Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli f AUSTURBÆJARSKÓLA var efnt til grillveislu að loknum samræmdum prófum. Sex kindur skotnar í Tálkna SEX kindur voru skotnar í fjallinu Tálkna á Tálknafirði um síðustu helgi en grunur leikm- á að féð sé riðuveikt. Bjöm Óli Hauksson, sveit- arstjóri í Tálknafirði, segir að haus- amir hafi verið sendir til Tilrauna- stöðvar Háskóla Islands í meina- fræði á Keldum til rannsóknar. Utigangsfé hefur safnast saman í Tálkna og haldið þar til í um fimmt- án ár. Féð er styggt og erfitt hefur reynst að ná því úr fjallinu. Björn Óli segir að fénu hafi verið smalað á svæði neðst í fjallinu í geil og það skotið þar. Hann segir að nokkrar kindur hafi auk þess fundist dauðar í fjallinu. Skrokkarnir hafi verið fjarlægðir og brenndir. Hann telur ekki margar kindur eftir í fjallinu núna, í mesta lagi fimm. Niðurstöður í næstu viku Sigurður Sigurðarson, dýralækn- ir á Keldum, segir að verið sé að rannsaka sýni úr fénu með tilliti til hugsanlegrar riðu. Niðurstöður eru væntanlegar úr rannsókninni í næstu viku. Sigurður segir að í hópnum hafi verið ein mörkuð kind sem hafi slæðst inn í hann. Kind- urnar séu ekki öðruvísi en aðrar kindur. I hópnum hafi verið stór, krapphyrndur hrútur og vom hom- in farin að vaxa inn í höfuðið á hon- um. Allt hafi þetta verið ungt fé, það elsta þriggja vetra. „Ég er ekki viss um að það verði miklu eldra en það þarna í Tálknanum. Það er mikið álag á féð þarna og sjálfsagt ferst talsvert af því,“ sagði Sigurður. Hann segir að mjög sterkar vís- bendingar hafi verið um riðu í fénu og telur nauðsynlegt að fénu verði öllu fargað í fjallinu. Riðu hafi ann- ars ekki orðið vart á Vestfjörðum í tíu ár. Morgunblaðift/Jón Stefánsson UNGLINGARNIR í Hjallaskóla héldu í óvissuferð ásamt nokkrum foreldrum og kennara og var ferðinni heitið á Langjökul. Boðið npp á óvissu- ferð og grillveislu Könnun um viðhorf foreldra til grunnskóla Meirihluti vill auka sjálfstæði skólanna Úr könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Samfok um viðhorf foreldra í Reykjavík til málefna grunnskóla Ert þú fylgjandi, hlutlaus eða andvígur því að auka sjálfstæði skóla (að einstakir skólar ráði meiru um sín málefni - stjórnunarlega, faglega, fjárhagslega) ? Frekar fylgjandi Fundur SAMFOK með borgarstjóra- efnum R- og D-lista Bestu grunnskólarn- ir verði í Reykjavík FORELDRAR unglinganna í Hjallaskóia buðu í óvissuferð að loknum samræmdum prðfum en síðasta prófið, sem var danska, var í gær. í Austurbæjarskðla efndu nemendur til grillveislu og sóttu hana auk 10. bekkinga nemendur í 8. og 9. bekk og jafnvel yngri. Svo virðist sem almenn ánægja hafi verið með.prófin að þessu sinni bæði meðal nemenda og kennara. Farið á Langjökul Nokkrir foreldrar unglinganna í Hjallaskóla tóku að sér að fara með nemendur í óvissuferðina ásamt einum kennara og var hald- ið að Húsafelli í Borgarfirði. í gærkvöldi var Surtshellir skoðað- ur en í morgun átti að leggja á Langjökul með snjðbflum og á sleðum. „Þessi ferð er alfarið á vegum foreldranna," sagði Stella Guðmundsdóttir skólastjóri Hjallaskóla. „Þetta er mjög gott framtak hjá þeim og fóru 50 nem- endur af 63 í ferðina." Ferðina styrktu ýmis fyrirtæki með mat og skólanefndin og foreldrafélag- ið. „Með þessu er verið að reyna í SVARI bankaráðs íslandsbanka við erindi Guðmundar Árna Stef- ánssonar alþingismanns, sem óskaði eftir upplýsingum um risnu, bif- reiða- og ferðakostnað bankastjóra og starfskjör bankastjóra og að- stoðarbankastjóra íslandsbanka, kemur fram að íslandsbanki er rek- inn á öðrum grunni en ríkisbankar eða sem hlutafélag í eigu 6.300 hlut- hafa og skráður á hlutabréfamark- aði. Bankaráðið telur óviðeigandi að að koma inn hjá unglingunum að það sé skemmtilegra að fara í svona ferð en í miðbæinn," sagði hún. Stella sagði að prófin hefðu gengið nokkuð vel nema í dönsku, þar hefði hlustun verið of hröð: „Nemendum fannst dönskuprófið svolítið tyrfið. En próf í stærð- fræði og íslensku gengu vel. Enskuprófið var að vísu nokkuð langt og áttu þau duglegustu í vandræðum með að ljúka því en þeim fannst prðfið sjálft ágætt.“ „Krakkarnir óskuðu eftir leyfi til að halda grillveislu að loknu prófi og þau voru hér í portinu með tónlist og grill í hádeginu og fram eftir degi,“ sagði Guðmundur Sighvatsson skólastjóri Austurbæj- arskóla. Sagði hann að nemendur hefðu verið ánægðir með prófin og teldu þau hafa verið aðgengileg en kvörtuðu þó undan dönskuprófinu. Guðmundur sagði erfitt að meta hvort prófin hefðu verið léttari nú en oft áður. Innan um væru oft misjafnlega sýnilegar gildrur. „En ég held að þessi próf hafi verið vel úr garði gerð,“ sagði hann. bankinn sé dreginn inn í umræðu um vandamál stærsta keppinautarins og að þannig sé reynt að tengja íslands- banka máli honum óviðkomandi. Bent er á í svari ráðsins að í hlutafé- lagalögum sé sérstaklega fjallað um upplýsingamál hlutafélaga og að samkvæmt þeim hafi stjóm og stjórnendur hlutafélaga upplýsinga- skyldur gagnvart hluthöfum á hlut- hafafundum. Ríkisfyrirtæki hafi upplýsingaskyldu gagnvart Alþingi. Það séu leikreglur sem Alþingi hafi í KÖNNUN á viðhorfum foreldra í Reykjavík til málefna grunnskól- ans, sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Samfok, kemur fram að um 70% foreldra eru frekar eða mjög fylgjandi því að auka sjálf- stæði skóla, að einstakir skólar ráði meiru um sín málefni, stjórnunar- lega, faglega og fjárhagslega. Könnunin var gerð seint í mars og alls fékkst 501 svar af þeim 700 sem komu í úrtakið. í könnuninni segir einnig að meirihluti foreldra, 60,5%, er frekar eða mjög ánægður með hvernig komið er til móts við þarfir barnsins í námi en um þriðj- ungur er frekar eða mjög óánægð- ur. Um 43% foreldra eru mjög eða frekar ánægð með aðstöðu barns- ins til að nærast í skólanum og svipað hlutfall er mjög eða frekar óánægt. Þar kemur einnig fram að rúm 40% foreldra eru frekar eða mjög ánægð með hve vel er fylgst með barninu í skólanum en tæp 40% eru frekar eða mjög óánægð. Flestir te|ja viðveru kennara hæfilega Flestir foreldrar voru mjög eða frekar ánægðir með upplýsinga- streymi frá skólanum til foreldra en um fimmtungur frekar eða mjög óá- nægður. Flestir foreldrar telja við- veru kennara í grunnskólum hæfi- lega en tæpur helmingur telur hana heldur of litla eða allt of litla. Flestir foreldrar, 63%, telja að með tilkomu foreldraráða í grunn- skólum hafi áhrif foreldra á skóla- starf aukist frekar mikið. 65,4% for- eldra telja að það sé mjög eða frek- ar æskilegt að auka áhrif foreldra á skólastarfið. Um fjórðungur telur það frekar eða mjög óæskilegt. sett. Því sé óeðlilegt að einstök hlutafélög í einkaeigu eða einkafyrir- tæki og einstaklingar almennt séu krafin um upplýsingar af þingmönn- um eða þingnefndum. Gumundur Árni segir í fréttatil- kynningu að það séu honum von- brigði að bankaráðið hafi valið að svara ekki fyrirspurnunum og neitað að gefa almenningi upplýsingar um þennan rekstrarþátt bankans. Að hans mati sé rökstuðningur banka- ráðs veigalítill. INGIBJORG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Ámi Sigfússon oddviti Sjálfstæðisflokksins kynntu í gær hugmyndir sínar að framtíð- arþróun grunnskólanna í Reykja- vík. Yfirskrift fundarins var „Kjós- um metnað og betri skóla“ og var hann haldinn af Samfok, Sambandi foreldrafélaga og foreldraráða í skólum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fór yfir áherslur Reykjavíkurlistans á síðustu árum í málefnum grunn- skólanna, þá sérstaklega s.l. tveggja ára, eða frá því að Reykja- víkurborg tók við grunnskólunum. Hún sagði að ef eitthvað væri verð- ugt málefni kosninganna þá væri það einna helst skólamálin, því í þeim fælist framtíð okkar og barna okkar. Ingibjörg sagði að einsetn- ing grunnskóla í borginni væri langt komin en þó vantaði mikið húsnæði til að hún gæti orðið að veruleika. Hún be'nti einnig á mik- ilvægi endm-- og símenntunar kennara. „Ríkið greiðir milli 12 og 13 milljónir á ári í símenntun kenn- ara og ber skylda til samkvæmt lögum. Fræðslumiðstöð Reykjavík- ur greiðir hins vegar 16,8 milljónir á ári í símenntun, en ber þó ekki skylda til,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Ami Sigfússon kvaðst í upphafi ræðu sinnar hafa orðið undrandi á að sjá loforð Reykjavíkurlistans um einsetningu grunnskólanna. „Þetta eru metnaðarlaus loforð," sagði Árni á fundinum í gærkvöldi, „því lög kveða á um að tryggja eigi einsetningu hið fyrsta.“ Arni fór yfir stöðu skólamála eins og þau blöstu við þegar D-listinn hvarf frá völdum borgarinnar árið 1994 og kannaði hvað hefði orðið um þau á kjörtímabili R-listans. Niðurstaða hans var sú að sumt hefði gengið upp og sumt ekki, hann sagði að tölvubúnaður væri að úreldast, en einsetning hefði gengið ágætlega. Hann fullyrti að Reykjavík hefði verið í forystu í skólamálum árið 1994 og setti fram níu lykilatriði sem hann taldi nauðsynleg til að endurheimta þá forystu. Ingibjörg og Árni voru beðin um að lýsa í einni setningu framtíðar- sýn sinni á grunnskólann í Reykja- vík, yrði þeirra flokkur við völd, og voru þau nokkuð sammála. „Grunnskólar borgarinnar verða í hópi bestu skóla innan lands og ut- an við upphaf aldarinnar,“ sagði Ingibjörg, og Ámi fullyrti: „í stað þess að tala um betri skóla þá mun- um við bjóða bestu skólana." Bankaráð fslandsbanka svarar Guðmundi Árna Rekinn á öðrum grunni en ríkisbankar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.