Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 32

Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNB LAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf„ Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SKATTAR Á ÆYIKVELDI SKÝRSLA um stöðu eldri borgara í OECD-ríkjum, sem ný- lega var lögð fram á Alþingi, staðfestir, að á heildina litið eru kjör fullorðins fólks hér á landi sízt lakari en í saman- burðarríkjum. Ljóst er engu að síður að staða eldri borgara er mjög mismunandi. Samtök þeirra telja og að aldraðir hafi orðið fyrir töluverðum búsifjum vegna skerðingar á tekju- tryggingu og öðrum greiðslum úr tryggingakerfinu. Astæðan sé sú að skerðing á bótum hefjist við alltof lágt mark. Talsmenn samtakanna hafa og leitt rök að því að tekjur aldraðra af sparnaði í lífeyrissjóðum eigi að falla undir ákvæði laga um skattlagningu fjármagnstekna. Morgunblaðið greinir frá því í gær að Guðmundur H. Garðarsson, formaður Sam- taka eldri sjálfstæðismanna, hafi farið fram á það við formann Sjálfstæðisflokksins að kannað verði, hvort tveir þriðju eftir- launa umfram skattleysismörk falli undir ákvæði laga um skattlagningu fjármagnstekna, þ.e. 10% skatt í stað 39%. Aðhaldssöm efnahagsstjórn og uppsveifla í þjóðarbúskapn- um hafa leitt til hallalauss ríkisbúskapar tvö ár í röð, 1997 og 1998, í fyrsta sinn síðan 1985. Mikilvægt er að nýta tekjur rík- issjóðs umfram útgjöld til að greiða niður opinberar skuldir. Batann má einnig nýta til að létta skattbyrði, einkum þeirra hópa sem sérstöðu hafa, eins og eldri borgara og ungs barna- fólks sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið. I því sam- bandi hefur m.a. verið rætt um hækkun skattleysismarka og frítekjumarks tekjutryggingar, til að verja kjör aldraðs fólks og draga úr neikvæðum áhrifum jaðarskatta. Eldri borgarar eru nú um 27 þúsund talsins, eða tíundi hluti þjóðarinnar, og hlutfall þeirra í íbúatölu landsins fer stöðugt hækkandi. Líkur standa til, samkvæmt tilvitnaðri skýrslu um stöðu aldraðra, að þeir verði fimmtungur þjóðar- innar árið 2030. Þjóðfélagið verður að laga sig að þessari breyttu aldursskiptingu þjóðarinnar, m.a. á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu. Hagkvæmast er að búa þann veg um hnúta að aldraðir geti dvalið sem lengst á eigin heimilum. Til þess þarf m.a. að gæta hófs og sanngirni í skattalegri meðferð þess sparnaðar og þeirra tekna, sem fullorðið fólk hefur sér til framfæris á ævikveldi. DANIR LEGGJA NIÐUR YINNU TIL skamms tíma virtist sem Dönum hefði tekist að leysa öll þau vandamál er einkenna vinnumarkaði flestra vest- rænna ríkja. Deilur atvinnurekenda og launþega um kaup og kjör heyrðu að margi'a mati sögunni til. Það mætti ekki síst rekja til þess hversu útbreiddir vinnustaðasamningar væru orðnir sem samningsform í Danmörku, sem stuðlaði að veru- legum sveigjanleika á vinnumarkaði. Þetta fyrirkomulag tryggði Dönum stöðugleika á vinnu- markaði í rúman áratug og því kom það flestum í opna skjöldu er samningar er nýlega tókust voru felldir í síðustu viku og umfangsmikið verkfall hófst aðfaranótt mánudagsins. Sam- göngur til og frá Danmörku hafa smám saman verið að lamast og tómar verslanir hafa þótt minna á vöruskort stríðsáranna. Ástæða verkfallsins virðist ekki síst vera sú að öflug sam- tök atvinnurekenda, Dansk Industri, vildu í síðustu samning- um víkja frá vinnustaðasamningsforminu og gera þess í stað umfangsmikla allsherjarsamninga fyrir iðnfyrirtæki, til að koma í veg fyrir að einstaka greinar semdu um verulega betri kjör en aðrar. Þá vekur það jafnframt athygli að það var ekki ágreiningur launþega og atvinnurekenda um launagreiðslur, sem var kveikjan að verkfallinu í Danmörku. Það strandaði ekki á kröfum um kauphækkanir, heldur fleiri frídaga til við- bótar við þær fimm orlofsvikur, sem danskir launþegar eiga nú þegar rétt á. Að auki virðist það hafa skipt miklu máli að launþegasamtökum misbauð framkoma Dansk Industri í samningaviðræðunum. Átökin á danska vinnumarkaðnum eru ekki síst fróðleg í ljósi þess að Islendingar hafa á undanförnum árum horft til Danmerkur varðandi skipulag kjarasamninga og talið að þar gæti verið að finna fyrirmynd fyrir ísland. Verkfallið í Dan- mörku breytir ekki miklu þar um. Líklega verður aldrei með öllu hægt að koma í veg fyrir vinnudeilur í frjálsum þjóðfélög- um. Hins vegar verður lærdómsríkt að sjá hvernig og hversu skjótt Danir leysa þessa deilu, ekki síst í ljósi þess að danska stjórnin hefur margsinnis lýst því yfir að hún muni ekki stuðla að lausn deilunnar með pólitískum hætti. Nýtt frumvarp til leiklistarlaga til umfjöllunar í menntamálanefnd Alþingis Ráðningartími þjóðleik- hússtjóra veldur titringi Talsverðrar óánægju gætir í röðum leikhús- fólks með hið nýja frumvarp til leiklistarlaga sem menntamálaráðherra lagði fram á Al- þingi í desember sl. Frumvarpið hefur verið til umfjöllunar hjá menntamálanefnd Al- þingis og hafa athugasemdir streymt inn, sumar býsna hvassyrtar. Hávar Sigurjóns- son kynnti sér í hverju þær eru fólgnar. EITT ákvæði hins nýja frum- varps til leiklistarlaga hefur fyrst og fremst valdið titr- ingi en það fjallar um breyt- ingar á ráðningartíma þjóðleikhús- stjóra og breytt fyrirkomulag við skipan þjóðleikhúsráðs. Einnig er greinileg óánægja með kafla frum- varpsins er lýtur að annarri leiklist- arstarfsemi, svo og fyi'irhugaðar breytingar á skipan og starfsemi leik- listaiTáðs. Aðrir benda á kosti frumvarpsins og segja það mjög til bóta, það leysi af hólmi úrelt lög um Þjóðleikhúsið, geri löngu tímabærar breytingar á skipan leiklistarráðs, sé markvisst og án málalenginga um smáatriði. Talsmenn stéttarfélaga leiklistar- fólks og forsvarsmenn annarra hags- munahópa hafa einnig lýst óánægju sinni með að ekki skyldi leitað álits þeirra meðan frumvarpið var á undir- búningsstigi, fáir hafí t.a.m. séð frumvarpið íyrr en um það bil sem það var lagt fram á Alþingi. Stjórn Félags íslenskra leikara gengur reyndar svo langt í athugasemdum sínum að telja frumvai'pið „...í megin- atriðum svo gallað að réttast væri að vinna það að stórum hluta upp aftur.“ Björn Bjarnason menntamálaráð- herra vildi ekki tjá sig efnislega á þessu stigi um þær athugasemdir sem komið hefðu fram við frumvarp- ið, hann teldi eðlilegt að bíða þar til menntamálanefnd hefði lokið störfum sínum og skilað áliti. Ráðningartími þjóðleikhússtjóra Ótti leikhúsfólks við breytingar á núverandi fyrirkomulagi um ráðn- ingu þjóðleikhússtjóra er greinilegur og taka sumir gagnrýnendur frum- varpsins svo djúpt í árinni að telja það klára afturför. í frumvai-pinu er gert ráð fyrir að þjóðleikhússtjóri skuli skipaður til fimm ára í senn að fenginni umsögn þjóðleikhúsráðs. Síðar í sömu gi'ein segir: ,Ætíð skal auglýsa embættið laust til umsóknar ef sami maður hefur gegnt því tvö eða fleiri tímabil." Þetta er veigamikil breyting því samkvæmt núgildandi Þjóðleikhúslögum getur sami ein- staklingur ekki gegnt embættinu lengur en í átta ár, þ.e. tvö fjögurra ára tímabil. Hefur leikhúsfólk al- mennt verið ánægt með þessa skipan mála og greinilegt að margir óttast þaulsætni sama einstaklings \ emb- ættinu. I athugasemdum FLI (Fé- lags leikstjóra á Islandi) segir m.a: Stjórnin (FLI) telur nauðsynlegt að halda takmörkum á heildarráðning- artímanum, þannig að hann verði ekki lengri en tvö tímabil. Eðli þessa starfs er að þjóðleikhússtjóri fái mikil völd og það hefur í för með sér að smekkur og skoðanir þessa eina manns ráða verkefnavali og manna- ráðningum. Núverandi fyrirkomulag á takmörkun ráðningartímans trygg- ir að slík einokun á smekk og vali listamanna ráði ekki nánast heilan mannsaldur.“ Stjórn Leiklistarsambands Islands tekur í sama streng og segir í athuga- semdum sínum: „Leik- listarsambandið telur, að í litlu samfélagi þar sem atvinnumöguleikar í list- greininni eru takmark- aðir, geti það reynst vafasamt að listrænn stjórnandi sitji lengur en 10 ár í embætti. Ef þessi tími verður lengri, þá vex upp heil kynslóð nýira leiklistarmanna án þess að skipt sé um þjóðleikhústjóra. Leikhúsfólk hefur um árabil barist fyrir því að sett yrðu tímamörk um ráðningu stjórnenda listastofnana, og fagnaði því mjög þegar 8 ára reglan (nú 10 ár) var sett með núverandi lögum um þjóðleikhús. Það væri því mikil afturför ef þessi tímamörk féllu í raun niður.“ Stjórn FIL (Félag íslenskra leik- ara) tekur undir þessi sjónarmið og segir jafnframt „...að það geti verið mjög hættulegt fyrir listina í landinu ef einn og sami einstaklingur situr lengur en 10 ár í svo mótandi og veigamiklu starfi. Um Þjóðleikhús okkar verða að fá að leika ferskir vindar þar sem ný listræn sjónarmið fá að blómstra.“ Núverandi þjóðleikhússtjóri, Stef- án Baldursson, er á annarri skoðun og segir það „... mjög til bóta að af- nema hámarksráðningartíma þjóð- leikhússtjóra, enda mun það hvergi þekkjast í heiminum að slíkur kvóti sé settur á ráðningu leikhússtjóra. Störf hans eru lögð í dóm í lok hvers fimm ára ráðningartímabils og því hægðarleikur að endurráða ekki við- komandi, séu menn óánægðir með frammistöðu hans. Þá er sömuleiðis skynsamlegt ákvæði um að eftir tvö samfelld ráðningartímabil sé skylt að auglýsa starfið, þannig að öllum verði ljóst hvert framboð er á fólki til starfans." Þórarinn Eyfjörð, formaður Bandalags atvinnuleikhópa, (BAAL) segist hafa verið einn þeirra sem studdi núverandi þjóðleikhússtjóra þegar hann gerði þær breytingar sem hann taldi nauðsyn- legar á starfsmannahaldi Þjóðleikhússins í upphafi starfs síns. „Eg var sam- mála þeim rökum sem hann setti fram þá um nauðsynlega endurnýjun og hreyf- ingu. Eg er enn sömu skoðunar. Því tel ég nauðsynlegt að takmarka starfstíma þjóðleikhússtjóra hverju sinni." Skipan þjóðleikhúsráðs Núverandi skipan ráðsins er með þeim hætti að stjórnmálaflokkarnir fjórir eiga hver sinn fulltrúa og stofn- unin þann fímmta. I frumvarpinu er gert ráð fyrir að menntamálaráð- herra skipi þrjá fulltrúa og Leiklist- arsamband Islands tilnefni tvo. Þá sé einn áheyrnarfulltrúi úr röðum starfsmanna leikhússins. „Þetta er sú breyting frá núgildandi lögum sem ég efast helst um að sé til bóta,“ segir Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri. „Varðandi bein tengsl þjóðleikhús- ráðs við stjórnvöld, virðist núgildandi fýrirkomulag lýðræðislegra og hefur gefíst mjög vel í reynd. Stjórnmála- flokkamir hafa tilnefnt í þjóðleikhús- ráð fagfólk, þ.e. listamenn úr leikhús- heiminum eða úr öðrum listgreinum, sem tengjast leikhúsinu og hafa þetta reyndar stundum verið listamenn, sem jafnframt hafa haft afskipti af stjórnmálum og setið á þingi um lengri eða skemmri tíma.“ Undir þetta sjónannið taka stjórn Leiklistarsambandsins, stjórn félags leikara og stjórn félags leikstjóra. Öllum ber þeim saman um að telja nauðsynlegt að þjóðleikhúsráð teng- ist Alþingi með þeim beina pólitíska hætti sem nú er og að leikhúsráðið sé skipað fólki „...sem ekki hefur bein tengsl inn í aðrar leiklistarstofnanir," eins og segir í athugasemdum stjórn- ar Leiklistarsambandsins. Þar er klykkt út með eftirfarandi: „Aðalat- riðið er að núverandi fyrirkomulag hefur reynst með ágætum." „Öðruvísi mér áður brá...,“ sagði einn viðmælandi úr röð- um stjórnmálamanna, „...að leiklistarfólk sé að biðja um pólitísk afskipti með þessum hætti.“ í ýmsum athugasemdum við frumvarp- ið er bent á að þar sé alls ekki gert ráð fyrir að pólitískum afskiptum ljúki, heldur verði þau einsleitari, þar sem áhrif menntamálaráðherra á hverjum tíma verða afgerandi í þjóð- leikhúsráðinu með skipan þriggja af fímm fulltrúum. Þjóðleikhúsið eitt er nefnt á nafn Mikil óánægja er með þá ráðstöfun að nafngreina enga leiklistarstofnun aðra en Þjóðleikhúsið í frumvarpinu. I gildandi lögum er kveðið á um að ríkið skuli styðja Leikfélag Reykja- víkur, Leikfélag Akureyrar, Banda- lag íslenskra leikfélaga, ásamt stuðn- ingi við aðra leiklistarstarfsemi og óperustarfsemi. I frumvarpinu er þetta orðað með eftirfarandi hætti: „Auk framlaga til Þjóðleikhússins veitir Alþingi árlega fé í fjárlögum til stuðnings annarri leiklistarstarfsemi bæði atvinnumanna og áhugaleikfé- laga.“ Stjórn Leikfélags Reykjavíkur brást hart við og mótmælti harðlega: „Það verður því að teljast með ólík- indum að hér skuli komið fram nýtt frumvarp til leiklistarlaga, án þess að minnst sé þar einu orði á Leikfélag Reykjavíkur. Þetta er meiri breyting en virðist í fljótu bragði - það segir í raun að LR sem nefnt hefur vei’ið „vagga íslenskrar leiklistar" á sér ekki lengur neina stoð í lögum.“ Stjóm Leiklistarsambandsins tek- ur undir þessar áhyggjur Leikfélags- fólks og þykir „miklu varða að Leikfé- lag Reykjavíkur, Leikfélag Akureyr- ar og íslenski dansflokkurinn eigi sér stoð í leiklistarlögum." „Með þessu er í raun verið að gefa valdhöfum hverju sinni algerlega frjálsar hendur með stuðningi við einstakar greinar og einstaklinga eða hópa innan hverrar greinar. Fjái-veitingar og stuðningm' geta því orðið háðar duttlungum og smekk fjárveitingavaldsins hverju sinni,“ segir stjóm BAAL í athuga- semdum sínum. Talsmenn frumvarps- ins telja þetta atriði einmitt til helstu kosta þess og að með því fái mennta- málaráðuneytið frjálsari hendur til að styðja við aðra aðila en Þjóðleikhúsið enda segir í frumvarpinu: ,Að því leyti sem framlög til einstakra aðila eru ekki ákveðin í fjárlögum hverju sinni annast mennntamálaráðuneytið úthlutun þess fjár sem veitt er sam- kvæmt þessari grein.“ Leiklistarráð lagt niður Hvað Leiklistarráð varðar vilja flestir ganga skrefi lengra en gert er í frumvarpinu og leggja leiklistarráð alveg niður og fela stjórn Leiklistar- sambandsins þau verkefni sem fram- kvæmdastjóm Leiklistarráðs hefur annast. Undanfarin ár hefur megin- verkefni framkvæmdastjórnar leik- listamáðs verið að úthluta styrkjum og starfslaunum til atvinnuleikhópa og vera faglega ráðgefandi við menntamálaráðuneytið varðandi mál- efni leiklistar. I frumvarpinu er þetta hlutverk skilgreint enn frekar og felld út önnur ákvæði, sem aldrei hafa ver- ið uppíyllt, um verksvið leiklistamáðs. Núverandi leiklistamáð er skipað 34 fulltrúum atvinnu- og áhugaleiklistar- innar í landinu en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að leiklistamáð verði skipað 5 mönnum, þremur tilnefndum af Leiklistarsambandinu, einum til- nefndum af Bandalagi áhugaleikfé- laga og einum af menntamálaráð- hema. Tillögur Leiklistarsambands- ins eru skýi-ar í þessu efni: „Leiklist- arráð verði lagt af en stað þess velji fulltrúaráð (ekki stjórn) Leiklistar- sambandsins 3 menn í úthlutunar- nefnd, Bandalag íslenskra leikfélaga velji einn og einn sé skip- aður af ráðhema án til- nefningar. Stjórn Leik- listarsambandsins veiti umsögn um þau mál er varða leiklist í landinu og menntamálaráðuneytið vísar til ráðs- ins.“ Um þessa framtíðarskipan mála virðast allir hagsmunaaðilar sam- mála, enda sitja í Leiklistarsamband- inu „...fulltrúar allra þeima stofnana og félaga sem leggja stund á leiklist hér á landi og þar er því saman komin mikil og víðtæk reynsla, þekking og kunnátta. Sambandið er jafnframt tengiliður íslenska leiklistarheimsins við Nomæna leiklistarsambandið og Alþjóðaleikhúsmálastofnunina," segir Stefán Baldursson, þjóðleikhússtjóri og fyrrverandi formaður Leiklistar- sambandsins. + Leikarar vilja láta semja nýtt frumvarp Leikfélag Reykjavíkur ekki nefnt á nafn MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 33. Veitt einkaleyfi á íslandi 1980-97 Áfrýj unarnefndir - tískubóla eða réttarbót? Við lestur bókarinnar Einkaleyfaréttar, sem kom út fyrir skemmstu, fór Páll Þórhallsson að hugleiða hvort nógu mikils samræmis væri gætt þegar löggjafínn ákveður að setja á fót svokallaðar áfrýjunar- og kærunefndir. FYRSTA íslenska lögfræðirit- ið um einkaleyfarétt, eftii' þá Jón L. Arnalds hæstaréttar- lögmann og Þorgeir Örlygs- son prófessor, kom út nú í vetur. „Það er umhugsunarvert fyrii- Islendinga að yfírgnæfandi fjöldi einkaleyfa hér á landi er til erlendra aðila. Ástæður þessa eru m.a. þær, hve úrelt íslensk einkaleyfalöggjöf vai- lepgst framanaf og einnig vanþekking Islendinga við að nýta sér einkaleyfakerfið sér til ávinnings. Hér á landi hafa menn ekki gert sér nægilega grein íyrir mikil- vægi einkaleyfaverndar. Grandvöllur þess að fyrirtæki fjárfesti í hugviti er oftast byggður á einkarétti til nokk- urs tíma. Hugvitið er að verða stór þáttur í útflutningsvei-ðmætum margi-a þjóða. I dag kaupa Islending- ar meira hugvit erlendis frá en þeir selja. Auðvitað væri hið gagnstæða æskilegt, en forsenda þess er þekking á einkaleyfalöggjöfínni og nýting þeirra réttinda, sem hún veitir. ís- lendingar eru langt á eftir nágranna- þjóðunum í því að hagnýta sér mögu- leikana á þessu réttindasviði og gera úr þeim fjármuni. Þetta gildir, þótt miðað sé við höfðatölu," segir í for- mála höfunda. Utgáfa bókarinnai- verðm væntan- lega hvatning fyrir íslenska hugvits- menn að leita einkaleyfís á uppfínn- ingum sínum. I Einkaleyfarétti, sem gefinn er út af bókaútgáfu Orators, er almennt yfirlit yfir einkaleyfarétt, þar eru birt lög um einkaleyfi nr. 17/1991 ásamt síðari breytingum og þær reglugerðir sem við eiga. ítarlegar skýringar eru við einstök ákvæði lag- anna. Alls er bókin 446 síður. Mismunandi reglur Við lestur bókarinnar vöknuðu hjá mér hugleiðingar um áírýjunarnefnd í einkaleyfamálum sem mig langar til að deila með lesendum. Samkvæmt einkaleyfalögum, lögum um vöru- merki og lögum um hönnunarvernd skal starfa áfrýjunarnefnd sem tekur við kærum vegna ákvarðana skrán- ingaryfirvalda. Það er bagalegt að mismunandi reglur gilda um nefndina eftir því hvort um vörumerkja-, einka- leyfa- eða hönnunarverndarmál er að ræða. Verður ekki séð að nein sérstök rök standi til þess heldur hefur þetta einfaldlega atvikast svona vegna þess að reglur era um nefndina í þrennum lögum sem ekki eru sett á sama tíma. Hyggist menn þannig bera ákvarð- anir nefndarinnar undh' dómstóla hafa þeir ekki nema tvo mánuði til þess í málum samkvæmt 25. gr. einka- leyfalaga nr. 17/1991. Þrjá mánuði hafa þeir hins vegar þegar um vöru- merkjamál er að ræða, skv. 63. gr. vörumerkjalaga nr. 45/1997. í hönn- unarverndarlögum nr. 48/1993 bregð- ur svo við að ekkert almennt ákvæði er þar að finna um málshöfðunarfrest vegna ákvarðana áfrýjunarnefndar í þeim málaflokki. Þó er sérstakt ákvæði þar um tveggja ára málshöfð- unarfrest til að hnekkja skráningu! Ennfremur má nefna að það er aldrei skylt að bera vörumerkja- og hönnunarverndarmál undir nefndina áður en farið er fyrir dómstóla en það er í sumum tilvikum skylt í einka- leyfamálum, sbr. 25. gi'. 1. nr. 17/1991. Ekki verður séð hvaða rök eru fyrir þessum mun. Þetta misræmi er auðvitað óþægi- legt fyrir aðila sem vinna að þessum málum og ástæðulaust. Einnig má segja að tveggja mánaða og þriggja mánaða frestur til að bera mál undir dómstóla sé alveg í stysta lagi. Oft er um erlenda aðila að ræða sem gerir það að verkum að svigrúm til að meta hvort rétt sé að fara í dómsmál er ákaflega knappt. Aðildarreglur Ekki hafa spunnist mörg dómsmál í kjölfar úrskurða áfrýjunarnefndar- innar og ekki skapast skýi-ar reglpr um aðild að þeim og kröfugerð. Eg staldraði þó við það sem segir í bók- inni á bls. 163: „Hafí áfrýjunarnefnd tekið ákvörðun, skal eftirfarandi mál- sókn beinast að nefndinni en ekki Einkaleyfastofunni. Meginástæða þessa er sú, að áfrýjunarnefnd kann að hafa komist að gagnstæðri niður- stöðu við Einkaleyfastofuna og í slík- um tilvikum væri það óheppilegt, ef jafnan þyrfti að stefna skrifstofunni líka. Andmælandi og aðrir, sem hafa nægilegra hagsmuna að gæta, geta með meðalgöngu gerst aðilar að mál- inu í samræmi við almennar reglur þar um.“ Sú ályktun að alltaf verði að stefna áfrýjunarnefndinni verður ekki byggð á lagatextanum en hún á sér stoð í at- hugasemdum með frumvarpi til einka- leyfalaga. Þetta virðist þó ekki liggja beint við þegar tveir aðilar eru að málinu fyrir einkaleyfaskrifstofunni, sá sem æskir skráningar og andmæl- andi. Til hliðsjónar má nefna dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 16. des- ember 1997, sem var að vísu í vöru- merkjamáli en ekki í einkaleyfamáli. Aðilar voru Freyja hf. og Pétur Guð- mundarson hrl. fyrir hönd Société des Produits Nestlé S.A. Hvorki vöru- merkjaskrárritari né áfrýjunarnefnd- in vora aðilar að málinu þótt ágreinin- ingurinn hefði farið fyrir þá aðila báða. Álitaefni af þessu tagi eru ekki bundin við þetta svið heldur er um að ræða mjög raunhæft almennt vanda- mál, vegna fjölgunar úrskurðaraðila í stjórnsýslunni. Svo virðist sem Hæsti- réttur hafi tekið þá stefnu upp á síðkastið að vísa frá dómi kröfum á hendur áfrýjunarnefndum og öðrum endanlegum úrskurðaraðilum í stjórn- sýslunni. Má nefna sem dæmi dóm Hæstaréttar í máli Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma gegn sam- keppnisráði og áfrýjunarnefnd sam- keppnismála sem kveðinn var upp 17. febráar 1997. Þar var kröfum á hend- ur áfrýjunarnefnd vísað frá með svohljóðandi úrskurði: ,Áfrýjunar- nefnd samkeppnismála, sem gegnh’ hlutverki úrskurðarnefndar á mál- skotsstigi innan stjórnsýslunnar, hef- ur hins vegar enga þá lögvarða hags- muni af úrlausn þessa máls, sem leitt geta til aðildai' hennai' að því. Er held- ui’ engin réttarfarsnauðsyn á að gefa nefndinni kost á að láta til sín taka dómsmál, sem höfðað er til ógildingar á úrskurði hennar." Jafnræðisreglur En það eru önnur ákvæði sem varða áfrýjunarnefndina sem eru ekki síður umhugsunarverð og gætu hugs- anlega varðað við stjórnarskrána. Þannig er mönnum gert að greiða svo- kallað áfrýjunargjald skjóti þeir mál- um til nefndarinnar. Ráðherra er falið að setja reglur um gjaldið. Samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 673/1996 er gjaldið að hámarki 80.000 kr. Eftir því sem formaður nefndarinnar, Erla S. Ái'nadóttir hæstaréttarlögmaður, seg- h' er þetta gjald alltaf tekið fullum fet- um. Fyrsta spurningin er sú hvort þetta sé þjónustugjald eða skattur. Fjár- hæð gjaldsins og sú staðreynd að í eldri vörumerkjalögum, nr. 47/1968, sagði beram orðum að kostnaður af starfí nefndarinnar greiddist úr ríkis- sjóði, bendir til að um skatt sé að ræða. Ef það er rétt stenst skattlagn- ingin trauðla gagnvart 1. mgr. 77. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir að ekki megi fela stjórnvöldum ákvörðun um hvort leggja skuli á skatt, breyta honum eða afnema hann. I öðru lagi hljóta að koma til skoð- *• unar ákvæði 65. gr. stjórnarskrárinn- ar þar sem segir að allir séu jafnir fyr- ir lögum. Sú regla felur í sér að ekki megi mismuna mönnum nema til þess séu efnislegar og gildar ástæður. Nú skipta kæra- og úrskurðarnefndir á borð við umrædda áfrýjunarnefnd tugum í íslensku stjórnkerfí og það heyrh' til algerra undantekninga ef mönnum er gert að greiða gjald fyrir að skjóta málum til þeiiTa. Þess vegna er einnig hæpið að gjaldtakan standist út frá þessu sjónarmiði. I þriðja lagi vakna sérstakar spurn- ingar í því tilviki þar sem mönnum er v gert að leita til nefndarinnar áður en þeir bera ágreiningsmál undir dóm- stóla, nánar tiltekið á grandvelli 25. gi'. einkaleyfalaganna nr. 17/1991. Þá er í húfí réttur manna til að leita til dómstóla skv. 70. gr. stjórnarskrár- innar og 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Getur það staðist að leggja þessa sérstöku fjárhagslegu hindran fyrir þá sem lenda í vissum einka- leyfamálum? Þeir þurfa í raun að greiða 80.000 kr. aukagjald til að ná fram úrlausn fyrir dómstólum. Þess má geta að almenn málagjöld til dóm- stólanna, sem alltaf verður að greiða, eru ekki nema óveruleg í samanburði við þetta. * Sjaldnast kannað Auðvitað kunna einhverjir að segja að fyrirtæki sem á annað borð era að fást við einkaleyfi muni ekki um þenn- an pening. En allir eiga að njóta jafn- ræðis fyrir lögum, hvort sem það eru einstaklingar eða fyi'irtæki. Ég hygg líka að nánari skoðun myndi leiða í ljós að allt of lítið samræmi er al- mennt í reglum um áfrýjunar- og kærunefndir, en þeim hefur fjölgað mjög ört á undanfornum árum, eru mjög í tísku á Alþingi ef svo má að orði komast. Sjaldnast virðist fara v fram könnun á því hvort þörf sé á slík- um nefndum yfirleitt áður en þær eru settar á fót. Hygg ég reyndar að um- rædd áfrýjunarnefnd í einkaleyfa-, vörumerkja- og hönnunai'verndarmál- um geti átt meiri tilverarétt en marg- ar aðrar vegna þess hversu sérhæft svið er um að ræða. Undanfarin ár hefur réttarstaða borgaranna gagnvart stjórnvöldum gerbreyst til batnaðar. Ég hygg að fögur áform búi einnig að baki fjölgun nefnda af þessu tagi. Hins vegar stefnir í hálfgert óefni þegar slíkar nefndir eru stofnsettar án þess að verksvið þeirra og hlutverk sé skil- greint nógu vel. Höfum við líka nógu mörgum færum lögfræðingum á að •« skipa til að manna allar þessar nefnd- ir? Fjölgun nefndanna ber vott um óánægju með þá lausn, sem er aðal- reglan, að endanlegt úrskurðarvald í stjórnsýslunni sé í höndum viðkom- andi ráðherra. Ef sú óánægja á við rök að styðjast væri þá ekki að sumu leyti eðlilegra að hafa einn stjórn- sýsludómstól sem tæki við kærum vegna stjórnsýsluákvarðana og þaðan mætti svo skjóta málum beint til Hæstaréttar? Að minnsta kosti er ekki vanþörf á því að stjórnvöld móti stefnu í þessum málum, því með hverri nýrri kærunefnd sem sett er á laggirnar fyrirhyggjulaust verður erf- iðara að vinda ofan af kerfinu og fá eitthvert samræmi í hlutina. Eins og kerfið er núna lenda menn oft í því að bíða árum saman eftir end- anlegri úrlausn innan stjórnsýslunnar á meðan tveir til þrír aðilar fjalla um hver upp af öðrum. Það hefur nefni- lega sýnt sig að málshraðinn í stjórn- sýslunni er ekki endilega meiri en hjá dómstólunum en það hafa verið ein rökin fyrir því að fjölga kærumögu- leikum innan stjórnsýslunnar. Þegar lokaúrskurður er kominn getur sá að- ili sem er óánægður með niðurstöðuna leitað til dómstóla, fyi-st héraðsdóms og síðan Hæstaréttar. Engar heimild- ir eru almennt til að úrskurða máls- kostnað í málum, sem leyst er úr inn- an stjórnsýslunnar, og því þurfa aðil- arnir að bera sjálfir sinn lögmanns- kostnað ef því er að skipta jafnvel þótt á daginn komi að þeir hafi haft á réttu að standa gagnvart ríkisvaldinu og málskot hafi ekki verið að ófyrh'synju. Er þetta kerfi ekki orðið óþarflega viðamikið og kostnaðarsamt án þess f að réttaröryggi hafi aukist til muna?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.