Morgunblaðið - 29.04.1998, Síða 29

Morgunblaðið - 29.04.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 29 Yið LOKASÓKN Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði er hafin. Ég treysti því að Hafnfirðingar feli Sjálfstæðis- flokknum forystuhlutverk í stjórn bæjarmála næstu fjögur árin, enda er okkur sjálfstæðismönnum best treystandi til að endurreisa orðstír bæjarins. A fundi stuðningsmanna flokksins í húsi tónlistarskólans í kvöld mörkum við upphafið að enda- sprettinum í baráttunni fyrir bættu samfélagi í bænum okkar. Því miður hefur að undanförnu skort verulega á mai-kvissa stjórnun bæjarins og einingu meðal fulltrúa ríkjandi meirihluta. Það hefur skað- að ímynd og traust bæjarfélagsins. Þessu verðum við að breyta. Framundan eru verkefni sem kalla á öguð og vönduð vinnubrögð. Fjármál og stjórnun bæjarins endurskipulögð Hafnarfjörður er því miður meðal skuldugustu sveitarfélaga í landinu, þrátt fyrh- að hér séu skattaálögur með því hæsta sem þekkist. Sjálf- stæðisflokkurinn mun leita leiða til þess að lækka skuldir og gæta ýtr- ustu ráðdeildarsemi í framkvæmd- um, draga úr rekstrarútgjöldum bæjarsjóðs, m.a. með útboðum ein- stakra rekstrarþátta og einkavæð- ingu. Flokkurinn mun stöðva skulda- söfnun bæjarins og endurskipu- leggja fjármál hans með endurfjár- mögnun lána, lækkun vaxta, leng- ingu lánstíma og þar með lækkun greiðslubyi’ði. Með því einu að ná tökum á fjármálum bæjarins verður unnt að ráðast í nauðsynlegar fram- kvæmdir í bænum á næstu árUm. Sjálfstæðisflokkurinn mun síðar á hefjum sigursókn þessu ári kynna bæjar- búum framkvæmda- áætlun bæjarins til næstu tíu ára og endur- skipuleggja stjóm- skipulag hans með það að markmiði að ná fram aukinni skilvirkni stjórnsýslu sem leiða mun til hagræðingar og sparnaðar. Skilyrði til atvinnu- rekstrar bætt Sjálfstæðisflokkurinn mun kappkosta að bæta hag fyrirtækja í bænum og laða að nýja atvinnu- starfsemi til þess að treysta atvinnulif í Hafnarfirði. Markmiðið er að skilyrði til atvinnu- rekstrar í bænum verði jafn góð því sem best gerist í öðrum sveitarfélög- um. I þessu skyni mun Sjálfstæðis- flokkurinn m.a. lækka fasteigna- skatta á fyrirtækjum. Sjálfstæðisflokkurinn mun leiða bæjarfélagið af þeirri braut sem nú- verandi stjórnvöld Hafnarfjarðar hafa leiðst inn á og felst m.a. í því að hygla einstaka fyrirtækjum á kostn- að annarra. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar einnig fjárframlögum og ábyrgðum bæjarsjóðs til einstakra fyrirtækja. Grunnskólinn cinsetinn árið 2001 Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að gera Hafnarfjörð að fyrirmynd ann- arra sveitarfélaga í skólamálum og verður auknu fé varið til þessa mála- flokks á næsta kjörtímabili. Starf- semi grunnskólanna verður efld og það markmið sett að þeir verði einsetnir frá og mep hausti 2001. Asamt byggingu nýs skólahúsnæðis verður tryggt að forsendui’ ein- setningar grunnskól- anna standast og gert ráð fyrir að íþróttasalir verði við alla skólana. Mætt verður þörfum hvers og eins nemanda í námi. Stuðlað verður að auknu samstarfi íþrótta- félaga og skóla, aðstæð- ur skapaðar íyrir öflugt félagsstarf nemenda og unnið að bættum kjörum kennara. Forvarnastarf verður aukið í skólastarfinu og tekin upp samvinna við foreldrafélög og frjáls félagasam- tök þar um. Móta þarf framtíðarstefnu bæjar- ins í íþróttamálum og samræma hana framtíðarsýn í skólastarfi í bænum. Dagvistarstyrkir til foreldra Það er til vansa fyrir Hafnarfjörð hve lengi foreldrar barna þurfa að bíða eftir dagvistarrými fyrir þau. Með byggingu nýrra dagvistarstofn- ana munu sjálfstæðismenn tryggja að öllum börnum í Hafnarfirði, frá tveggja ára aldri, bjóðist pláss á slíki’i stofnun frá 1. september árið 2000. Verður fyrsta ski-efið að þessu leyti stigið nú í haust með byggingu leikskóla á Hvaleyrarholti og stækk- un leikskólans á Hörðuvöllum. Undanfarið hefur skort verulega á markvissa stjórnun Hafnarfjarð- ar, segir Magnús Gunn- arsson, og endurreisa þarf orðstír bæjarins. Uns því markmiði verður náð sem að ofan er lýst, verður foreldrum allra bai’na sem ekki fá pláss fyrir þau á leikskóla, greiddur mismunur- inn á dagvistargjöldum og þeim kostnaði sem hlýst af vistun bai-n- anna hjá dagmæðrum. Samstarf í skipulags- og byggingamálum Sjálfstæðisflokkurinn mun eiga náið samstarf við bæjarbúa á sviði skipulags- og byggingamála og leita á hverjum tíma hagkvæmustu lausna í málefnum sem varða þennan mála- flokk. Sjálfstæðismenn munu tryggja að Hafnfirðingum og þeim sem til bæjarins vilja flytjast, standi ávallt til boða hentugar byggingalóð- ir og húsnæði. Næsta stóra bygg- ingasvæði Hafnfirðinga verður As- land og hefur Sjálfstæðisflokkurinn einsett sér að þar verði lóðir til út- hlutunar um mitt næsta ár. í beinu framhaldi af upphafl byggingafram- kvæmda á þessu sviði verður hafíst handa við uppbyggingu Ásvalla. Eitt brýnasta hagsmunamál Hafn- flrðinga í samgöngumálum er að byggður verði nýr vegur sem léttir umferð af Reykjanesbraut um Hafn- Magnús Gunnarsson Ný sveitarstj órnarlög- - Atlaga að almannarétti í FRUMVARPI sem ríkisstjóm Davíðs Oddssonar hefur lagt fram er gert ráð fyrir að miðhálendinu verði skipt upp milli örfárra sveitarfélaga og sveit- arstjórnum í þeim sveitarfélögum verði veitt öll völd á öræfum landsins sem er um það bil helmingur alls Is- lands. Þetta geta jafn- aðarmenn ekki fallist á. Ekkert getur réttlætt að lögbinda svo afdrifa- ríkt ákvæði. Það virðist ríkisstjómin samt ætla að gera í bullandi ágreiningi við þjóðina. Þjóðarauð- lind sem felst í ósnortnum víðlend- um hálendisins - söndum, jöklum, hraunum og gi’óðurvinjum, á að vera sameign allrar þjóðarinnar og Alþingi ber að tiyggja þjóðarsátt um stjórn og skipulag svæðisins. Al- þingi ber einnig að tryggja að meiri hluti þjóðai’innar, eða þau 70% íbúa landsins sem búa á SV-hluta lands- ins, komi að stjórn og skipulagi þessa sameiginlega svæðis. Atlaga að almannarétti Fólkinu í landinu þykir vænt um öræfi landsins og nýtir þau í æ rík- ari mæli til gönguferða, útreiða, sleða- og skíðaferða. Menn sjá í ör- æfum landsins aukna möguleika til lífsfyllingar. Auðvitað er eðlilegra að fleiri en íbúar þeirra sveitarfé- laga sem liggja að miðhálendinu standi að mótun og skipulagningu þessa svæðis. Ailir landsmenn verða að geta treyst því að almannaréttur ráði ferðinni, til dæmis réttur al- mennings til umferðar um landið, en ekki hagsmunir einstakra sveit- arfélaga. Landeigendur og sveitar- félög hafa í mörgum tilvikum beitt útivistarfólk valdi og þrengt að ferðaþjónustunni. Að mati margra hafa árekstrar af þessu tagi aukist hin síðari ár með meiri umferð utan byggða. Tillaga um skiptingu miðhálendis milli fárra sveitarfé- laga er gróf atlaga að almannarétti í þessu landi. I þessu felst ekk- ert vantraust á sveitar- félögin, enda hafa jafn- aðarmenn verið frum- kvöðlar í að efla sveit- arfélögin með flutningi valds frá ríki til sveit- arfélaga varðandi mál- efni sem snúa að sveit- arfélögunum sjálfum. Samræmt skipulag Nauðsynlegt er að skipulagning miðhá- lendisins byggist á heildarsýn svo gætt verði samræmis á öllu svæðinu en þann þátt geta einstök sveitarfé- lög ekki ti’yggt. Þær hugmyndir hafa heyi’st að í farvatninu séu tillögur til að sætta ólík sjónamið innan ríkis- stjórnai-flokkanna. Hugmynd um að skipa nefnd með fulltrúum lands- hlutasamtaka sem fjalla á um svæð- isskipulag á miðhálendinu, en ganga að öðru leyti þá leið sem frumvarpið leggur til, þ.e. að miðhálendið skipt- ist milli nærliggjandi sveitarfélaga sem fara með aðal- og deiliskipulags- rétt, er ekki nægjanleg aðgerð til að tryggja samræmt skipulag á miðhá- lendinu. Stjómskipuleg staða svæð- isskipulags er miklu veikari en aðal- skipulag sem er eitt helsta stjórn- tæki sveitarstjóma til að koma sín- um pólitísku áhersluatriðum í fram- kvæmd enda speglar aðalskipulag gjarnan framtíðarsýn stjórnvalda. Svæðisskipulag byggist á heimild en ekki skyldu og því er ætlað að verða leiðbeinandi við aðalskipulag hvers sveitarfélags. Svæðisskipulag kemur aldrei til með að takmarka heimild sveitarstjóma til aðalskipulags og því síður deiliskipulags. Það eru því ólík sjónai-mið og mismunandi hags- munir einstakra sveitarfélaga sem munu ráða ferðinni á miðhálendinu í framtíðinni. Tillaga um skiptingu miðhálendis milli fárra sveitarfélaga, segir Rannveig Guðmunds- dóttir, er gróf atlaga að almannarétti í þessu landi. Verkefnin sem flytjast Mikill hluti auðlinda þjóðarinnar liggur á hálendi Islands og engin stefna hefur verið mótuð um nýt- ingu þessara auðlinda. Stefnumörk- un í orkumálum s.s. ákvörðun um hámarksnýtingu vatns- og varma- orku, sem og stefna í ferðamálum á miðhálendinu og ákvörðun um stað- setningu þjóðgarða, hefur ekki ver- ið mótuð af yfirvöldum. Sem dæmi um hvaða verðmæti eru á ferðinni er orkuþátturinn sem menn eru að fjalla um álíka að verðmæti og öll ís- lensku fískimiðin eru í dag. Þetta eru allt verkefni sem færðust yfir til sveitarfélaganna við skipulagningu hálendisins. Vegalagning, mann- virkjagerð, afmörkun virkjunar- svæða, verndunarsvæða og ákvörð- un um þjóðgarða eru þættir sem ákvarðaðir verða í aðalskipulagi sveitarfélaganna svo og uppgræðsla landsvæða, beitarafnot, umferð yfir viðkvæm svæði og svo framvegis. Þetta eru verkefni sem snúa að landinu öllu og engin rök til þess að fámenn sveitarfélög fari með ákvörðunai’vald á þessu sviði. Réttlæting á því að sveitarfélög fari með valdið og ábyrgðina Stundum hefur nálægð sveitarfé- lags við öræfi landsins, sérstök þekking heimamanna eða langvar- andi nýting þeirra á svæðinu verið notuð sem rök fyrir því að stað- bundin stjórnvöld væru betur en aðrir til þess fallin að fara með Rannveig Guðmundsdóttir stjórn þessara svæða. Þetta er ekki rétt því stór hluti þeirra svæða sem frumvarpið gerir ráð fyrir að skipt verði upp milli þeirra er oft í óra- fjarlægð frá viðkomandi sveitarfé- lögum. Um er að ræða víðfeðm svæði sem lítil sem engin umferð hefur verið um frá upphafi byggðar og er vert að nefna í því sambandi allt Odáðahraunið, svæðið norðan Vatnajökuls, Sprengisand, Nýjadal, Veiðivatnasvæðið og svæðin fyrir norðan Tungnárjökul svo og alla jökla landsins, þ.m.t. sjálfan Vatna- jökul. Þessir hlutar landsins opnuð- ust mönnum ekki fyrr en um miðbik þessarar aldar og þá fyrir tilstilli áhugamanna um útivist enda eru örnefni á þessum stöðum sjaidan eldri en hálfrar aldar gömul. Bænd- ur nýttu þessi svæði ekki og lítil sem engin umferð var um þessi víð- feðmu svæði, enda engar þekktar þjóðleiðir. Það er því hvorki þekk- ing sveitarfélaganna á þessum svæðum, nálægð við þau né langvarandi nýting umfram aðra sem rökstutt getur kröfu þeirra um algjör umráð óbyggðanna. Þ\’ert á móti hefur áhugafólk um útivist úr þéttbýlinu verið hvað ötulast við að nýta þessar víðáttur. Langvarandi heimild til búfjárbeitar á afréttum skapar heldur engan eðlilegan grundvöll að stjórnsýsluyfirráðum í nútímaskilningi, enda er það óeðli- legt að afréttarrétthafinn sjálfur fari með þann þátt skipulagsmála sem ákvarðar t.d. gi’óðui’vernd sem felst í beitarfriðun. Miðliálendið sérstök stjórnsýslueining Við jafnaðarmenn höfum lagt til á Alþingi að miðhálendið verði sér- stök stjórnsýslueining sem lýtur einni stjórn með aðkomu fulltrúa allra landsmanna. í tillögunni er miðað við að mörk þess verði dregin milli heimalanda og afrétta en um þau mörk hefur náðst samstaða hjá sveitarfélögum sem liggja að miðhá- lendinu. Það er afdráttarlaus skoðun jafn- aðarmanna að líta beri á miðhálend- ið sem eina stjórnsýslu- og skipu- lagslega heild undir einni landskjör- inni stjórn með aðkomu sveitarfé- laganna. Höfundur er þingmaður jafnaðar- manna. arfjörð, með lagningu brautarinnar í stokk og/eða byggingu nýs ofan- byggðavegar. Mun Sjálfstæðisflokk- urinn beita sér fyrir því af fullum þunga. Einnig þarf að flýta vegteng- ingu Hvaleyrarholts við Reykjanes- braut. Verndum hafnfirskt umhverfi I umhverfismálum leggur Sjálf- stæðisflokkurinn áherslu á vemdun umhverfisins og fegrun þess. í bæn- um eru fjölmargar náttúruperlur sem ber að vemda. Ospillt náttúra er auðlind sem skylt er að varðveita. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að kostir hafnfirsks um- hverfis fái sem best notið sín við uppbyggingu útivistai’svæða. Trjá- gróður verði notaður til fegrunai’ og skjólbelti ræktuð þar sem því verður við komið. Hafnarfjörður er skammt á veg kominn í fráveitumálum samanborið við nágrannasveitarfélögin. Sjálf- stæðisflokkurinn leggur áherslu á að svo fljótt sem auðið er verði ráðist í byggingu mannvirkja sem fylgja út- rásum fyi’ir frárennsli bæjarins. Þjónusta við aldraða bætt Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á öflugar heilbrigðisstofnan- ir í bænum. Flokkurinn mun standa vörð um St. Jósefsspítala, sem þjón- að hefur bæjarbúum í yfir sjötíu ár, og styðja eflingu og stækkun hans. Sjálfstæðisflokkurinn mun stuðla að aukinni heimahjúkrun og heimil- ishjálp til handa öldruðum. Flýtt verður uppbyggingu á Sólvangi og aðbúnaður sjúklinga bættur enn frekar. Stuðlað verði að stækkun Hrafnistu með samstarfi við þá stofnun. Þjónustuíbúðh’ fyrir aldraða verða byggðar í þeim bæjarhlutum þar sem best má koma til móts við þai’fir þeirra. Treystum Sjálfstæðis- flokknum til forystu Við Hafnfirðingar göngum til kosninga 23. maí næstkomandi, mik- ilvægustu kosninga í bænum um ára- tugaskeið. Þá ræðst hvort tekst að snúa bæjarfélaginu af þeirri óheilla- braut sem núverandi bæjai’yfirvöld hafa fetað. Ég er sannfærður um að stefnu- mál sjálfstæðismanna falla Hafnfh’ð- ingum vel í geð og hvet kjósendur til þess að gefa okkur tækifæri til að hrinda þeim í framkvæmd. Höfundur er oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði. Með allt á hreinu! MO-EL rafeindastýrð hreinlætistæki, þar sem höndin snertir ekki. Blöndunartæki kr. 18.500,- Handþurrka kr. 13.787,- MA37 Fyrir heimilid -v,cl og vinnustaðinn B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 533 2800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.