Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 37
•t MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 3'Sf KOSNINGAR ’98 * * Utvarp Olína KONA er nefnd Olína Þorvarðardóttir. Hún er á launaskrá hjá okkur, lesendur góðir, sem pistlahöfundur á Ríkisútvarpinu. Sem sannur aðdáandi R-list- ans misnotar hún að- gang sinn að ríkisfjöl- miðlinum og flytur hreinræktaðar kosn- ingaauglýsingar þegar henni er hleypt í loftið. Það virðist ekki þvæl- ast íyrir henni að sið- ferðilegar skyldur fylgi aðgangi að ríkisfjöl- miðli. Þegar ég hlustaði á auglýsinga- tíma Olínu á þriðjudaginn fyrir viku, datt mér Richard gamli Nixon í hug. „Let them deny it,“ sagði hann, þegar hann laug uppá andstæðinga sína. Láttu þá neita því. Ráð fyrir rökþrota menn, - og konur, sem treysta því að fólk nenni ekki að elta ólar við Olínur. En ég nenni því, ekki síst vegna þess að Olína ruglaði af fágætri heift um mig persónulega í þessari auglýsingu. Það kom mér nokkuð á óvart, því ég hef talað sérstaklega fyrir rétti foreldra, einkum þeirra sem eiga mörg böm eins og Ólína. Guðrún Pétursdóttir Hvað hef ég unnið mér til óhelgi? Jú, ég styð fjölskyldustefnu Sjálf- stæðisflokksins, sem R-listinn á ekkert svar við. Sjálfstæðisflokkur- inn vill gefa foreldrum raunhæfan kost á að velja milli leikskóla og annarra úrræða. Það er sjálfsagt að bjóða þeim leikskólavist sem vilja, allan daginn eða hluta úr degi. En það er jafn sjálfsagt að virða það, að sumt fólk kysi fremur önnur úr- ræði ef það ætti þeirra kost. Til er fólk sem kysi að vera heima hjá ungum börnum sínum, allan daginn eða hluta úr degi, ef það hefði efni á því. R-listinn kem- ur ekki til móts við svona fólk. Þeir sem ekki þiggja vistun á leikskóla fá ekkert, - og þeir sem aðeins kjósa að hafa barn sitt á leikskóla hluta úr degi eru látnir mæta af- gangi, - settir aftast á biðlistann. R-listinn ætlar að byggja leik- skóla fyrir öll börn frá 1 til 5 ára. Þetta er gífurlegt átak og kostar mikið fé. Hálfa aðra milljón kostar að byggja yfir hvert bam og borgin niðurgreiðir rekstarkostnað um tæplega þrjátíu þúsund krónur á mánuði vegna hvers bams. Það tekur langan tíma að hrinda þessu átaki í framkvæmd, sem sést á því að þrátt fyrir kosningaloforð um að biðlistum yrði útrýmt á þessu kjör- timabili, bíða enn á milli eitt og tvö þúsund böm eftir plássi. Borgin býður foreldrum þeirra engin úr- Virðing og þakklæti til leikskólanna fer ágæt- lega saman við þá stefnu, segir Guðrún Pétursdóttir, að bjóða foreldrum val. ræði. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að önnur leið verði reynd, sem getur leyst biðlistavandann hratt og vel. Hún er sú, að foreldrum verði gert fjárhagslega kleift að velja önnur úrræði en leikskóla all- an daginn með því að fá sjálfir til ráðstöfunar það fé sem ella hefði farið í niðurgreiðslu á leikskóla- plássi. Fyrir 8 tíma vistun nemur þessi greiðsla 25 þúsund krónum á mánuði, en 12.500 ef foreldrar kjósa 4 tíma leikskólavistun. Til viðbótar spara foreldrar dagvistun- argjaldið, sem er mishátt eftir að- stæðum, 9.500 fyrir einstætt for- eldri og 18.750 fyrir fólk í sambúð. Lýðræðisbylting í Reykjavík! LÝÐRÆÐISLEGT samfélag er stöðugt í mótun. Það er ögrandi verkefni fyrir stjórn- málamenn og samtök þeirra að vinna að lýð- ræðislegra stjóm- skipulagi og virkari þátttöku almennings. Við Reykvíkingar höf- um stigið mörg gæfu- spor á liðnu kjörtíma- bili einmitt í þessa átt og við þurfum að halda áfram á þeirri leið til að þróa lýðræðislegra, fjölskylduvænna og betra samfélag. Lýðræð- isverkefhið í Grafarvogi lýsir veginn í þessu efni. Þar hefur ýmis samfé- lagsleg þjónusta verið færð nær hverfinu í gegnum Miðgarð og íbúar hafa komist til meiri áhrifa í gegnum sérstaka stjóm hverfisins - Hverfis- ráð Grafarvogs. Þá hefur sá merki atburður gerst að reglum borgarinn- ar um almennar atkvæðagreiðslur borgarbúa hefur verið breytt og færðar í átt til aukins lýðræðis. A næsta kjörtímabili munum við hraða þessari þróun og færa meira vald til hverfanna. Öll níu hverfi borgarinnar munu fá sérstök hverfaráð sem vinna að hagsmun- um hverfanna og gegna mikilvægu hlutverki við framþróun þeirra. Hrannar Björn Arnarsson Þjónustustjórn og fé- lagavæðing Þá hefur Reykjavík- urlistinn lagt á það áherslu að auka vald- dreifingu með ýmsum hætti. Viðhorf Reykja- víkurlistans til stjórn- unar borgarinnar hefur í þessu samhengi mikla þýðingu. Á þessu kjör- tímabili hefur Reykja- víkurlistinn verið að breyta stjómunarstíl borgarinnar úr vald- stjórn i þjónustustjóm. Stefnan er sú að borg- aryfirvöld og starfsfólk Reykjavíkurborgar hafi það að helsta viðmiði sínu að veita borgar- búum þjónustu í stað þess að gefa út tilskipanir. Borgarstarfsmenn og stjórnmálamennirnir eru í þjónustu borgarbúa og á það verður seint lögð næg áhersla. í sömu átt gengur sú stefna að efna til meira samráðs og samstarfs við félagasamtök. Slík samvinna hefur skilað borgarbúum miklum ávinningi einsog framkvæmdirnar við íþróttamannvirkin í Laugardal eni til vintis um. Þjónustusamning- ar við félagasamtök og stofnanir hafa verið notaðir í vaxandi mæli á kjörtímabilinu og áfram verður haldið á þeirri braut. Stundum hef- Finnst þér i lagi ad skattar á borgarbúa hafa hækkað? Kjósi annað foreldrið að vinna heima, nýtist skattkortið að auki. Eigi fólk fleiri böm á aldrinum 6 mánaða til 5 ára margfaldast fjöl- skyldugreiðslurnar með hverju barni. Það er því enginn vafi á, að hér er verið að bjóða foreldrum raunhæfan kost, - sem er í fullu samræmi við nýjustu uppeldis- rannsóknir, sem sýna að ekkert skiptir meira máli fyrir velferð barna en sá tími sem þeim gefst með foreldmm sínum. Það er ekki vafi á, að margir for- eldrar munu velja þessa leið, - og létta þar með á biðlistum hinna, sem heldur kjósa leikskólann. R- listinn heldur því fram að þessi leið kosti of mikið, sé óraunhæf. Því er til að svara, að hún er miklu ódýr- ari en kostur.R-listans, sem ætlar að byggja leikskóia yfir öll böm á þessum aldri, án tillits til þess hvort til er starfsfólk til að manna þá og án tillits til vilja foreldranna. Til viðbótar við byggingarkostnað kemur svo rekstrarkostnaðurinn. Leið Sjálfstæðisflokksins er aug- ljóslega ódýrari. Rökþrota vænir Ólína mig um að fyrirlíta leikskólana. Hverju á að svara svona málflutningi? Nema með því að segja að dætur mínar eru nýútskrifaðar frá Grænuborg. I áraraðir hef ég verið í foreldra- ráði leikskólans, átt einstaklega gott samstarf við leikskólastjór- ann, kennara og starfsfólk allt, og þreytist aldrei á að dásama það Reykjavíkurlistinn hef- ur hafíð lýðræðisbylt- ingu í Reykjavík, segir Hrannar Björn Arn- arsson, og sækist nú eftir umboði frá borg- arbúum til að halda áfram á þeirri braut. ur þessi þróun verið kölluð félaga- væðing en hún horfir einnig í átt til meira lýðræðis og valddreifingar. Höldum áfram lýðræðisþróun Sú mikla umbylting sem á sér stað innan skólakerfisins, meðal annars fyrir tilstilli Reykjavíkur- borgar, gerir einnig kröfu til þess að lýðræðið verði aukið jafnt og þétt. Foreldrasamtök og skólamenn hafa verk að vinna með borgaryfir- völdum við að gera skólana enn betri. Ljóst er að breyttar aðstæður í skólunum bjóða uppá mikla mögu- leika til að auka samþættingu á ýmsu frístunda- og menningarstarfi barna og unglinga við annað skóla- starf. Allt horfir þetta í áttina til aukins lýðræðis og valddreifmgar. Allir borgarbúar eru mikilvægir í því lýðræðislega samfélagi sem við viljum móta í Reykjavík. Reykjavík- urlistinn hefur hafið lýðræðisbylt- ingu í Reykjavík og sækist nú eftir umboði frá borgarbúum til að halda áfram á þeirri braut. Höfundur er frambjóðandi Reykja- víkurlistans. frábæra starf sem unnið er þar og á öðrum leikskólum í landinu. Virð- ing og þakklæti til leikskólanna fer ágætlega saman við þá stefnu að bjóða foreldrum val. Sá pólitískiS rétttrúnaður og forsjárhyggja, að böm frá eins árs aldri eigi helst að vera fullan vinnudag í skólanum er ekki í samræmi við nýja tíma. Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið af skarið með eindregnum og af- gerandi hætti. Hann býður virka fjölskyldustefnu, - nútímalausn sem gengur upp. Höfundur er BA f sálfræði og kenn- ari og skipar 9. sæti á D-lista sjálf- stæðisfólks f Reykjavfk. Auglýsing um framboðslista Skalfrilbukkriiiii l\ listans ,i hvt*i j.i I jolskylríu ncm.i .u) im*t),ilt.ili um -1o i.?o |)usuurí ki onum ,i kjoi timahilinu. Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga, sem fram fara þann 23. maí 1998, rennur út kl. 12.00 á hádegi, laugardaginn 2. maí 1998. Kosið er sameiginlega til sveitarstjómar í Eyrarbakka- hreppi, Sandvíkurhreppi, Selfossbæ og Stokkseyrar- hreppi, sbr. auglýsingu nr. 187/1998. Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Selfossbæjar fyrir ofan- greindan tíma. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslist- um á bæjarskrifstofu, í Ráðhúsi Selfoss, Austurvegi 2, Selfossi, laugardaginn 2. maí 1998 frá kl. 11.00 til 12.00. Á framboðslista skulu vera að lágmarki 9 nöfn fram- bjóðenda og eigi fleiri en 18. Framboðslistum fylgi yfir- lýsing þeirra, sem á listunum eru, að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listana. Hverjum lista skal fylgja skrifleg yfirlýsing 40 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 80. Þá skal fylgja tilkynning um hverjir séu umboðsmenn lista. Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu og heim- ili, til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir í kjöri eru. Greina skal fullt nafn og kennitölu meðmælanda. Yfirkjörstjórnin í Selfossbæ. Gunnar A.Jónsson Bogi Karlsson Ragnheiður Thorlacius % ’Srtfktnt il
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.