Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 36
*36 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Gagnrýni í fjölmiðlum Málefnaleg gagnrýni snýst um inni- hald og form, samhengi og samanburð og opinn hug fyrir pví sem afneitar samanburði og fæst ekki sett í samhengi. Samtök gagnrýnenda efndu til málþings um listgagnrýni í fjölmiðl- um á degi bókarinnar, sumardaginn fyrsta. Parna voru samankomnir gagn- rýnendur listgreinanna fjögurra, tónlistar, myndlistar, leildistai- og bókmennta, ásamt slangri af lista- mönnum úr greinunum þó greini- lega hallaði frekar á þá hliðina í hópi áheyrenda. Skiljanlega, þar sem umfjöllun um gagnrýni er tæplega það sem þom listamanna kýs að verja frítíma sínum við alla jafna. Það þýðir þó ekki að lista- menn fylgist ekki með gagnrýni eða hafi enga skoðun á henni. Samandregið álit listamanna á gagnrýni virðist VIÐHORF Eftir Hávar Sigurjónsson felast í þein'i frómu ósk að gagnrýni sé hvort tveggja í senn málefnaleg og jákvæð. Einhver kann að lyfta brúnum og hugsa sem svo að það sé auðvitað sjálfsagt að listamenn vilji jákvæða gagnrýni, hvað ann- að? En jákvæð gagnrýni í merk- ingunni „Iofsamleg" er ekki til um- ræðu hér. Það sem átt er við, er hvort grundvallarafstaða gagn- rýnandans til Iistgreinarinnar sem hann fjallar um sé jákvæð eða nei- kvæð. Að ekki sé talað um afstöðu gagmýnandans til iðkenda list- greinarínnar, listamannanna sjálfra. Er hún jákvæð eða nei- kvæð? Er hún kannski byggð á persónulegum viðskiptum eða tengslum gagnrýnandans við ein- staklinga eða listastofnanir? Er gagnrýnin m.ö.o. málefnaleg eða persónuleg? Þegar óskað er eftir málefna- legri gagnrýni er að mínu viti ver- ið að biðja um tvennt. Annars veg- ar að gagnrýni beinist ekki að per- sónu listamannsins heldur verki hans og hins vegar að gagnrýn- andinn styðji skoðun sína með rökum byggðum á þekkingu. Sjálfsagt telja allir gagnrýnendur sig búa yftr þekkingu á því sem þeir fjalla um. En hvað er ná- kvæmlega átt við þegar talað er um þekkingu gagnrýnandans? Er átt við fræðilega og sögulega þekkingu hans á listgreininni eða er átt við praktíska þekkingu á listsköpun? Oftast fer meira fyrir því fyrrnefnda en hinu síðar- nefnda. Hefur gagnrýnandinn sjálfur einhverja reynslu af list- rænni sköpun? Er hann listamað- ur sjálfur? Þess eru vissulega dæmi þó af einhverjum ástæðum megi helst finna þá meðal mynd- listar- og tónlistargagmýnenda. Reyndar má færa rök fyrír því að skilningur gagnrýnandans á sköp- unarferlinu sjálfu sé alls ekki nauðsynlegur þar sem viðfangs- efni hans er fullskapað listaverkið; honum er ætlað að skoða það og túlka, setja það í einhvers konar vitrænt samhengi eftir að lista- maðurinn hefur skilað því af sér. Vissulega má gera því skóna að reynsla gagmýnandans af list- rænni sköpun auki honum innsýn og skilning á hlutskipti og starfi listamannsins, geri hann jákvæð- ari í þeirri merkingu sem lögð er í hugtakið hér að ofan. Slík reynsla kemur þó aldrei nema að almennu gagni, hún nýtist ekki við túlkun á sérstöku listaverki þar sem gagn- rýnandinn er jafn ókunnugur og hver annai’, því persónulega ferli sem listamaðurinn gekk í gegnum við sköpun verksins. Gagmýnendur hafa sömu þörf og allir aðrir fyrir að finna tilgang með starfi sínu. í fljótheitum má telja upp nokkur tilbrigði við það stef; sumir gagnrýnendur telja sig fyrst og fremst þjóna lesend- um/áheyi-endum sínum, aði-ir telja sig þjóna listgreininni, enn aðrir þjóna fyrst og fremst sjálfum sér, þó líklega sjái flesth- hlutverk sitt sem blöndu af þessu öllu þar sem hlutföllin ráðast af persónu hvers og eins. Einstaka gagmýnandi verður hinsvegar sveskjulegur á svip og telur sig þjóna lykilhlut- verki í framgangi listgi'einarinnar; án hans sé listin marklaust fálm út í loftið. Slíkur gagmýnandi efast ekki um tilgang sinn á þessari jörð; hans er að leiðbeina og stýra, vera ætíð strangur og alvai’legur, beina barnslegum, dómgreindar- litlum listamönnum á réttar braut- ir í sköpun sinni, setja saman for- múlur handa þeim að skapa eftir, heimta sköpun í anda þess sem fyrir er og bregðast ekki verri við en ef eitthvað er gert sem er utan eða ofan við skilning hans á því hvað er list og hvað ekki. Gagn- rýnandi með þetta viðhorf sér sjálfan sig í miðju hinnar listrænu deiglu, án hans væri kuldi og tóm. Ranghugmynd þessa gagmýn- anda um eigið hlutverk er fólgin í þein-i fíiTu að ætla að listamenn sæki sér innblástur til listrænnar sköpunar í umsagnir hans um verk þeirra. Listamennimir eiga að líta til hans eftir forskrift, þeir sem ki’ota persónulegt „bull“ fá bágt fyrir, hinir sem fylgja for- skriftinni fá stjörnur að launum, tvær, þrjár eða fjórar eftir atvik- um. Stjörnugjafagagnrýnandinn gefur sér að til sé fullkomin list, hið endanlega, eina og sanna, „fimm stjörnu listaverk". Þessi hugsun um list er fullkomin and- stæða við raunverulega listsköpun sem er sprottin af tilfinningu án fyrhfram mótaðrar hugsunar um endanlega útkomu, án eftirsóknar eftir samanburði eða fullkomnun; hin listræna upplifun felst í sköp- unarferlinu sjálfu en ekki lista- verkinu fullkláruðu. Tveggjastjömugagmýnandinn getur því aldrei átt raunvemlegt efnislegt erindi við listamanninn heldur þegar best lætur lent í dagsljósinu um stund og þannig haft tímabundin áhrif á almenna umræðu um listgreinina. Eðli málsins er þó með þeim heilbrigða hætti að raunveruleg áhrif hans á listræna þróun verða aldrei telj- andi. Marktæk gagnryni aftur á móti tekst á við það hlutverk sitt að fjalla um orðinn hlut, listaverk í sinni endanlegu mynd og lýsa því og túlka það. Málefnaleg gagmýni snýst um innihald og form, sam- hengi og samanburð og opinn hug fyrir því sem afneitar samanburði og fæst ekki sett í samhengi. Hinn „póstmóderníski“ gagnrýnandi gegnir hlutverki hins upplýsta sérfræðings gagnvart upplýsinga- þyrstum almenningi. I margskiptu þjóðfélagi nútímans er slík miðlun sérfræðiupplýsinga ekki aðeins nauðsynleg heldur er hún löngu viðurkennd staðreynd. Henni fylg- ir líka mikil ábyrgð sem á að sinna af jákvæðni og hlutlægni. KOSNINGAR ‘98 Að loknum Dag'slj óssþætti Kristján Benediktsson neitar sinni eigin tillögu og er á móti skipulag- inu á Geldinganesinu, vill flytja höfnina eitt- hvað annað, kannski upp á Kjalarnes. Ekki kom fram hvort þar hefði verið gerðar at- huganir varðandi hafn- arstæði og kostnað. Betur að svo væri. Vilhjálmur er alltof reyndur stjómmála- maður til að grípa í svona hálmstrá í mál- flutningi. Eða er mál- efnafátæktin kannski svona mikil hjá þeim D- lista mönnum? SENN líður að borg- arstjórnarkosningum eins og glögglega má sjá á síðum Morgun- blaðsins og víðar. Fylk- ingar frambjóðenda eru byrjaðar að takast á bæði á fundum og í fjölmiðlum. Einn slíkur var í Dagsljósþætti í sl. viku. Prúðuleikararnir I umræddum Dags- ljósþætti vom mættir fimm fulltrúar D-list- ans og tveir fulltrúar R-lista sem svara áttu spurningum hinna. Sjálfsagt muna margir eftir þátt- um sem sýndir vom í sjónvarpinu fyrir nokkrum áram og bára heitið „Prúðuleikararnir". Þetta vora vin- sælir og skemmtilegir þættir. Ekki voru leikararnir þó ávallt sam- kvæmir sjálfum sér né gáfulegt það sem þeir lögðu til mála. Líklega hefur það verið þess vegna sem mér kom þessi þáttur í hug þegar ég horfði á frambjóðendur D-list- ans í umræddum Dagsljósþætti. Þarna var að vísu saman komið hið gjörvulegasta fólk og prúðmennsk- an í besta lagi miðað við aðstæður. Málflutningm’inn var hins vegar vandræðalegur og á köflum óvand- aður. Hann minnti stundum á mann sem í falli grípur í það sem hendi er næst án þess að vita hvort það komi að nokkra gagni. Nokkur atriði skulu hér tilfærð. Það skal tekið fram að vitneskja mín byggist á þvi sem lesa mátti út úr spumingum og svöram í þættinum. Aðalskipulagið Vilhjálmur Vilhjálmsson var lengi formaðui’ skipulagsnefndar. Undir hans stjóm var samþykkt aðal- skipulag. Þar var gert ráð fyrir að byggt yrði á Geldinganesi. Þar átti að vera höfn, íbúðar- og atvinnu- svæði. Núverandi meirihluti endur- skoðaði þetta skipulag. Nú bregður hins vegar svo við að Vilhjálmur af- Skuldir borgarinnar Árni Sigfússon upplýsir að skuldir borgarinnar hefðu á þessu kjörtímabili aukist um allt að 5 milljarða króna. Þetta mun víst rétt vera ef bæði borgarsjóðurinn og fyrirtæki borgarinnar era tekin Skuldir borgarsjóðs hafa, að mati Kristjáns Benediktssonar, lækkað um 500 m.kr. frá 1995. saman. Hér þarf hins vegar nánari skýringar við. Fram kom í þættin- um að skuldir borgarsjóðs hefðu verið 14,5 milljarðar í árslok 1995 en væra nú 14 milljarðar. Hefðu sem sagt lækkað um 500 milljónir. Skuldaaukningin liggur þannig öll hjá fyrirtækjunum. Fyrst og fremst hjá Hitaveitu vegna Nesja- valla en einnig hjá Rafmagnsveitu og Höfninni. Hér er um að ræða skuldir vegna arðgefandi fram- kvæmda sem munu ekki aðeins standa undir þeim lánum sem tekin hafa verið heldur skila arði er tím- ar líða. Hér er því ekki um eyðslulán að ræða eins og þau sem borgarsjóður hlóð á sig á árunum 1986-1994. Perlan kostaði t.d. á sínum tíma hátt í 2 milljarða króna þegar allt er talið. Arlega þarf að greiða hundruð milljóna í afborganir og vexti af þeim lánum og að auki veralegan styrk til veitingastarf- seminnar. Mér fmnst að Arni og reyndar Vilhjálmur líka ættu að vera það heiðarlegir í málflutningi sínum að skýra fyrir borgarbúum af hverju skuldaaukningin stafar án þess að hamra á tölum sem í raun eru villandi. Þáttur Guðrúnar Guðrún Pétursdóttir heillaði marga fyrir skeleggja framgöngu þegar hún barðist gegn staðsetn- ingu Ráðhússins á sínum tíma. Mér fannst hún hins vegar ekki eiga heima á þessum vettvangi. Hún fékk það verkefni að skýra tillögu þeirra D-lista manna um greiðslur til mæðra sem annast þörn sín heima. Borgarstjóri upp- lýsti að kostnaður við framkvæmd tillögunnar mundi nema 4 milljörð- um á næsta kjörtímabili. Ekki kom fram hjá Guðrúnu hvernig hugsað væri að afla þess fjár. Varla er hugmyndin að gera það með skattahækkun. Þessi tillaga ber vott um fljótfærnisleg vinnubrögð og er til þess gerð að ganga í aug- un á ákveðnum hópi fólks sem vissulega þarf að líta til með sann- gjarnar úrbætur. Spurningin er hins vegar hvort ekki megi ná því markmiði sem í tillögunni felst með minni tilkostnaði. Síðara málið sem Guðrún reifaði fannst mér nokkuð skondið og hef- ur víst komið fleirum en mér á óvart. Hún gerði því skóna, ef svo færi að vinstri flokkarnir samein- uðust fyrir næstu alþingiskosning- ar, að þá yrði leitað til Ingibjargar Sólrúnar um að veita hinum nýja flokki forystu. Aðrir mundu vart koma til greina. Þessi orðræða Guðrúnar var vitanlega hið mesta hrós um Ingibjörgu og sýnir hvert álit þeir Sjálfstæðismenn hafa á henni sem stjórnanda. R-listann hefur ekki skort með- byr í kosningabaráttunni til þessa. Eg held hins vegar að með þessu útspili sínu hafi Guðrún hleypt þeim vindi í seglin hjá listanum sem örugglega muni duga honum til sigurs í kosningunu. Höfundur er fyrrv. borgarfulltrúi. Akureyri í úrvalsdeild HINN 23. maí nk. verða valdir til foi’ystu 11 einstaklingar til að fara með forræði sam- eiginlegra mála okkar Akureyringa næstu fjögur árin. Miklu máli skiptir að væntanlegir bæjarfulltrúar hafí skýran vilja íbúanna í farteskinu þegar þeir leggja til atlögu við þau miklu verkefni sem bíða næstu bæjar- stjórnar Akureyrar. í fallhættu Líkja má sveitarfé- lögum við íþróttafélög þar sem keppnin snýst um að laða til sín fólk með því að bjóða bestu búsetuskilyrðin. Akureyri hefur alla burði til að vera meðal sveitar- félaga í úrvalsdeild og á ekki að þurfa að sjá á eftir íbúum sínum yf- ir til keppinautanna, þ.e. til ann- arra sveitarfélaga. Staðan í deildinni er okkur hins vegar ekki að skapi því höfuðstað- ur landsbyggðarinnar, Akureyri, er í fallhættu. Slakt gengi í deild- inni endurspeglast best í saman- burði við sambærileg sveitarfélög. Ái’in 1994-1997 fjölgaði í Kópa- vogi um tæplega 3.000 manns eða um 14% en á sama tíma fjölgaði Akureyringum aðeins um 150 ein- staklinga eða 0,9%. Hvað veldur? Lítið hefur farið fyrir andófi Kristján Þór Júlíusson bæjarstjórnar Akur- eyrar gegn þessari öf- ugþróun. Fráfarandi meirihluti bæjar- stjórnar virðist ekki hafa gert sér grein fyrir þvl að vöxtur sveitarfélagsins bygg- ist á árangri í sam- keppni við önnur sveit- arfélög um fólk. Yilja menn falla úr úrvals- deild? Kjörtímabil glataðra tækifæra Senn er á enda það keppnistímabil sem skoða ber sem kjör: tímabil hinna glötuðu tækifæra. í því sambandi má sérstaklega nefna nokkur dæmi: Klúður við sölu á hlut bæjarins í UA og Krossanesi, ákvarðanir um gjaldskrár leik- skóla, ráðningar í störf hjá bæjar- félaginu, skortur á byggingalóðum, launastefna bæjarins, málefni grannskólanna, málefni safna, o.s.frv., o.s.frv. Fráfarandi meiri- hluti hefur þvert á gefín loforð drepið allt í dróma og nú ríkir hér kyi-rstaðan ein, leikmenn meiri- hlutans ná ekki að hrinda sókn andstæðinganna, leikaðferðin skil- ar ekki árangri. Breytum um leikaðferð Sjálfstæðismenn á Akureyi’i vilja að kjörnir bæjarfulltrúar axli ábyrgð á gjörðum sínum, þeir búi yfir hagnýtri þekkingu og standi við orð sín. Þeir mega aldrei gera upp á milli bæjarbúa vegna skoð- ana þeirra eða kynferðis. Við mun- um stöðva vanhugsaðar skyndiá- kvarðanir í hagsmunamálum íbú- anna og hafa fullt samráð við íbúa í hverfum bæjarfélagsins. Við ætlum að vera í betra sam- bandi við bæjarbúa, alltaf, en ekki Sjálfstæðismenn á Akureyri, segir Krist- ján Þór Júlíusson, vilja snúa vörn í sókn bara fyrir kosningar. Við munum breyta stjórnsýslu bæjarfélagsins og opna stjórnkerfi þess fyrir hin- um almenna íbúa og gefa honum kost á að hafa áhrif á ákvarðanir bæjarstjórnar. Við munum nýta afl Akureyrarbæjar til þess að hafa framkvæði að því að skapa störf í bænum. Það verður ekkert at- hafnalíf án athafna. Við viljum skipta út leikmönnum og þjálfara og gjörbreyta um leik- aðferð. Við viljum snúa vörn í sókn. Sjálfstæðismenn á Akureyri vilja kraft í stað kyrrstöðu. Höfundur skipnr 1. sæti D-lista Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórnar- kosningvnum á Akureyri 23. maí nk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.