Morgunblaðið - 29.04.1998, Side 15

Morgunblaðið - 29.04.1998, Side 15
MORGUNB LAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 1 5 AKUREYRI Enginn kraftur, bara kropp „ÞAÐ ER enginn kraftur í þessu, bara kropp,“ sagði Hail- dór Gestsson sem ásamt Hreini Sverrissyni var að landa í Sand- gerðisbót um hádegi í gær. Þeir voru með um 500 kfló og þótti ekki sérlega mikið. Óvenjumargir smábátar hafa verið við veiðar innarlega í Eyjafírði að undanförnu, eða eftir páskastoppið m.a. frá Grímsey, Ólafsfírði og Dalvík og var Halldór allt annað en ánægður með það. „Við erum bara kaffærðir, trillukarlarnir hérna á Akureyri, það er búið að gjörspilla þessu fyrir okkur, aðkomubátarnir eru að róa allt inn fyrir Svalbarðseyri,“ sagði Halldór. Hann sagði að mun betur hefði fískast á sama tíma í fyrra, „þetta getur varla ver- ið aumara en núna“. Hann nefndi að allt eins gott væri að leigja bara kvótann, 87 krónur væru greiddar fyrir kflóið um þessar mundir, en þeir væru að fá um 81 krónu trillukarlarnir fyrir kflóið af slægðum fiski. „Þetta er auðvitað algjör vit- leysa, maður á bara að leigja kvótann og hafa það gott heima, heldur en að standa í þessu brasi.“ Morgunblaðið/Kristján FÉLAGARNIR Halldór Gestsson og Hreinn Sverrisson landa úr Frosta í Sandgerðisbót í gærdag. Mettúr hjá Sléttbaki EA, frystitogara ÚA Aflaverð- mætið rúmar 100 milljónir SLÉTTBAKUR EA, frystitogari Útgerðarfélags Akureyringa hf. kom til heimahafnar nú í morg- unsárið úr mettúr. Aflaverðmæti skipsins er rúmar 100 milljónir króna, eftir rúmlega 30 daga túr. Þetta er langmesta aflaverðmæti sem skipið hefur komið með að landi en eldra metið var um 75 milljónir króna. Afli Sléttbaks er um 400 tortn af frosnum afurðum, eða um 620 tonn upp úr sjó. Sléttbakur hefur áður komið með meiri afla að landi, er skipið var á úthafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg. Uppistaða aflans í þessum túr er grálúða sem fékkst á Hampiðjutorginu og þorskur sem veiddist úti fyrir Norðurlandi. Þetta er fyrsti alvöru túr Slétt- baks, eftir að gerðar voru umfangs- miklar breytingar á millidekld skipsins hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri. Svalbakur á Reykjaneshrygg Kaldbakur EA, ísfisktogari ÚA, kom til löndunar í gærmorgun eftir 9 daga túr. Skipið var með um 130 tonn af blönduðum afla, aðallega þorsk, karfa og ufsa. Þá er Harð- bakur EA væntanlegur til löndunar nk. mánudag. Frystitogarinn Svalbakur siglir nú undir þýskum fána en skipið er í leigu hjá Mecklenburger Hochsee- fischerei, dótturfélagi ÚA í Þýska- landi. Að sögn Sæmundar Friðriks- sonar, útgerðarstjóra ÚA, er skipið á úthafskarfaveiðum á Reykjanes- hrygg og hafa veiðamar gengið ágætlega. ------------------- Aksjon Miðvikudagur 29. apríl 21.00»-Níubíó - Rómeo blæðir (Romeo is bleeding) í þessari óvenju- legu sakamálamynd kemst spillt lög- regla í hann krappan. Aðalhlutverk: Gary Oldman, Lena Olin, Roy Scheider, AnnabeJJa Sciorra og Jali- ette Lewis. 1992. Stranglega bönnuð börnum. Listasumar í sjötta sinn Morgunblaðið/Kristján FJÖLBREYTT dagskrá Listasumars sem haldið verður í sjötta sinn á Akureyri var kynnt í Ketilhúsinu í Grófargili í gær. Finnur Magn- ús Gunnlaugsson, starfsmaður Gilfélagsins, heldur á dagskránni en að baki honum situr Guðmundur Ármann, fulltrúi Myndlistarskól- ans á Akureyri. LISTASUMAR verður haldið á Akureyri sjötta sumarið í röð og stendur það frá 24. júní til 29. ágúst, frá Jónsmessu og að afmæli Akureyrarbæjar. Dagskráin er fjölbreytt, tónlist, myndlist, bók- menntir, fyrirlestrar og fleira. Gil- félagið, sem er samtök áhugafólks um uppbyggingu menningar- og listamiðstöðvar í Grófargili, stend- ur að Listasumri í samstarfi við m.a. Norrænu upplýsingamiðstöð- ina, Norræna félagið, Sumartón- leika á Norðurlandi, Jassklúbb Akureyrar, Minjasafnið á Akur- eyri og ýmsa þá sem standa fyrir rekstri í Grófargili, gallerí, sýning- arsali, kaffihús og Myndlistarskól- ann á Akureyri. Fjöldi myndlistarsýninga verður á Akureyri í sumar, fjölbreyttir tónleikar, Ijóðaupplestur og leik- sýningar. Ymsir fastir liðir sem hafa skipað sér sess á Listasumri verða einnig í boði í sumar, m.a. söngvökur tvisvar í viku í Minja- safnskirkjunni og heitir fimmtu- dagar með ýmsum djasssveitum í Deiglunni. Þeir sem þátt taka í Listasumri eru akureyrskir lista- menn og einnig listamenn annars staðar af landinu auk erlendra gesta. Þjóðlagadagar Meðal atriða sem í boði verða í sumar má nefna að dagana 23. til 28. júlí verða Þjóðlagadagar á Akureyri, með námskeiði í vikivök- um og þjóðdönsum, tónleikum og málþingi um stöðu íslenska þjóð- lagsins í fortíð, nútíð og framtíð. Sumartónleikar á Norðurlandi verða haldnir í tólfta sinn, fimm tónleikar verða í Akureyrarkirkju og jafnmargir í Reykjahlíðarkirkju við Mývatn auk tónleika í öðrum kirkjum í Eyjafjarðar- og Þingeyj- arsýslum. A síðustu ellefu árum hafa 360 tónlistarmenn frá 16 þjóðlöndum komið fram á 163 tón- leikum í 12 kirkjum íyrir um 11 þúsund áheyrendur, þannig að ljóst má vera að Sumartónleikar á Norðurlandi hafa sannað gildi sitt. Nú í sumar koma fram Björg Þór- hallsdóttir og Bjöm Steinar Sól- bergsson, Pétur Jónasson gítar- leikari, Gunnar Kvaran og Haukur Guðlaugsson, stúlknakórinn Cant- ica frá Danmörku og Duo Lewark- Portugall frá Þýskalandi ásamt Margréti Bóasdóttur. Á vegum Sumarháskólans á Akureyri verða haldin námskeið og boðið upp á fræðslu- og ævin- týraferðir, fluttir verða fyrirlestr- ar, m.a. um sjávarspendýr og nýt- ingu þeirra, þjóðtrú, sögu Akur- eyrar og Jónas Hallgrímsson. BMW 3 línan FRAMÚR- SKARANDI BMW 3 linan með spólvöm / læstu drifi l @ & \ B&L Suðurlandsbraut 14, sími 575 1210 JC2 E ■ £ £ £ ll.is Finnstþérílagiað taka Geldinganes, eitt besta íbúðasvæði borgarinnar, undir iðnaðar- og gámasvæði? R-lístinn hefur hafið sprengingar og grjotnam a Geldinganesi og afleið'ingin mun verða eitt mesta umhverfisslys i sögu borgarinnar. í) -filrifcCt/l'iai lí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.