Morgunblaðið - 29.04.1998, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 47 '
FRÉTTIR
HAGASKÓLI.
Hagaskóli fjörutíu ára
Ströndin í
Reykjavík
Hafnargönguhópurinn hef-
ur í kvöld, miðvikudagskvöldið
29. aprfl, raðgöngu með
strönd Reykjavflcurborgar.
í fyrsta áfanganum verður
gengið frá fjörumörkum Sel-
tjamamesbæjar að fjöru-
mörkum Kópavogsbæjar við
Skerjafjörð. Mæting við Hafn-
arhúsið við akkerið kl. 20 og
farið út á Fræðslutorgið á
Miðbakka og síðan gengið um
vesturbæinn suður í Skerja-
fjörð. Við fjörumörkin við
Kópavogsbæ, Fossvogs-
lækjarósinn, verður val um að
ganga til baka eða fara með
AV.
Allir era velkomnir.
Á ÞESSU ári eru fjörutíu ár frá
því Hagaskóli í Reykjavík tók til
starfa. Hagaskóli er safnskóli
fyrir unglingastig og tekur við
nemendum úr Grandaskóla,
Landakotsskóla, Melaskóla og
Vesturbæjarskóla. Þessara
merku tímamóta verður minnst
með opnu húsi milli kl. 17 og 20
á morgun, fimmtudaginn 30.
aprfl nk.
Formleg dagskrá hefst í
íþróttahúsi skólans kl. 17.15.
Flutt verða stutt ávörp, boðið
upp á fimleikasýningu, nemend-
ur skólans, sem urðu sigvegarar
í hæfíleikakeppni grunnskól-
anna, Skrekk 97, leika listir sín-
ar, Sigrún Hjálmtýsdóttir, fyrr-
verandi nemandi skólans, syngur
einsöng við undirleik Jónasar
Þóris Jónassonar og afmælis-
sönjgur verður frumfluttur.
A eftir verður viðstöddum
boðið í skólahúsið þar sem sýnd-
ar verða gamlar og nýjar ljós-
myndir, myndbönd með gömlum
og nýjum upptökum verða í
gangi í nokkrum stofum, sýnis-
horn af vinnu nemenda í hand-
mennt, myndmennt og leirmót-
un, boðið verður upp á léttar
veitingar en fyrst og fremst
koma menn saman til þess að
sýna sig og sjá aðra, rifja upp
gamlar minningar og hitta skóla-
félaga og starfsfólk, segir í
fréttatilkynningu.
Skólablaðið Huginn verður
selt gegn vægu verði þennan
dag. Blaðið er sérstaklega helg-
að afmælinu og efni þess eftir
fyrrverandi og núverandi nem-
endur skólans.
Allir núverandi og fyrrverandi
nemendur Hagaskóla ásamt
starfsliði fyrr og nú, vinum og
velunnurum, eru hjartanlega
velkomnir til þessarar hátíðar,
segir ennfremur.
Fræðsluerindi hjá
Krabbameinsfélaginu
KRABBAMEINSRÁÐGJÖF er
yfirskrift fræðsluerindis sem
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
stendur fyrir miðvikudaginn 29.
aprfl. Fræðslufundurinn verður
haldinn í húsi Krabbameinsfélags-
ins að Skógarhlíð 8, kl. 20.30.
„Fyrirlesari verður Reynir Arn-
grímsson, dósent í erfðafræði og
sérfræðingur í erfðalæknisfræði og
erfðasjúkdómum á Landspítalan-
um. Einnig mun hann svara fyrir-
spurnum. Læknisfræðileg erfða-
fræði er ein yngsta grein læknavís-
indanna. Miklar framfarir hafa
samt verið á sviði genalækninga og
horfur era á að í byrjun næstu ald-
ar verði hægt að lækna ýmsa alvar-
lega erfðasjúkdóma. I dag beinist
athygli þó mest að því hvort bæta
megi greiningu og eftirlit með
hjálp erfðafræðilegra upplýsinga
sem fyrir liggja um krabbamein.
Fundurinn er öllum opinn. Kaffi-
veitingar,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Prdfskrekkur 1998
SKÁTAR úr 9. bekk og eldri fjöl-
menna á Hellisheiðina í „hina
margfrægu samræmduprófaúti-
legu“, eins og segir í fréttatilkynn-
ingUj í dag, miðvikudaginn 29. apr-
fl. Utilegan hefur hlotið nafnið
Prófskrekkur 1998.
„Upphaf samræmduprófaútileg-
anna má rekja tvö ár aftur í tímann
þegar dróttskátar og fleiri úr
Skjöldungum skelltu sér á heiðina
strax eftir samræmd próf og dvöld-
ust í Kút.
Nú er komið að því að halda í
Kútinn á ný. Ef menn vilja verður
Bæli einnig opinn. Skálagjald
verður 300 kr. nóttin en annars
þarf bara að koma sér upp á heiði
og taka með sér mat í svanginn.
Utilegan er opin 9. bekkingum
(sem taka samræmd próf á næsta
ári), heiðursgestunum 10. bekk-
ingum volgum úr samræmdu
prófunum sem og öðram drótt-
skátum á öllum aldri úr öllum fé-
lögum.
Öllum er bent á að hafa með sér
sunddót til að fara í heita baðið í
Reykjadal.
Dagskrá útilegunnar er algjör-
lega undir framkvæði þátttakenda
komin, m.ö.o. allt getur gerst! Era
dróttskátar hvattir til að skrá hjá
sér og undirbúa alla skemmtilega
dagskrárliði sem þeim koma í
hug.“
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppbod munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi
15, Vestmannaeyjum fimmtudaginn 7. maf 1998, kl. 9.30
á eftirfarandi eignum:
Ashamar 28, þingl. eig. Guðlaugur K. Kristófersson, gerðarbeiðandi
^vggingarsjóður ríkisins.
Áshamar 36, þingl. eig. Björn Geir Jóhannsson, gerðarbeiðendur
Sparisjóður Rvikur og nágr. og sýslumaðurinn i Vestmannaeyjum.
Áshamar75,1. hæð E, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Vestmannaeyja,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Boðaslóð 7, efri hæð, þingl. eig. Hreinn Sigurðsson, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins.
Goðahraun 24, 50% eignarinnar, þingl. eig. Guðmundur Elmar Guð-
mundsson, gerðarbeiðandi Tréverk ehf.
Hásteinsvegur 32, þingl. eig. Baldur Þór Bragason, gerðarbeiðandi
Gjaldtökusjóður.
Heiðarvegur 20, þingl. eig. Brynhildur Brynjólfsdóttir, gerðarbeiðandi
Vestmannaeyjarbær.
Heiðarvegur 60, kjallari, 35% eignarinnar, þingl. eig. Hjálmar Elias
Baldursson, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisst. rikis.
Hilmisgata 1, efsta hæð, þingl.eig. Þórarinn Grétar Ómarsson, gerð-
arbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisst. rikis.
Kirkjubæjarbraut 16, þingl. eig. Jón Ólafur Ólafsson, gerðarbeiðandi
BV9gingarsjóður rlkisins.
Sólhlíð 3, efri hæð, 2 geymslur í kjailara, þingl. eig. Hannes Guðlaugs-
son, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Vestmannabraut 52, austurendi (50%) þingl. eig. Kristján Guðmunds-
son og Kristín G. Steingrímsdóttir, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Vestmannabraut 72, þingl. eig. Guðný Sigriður Hilmisdóttir, gerðarb-
eiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisstofnun ríkisins.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
28. apríl 1998.
PUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur 1998
Reykjavíkurdeildar SÍBS verður
haldinn miðvikudaginn 20. maí kl. 17 í Múla-
lundi, Hátúni 10c. Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffi og með því. Mætum öll!
Stjórnin.
Aðalfundur
Vélbátaábyrgðarfélags ísfirðinga verður
haldinn laugardaginn 9. maí nk. á Hótel ísafirði
kl. 13.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Skráningarstofunnar hf. verður
haldinn fimmtudaginn 7. maí nk. kl.16 í matsal
fyrirtækisins á Hesthálsi 6—8 í Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um að félaginu sé heimilt
að kaupa allt að 10% eigin hluti samkvæmt
55.gr. laga um hlutafélög.
3. Tillaga um breytingu á samþykktum félags-
ins.
4. Önnur mál löglega upp borin.
Dagskrá fundarins, ársreikningurfyrir 1997
og skýrsla endurskoðenda munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund.
Tónleikar
Frímúrarakórsins
Frímúrarakórinn heldur sína árlegu tónleika
í Regluheimilinu við Skúlagötu, sunnudaginn
3. maí nk. kl. 17.00.
Kórinn mun flytja fjölbreytt úrval innlendra
og erlendra laga. Einsöngvarar verða: Eiríkur
Hreinn Helgason og Friðbjörn G. Jónsson.
Tónleikarnireru opnirfrímúrarabræðrum og
gestum.
Miðar verða seldir fyrir fundi í vikunni
kl. 18—19 og við innganginn.
Slysavarnafélag
íslands
(fgreiðsla skrifstofu Slysavarnafélags íslands
erður opin frá kl. 08.00—16.00 tímabilið
. maí—1. október 1998.
Slysavarnafélag íslands,
Grandagarði 14, Reykjavík.
Aðalfundur
Aðalfundur íslenska kortagerðarfélagsins verð-
ur haldinn þriðjudaginn 12. maí nk. kl. 20.00
í stofu 202 í Odda, Háskóla íslands.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Snæfellingar
og Hnappdælir
Fjölskyldudagur Félags Snæfellinga og Hnapp-
dæla verður sunnudaginn 3. maí nk og hefst
að lokinni guðsþjónustu í safnaðarheimili
Áskirkju kl. 15.00. Boðið verður upp á kaffi að
lokinni messu.
Aðalfundurfélagsins verður haldinn í húsi
Barðstrendingafélagsins, Hverfisgötu 105,
fimmtudaginn 7. maí nk. k. 20.30.
Stjórnin.
Fundarboð
Umræðufundur um sjávarnytjar jarða verður
haldinn á bókasafni Bændasamtaka íslands
í Bændahöllinni mánudaginn 4. maí nk. og
hefst fundurinn kl.14:00.
Nánari upplýsingar veitar.
Bændasamtök íslands.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 = 1794298 = 8V2 III.
I.O.O.F. 9 - 1794298V2 = 9.O.
I.O.O.F. 7 = 18004298’/2 =
Landsst. 5998043019 VIII GÞ
□ GLITNIR 5998042919 I Lf.
Frímúrarareglan
Netfang: isholf.is./frmr
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
____' KRISrTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58.
Samkoma i kvöld kl. 20.30. Páll
Friðriksson, Helgi Elíasson og
Ástráður Sigursteindórsson taka
til máls. Allir velkomnir.
Munið kaffisöluna á 1. maí.
Aðalfundur
Sálarrannsóknarfélags Akraness
og Borgarfjarðar verður haldinn í
dag, miðvikudaginn 29. apríl, í
húsi félagsins á Bjarkargrund 28.
Fundurinn hefst kl. 20.00.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
FERÐAFÉIAC
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Ferðabók Konrads Maurers
í tilefni 175 ára ártíðar Maurers í
dag 29. apríl, er tilboð á ferðabók-
inni kr. 3.900 til loka næstu viku.
Seld á skrifstofunni i Mörkinni 6.
Árbók Ferðafélagsins 1998 er
komin út. Geristfélagar og eignist
þar með glæsilega og fróðlega
bók. Hún nefnist Fjallajarðir og
framafréttur Biskupstungna.
Esjufjallaferð 30/4—3/5.
Brottför kl. 19.00. Gist í skála.
Snæfellsnes-Snæfellsjökull,
1.—3/5. Ný ferð. Brottför kl. 8.00.
Gist á Lýsuhóli. Ferðir eru kynntar
í textavarpi bls. 619 og heima-
síðu: http://www.fi.is
TILKYNNINGAR
Áríðandi — Áríðandi
Mannréttindi eru brotin á mér í
Noregi og ég þarfnast íslensks
rikisborgararéttar sem fyrst.
Kannski getur þú hjálpað mér?
Mér skilst að ísland takl ekki á
móti pólitískum flóttamönnum.
Ég er 35 ára gamall - og er alveg
I lagi. Sendið bréf til:
Werner Winther, N-6270,
Brattvaag, Noregi.