Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Enginn
árangur í
Afganistan
FULLTRÚAR stjórnarandstöð-
unnar í Afganistan ganga á
samningafund með Talebönum
í Islamabad í Pakistan í gær,
þriðja dag friðarviðræðna
Afgana. Enginn árangur hefur
enn orðið af viðræðunum, sem
Bill Richardson, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum hóf, þar sem ekki
hefur náðst samkomulag um
hverjir taki þátt í þeim. Taleban-
ar, sem eru bókstafstrúar og
ráða stærstum hluta Afganistan,
kreíjast þess að einungis kenni-
menn seljist að samningaborði
en það vill stjórnarandstaðan
ekki sætta sig við.
Netanyahu krefst tilslakana af hálfu Palestínumanna
Yiðbúinn „fordæm-
ingu heimsins“
Jerúsalem í gær er hann kom frá
Kaíró þar sem hann hafði átt fund
með Hosni Mubarak, Egyptalands-
forseta.
Netanyahu kvaðst myndu gera
allt sem hann teldi nauðsynlegt til
þess að „raunverulegur friður“
kæmist á, friður sem ísrael gæti
unað við. Netanyahu og Arafat
munu hvor í sínu lagi eiga fundi
með Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, í London
á mánudag, og sagði Netanyahu í
gær að það væri „hvorki sanngjamt
né raunhæft“ að ætlast til þess að
Israelar létu undan en Palestínu-
menn fengju að „taka því rólega og
bíða þess að tilslakanirnar taki
gildi".
Friðarumleitanir fóru út um þúf-
ur í mars í fyrra þegar Israelsstjórn
leyfði byggingaframkvæmdir í land-
námi gyðinga í Austur-Jerúsalem,
sem Palestínumenn ætla að verði
höfuðborg sjálfstæðs ríkis síns.
Sjálfsmorðssprengjuárásir öfga-
sinnaðra Palestínumanna er orðið
hafa fjölda manns að bana í ísrael
hafa gert illt verra.
Samkvæmt samkomulagi sem
ísraelar og Palestlnumenn gerðu
með sér í Ósló 1993 á endanlegur
friðarsáttmáli að liggja fyrir 4. maí
1999. Yasser Arafat, forseti Palest-
ínumanna, hefur sagt að sáttmálinn
verði að fela í sér ákvæði um sjálf-
stætt ríki Palestínumanna. A mánu-
dag sagði Netanyahu að hann
myndi aldrei leyfa að Palestínuríki
yrði stofnað því slíkt myndi stefna
öryggi ísraels í hættu.
„Við getum ekki og megum ekki
samþykkja að stofnað verði nýtt ír-
an eða írak á hlaðinu hjá okkur,“
sagði Netanyahu.
Jerúsalem. Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, sagði í gær að það
væri undir Yasser Arafat, forseta
Palestínumanna, komið að höggva á
hnútinn í deilunni fyrir botni Mið-
jarðarhafs og sagðist ekki myndu
hætta öryggi Israels til að ná sam-
komulagi. Kvaðst Netanyahu reiðu-
búinn að taka á sig fordæmingu
allrar heimsbyggðarinnar fremur
en tefla Israelsríki í tvísýnu.
Bandaríkjamenn leggja til að
ísraelar dragi herlið sitt til baka frá
13% lands á Vesturbakkanum, en
ísraelar segja að ekki komi til
greina að láta af hendi meira en 9%
því slíkt myndi grafa undan öryggi
landsins.
„Láti ég ekki undan þessum kröf-
um, verð ég þá kallaður Þrándur í
Götu friðarins? Velkist ekki í vafa:
Alveg örugglega, alveg örugglega.
Það munu allir benda á mig. Og
hvað með það?“ sagði Netanyahu í
Reuters
Á öðrum degi verkfallsins í Danmörku færist lömun þjóðfélagsins nær
V1
i
'■ERKFALLIÐ er eins og bú-
ast má við helsta samtalsefni
Dana þessa dagana og í búð-
um og á götum úti taka ókunnugir
tal saman til að miðla reynslusögum.
Andrúmsloftið í Kaupmannahöfn er
því ekki fyrst og fremst þrúgandi,
heldur líflegt með óvenjumikinn
fjölda fólks á öllum aldri á götum úti
í vorveðrinu, enda um 560 þúsund
manns í verkfalli. Verkfallslífið er líf
eins og annað líf, en verkfallið er
þegar farið að breyta gangi hins dag-
lega lífs svo um munar og þar eru
það samgöngumar, eða öllu heldur
skortur á þeim, sem hafa lamandi
áhrif. í gær voru það helst fréttir um
lyfjaskort í lyfjabúðum, sem vöktu
áhyggjur, en síðdegis bárust fréttir
um undanþágur til lyfjaflutninga,
sem ætti að leysa vandann.
Lyfjabúðirnar eru háðar atvinnu-
bílstjómm, sem flestir eru í verk-
falli. I gær voru ýmsar búðanna
farnar að kvarta yfír lyfjaskorti.
Fréttir bárust einnig um að fólk
væri farið að hamstra lyf og því
duga venjulegar birgðir væntanlega
skemur en ella. Sótt hefur verið um
undanþágur, en þær hafa enn ekki
verið veittar. Carsten --------------
Koch heilbrigðismálaráð-
herra hvatti í gær verk-
fallsaðila til að fínna
lausn, svo verkfallið
stefndi ekki sjúklingum í
hættu, en sá vandi virtist
leystur í gær með undanþágum til
bflstjóra lyfjafyrirtækja.
Lestir ganga /
í gær minnkaði flugumferð pfn
Kastmp enn og var nú aðeins tiu
prósent af því, sem búast mætti við
á þessum tíma árs og samá á við um
hinn stóra flugvöllinn í Danmörku,
Billund, sem einnig er alþjóðaflug-
Lyfjaskortur
og lamaðar
••
samgongur
Verkfallslífið er líf eins og annað líf, en á
hverjum degi bætast ný vandamál við,
skrifar Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari
Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn.
Tjón af völd-
um verkfalls-
ins þegar orð-
ið töluvert
völlur. Vorið er vinsæll tími til ráð-
stefna og funda og öllu slíku hefur
nánast undantekningalaust verið af-
lýst þessa vikuna. Þar sem þetta er
góð vertíð fyrir hótelin munu mörg
þeirra verða illa úti, auk þess sem
allnokkur þeirra hafa þegar lokað
vegna verkfallsins.
/7 Venjulegir Danir nota
innanlandsflug ekki mildð,
þar sem það er dýrt, held-
ur er það fólk í viðskipta-
erindum, sem heldur því
uppi. Þegar flugið leggst
~~7~
niður dregur því mjög úr viðskipta-
ferðum, því lestarferðir koma þar
/ ekki í staðinn. Það tekur hálftíma að
fljúga til Árósa, en lestarferð þangað
tekur rúmar fjórar klukkustundir,
svo dagsferð þangað er vart fysileg.
Fólk kemst enn til vinnu
Lestirnar ganga og eins flestar
jámbrautarfeijur, en hins vegar
hafa margar ferjuleiðir lokast og um
leið einangrast fjöldi eyjanna. Lestir
í Kaupmannahöfn ganga, en aðeins
um helmingur strætisvagnanna og
það munar um minna á götunum,
svo umferðin er róleg.
Ekki hafa enn borist fréttir af
fólki, sem ekki kemst í
vinnuna, en þegar bens-
ínskortur fer að segja til
sín mun fólk, sem til
dæmis býr utan Kaup-
mannahafnar fjarri lest- _________
arstöðvum, en vinnur í
borginni, eiga óhægt með að komast
í vinnuna.
Vegna bensínhamsturs hefur lög-
reglan beðið fólk að hafa varann á
sér. í sambýlishúsi nokkru fundu íbú-
amir bensínlykt úr kjallaranum og
kölluðu á lögregluna, sem fann 110
lítra af bensíni þar í lekum og tærð-
um brúsum. Aðeins hefði þurft neista
til að húsið hefði sprungið í loft upp.
Sótt um und-
anþágur, en
þær enn ekki
veittar
Margir smábarnaforeldrar munu
frá og með deginum í dag þurfa að
finna aðra gæslu en leikskólana, því
þeim fyrstu verður lokað 1 dag
vegna þess að ekki fæst þrifið þar og
sorpið er heldur ekki sótt, sem er
ekki auðvelt þar sem bleyjurnar
hrannast upp. Þessi staða gæti hald-
ið einhverjum foreldrum heima.
Bændur eiga erfíða tíma þessa
dagana, bæði sökum yfirvofandi fóð-
urskorts og eins af þvi þeir koma
sláturdýrum ekki frá sér. Dýra-
verndunarfélög hafa slegist í lið með
bændum og hvetja til að veittar
verði undanþágur svo verkfallið
bitni ekki á ferfætlingunum.
Blómabændur sjá fram á millj-
arðatap, því blómin, sem ekki kom-
ast á markaðinn, geymast ekki og
vorið er mesti sölutími þeirra, bæði
sökum mæðradagsins og eins þar
sem fólk er að kaupa jurtir í garðana
sína.
Fréttir og hörgulvara
á Netinu
Á hverjum degi berast fréttir um
nýja vanda og þær heyrir fólk að-
eins í gegnum útvarp og sjónvarp,
--------- sem hafa fjölgað frétta-
tímum sínum, eða les
þær á alnetinu, sem nú er
eini miðill dagblaðanna,
utan hvað Jyllands-Post-
en kemur út. Þar er
“skipulagið annað en á
hinum blöðunum, ekkert verkfall
þar og salan eftir því. En alnetið er
líka fréttamiðill almennings og stað-
urinn til að finna ger, hveiti og aðra
hörgulvöru. Ýmsir senda þangað
ábendingar um hvar finna megi
hana eða segjast hafa misst glóruna
í æsingnum, keypt of mikið og vilja
nú selja eða gefa af umframbirgðun-
Lýsa
ábyrgðá
Palme-
morði
HÁTTSETTUR leiðtogi
kúrdískra samtaka, PKK, sem
tyrknesk yfirvöld tóku hönd-
um fyrr í mánuðinum, fullyrðir
að skæruhðasamtökin, sem
hann stjórnar, beri ábyrgð á
morðinu á Olof Palme 1986, að
því er tyrkneska blaðið Sabah
greindi frá í gær. Leiðtoginn,
Semdin Sakik, va,r handtekinn
í norðurhluta íraks. Hann
sagði að æðsti leiðtogi PKK
hefði gefið fyrirmæli um morð-
ið í hefndarskyni við þá
ákvörðun sænskra stjórnvalda
að framselja átta uppreisnar-
menn PKK. Gerðu tyrknesk
yfirvöld sænska sendiherran-
um grein fyrir þessum fullyrð-
ingum á fundi í gær.
40 myrtir
í Alsír
FJÖRUTÍU manns voru
myrtir í fyrrinótt í þorpi í suð-
urhluta Álsír, að því er örygg-
issveitir stjórnvalda þar
greindu frá í gær. Ekki kom
fram hvort um hefði verið að
ræða óbreytta borgara eða
hermenn, og ekki var tekið
fram hverjir bæru ábyrgð á
verknaðinum.
Dauðaddmar
í Nígeríu
HE RDÓMSTÓLL í Nígeríu
dæmdi í gær fyrrverandi
næstæðsta mann ríkisins og
fjóra aðra til dauða fyrir til-
raun til að ræna völdum. Ola-
dipo Diya yfirhershöfðingi og
samverkamenn hans reyndu
að steypa herstjóm Sani
Abaeha. Tuttugu og sex voru
ákærðir, sjö dæmdir í fangelsi
og 14 sleppt lausum.
Cherie Blair
á Netið
CHERIE Blair, eiginkona for-
sætisráðherra Bretlands,
hyggst birta dagbók sína á eig-
in heimasíðu,
er tengd
verður
heimasíðu
forsætisráðu-
neytisins.
Verður þar
birtur listi
yfir það sem
forsætisráð-
Cherie Biair herrafrúin
tekur sér fyrir hendur, t.d. op-
inberar heimsóknir og góð-
gerðarstörf.
Sjúklingar
tilraunadýr
NORSKIR og bandarískir vís-
indamenn gerðu tilraunir með
tengsl geislavirkni og ófrjó-
semi á geðsjúklingum á norsk-
um sjúkrahúsum á sjötta og
sjöunda áratugnum, að því er
Dagbladet greindi frá í gær.
Fólk, sem talið var andlega
vanheilt eða geðveikt, var not-
að sem tilraunadýr í prófunum
á líf- og erfðafræðilegum áhrif-
um röntgengeisla, m.a. til vön-
unar. Tilraunirnar fóru fram
með leynd á þrem sjúkrahús-
um í Ósló.
\
í
>
I