Morgunblaðið - 29.04.1998, Síða 17

Morgunblaðið - 29.04.1998, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 17 Stjórn Japans í vanda vegna efnahagslægðar Metatvinnu- leysi -fram- leiðsla minnkar Tókýó. Reuters. ATVINNULEYSIÐ í Japan jókst úr 3,6% í 3,9% í mars og hefur aldrei verið jafnmikið í 45 ár, sam- kvæmt hagtölum sem birtar voru í gær. Þetta eru slæmar fréttir fyrir japönsku stjórnina, sem nýtur nú lítilla vinsælda vegna efna- hagslægðarinnar í Japan ef marka má nýjustu skoðanakannanir. Viðbrögð hagfræðinga við ýmsum öðrum hagtölum voru blendin. Nokkrir þeirra fögnuðu vísbending- um um að einkaneyslan væri farin að aukast lítillega en aðrir óttuðust að áhyggjur neytenda af atvinnu- leysinu myndu draga úr neyslunni og iðnframleiðslunni. Viðskiptaráðuneytið í Tókýó sagði að iðnframleiðslan hefði minnkað um 1,9% í mars miðað við febrúar og spáði því að hún myndi minnka um 2,5% í apríl en hækka um 1,2% í maí. Atvinnuleysið í mars var meira en nokkru sinni fyrr frá árinu 1953 þegar mæliaðferðirnar, sem nú er beitt, voru teknar upp. Atvinnuleys- ið jókst einna mest í byggingariðn- aðinum og iðnframleiðslunrti. Hagfræðingar höfðu spáð því að atvinnuleysið yrði 4% í lok ársins en margir þeirra urðu þó hissa á því hversu hratt það hefur aukist. Vinsældir stjómarinnar hafa dvín- að mjög að undanfómu vegna efna- hagslægðarinnar. I skoðanakönnun dagblaðsins Mainichi Shimbun sögð- ust 50% aðspurðra ekki styðja stjóm Ryutaro Hashimotos forsætisráð- herra og kenndu honum um efna- hagsvandann. Hvatt til frekari aðgerða Stjórnin kynnti á föstudag að- gerðir til að blása lífí í efnahaginn þar sem m.a. er gert ráð fyrir að veita átta billjónir jena, andvirði rúmra fjögurra billjóna króna, í op- inberar framkvæmdir og lækka tekjuskattana um fjórar billjónir jena, tvær billjónir króna, á þessu ári og því næsta. Hagfræðingar segja að þessar að- gerðir ættu að duga til að binda enda á efnahagslægðina en hafa hvatt til varanlegra skattalækkana og ýmissa róttækra efnahagsum- bóta. Hashimoto er undir miklum þrýst- ingi japanskra hagfræðinga og er- lendra ráðamanna, sem vilja að stjómin grípi til djarfari og skjótari aðgerða til að blása lífí í efnahaginn. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sem var í Tókýó, virtist þó draga úr gagnrýni Bandaríkjastjómar á efnahags- stefnu japönsku stjórnarinnar og lýsti aðgerðum hennar sem „djörfum og mikilvægum skrefum fram á við“. ------♦-*-*------ Ritið Neyslu- könnun 1995 komið út HAGSTOFAN hefur gefíð út ritið Neyslukönnun 1995. í ritinu er skýrt ítarlega frá niðurstöðum neyslukönnunar 1995. Þar er meðal annars að fínna upplýsingar um út- gjöld heimila sem flokkuð em eftir útgjaldaflokkum, heimilisstærð, bú- setu og tekjum. 1.375 heimili, alls staðar á land- inu, tóku þátt í könnuninni. Safnað var upplýsingum um öll útgjöld heimila, bæði stór og smá. í skýrsl- unni kemur meðal annars fram að útgjöld heimilanna voru að meðal- tali 2,3 milljónir á árinu en ráðstöf- unartekjur þeirra reyndust vera nánast þær sömu. Ispakk-Hervald Eiríksson ehf. sameinast Valdimar Gíslasyni ehf. Stefnt að lækkun vöruverðs og’ breiðara þjónustusviði GENGIÐ hefur verið frá samein- ingu Ispakks-Hervalds Eiríksson- ar ehf. við Valdimar Gíslason ehf. Með sameiningu þessara fyrir- tækja verður til sterk rekstrarein- ing sem veitir viðskiptavinum sín- um alhliða þjónustu, segir í frétt frá fyrirtækjunum. Starfsvettvangur fyrirtækjanna hefur verið þjónusta við kjötvinnsl- ur, sjávarútveg og verslanir, en með sameiningunni fá stjórnendur þeirra tækifæri til að auka þjónust- una og breikka svið hennar, segir einnig í fréttinni. Nafn hins sam- einaða fyrirtækis er Valdimar Gíslason ehf. Starfa í matvælaiðnaði Valdimar Gíslason ehf. hefur um áratuga skeið selt vörur og tæki frá mörgum þekktum framleiðendum á sviði matvælaiðnaðar. Meðal vöru- fiokka sem fyrirtækið hefur selt eru áhöld, vélar og tæki fyrir fyrii-tæki í kjötiðnaði og auk þess margs konar krydd og íblöndunarefni fyrir kjöt- vinnslur og matvælaiðnað o.fl. Ispakk ehf. hefur einnig starfað á þessum vettvangi, en það hefur sérhæft sig í innflutningi og sölu umbúða, vörumerkjakerfa og af- greiðslukerfa, auk tengdra vara. Helstu viðskiptavinir fyiirtækisins era fyrirtæki í sjávarútvegi og verslun. Flytur í nýtt húsnæði síðar á árinu í fréttinni segir að með samein- ingu þessara fyrirtækja verði til traust fyrirtæki, sem hefur það að markmiði að uppfylla gæðastaðla nútímasamfélags og bjóða vörar á hagstæðu verði og veita þjónustu í samræmi við kröfur markaðarins. Fyrirtækið mun síðar á þessu ári flytja í nýtt 1.350 fermetra hús- næði í Garðabæ, þar sem fyllstu kröfum um meðferð aðfanga fyrir matvælaframleiðslufyrirtæki verð- ur mætt. Búist er við að velta hins sameinaða fyrirtækis verði um 400 milljónir króna á þessu ári. Stjómarformaður Valdimars Gíslasonar ehf. er Valdimar Valdi- marsson, framkvæmdastjóri er Einar Þórhallsson, og sölustjóri er Svavar Ólafsson. Starfsmenn fyrir- tækisins era 16. mHBHHpiPM! Sæluland í sveitinni Antík á Akureyri Garðverkfærin Eftirlætisstóllinn 5 690691 190002 Jl, D A TL D)Í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.