Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 16

Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Ráðstefna um for- varnir á Reyðarfirði Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir FEÐGARNIR með flöskuskeytið. Flöskuskeyti Reyðarfírði - Nýlega fékk Ólafur Gunnarsson, nemandi í 8. bekk á Reyðarfirði, bréf frá Noregi. Fjöl- skylda á eyjunni Selvær við Nor- egsstrendur, rétt norðan heim- skautsbaugs, var að svara flösku- skeyti sem fannst þar í fjöru. Selvær (íb. 90) er í eyjaklasa sem myndar sveitarfélagið Træna (íb. 500), kennt við stærstu eyjuna, þar sem fom- leifafræðingar hafa fundið mann- vistarleifar frá steinöld. Á Træna em sérkennilegir klettar sem em þekkt siglingamerki. Eyjarnar liggja nokkra norðar en Sandnes þar sem bjó Þórólfur Kveldúlfs- son föðurbróðir Egils Skalla- grímssonar. Segir sagan að Þórólfur hafi haft menn sína í sfldveri og skreiðfíski. Selver vom nóg og eggver. Faðir Ólafs hafði hent flösku- skeytinu í sjóinn af togaranum Snæfúgli SU 20, 2. júlí 1996. Var hann staddur í Víkurál út af Vestfjörðum (65°36 N, 28°26W). Þá var þar sól, hiti 6° og NA 6. Bréfið hafði verið skrifað með blýanti og sett í kókflösku. Eftir svo langan tíma í sjó var skriftin á bréfinu orðin nokkuð upplituð en þó skiljanleg þannig að nú hafa hafist bréfaskriftir milli þessara staða. Þeir feðgar hafa nú sent fleiri flöskuskeyti og vonast eftir svör- um. Reyðarfírði - Föstudaginn 24. apríl var á Reyðarfirði haldin ráðstefna um forvamir. „Við getum betur“ var yfirskriftin og var hún á vegum verkefnisins „ísland án eiturlyfja" í samvinnu við sveitarfélög á Austur- landi og Landssamtökin Heimili og skóli. Markmiðið er að leita leiða til að sameina krafta þjóðarinnar í barátt- unni gegn ólöglegum fíkniefnum, hefta innflutning, efla forvamir og skipuleggja aðgerðir og verkefni sem hafa þetta að leiðarljósi. Ráð- stefnan var öllum opin og þátttaka ókeypis. Hana sóttu um 70 manns, starfsfólk skóla, leikskóla, félags- miðstöðva, foreldrar, unglingar og aðrir þeir sem láta sig iþess málefni varða. Ráðstefnustjóri var Ágúst Ólafs- son, fréttamaður á Egilsstöðum. Framsögu höfðu Dögg Pálsdóttir, formaður verkefnisstjómar, Þórólf- ur Þórlindsson prófessor um fíkni- efnaneyslu unglinga, Hermann Valsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi um forvamarverkefni á Egilsstöð- um og Fellabæ, Friðrik, Guðmann og Þórhallur Þorvaldssynir kennar- ar um forvamarstarf og félagsmið- stöðvar og Einar Sveinn skólastjóri um vinahópinn innan grunnskólans. Að síðustu var upplestur Guðjóns Sveinssonar rithöfundar; Ört renn- ur æskublóð. Þá var tekið til starfa í málstofum þar sem ræddir voru þrír mála- flokkar: Tekur skipulagning með- ferðarúrræða til þarfa unglinga?, Saman emm við sterk - samstarf foreldra og skóla - kynning á for- eldrasamningum og Unglingar og forvamir. Miklar umræður urðu um þessi mál, m.a. hverjar væra hugmyndir unglinga um forvamarstarfið og hvað þyrfti að gera til að koma í veg fyrir fíkniefnaneyslu bama og ung- linga. Auka þarf þekkingu almenn- ings á einkennum eiturlyfjaneyslu unglinga, þ.e. breytingum á hegðun og venjum, líkamlegum breyting- um, félagslegum vandamálum, áhöldum sem notuð era, dreifingu efnanna og hvemig á að bregðast við ef vart verður við eitthvað óeðli- legt. Samstaða og samvinna í bar- áttunni gegn fíkniefnum er besta vömin. Allir eiga að láta sig þetta mál varða og standa vörð um unga fólkið. Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason STÚLKUR úr módelsamtökunum „ísmódel" í Stykkishólmi sýndu fatahönnun frá Spaksmannsspjörum undir sljórn Erlu Bjargar Benediktsdóttur. Fjölbreytt dagskrá á vorvöku Emblu Stykkishólmi - Emblu-konur í Stykkishólmi kvöddu veturinn með því að bjóða upp á fjölbreytta dag- skrá í Stykkishólmskirkju síðasta vetrardag. Það er orðinn fastur lið- ur í starfi þeirra að standa fyrir vandaðri skemmtun þennan dag. Á dagskránni söng Auður Gunn- arsdóttir sópransöngkona við undir- leik Jónasar Ingimundarsonar. Nemendur úr Tónlistarskóla Stykk- ishólms fluttu lög á þverflautu, gítar og harmoníku. Þá flutti Anna Dís Rudólfsdóttir félagsfræðingur er- indi um mótun hins íslenska kven- leika. Þar liggja að baki rannsóknir á minningargreinum um konur á tímabilinu 1922-1992 og viðtöl við 18 konur um viðhorf þeirra til stöðu kvenna. Það kom fram að hér áður fyrr vora konur mjög til baka haldnar og sýndu mikla fómarlund. Þær hugsuðu fyrst um þarfir ann- arra og vora hinn trausti bakhjarl. En viðhorfin hafa breyst. Nú leggja konur áherslu á, varðandi uppeldi bama sinna, að dætumar fái tæki- færi til að menntast og synimir læri og venjist heimilisstörfum. Að loknu erindi Önnu Dísar var komið að tískusýningu. Nýstofnuð módelsamtök í Stykkishólmi „Is- módel“ sýndu íslenska fatahönnun frá Spaksmannsspjöram. I samtök- unum, er stofnuð vora í vetur, era unglingar í Stykkishólmi sem hafa fengið þjálfun í framkomu undir stjórn Erlu Bjargar Benediktsdótt- ur. Að lokum buðu Emblu-konur upp á kynningu á sjávarréttum úr Breiðafirði. Fyrirtækin Sigurður Agústsson, Rækjunes hf. og Nora hf. lögðu til hráefnið, en konumar útbjuggu fjölbreytta og Ijúffenga rétti sem gestir kunnu vel að meta. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson UNNIÐ við steypulagningu á nýju brúnni yfir Gígjukvísl á Skeiðarársandi. Hluti Gígjubrúar steyptur HnappavöIIum - HAFIST var handa við að steypa hluta af brúargólfi í hina nýju brú sem Armannsfell hf. er að byggja yfir Gígjukvísl á Skeiðar- ársandi að morgni 24. apríl en gamla brúin hvarf eins og kunnugt er í hlaupinu stóra 5. nóvember ‘96. Nýja brúin verður 300 metra löng og öll n\jög rammger. Sá hluti sem steyptur var núna er 128 metrar og í hann fóru 1.200 rúmmetrar af steypu, platan er 8 metra breið og 210 sm á þykkt þar sem hún er þykkust. Þetta mun vera mesta steypa sem steypt hefur verið í einu að minnsta kosti ut- an Reykjavíkur. Það tók fjörutíu manns, sem unnu á vöktum allan sól- arhringinn, milli 40 og 50 klst. að steypa þetta magn og notuðu þeir á milli 400 og 500 tonn af sementi sem keyrt var í tankbílum austur jafnt að nóttu sem degi. Það er B.M. Vallá sem býr til steypuna í alla brúna og era þeir með steypustöð á staðnum. Grindavík Upp- skeru- hátíð UMFG Grindavík - Uppskeruhátíð körfuknattleiksmanna og kvenna í Grindavík var haldin nú á dögun- um í Festi í Grindavík. Það var Helgi Jónas Guðfínnsson sem var valinn bestur körfuknattleiks- mannanna og Guðlaugur Eyjólfs- son sá efnilegasti. Hjá konunum var Anna Dís Sveinbjömsdóttir valinn sú besta en Sólveig Gunn- laugsdóttir sú efnilegasta. Karlalið UMFG hreppti þrjá titla í vetur, þ.e. þeir urðu Reykja- nesmeistarar, bikarmeistarar og deildarmeistarar, en hefðu að sjálf- Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson ÞAU bestu og efnilegustu, frá vinstri: Sélveig Gunnlaugsddttir, Anna Dís Sveinbjömsdéttir, Guðlaugur Eyjélfsson og Helgi Jénas Guðfinnsson. sögðu gjarnan viljað taka Islands- meistaratitilinn líka. Aðspurður um veturinn sagðist Helgi Jónas vera ánægður með veturinn og þá sérstaklega framan af, en ekki al- veg búinn að jafna sig á því að vera sleginn út úr úrslitakeppninni eða eins og hann orðaði það: „Það hefði verið skemmtilegi'a að vera kosinn besti leikmaður UMFG ef við hefð- um unnið Islandsmeistaratitilinn. Við klúðruðum þessari úrslita- keppni algjörlega." Hjá kvenfólkinu gekk ekki jafn vel en þær urðu þó meistarar meistaranna. Um veturinn sagði Anna Dís: „Árangur okkar hefði mátt vera betri, þjálfaraskiptin settu strik í reikninginn en við er- um ungar og framtíðin því björt“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.