Morgunblaðið - 29.04.1998, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Alþjóðaráðstefna um kalda stríðið í Reykjavík
Hlutverk Norðurlanda í
stefnu risavelda rætt
UMFANGSMIKIL sagnfræðiráð-
stefna um Norðurlöndin og kalda
stríðið verður haldin í Reykjavík í
sumar með þátttöku helstu sér-
fræðinga á þessu sviði frá Banda-
ríkjunum, Norðurlöndunum, Rúss-
landi og Austur-Evrópu. The Cold
War Inter national History Project
(Woodrow Wilson-stofnunin) í
Washington, the London School of
Economics og Sagnfræðistofnun
Háskóla Islands, standa að
ráðstefnunni, sem fer _ \) R L Q"
fram dagana 24.-27.
júní. q
Dr. Valur Ingi- ^
mundarson sagn-
fræðingur, sem á '
sæti í þriggja manna O
undirbúningsnefnd G*
ráðstefnunnar, sagði í sf-
viðtali við Morgunblað- ** C [)
stríðið um þessar mundir. Stofnun-
in heldur ráðstefnur um allan
heim, gefur út rit um nýjustu rann-
sóknir á þessu sviði og styður við
bakið á fræðimönnum og stofnun-
um í Rússlandi og öðrum fyrrver-
andi kommúnistaríkjum. Meðal
þátttakenda á ráðstefnunni í
Reykjavík verða heimsþekktir
sagnfræðingar, eins og þeir John
Lewis Gaddis, prófessor við Yale-
háskóla og Vladislav Zubok
hjá National Security
Archive í Washington.
§
ið að íjallað yrði um hið
margþætta hlutverk, sem
Norðurlöndin gegndu í stefnu
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í
kalda stríðinu.
Afstaða Norðurlanda
til NATO
„Lögð verður áhersla á þá þætti,
sem skildu Norðurlöndin að og
hvað þau áttu sameiginlegt. Fjallað
verður sérstaklega um afstöðu
Norðurlandanna til NATO og hlut-
leysisstefnunnar; stefnu þeirra í
kjarnorkumálum; samskipti
kommúnistaflokka á Norðurlönd-
um við Sovétríkin á stjórnmála-,
efnahags- og menningarsviðinu og
endalok kalda stríðsins. Þá verður
lagt mat á menningaráhrif kalda
stríðsins á Norðurlöndum. Mark-
miðið er að koma á framfæri nýj-
ustu niðurstöðum um efnið, en
undanfarin ár hafa komið út fjöl-
mörg rit, sem hafa brugðið nýju
Ijósi á það,“ sagði Valur.
The Cold War International Hi-
story Project er helsti vettvangur-
inn fyrir skoðanaskipti um kalda
Gaddis er kunn-
asti sagnfræðingur
Bandaríkjanna á
þessu sviði og hefur
skrifað fjölda bóka
og greina um efnið,“
sagði Valur. Á síðasta
ári kom út bók eftir
Gaddis sem nefnist Now
%
A
Q
We Know: Rethinking Cold
War History um stöðu rannsókna
um kalda stríðið sem vakti mikla
athygli og deilur. Það sama má
segja um nýlega bók Vladislavs
Zuboks, Inside the Kremlirís Cold
War: From Stalin to Khruschev, en
hún fjallar um ábyrgð Sovétmanna
á upptökum og þróun kalda stríðs-
ins.
Að sögn Vals mun almenningur
eiga greiðan aðgang að ráðstefn-
unni sem haldin verður á Grand
Hótel, og verður reynt að hafa dag-
skrána sem fjölbreytilegasta með
því að kanna mikilvægi Norður-
landanna bæði frá sjónarhorni
vestrænna ríkja og kommúnista-
ríkjanna.
Helstu sagnfræðingar
Norðurlanda
Á ráðstefnunni verða m.a. pall-
borðsumræður um umdeildar
kenningar þeirra Gaddis og Zu-
boks, en margir hafa freistast til að
kenna þær við nýjan „skóla“ í
sagnfræðinni. Auk þess munu
Reuters
ÁRÓÐURSSTRÍÐ risaveldanna var í algleymingi eftir Reykjavíkur-
fundinn 1986. Á afmæli rússnesku byltingarinnar í nóvember það ár
báru menn borða með áletruninni „Nýtt friðarfrumkvæði Sovétmanna:
Reykjavík 1986“.
helstu sagnfræðingar á Norður-
löndum sækja ráðstefnuna. „Ég
get til dæmis nefnt þá Rolf Tamnes
og Mats Berdal frá Noregi, en þeir
hafa nýlega gefið út bækur um
stefnu Norðmanna í kalda stríðinu,
sem hlotið hafa mikla athygli. Ber-
dal beinir sjónum sínum að hlut-
verki Noregs í hernaðaráætlunum
Bandaríkjanna og Atlantshafs-
bandalagsins á Norður-Atlantshafi
á 6. áratugnum, en Tamnes fjallar
um stefnu Norðmanna á 7. og 8.
ára tugnum. Enn fremur kemur
Norðmaðurinn Sven Holtsmark
hingað, en hann hefur skrifað mest
um samskipti norskra kommúnista
og Sovétríkjanna. Frá Danmörku
koma m.a. Bent Jensen, sem skrif-
að hefur mikið um afstöðu danskra
menntamanna til kommúnismans
og Sovétríkjanna, og Poul
Villaume, sem fjallað hefur um sér-
stöðu Danmerkur í NATO og lagt
áherslu á andstöðu danskra stjórn-
valda við stefnu bandalagsins í
veigamiklum atriðum.
Miklar deilur hafa orðið í Finn-
landi um þátt Urho Kekkonens,
fyrrverandi forseta Finnlands, í
kalda stríðinu. „Sumir telja, að
hann hafi gengið allt of langt í að
friðþægja Sovétmenn, en aðrir
telja honm það til tekna að hafa
hagað samskiptum sínum við Sov-
étríkin með þeim hætti, að Finnar
héldu sjálfstæði sínu og þingræðis-
kei-fi. Hanno Rautkallio hefur deilt
hart á Kekkonen og hann mun
verða meðal þeirra Finna, sem
sækja ráðstefnuna. Þá mun Jussi
Hanhimáki frá the London School
of Economics fjalla um áhrif kalda
stríðsins á norræna menningu, en
eins og kunnugt er mótaði þessi
heimsbarátta þjóðfélagsumræðu á
Norðurlöndum í áratugi," sagði
Valur.
Staða Finna og
hlutleysi Svía
í ráði er að halda pallborðsum-
ræður um stöðu Finnlands í kalda
stríðinu og hlutleysisstefnu Svía í
kalda stríðinu með þátttöku sér-
fræðinga frá þessum löndum. Val-
ur sagði, að allt frá því að sænsk
stjórnvöld skipuðu hina svokölluðu
hlutleysisnefnd fyrir nokkrum ár-
um hefði átt sér stað mikil umræða
í Svíþjóð um þátt landsins í kalda
stríðinu. Komið hefði fram, að
sænski herinn hefði verið háður
bandarískri hergagnatækni og
hann hefði verið í leynilegu sam-
bandi við Bandaríkjamenn og Atl-
antshafsbandalagið um varnir Sví-
þjóðar, þótt Svíar hefðu aldrei
hvikað frá hlutleysisstefnunni opin-
berlega. Þá koma hingað tveir
danskir höfundar að skýrslu
dönsku öryggismálastofnunarinnar
um kjarnorkuvopn, sem Banda-
ríkjamenn komu fyrir á Grænlandi
í lok 6. áratugarins. Málið olli
miklu fjaðrafoki í Danmörku fyrir
nokkru, enda gaf danski forsætis-
ráðherrann Hans Hedtoft Banda-
ríkjamönnum heimild til staðsetn-
ingai' kjarnorkuvopna á Grænlandi
í trássi við yfirlýsta stefnu danskra
stjórnvalda. Þá sagði Valur, að
stefnt yrði að því að fá aðra, sem
létu að sér kveða í kalda stríðinu,
til að taka þátt í umræðum á ráð-
stefnunni.
I rannsóknum sínum hefur Valur
m.a. fjallað um samskipti Islands
og Bandaríkjanna í kalda stríðinu,
en bók hans um efnið, I eldlínu
kalda stríðsins, kom út árið 1996.
Valur sagði, að þrír sagnfræðinem-
ar við Háskóla Islands, þau Þór-
mundur Jónatansson, Rósa Magn-
úsdóttir og Haraldur Þ. Egilsson
tækju virkan þátt í undirbúningi
ráðstefnunar. Áðrir sagnfræðinem-
ar kæmu einnig að ráðstefnunni
með margvíslegum hætti. Samfara
ráðstefnunni verður efnt til ljós-
myndasýningar um kalda stríðið í
samvinnu við Ljósmyndasafn
Reykjavíkur.
Meðal styrktaraðila ráðstefn-
unnar eru Woodrow Wilson-stofn-
unin, Menningarsjóður Norður-
landaráðs, American-Scandinavian
Foundation, Fulbright-stofnunin,
menntamálaráðuneytið og utanrík-
isráðuneytið. Ráðstefnur og fundir,
ehf. sjá um skráningu á ráðstefn-
una og er hún þegar hafin.
Meðferðarúrræði fyrir
karla sem beita ofbeldi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SIGRÚN Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross íslands, kynnir
markmið meðferðarúrræðisins „Karlar til ábyrgðar“. Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra hlýðir á og til hægri við hana eru sál-
fræðingarnir Einar Gylfi Jónsson og Andrés Ragnarsson auk Konráðs
Kristinssonar, starfsmanns RKÍ.
„KARLAR til ábyrgðar“ er slagorð
nýs meðferðarúrræðis fyrir karla,
sem beita ofbeldi, og var ýtt úr vör
í gær. Rauði Kross Islands, Skrif-
stofa jafnréttismála, heilbrigðis-
ráðuneytið og félagsmálaráðuneyt-
ið standa að verkefninu sem starf-
rækt verður í tilraunaskyni næstu
tvö árin. Verkefninu er beint til
karlmanna sem eru hneigjast til of-
beldis og mun þeim standa til boða
einstaklings- eða hópmeðferð til að
takast á við vandamálið.
Tveir sálfræðingar, þeir Andrés
Ragnarsson og Einar Gylfi Jóns-
son, annast meðferðina en þeir
hafa kynnt sér svipaða starfsemi í
Noregi og Svíþjóð. Á kynningar-
fundi sem haldinn var vegna verk-
efnisins kom fram í máli Einars
Gylfa Jónssonar að meðferðin hér-
lendis yrði með svipuðu sniði og
tíðkast hefur í Noregi og Svíþjóð.
Verkefnin þar benda til þess að
milli 60%-80% þeirra sem sækja
meðferðina nái árangri. I Noregi
hefur meðferðarúrræði veríð starf-
rækt í nokkum tíma og gefíð góða
raun. Um 130 manns fara í gegnum
meðferðina samtímis og er með-
ferðaraðstaðan fullnýtt hverju
sinni.
Meðferðin gerir ráð fyrir því að
karlmenn leiti sér sjálfviljugir að-
stoðar til að losna úr viðjum ofbeld-
isbeitingai’. Einar Gylfi Jónsson
benti á að mikið af karlmönnum
sem sækja meðferð eigi erfitt með
að taka fyrsta skrefið þar sem
þetta gæti verið í fyrsta skipti sem
þeir tali opinskátt um vandamál
sín. Hann sagði að vitaskuld væri
fyllsta trúnaðar gætt í viðtölunum.
Þörf á stöðugri
áminningu
Aðstandendur verkefnisins
kváðust ekki vera hræddir um að
þeir næðu ekki athygli manna sem
beittu ofbeldi. Reynslan í ná-
grannalöndunum sýndi að ásókn i
meðferðina væri stöðug og aðstað-
an fullnýtt á hverju tímabili.
Ingólfur V. Gíslason benti þó á að
þörf væri á stöðugri áminningu um
vandann til þess að karlmenn
hefðu frumkvæði til þess að byrja
að vinna í sínum málum.
Um 1.100 konur verða árlega
fyrir ofbeldi frá hendi maka eða
fyrrverandi maka. Rannsóknir
sýna að beiti maður eiginkonu eða
sambýliskonu oíbeldi eru helm-
ingslíkur á að hann geri það aftur.
Því er brýn nauðsyn að karlmönn-
um sem beita konur ofbeldi verði
gefinn kostur á meðferð vegna
þessa veikleika, að sögn Einars
Gylfa Jónssonar sálfræðings, en
rannsóknir sýni að menn beiti of-
beldi þegar þeim finnist þeir vera
að missa tök á lífi sínu. Með því að
beita aðra ofbeldi finnst þeim þeir
hafa öðlast stjórn á ný.
Nýleg könnun leiddi í ljós að
fjórir af hverjum tíu Islendingum
þekkja persónulega einn eða fleiri
sem orðið hafa fyrir ofbeldi af hálfu
sambýlis- eða eiginmanns. Með til-
komu meðferðarinnar getur fólk
nú gert öðrum greiða með því að
benda á hvað hægt er að gera í
málinu, hvert einstaklingar eigi að
snúa sér.
„Það þarf vart að fara mörgum
orðum um þann vanda og þær
ómældu þjáningar sem ofbeldi
veldur. Þetta er í fyrsta sinn sem
verkefni af þessu tagi lítur dagsins
ljós hér á landi og við vonum svo
sannarlega að það komi að gagni
og verði til þess að lina þjáningar
bæði þeirra sem beita ofbeldi og
þeirra sem verða fyrir því,“ sagði
Sigrún Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Rauða kross Islands, á fund-
inum.
Fordómalaus og opin
umræða nauðsynleg
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði að mikilvægt væri
að opna umræðu um þessi mál því
heimilisofbeldi væri svo sannarlega
best geymda leyndarmál samfé-
lagsins. „Það er það síðasta sem
sjúklingur segir manni, ef hann er
beittur ofbeldi heima fyrir,“ sagði
Ingibjörg, sem starfaði áður sem
hjúkrunarfræðingur. Ingibjörg
sagði jafnframt að ef verkefnið
gæfi góða raun og sýndi fram á ár-
angur yrði tilraunatími þess án efa
framlengdur úr þeim tveimur ár-
um sem hann er nú.
Karlanefnd Jafnréttisráðs hefur
séð um undirbúning að verkefninu
en Rauði kross Islands sér um
framkvæmd þess. Ingólfur V.
Gíslason, félagsfræðingur og
starfsmaður karlanefndar Jafn-
réttisráðs, sagði að töluvert hefði
verið um það að karlar hefðu
hringt og leitað aðstoðar vegna of-
beldishneigðar, sérstaklega þegar
Jafnréttisráð hefði staðið fyrir
átaki gegn heimilisofbeldi árið
1995.
Gróflega áætlaður kostnaður við
verkefnið er 2,5 milljónir króna,
fjármagnað að hluta til af heilbrigð-
isráðuneytinu, félagsmálaráðuneyt-
inu og Rauða krossi íslands. Með-
ferðin gerir ráð fyrir klukkustund-
ar viðtali á viku sé um einstaklings-
meðferð að ræða og kostar það
1.500 krónur, en gert er ráð fyrir
einni og hálfri klukkustund á viku
ef um hópmeðferð að ræða.